Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 14

Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 14
Ti h O ni ah oriA h s, i-v- ,+o*n 14 B - DAGUR - föstudagur 17. desember 1993 Tónlistin hefurfylgt Sigríði Guðmundsdóttur Schi- öth alla tíð. Tónlistin hefur verið hennar líf og yndi og þeir eru ófáir sem hafa notið tilsagnar Sigrtðar á því sviði. Starfsdagurinn er orðinn langur og margir áratugir í þágu tónlistargyðjunnar eru að baki. Arið 1949 tók Sigríður að sér stjórnun Kórs Grundar- kirkju í Eyjafjarðarsveit og honum stjómaði hún í síðasta skipti í messu í Grundarkirkju 14. nóvember sl. Eftir sem áður sveiflar Sigríður tónsprotanum á æfingum hjá Kór aldraðra á Akureyri. Blaðamaður átti spjall við Sigríði á heimili hennar við Þórunn- arstrætið á Akureyri. Að sjálfsögðu var tónlistin meginþema viðtalsins. Já, blessaður vertu, ég fékk tónlistina í vöggu- gjöf. Ég er af Reykjalíns- ættinni, sem er mikið söngfólk. Móóir mín söng ágætlega og pabbi var líka tónelskur. Frá því ég man eftir mér var mik- ið sungið á ntínu heimili og þaó þótti í mikið ráðist á þeim tíma þegar pabbi keypti stofuorgelið. Ég hreifst strax af tónlistinni sem krakki heima á Lómatjöm og ég fylgdist með tónlistarnámi systra minna, sent iæróu hjá Ingimundi Arnasyni, en hann var þá ungur maóur á Grenivík. „...mikið óskaplega var ég grobbin“ „Ég hlustaði agndofa á systur mínar spila á orgelió og fljótlega langaói mig til þess að gera þetta sjálf og mikið óskaplega var ég grobbin þegar ég gat stautaó mig fram úr laginu „Hún var svo væn og rjóó“ í gamla söngvasafninu. Jóhanna heitin systir mín sagði mér svolítið til, en það varð úr að ég fór að sækja tíma til Akureyrar. Þá kunni ég skil á helstu undir- stöðuatriðunum og það auðveld- aói mér námið. Til að byrja nteð lærði ég á orgel, fyrst og fremst var ég hjá Gunnari Sigurgeirssyni. Nárnið nýttist mér ansi vel og ég myndara, og frú Ingibjargar frá Höfnum.“ / I héraðsskólann á Laugarvatni „Systkini mín höfðu farið á Laugaskóla og mér fannst meira sport að fara suóur á héraðsskól- ann á Laugarvatni. Þar var ég í tvo vetur. Þóróur Kristleifsson, tón- listarkennari og áhugamaður um tónlist, tók mér tveim höndum og þaó varð úr aó ég fékk að spila undir hjá skólakórnum á Laugar- vatni og Þórður lét mig síðan syngja sóló í laginu „Ég stóó um nótt vió stjórn á völtu fleyi“, eftir ísólf Pálsson. Þessu gleymi ég A Sigríður í hópi félaga í Kór Grundarkirkju. Myndin var tekin í Grundarkirkju árið 1992. Sigríður cr hér að stjórna Kór Grundarkirkju á kirkjukóramóti í Akureyrarkirkju árið 1958. ^ Sigríður hafði frumkvæði að ► stofnun Kórs aldraðra á Akureyri árið 1986. Hér er hún í hópi kórfé- laga. Mynd: Páll A. Pálsson. 4 Þessi mynd var tekin af Sigríði á Akureyri árið 1935. Heldur óskemmtilegt að hlusta á íalskan söng minnist þess að ég spilaði á orgel- ió í Laufáskirkju þegar yngsti bróðir minn, Valtýr, sem nú er lát- inn, var fermdur. A Akureyri dvaldi ég mikió hjá Guórúnu móóursystur minni og Snorra Sigfússyni, sem voru mik- ið músíkfólk. Um þaó leyti sem Björgvin Guðmundsson, tónskáld, stofnaði Kantötukórinn, vann ég, unglings- stúlkan, hálfan daginn í húsinu hjá þeim Guðrúnu og Snorra. Ég sló til og gekk í Kantötukórinn árió 1932. Segja má að þaó ár hafi ver- ið fyrsta alvöru ár Björgvins með Kantötukórinn og þá æfói hann Alþingishátíðarkantötuna, sem flutt var í Nýja bíói í mars 1933 viö undirleik tveggja píanóleikara, Vigfúsar Sigurgeirssonar, ljós- aldrei. Síóar rak Þórður mig út á gólfið rneð haröri hendi og skipaói ntér aó slá takt fyrir kórinn. Ég var auðvitað alveg dauðhrædd. En það er svo skrítió að þegar maður er einu sinni búinn að ganga í gegnurn slíka eldraun, þá er eins og það verði miklu auóveldara í næsta skipti.“ Kórstarf og stjórnun Að tveim vetrum liðnum á Laug- arvatni dreif Sigríður sig aftur norður í land og réðst að Barna- skólanum á Grenivík. Þar stjórn- aði hún telpnakór og tvöföldum kvartett á vegum íþróttafélagsins Magna. „Síðan fóru bræðurnir á Jarlsstöóum, allt ntiklir söngmenn, þess á leit við mig að ég æfði þá og stjórnaði. Þeir voru allir meó tenórraddir og bassinn var því hcldur lítilfjörlegur, þótt hann væri auóvitað rétt sunginn. Þennan vctur fékk ég ágætis æfingu í að æfa og stjórna tónlist- arllutningi. Ég hafði þó á þessum tíma ekkert ákveðið að leggja tón- listina fyrir mig.“ Fannst mikið til Róberts A. Ottóssonar koma „Áóur en vió Helgi giftum okkur, þá var ég einn vetur í kvennaskól- anurn á Isafirói og einnig var ég í nokkra vetur á Akureyri. Ég söng eins og áóur meó Kantötukórnum, en 1937 eóa 1938 korn Róbert Abraham Ottósson til Akureyrar og stofnaöi kór og ég fór í hann líka. Mér fannst mikið til Róbcrts Abrahams koma. Hann lét mig - spjallað við Sigríði Schiöth, söngstjóra og organista á Akureyri syngja sóló með kórnum og á tón- leikurn fékk ég tækifæri til að syngja einsöngslög. Björgvin Guömundsson og Ró- bert Abraham voru urn margt ólík- ir. Björgvin fluttist til Akureyrar árið 1931 frá Vcsturhcimi. Hann var mikill tónlistarmaóur og samdi ákaflega fallcg lög. Eins og allir vita hefur það loðað við lista- fólk, ekki síst tónlistarmenn, að þeir gagnrýna hver annan. Björg- vin fór ekki varhluta af því, hann var töluvert gagnrýndur hér á Ak- ureyri. En Björgvin var afskaplega góð sál og ógleymanlegur öllurn sern meö honum störfuóu. Róbert Abraham var afar vand- virkur ntaður, sem ég lærði mikió af. Aö Björgvin ólöstuðum, þá hcld ég aó Róbert hafi kennt mér meira." Metnaður milli kóra Björg- vins og Róberts „Ég söng í kórnum hjá Róberti Abraham í fjóra vetur og Björgvin

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.