Dagur - 21.05.1994, Blaðsíða 4

Dagur - 21.05.1994, Blaðsíða 4
4- DAGUR- Laugardagur21. maí 1994 ÚTGEFANDI: DAGSPRENTHF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON.(íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON. LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Enn einn sigurmn Kristján Jóhannsson, tenórsöngvari, heldur áfram að gera það gott úti í hinum stóra heimi sönglistarinnar. Samkvæmt nýjustu fréttum hefur hann nú gert samning við það fræga óperuhús Covent Garden í London um að syngja þar í 4-6 sýningum á Grímudansleik eftir Verdi næsta sumar. Þetta er enn ein staðfestingin á því hversu langt Kristján hefur náð í list sinni. Fyrst var það Scala óperan á Ítalíu, síðan Vínaróperan, því næst Metropolitan í New York og nú síðast Co- vent Garden í London. Þetta er hreint frábær ár- angur sem staðfestir klárlega að Kristján er í fremstu röð tenórsöngvara í heiminum í dag. Líklega hafa fáir átt von á því þegar Kristján var að syngja forðum daga með karlakórsfélögum sínum á Akureyri, að eftir nokkur ár yrði hann í hópi bestu tenórsöngvara heims. En með mikilli elju og trú á því að hægt væri að ná toppnum, þá hefur árangurinn ekki látið á sér standa. Til ham- ingju Kristján! Lýðveldíshlaupið Síðastliðinn sunnudag hófst svokallað lýðveldis- hlaup. Um er að ræða landshlaup, sem Ung- mennafélag íslands stendur fyrir í samvinnu við samtökin íþróttir fyrir alla og heilbrigðisráðu- neytið í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins. Hlaupið stendur í 99 daga, til 21. ágúst nk. Þetta er gott framtak ungmennafélagshreyf- ingarinnar sem ber að fagna. Allt sem stuðlar að hollri hreyfingu og útivist er auðvitað af hinu góða. Oft er það nú svo að það þarf sérstakt átak til þess að drífa fólk af stað og nú er tækifærið að taka fram íþróttaskóna og ganga, skokka eða hlaupa. Ástæða er til þess að hvetja unga sem aldna að taka þátt og leggja rækt við heilsuna. í auglýsingu um lýðveldishlaupið á Blönduósi er komist svo að orði og undir þau skal tekið: „Lýð- veldishlaupið er ætlað öllum, ungum og gömlum, feitum og mögrum, frambjóðendum og meðmæl- endum og jafnvel þeim sem veilir eru fyrir hjarta. “ I UPPAHALDI ísumar - segir Baldur Guðnason, framkvæmdastjóri flutningasviðs Samskipa Baldur Guðnason, framkvœmda- stjóri flutninga- sviðs Samskipa og stjórnarfor- maður Flutningamiðstöðvar Norðurlands hf, cr ungur Akureyringur sem búið hefur á suðversturhorni landsins síðustu ár. Baldur starfaði samhliða námi í VMA, í gamla Iðnaðarbankanum á Akureyri, áður en hann hélt í víking. Hann lék einnig knattspyrnu með 1. deildar- liði Þórs á þeim tíma. Baldur flutti í Garðabœinn og réðst til starfa hjá Skipadeild Sam- bandsins og lék þá m.a. með FH í Hafnarfirði í 1. deild- inni í knattspyrnu. Hann var svo ráðinn svœðisstjóri Skipadeildár Sambandsins í Rotterdam í Hollandi og síð- ar í Hamborg í Þýskalandi. Hann starfaði erlendis í tœp 5 ár en kom heim í ársbyrjun 1992. Síðan þá hefur Baldur starfað hjá Samskipum í Reykjavík og hann tók við starfi framkvœmdastjóra þá um haustið. Baldur er í sam- búð með Örnu Alfreðsdóttur frá Akureyri og eiga þau 5 ára dóttur og þá á Arna von á sér í nœsta mánuði. Hvaðgerirðu helstí frístundum? „Eg er með fjölskyldunni og stunda alls kyns íþróttir og úti- vist.“ Baldur Guðnason. Hvaða matur er í mestu uppálialdi hjá þér? „Islenskt iambakjöt.1' Uppáhaldsdrykkur? „Akureyrarvatn og gott rauó- vín." Ertu hamhleypa til allra verka á heimilinu? „Nei, það er ég ekki. Ég sé um bílinn og konan um heimil- ió.“ Er heilsusamkgt líferni ofariega á baugi hjá þér? „11“ Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? „Dag og Morgunblaðið og einnig les ég fagtímarit um flutn- ingamál." Hvaða bók erá náttborðinu hjá þér? „Það cr ný bók scm hcitir Viðskiptavinurinn." Hvaða hljómsveitltónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? „Bruce Springsteen, eftir að ég sá hann á hljómleikum í Rott- erdam." Uppáhaldsíþróttamaður? „Sigurbjörn Viðarsson, fyrr- um félagi minn og keppinaulur um bakvaróarstöðuna í Þórslið- inu.“ Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi? „Fréttir og íþróttir." Á hvaða stjórnmálamanni hefur þú mest álit? „Aó mínu mati er Halldór Ás- grímsson ábyrgasti stjórnmála- maður landsins og því nefni cg hann.“ Hvar á landinu vildirðu helst búa ef þú þyrftir að flytja búferlum nú? „I nafla alheimsins, á Akur- eyri." Hvaða hlut eðafasteign langar þig mest til að eignast um þessar mund- ir? „Mig langar að eignast tjald- vagn.“ H vað œtlarðu að gera í sumarleyf- inu? „Ferðast um ísland." Hvað œtlarðu að gera umhelgina? „Vinna í garðinum heima og grilla með nágrönnunum." KK VISNAÞATTUR ARNI JONSSON Fyrir skömmu komst ég yfir ein- staka Ijóðabók eftir Þorberg Þor- steinsson frá Gilhaga. Nokkuð hefur birst eftir Þorberg í þessum þáttum mínum, en hér á eftir koma margar góðar vísur, sem vert er aó rifja upp. Fyrstu vísuna nefnir Þorbergur „Áð loknum degi“: Dýrara en keypti síst ég sel, sumt því litlu nemur, mig langar oft að lifa vel og lifa þá heldur skemur. Næturgreióa nefnir hann næstu vísu. Víða liggur vegur minn, vís er laga kraftur, saklaus var ég settur inn, sekur kom ég aftur. Svo yrkir Þorbergur til kunn- ingja síns: Því er innst íallra vitund þrykkt, hvað eðlisglópar lialla réttu máli, það er eins og andleg skítalykt aföllu sem að kemur nálœgt Páli. Stígvélakreppa: Eg held nú bara heim til mín, hefþar mörgu að sinna. Að stígvélunum gera grín glansskór vina minna. Næstu þrjár vísur eiga það sammerkt, að þær eru ortar á bör- um, annarsvegar á Mánabar, en hins vegar á Vatnsnesbar: Þar var mœlt afþrótti og krafti, það var orðið nieira en grín, hann sagði bara: „Haltu kjafti, helvítisfyllibyttan þín. “ Kátt er oft upp við Krossinn, það kostar víst eitthvað þar, þó kysi égfrekar en konur kaffið á Vatnsnesbar. Þar eru mönnum styttar stundir, stjórnmálin rœdd og tíðarfar, áður en krakkinn kemur undir er kaffið drukkið á Vatnsnesbar. Og um annan góðan vin sinn orti Þorsteinn næstu tvær vísur: Þrátt ber Láki þungan svip, þegar streymir móti, karlinn er eins og kolaskip í kafaldsölduróti. Oft ber Láki léttan svip, í Ijúfu kvennamóti, þá líður hann eins og lystiskip í lífsis ölduróti. Að lokum fer hér eftir eitt lítið ljóð sem Þorsteinn nefnir „Estor- íur“: Gesta er leið um gluggan minn, gerður er veislustaður, hugar að draugum húsbóndinn og hundurinn geðbilaður. Löggunni vildi hún brugga blandið og bjóða til veislu sœt og hlý, en slík var ástin á eigin hlandi, að hún œtlaði varla að tíma því. Með söknuði kvöddu þau salureit með sœngina og tekjur nógar, en erfið mun ncesta eftirleit, því Adani er horfinn til skógar. Ennþá gróa grösin vís, þó gusti og snjói ífjöllin, upp úr skógar rökkri rís rummungsþjófahöllin. Eftir Valdimar Benónýsson eru næstu vísur, ortar um nokkur tækniundur nútímans. Þær fyrstu yrkir Valdimar, er hann sá Reykjavíkurhöfn fyrsta sinn: Höfuðstaðarhöfn ég tók heims er raðar snilli, flugs með hraða ég þar ók anganblaða milli. Sólskinstundir sá ég þar sízt er undan grefur, mín sem lundin munaðar minnisbundið hcfur. Oft þó reið og digur dröjjn dögum neyðar hóti, fögrum skeiðum friðarhöfn faðminn breiðir móti. Um undramátt flugvélanna yrk- ir Valdimar: Hreyfill glyntur laus við land loftsins brimar voga. Fjaðurlima fleytt er grand fram á himinboga. Svölum þráin ferðafier flugvél á að bruna fram um háa heiðið nœr hlaupa fráum muna. Og um hina ógurlcgu bíla- mergð: Eins og síli fljúgiflaum fljótt sem pílur toga, hundruð bíla stika straum strcetis Nílarvoga. Um hitaveituna yrkir hann: Varmalanda veitt er yl vits afanda kcenum út um þandar ceðar til allra handa í bcenum. Þá finnst honum raforkuvcrin ekki síóur athyglisverö: Vatnagyðja steins á stól starfans viðjar fjötra. Rafalsiðju töfratól trölls í smiðju nötra. Þúsund hrossa gildi gaf glœsiblossinn rjóði. Tceknihnossið alið af úrvals fossa stóði. Merkjasteini mcetum frá manndóms bein er ganga. Fram um rein þar ekrum á aldingreinar hanga. Norðurbaug í scevarsjóð Sólarlaug þó liverfi. Hvessir augu röðulrjóð rafalstaugakerf. Að lokunt lýsir Valdimar grjót- námi og malartekju: Grjótnámsiðju staflar stáls stuðlum ryðja fjalla. Kjcilkar bryðja, kyngir háls kjaflasmiðju salla.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.