Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 29

Dagur - 17.12.1993, Blaðsíða 29
Föstudagur 17. desember 1993 - DAGUR - B 29 sKuiTL oLLum vidSKiptamonnum okkar otj öðrum Tíyfirðingum gleðilegra jóla og árs og jriSar á komandi ári Þökkum ánœijjulcíj viískipti á fiw sem er aS líða. ISLANDSBANKI Skipagötu 14 og v/Hrísalund / Eg sá mömmu kyssa jólasvein - er uppáhaldslagið mitt, segir jólasveinninn Kjötkrókur í viðtali við Dag Skyldi það vera þannig að einstakir jólasveinar eigi misjafnlega miklum vinsældum að fagna víðs vegar um landið? Það gæti verið. A Akureyri er Kjötkrókur án efa vinsælasti jólasveinninn. Hann hefur í f jöldamörg ár skemmt bæjarbúum, ásamt bræðrum sínum, við miklar vinsældir. Vörumerkið hans er hangilærið sem hann er með öllum stundum og honum finnst mjög gaman að gefa öðrum að smakka á því. Hrscðurnir Kjötkrókur, Hurðaskellir og Kertasníkir eru alltaf saman á ferð- um sínum til byggða og vinna saman að ölium jólaundirbúningi. Það er í mörgu að snúast hjá þeim bræðrum. Hér cru þeir studdir á tlugvell- inum í Grímsey, ásamt hópi barna úr eynni. Vegna vinsælda Kjötkróks, þótti ekki úr vegi aö fá hann í viðtal í jólablað Dags og hann var fyrst spurður að því hvort segja mætti aó Eyjafjarðarsvæðið væri hans heimavöllur? „Já, þaó er alveg óhætt að segja þaö, enda er okkar heimili hér í næsta nágrenni.“ Hvaó er svona sérstakt við þetta landssvæði? „Það eru fjöllin fyrst og fremst. Hér cru svo falleg fjöll.“ Alltaf á ferð með Hurða- skelli og Kertasníki Nú ert þú yfirleitt með einhverja af bræðrum þínum með þér. Hverjir eru það? „Það eru þcir Kcrtasníkir og Hurðaskellir. Vió erum alltaf saman og vinnum alla hluti saman, hvort heldur er við jólaundirbúninginn cöa eitthvað annað.“ Þú ert búinn að vera á ferðinni lcngi. Hefur rnargt breyst á þessum árum? „Það hefur nrargt breyst í gegn- um tíðina og sérstaklega hafa húsin breyst mikið. Húsin eru orðin svo há að þaó verður alltaf erfiðara og crfiðara að gefa í skóinn. Við leys- um þaó vandamál eins og önnur og börnin þurl'a ekki að hafa nokkrar áhyggjur að því að vió náurn ekki til þeirra. Þau þurfa hins vegar að sjá til þess að gluggarnir séu opnir og þá komust við að skónum. Við not- urn m.a. kaðla með krókum og híf- um okkur þannig upp í glugga sem eru hátt uppi. - Og þó viö séum kannski heldur stirðari nú cn í fyrra, gengur þetta alveg bærilega." Týndi Kertasníki Hafa börnin breyst - og ef svo er, þá til hins betra eóa verra? „Þetta cru alltaf sömu góðu börnin en þau eru þó misjafnlega óþekk. Við fylgjumst hins vegar mjög vel með þeim og þau sem ekki eru þæg og góð, fá skemmda kart- öflu í skóinn og vita þá um leió aó þau hafa ekki staöið sig nógu vel.“ Hvaða atvik frá heimsókn þinni til byggða eru þér eftirminnilegust? „Það rosalcgasta sem ég hef lent í á ferðum mínum til byggða, var þegar ég týndi Kertasníki bróður mínum. Þá vorunr við staddir í Kjarnaskógi að sækja jólatré fyrir karlinn og kerlinguna en þau fá allt- af jólatré í hellinn sinn, sem þau skreyta á meóan vió bræðurnir heimsækjum börnin. Því eins og all- ir vita vill enginn fá þau hjónakorn- in í bæinn um jólin. Já og þama í Kjarnaskógi hitti Kertasníkir bróðir, konu á fallegum bíl og fékk far með henni. Það skipti engum togum aó konan keyrði beint út á flugvöll og fór með hann til Grímseyjar og hitt- um við hann sáralítið um þau jól. Krakkarnir í Grímsey voru að von- um ánægð, enda höfðu þau ekki séð jólasvein lengi.“ * Avextir hollir og góðir Hvað sækir þú margar jólaskemmt- anirfyrirhverjól? „Ja, þær eru býsna rnargar skal segja þér og ég hef reyndar ekki tölu á þeirn mikla fjölda. En þær eru margar, það er alveg klárt.“ Hvað gerið þið helst á þessum skcmmtunum? „Nú við syngjum fyrir bömin, færum þeim gjafir og dönsum með þeirn í kringum jólatréð. Við erurn nú mest fyrir það að gefa börnunum ávexti, cnda eru ávextir svo hollir og góðir og ekki síst fyrir tennumar, sem allir krakkar þurfa að passa mjög vel. En stundum fá þau pínu- lítið af sælgæti." Þú ert t'rægur fyrir að vera með hangilæri öllurn stundum. Hvaðan færðjrú hangikjötið? „Eg hef fengió hangilærin hjá Kaupfélagi Eyfirðinga fram að þessu en nú fæ ég þau frá Kjarna- fæði á Akureyri.“ Hvað fara mörg læri um jólin? „Þaó fara þctta 25 læri urn hver jól.“ Eru börnin hrifin af hangikjötinu þínu? Hurðaskellir skemmdarvargur „Já, en að vísu misiafnlega hril'in. Surn borða hangikjötió með bestu lyst en önnur geyma bitann undir tungunni og spýta honum svo út úr sér þegar þau koma heim. Það kern- ur hins vegar fyrir að börnin úr sveitinni gefa rnér heimareykt læri og það cr nijög ánægjulegt. Það kemur einnig fyrir að Kertasníkir fái kerti að gjöf cn það er aftur minna um Hurðaskellir fái gefins hurðir." Er Hurðaskellir mikill grallari? „Já, hann er ógurlegur skemrnd- arvargur og við þurfurn hreinlega að setja hann í bönd annað slagió.“ Hvaða matur er í mestu uppá- haldi hjá þér? „Mér finnst nú hangikjötió alltaf best en hins vegar er í lagi aó fá cina og eina rúllupylsu. Nú einnig fæ ég saltkjötsbita annaó slagió og svo hafragrautinn.“ Boröaróu ekki fisk? „Nei, ég geri lítið af því, enda erfitt að ná í fisk. Hann er ekki veiddur til fjalla og þar er enginn kvóti.“ Býr að Súlumýrar- braut 376 Hvar áttu hcima Kjötkrókur? „Ég á heima á Súlumýrarbraut 376“ Og hvar cr þaó nákvæmlega? „Það er hérna uppi á Súlumýrun- urn. Þú ferð þama upp eftir og svo til hægri og svo til vinstri og svo aftur til hægri, labbar svo beint áfram, ferð svo aftur til hægri og þá kcmurðu aó hellinum okkar. Þama er stór steinn, sem heitir Staki klett- ur og þetta er þar rétt innan vió." Hvernig gengur lífið fyrir sig heima hjá þér? „Það gengur alveg bærilega þakka þér fyrir. Hins vegar er ekki laust við að það sé kominn svolítill leiði í okkur þegar fcr að vora. Allt okkar líf snýst um jólin og jólaund- irbúninginn. Við iaum að sofa í einn dag eftir að konium heim á þrett- ándanum en síðan hefjumst við handa að undirbúa næstu jól og þannig gengur þetta ár cftir ár.“ Tökum létta æfingu á jólalögunum Hlakkar þú til jólanna? „Já, þaó er ekki laust við það og maður kemst alltaf í jólaskap, þegar styttist í að maður fari að heimsækja öll börnin. Þá förum við bræðurnir í það aö taka létta æfingu á jólalögun- urn, þannig aó vió séum klárir í slaginn á jólaböllunum." Fáið þið jólasveinarnir sjálfir jólagjafir? „Nei,. þaó fer nú lítið fyrir því. Þó kernur það fyrir að einn og einn krakki stingi einhverju aó okkur og auðvitaö lítum við á það sem gjaf- ir.“ Hvaóa jólalag er í mestu uppá- haldi hjá þér? „Það er lagið; Ég sá mömmu kyssa jólasvein, ég er afskaplega hrifinn af því lagi og Hurðaskellir bróóir alveg tryllist þegar hann heyrir það lag. Kertasníkir er aftur hrifnari af laginu; Það á að gefa bömum brauð..., en það er líka fyrir það að hann er enn svo hræddur við karlinn og kerlinguna." Heldur þú að þessi jól sem nú eru aó ganga í garó, verði eitthvaó öóru vísi en önnur? Of mikið umstang í kringum jólin „Já, ég er hálfhræddur um það. Ég hcld að þaó verði ekki eins mikið umstang í kringum jólahátíóina nú og ég segi bara sem betur fer. Fólk verður oft hálfvitlaust fyrir jólin, það þarl' að nrála hátt og lágt, það þarf breyta og það þarf að kaupa ný húsgögn. Það er eins og fólk haldi að jólin komi ekki öðru vísi en þaó er mesta firra. Ég held að fólk hafi almennt rninna á milli handanna en það á alls ekki að koma að sök ef fjölskyldurnar eru samhentar.“ Er eitthvaó sem þú vilt segja við bömin að lokum? „Bömin þurfa aó vera þæg nú sem endranær og vera góð vió for- eldra sína. Hjálpa til við húsverkin og reyna að líta á jólin á einhvem annan hátt en að þau snúist bara um einhverjar gjafir. Og ekki mega þau gleyma því að hugsa um Jesúbarnið. Loks vil ég óska þeini öllum gleði- legra jóla og ég vonast til þess að sjá þau scm flest um jólin.“ KK „Hclstu breytingarnar sem átt hafa sér stað í gcgnum tíðina, eru hvað húsin eru orðin há,“ segir Kjötkrókur. Hér hafa þeir bræður fengið tæknina í lið með sér við að koma góðgæti til barnanna.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.