Dagur - 17.12.1993, Síða 15

Dagur - 17.12.1993, Síða 15
Il Föstudagur 17. desember 1993 - DAGUR- B 15 4 Sigríður söng lengi í Kantötukór Björgvins Guðmundssonar og blönduðum kór Róberts A. Ottós- sonar. Þessi mynd var tckin af síð- arncfnda kórnum á tónlcikum í Nýja bíói á Akureyri árið 1939. Sig- ríður er Ijórða frá vinstri í fremstu röð (til vinstri við Róbert Abra- ham). Við píanóið sitja frú Jórunn Geirsson og Asta Hallgrímsdóttir. Mynd: Eðvarð Sigurgeirsson. o ........... 1lí)IIIHI|||| 'IiiiiiiiiiiF >cx=>coc< lllllllllll, llllllllllllll \\m Sigríður Guðmundsdóttir, Robert Abraham Viðfangsefni: 1. Haendel (1685'—1759) .... Aria úr „Messias" 2. Gluck (1714—1787) •........ Aria úr „Orpheus‘‘ 3. Mozart (1756—1791) ........ Canzona úr „Brúðkaup Figaros“ 4. Mozart .................... Fantasia c-moll 5. Tvö þýzk þjóðlög .......... Radílsett af Brahms 6. Páll ísólfsson ............ „7 dag skein sól“ 7. Arni Thorsteinsson ........ „Þess bera menn sár“ 8. Mendelssohn (1809—1847) .. Sorgargöngulag 9. Brahms (1833—1897) ........ Staendchen, Feldeinsamkeit. 10. Wolf (1860—1903) .......... Der Tambour, Das verlassene Maegdlein. 11. Schubert (1797—1828) .... Fischerweiset Die Post, Wandrers Nachtlied. ---------- 9 ▲ Sigríður stjórnaði Kór Grundar- kirkju í Eyjafjarðarsveit í áratugi. Hún stjórnaði kórnum í síðasta skipti í mcssu í Grundarkirkju 14. nóvember sl. Þcssi mynd var tekin af Sigríði við það tækifæri. Mynd: Óskar Þór Halldórsson. 4 Sigríður er ekki bara þckkt fyrir kórstjórnun og orgclleik. Hér á ár- um áður söng hún einsöng og hcr er söngskrá cinsöngstónlcika hcnnar við undirlcik Róbcrts A. Ottóssonar í Nýja bíói á Akurcyri. A cfnis- skránni eru verk cflir mörg þckkt tónskáld. Árið 1967 stjórnaði Sigríður Kór Þingcyinga á Þingeyingamóti á Hótel Sögu í Reykjavík. Þarna eru mörg þckkt andlit. Nefna má hjónin Margrcti Bóasdóttur og scra Krist- ján Val Ingólfsson, Valdimar Gunn- arsson, menntaskólakcnnara á Ak- ureyri og Stcfán Pálsson, banka- ▼ stjóra Ilúnaðarbankans. í sjö ár á Húsavík Sigríður var ráóin organisti og kórstjórnandi á Húsavík áriö 1976 og þar starfaói hún til ársins 1983.1 þessi sjö ár stjómaöi Gyóa Halldórsdóttir, sem er kórstjórn- andi í Reykjavík, Kór Grundar- kirkju. „Arin á Húsavík voru alveg bráöskemmtileg. Auk þess að vera organisti við kirkjuna, þá kenndi ég við Tónlistarskóla Húsavíkur. Starfiö viö kirkjuna var heilmikió. A hverjum vetri hélt kórinn aö- ventutónlcika og síðan voru árleg- ir tónleikar á vorin.“ Reynslan dýrmætasti skólinn Sigríður sagöi að reynslan væri dýrmætasti skólinn. En nauösyn- legt væri að læra vel undirstöðuna og hún hafi auk grunnnámsins sótt fjöldann allan af góóum nám- skeiðum, m.a. námskeið sem embætti söngmálastjóra Þjóókirkj- unnar efnir til á hverju ári í Skál- holti. Sigríöur hefur auk tónlistar- kennslu og -stjórnunar fengist svolítið við að semja sönglög. Hennar kunnasta lag er trúlega Eyjafjarðarsveit, óopinber þjóð- söngur sveitarinnar, sem Sigríður geröi einnig texta við. „Hagyrð- ingar leika sér aó því aó búa til vísur. Því skyldi tónelskt fólk ekki búa til laglínur?“ spurði Sigríður og brosti. Ohætt er að segja að Sigríður hafi kornið víða við og hún lætur ekki deigan síga', þrátt fyrir aó 79 ár séu aó baki. Hún stjórnar eftir sem áður Kór aldraóra á Akureyri, sem var stofnaður árið 1986, og segir það bráóskemmtilegt verk- efni. Sigríður rifjar upp að árió 1974 hafi hún verið fengin til þess að stjórna sameiginlegum kór fyrir Austur- og Vestur-Húnavatns- sýslu. Tilefnið var þjóóhátíðaraf- mælió. Sigríóur segir aó þetta hafi verið afskaplega eftirminnilegt. Þá hefur hún lagt sitt lóð á vog- arskálina í starfi Kirkjukórasam- bands Eyjafjarðarprófastdæmis og fyrir allt það fómfúsa starf hefur sambandið heiðrað hana sérstak- lega. Af öðrum viðurkenningum sem Sigríður hefur fengið, ber hæst riddarakross hinnar Islensku fálkaorðu, sent hún fékk á nýárs- dag árió 1991. Sumir heyra ekki einn einasta hreinan tón En hver skyldi að mati Sigríðar vera lykillinn að því að verða góð- ur tónlistarmaður? „Sumum er ekki gefið aó heyra einn einasta hreinan tón. Aðrir eru aftur á móti afar næmir fyrir tón- listinni. Tónlistarfólk verður að vera næmt, það er mikilsverður eiginleiki. Einnig verður það að var ekki mjög ánægður þegar ég ákvað að lara alfarið yfir í kórinn til Róberts. Oneitanlcga var tölu- veröur metnaður á milli kóranna og ég man eftir því að það olli fjaðrafoki þegar Valdimar gamli Stephensen, læknir, skrifaði gagn- rýni í blöóin eftir fýrstu opinberu tónleika kórs Róberts Abrahams. Valdimar sagói eitthvað á þá leið að Akurcyri ætti þó einn listrænan kór. Björgvin mun hafa reiðst þessum ummælum. Eftir að Róbert fór aftur suður árið 1940, söng ég altur með Björgvin í Kantötukórnum, jal’n- vcl cftir að ég fluttist ásamt Helga, manni mínurn, árið 1948 fram í Hólshús. Árið eftir varð það úr að ég tók viö kirkjukórnum á Grund í Eyja- firði og honurn stjómaði ég, að sjö árum undanskildum, fram í nóv- ember síðastlióinn. Á árunum 1967 til 1970 kenndi ég börnum tónlist við Breióagerð- isskóla í Reykjavík og Lækjar- skóla í Hafnarfirói. Eg kom þó alltaf heim á jólum og páskum og spilaði þá við messur á Grund.“ leggja sig fram um að gera hlutina vel og hafa löngun til þess að læra alltaf meira og meira.íl Sigríður sagðist eiga erfitt með að gera upp á milii söngsins og kórstjórnunar. „Eg held ég geti ekki gert upp á milli þess að spila eða syngja sóló fyrir fullu húsi. Það var til dæmis ógleymanlegt þegar ég hélt einsöngstónleika í Nýja bíói á Akureyri við undirleik Róberts Abrahams. Mér fannst líka afskaplega skemmtilegt aó syngja f útvarp og á skemmtunum í Reykjavík." Heimilismúsík að deyja út Sigríður var innt eftir því hvers konar tónlist hún kynni helst að meta. „Eg á erfitt meó aó gera upp á niilli tegunda tónlistar. Ég skal segja þér að mér finnst mörg dæg- urlög reglulega falleg. Hins vegar kann ég ekki að meta þær hljóm- sveitir sem flytja pottaglamur, þar sem hvergi nokkurs staðar heyrist almennilegur tónn eða laglína. Slíkan hávaða þoli ég ekki. Ég viðurkenni það hins vegar að ég hlusta ekki nógu mikið á tónlist, en ég er nokkuð glögg að þekkja söngraddir í útvarpi. Verst þykir mér aö heimilis- músík er aó deyja út. Þegar ég var bam, þá kepptist fólk við að eign- ast harmoníum og á það var spilað þegar færi gafst. Á þessum tíma var hvorki útvarp né sjónvarp. Til- koma útvarpsins hefur einkum og sér í lagi haft mikil áhrif. Fólk er hætt að leggja sig sjálft fram um að læra að spila einföld lög.“ Vil að fólk syngi fallega og hreint Söngstjórinn Sigríður Schiöth hef- ur alltaf gert kröfur til síns söng- fólks. „Ég geri kröfur um að fólk syngi fallega og hreint. Mikilvægt er að röddinni sé rétt beitt þannig aö tónarnir verói ekki grófir og fólk dragi ekki seiminn á milli tóna. Ég viðurkenni fúslega að mér finnst ekki gaman að hlusta á falskan söng. Það er eitthvað það versta sem fyrir mig kemur að sitja undir fölskum söng. Þá líður rnanni næstum því eins og að vera komin á höggstokkinn,“ sagði Sigríður og skellihló. „Ég lenti einu sinni í því að vera vióstödd afskaplega virðulega athöfn vestur í Húnavatnssýslu með prestum og biskupum. Söngurinn fór í vit- leysu og allt varð rammfalskt. At- höfnin var svo virðuleg að það var ekki hægt aó stoppa! Ég þoldi ekki við og hafði mikið fyrir því að komast í gegnum mannþröng- ina og út úr kirkjunni!“ Kórstarf ekki metið að verðleikum Kraftar Sigríðar Schiöth hafa í gegnum tíðina verið helgaðir tón- listinni á einn eða annan hátt. Lokaorð þessa viðtals á Sigríður um starf kóranna víðsvegar um land, sem hún telur aó sé ekki metió að verðleikum. „Mér finnst kórastarf um allt land, bæði í kirkjum og utan kirkna, alls ekki nógu mikið metið í þjóófélaginu. Flettu dagblöðun- um og sjáðu allar íþróttafréttirnar! Heilu blöðin eru undir íþróttimar. Aftur á móti er sáralítið getið um allt það starf sem söngfólk leggur á sig. Fyrir nokkrum árum var hálfgert skammaryrði að vera í kirkjukór, en ég held að það hafi sem betur fer breyst á síðustu misserum.“ óþh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.