Dagur - 21.05.1994, Síða 19

Dagur - 21.05.1994, Síða 19
Laugardagur 21. maí 1994 - DAGUR - 19 ÆSKUBLOMI SÓLEY RANNVEIú HALLÚRÍMSDÓTTIR lugfreyjur Oddeyrarskóla „Hvar hafa dagar lífs þins lit sínum glatað?" Ég er búin aó tala við fullt af ungu fólki núna undanfarið. Ungmennin hafa öll haft eitthvað sérstakt fram að færa, hvert og eitt, en það sem sameinar þau öll er eink- um þrennt: Bjartsýni, gleði og það allra besta; einlægnin í því sem þau eru að segja frá. Þær komu líka með það beint frá hjartanu. Þær eru 10 ára gamlar, eru í Oddeyrarskóla og heita Jónbjörg S. Hann- esdóttir og Jóna Björk Viðarsdóttir. - Hvernig líður ykkur í Oddeyrarskóla? Jónbjörg S.: „Mér líður vel hérna. Ég byrjaói í skólanum ’92 en var áöur í Lund- arskóla með 23 krökkum í bekk. Núna er- um vió tólf, það er miklu rólegra að vera hér.“ Jóna Björk: „Ég byrjaði í Síðuskóla. Þaó er rosalega stór skóli og það voru svo mikil læti í tímum að ég gat ekki einbeitt mér. Vió erum fá í bekknum hérna og það er miklu betra.“ - Þið búið ekki á Eyrinni, keyrir einhver ykkur í skólann? JS: „Þaó kemur skólavagn að ná í okk- ur.“ JB: „Þetta er svona lítill kálfur." - Finnst ykkur veturinn hafa verið skemmtilegur? JB: „Já, já. Nema á sumardaginn fyrsta. Þá fór að leka of mikill vökvi inn í mjöðm- ina á mér, ég þurfti að leggjast inn og þaö var gerð aðgerð. Læknarnir héldu að þetta væri veirusýking, en hún var þá farin þegar aðgerðin var gerð. Svo þurfti ég að vera á hækjum í viku. Ég fór svo í skírnarveislu í Svarfaóardal. Það var mjög garnan." JS: „Mér fannst hann ágætur. Við í fjöl- skyldunni fórum mikið út saman í garð og bjuggum til brekkur og snjóhús, vorum að leika okkur saman. Svo kom einu sinni haglél, það var gaman. Ég fór líka í skírn- arveislu. Skírnin var í Akureyrarkirkju. Þaó var verið að skíra frænku mína og hún heitir það sama og kennarinn minn, Hólmfríður. „Kvíöi fyrir stafsetn- ingarprófinu" - Eigiö þió uppá- haldskennara skólanum? JS: „Já, það er sko Hólmfríður Ólafsdóttir. Hún fer mikió með okkur út úr skólanum, á bæjarskrifstofurnar, að skoða lögreglustöðina og sjúkrahúsið." JB: „Hólmfríður er langbest. í gær löbb- uðum vió á Greifann til aó sjá hvernig pizz- ur eru búnar til. Svo fengum vió okkur eina og var boðið upp á franskar, ís í eftirrétt, hatta og blöðrur. Það var frábært." - Er kominn hnútur í magann fyrir próf- in? JS: „Ég kvíði fyrir stafsetningarprófinu, en stærðfræði og lesturinn er í lagi.“ JB: „Skriftarprófið var í gær, það var létt. Ég er svo dugleg aö þetta gengur örugg- lega vel.“ - Eruð þið búnar að ákveða hvað þið ætlið að gera í sumar? JB: „Ég fer núna bráðum til Grímseyjar að heimsækja afa minn og skoða eyjuna. Svo fer ég seinna í sumarbústaó til Borg- arfjarðar. Kannski passa ég svo litlu systur mína sem er fimm mánaða." JS: „Ég fer í fermingarveislu í sumar. Svo fer ég í ferðalag til Egilsstaða, Borgar- fjaróar og í brúökaup til ísafjarðar. Mig minnir að það sé líka ættarmót, ég er ekki viss hvar.“ „Hlakka rosalega til sumarsins“ - Hafið þið ekki fullt af áhugamálum? JS: „Eg æfi fimleika og í sumar ætla ég aó stunda fótbolta með Þór að sjálfsögðu. I skólanum hef ég mest gaman af kristin- fræói og stærðfræði.“ JB: „Ég hef mikinn áhuga á hesta- mennsku og skíóum, en ég hef ekki mátt stunda þaó neitt undanfarið. Svo finnst mér gaman að fara í sveitina (Skagafjörð) til afa og ömmu. í skólanum finnst mér mest gaman í leikfimi og sundi.“ - Eruó þið búnar aó ákveða hvað þið ætlið að læra í framtíóinni? JS: „Nei, það kemur í Ijós. Ætli ég endi ekki sem flugfreyja, ég er svo gáfuð.“ JB: „Mig langar aó verða flugfreyja eóa rosalega flink hárgreiðsludama." - Eitthvaó sem þið viljið segja aó lokum? JS: „Ég ætla aó vera glöð og bjartsýn og vona að fjöl- skyldan mín verói það líka.“ JB: „Ég hlakka rosalega til sumarsins." - Ég vona aó geisl- ar sólarinnar elti ykkur í sumar, stelpur. Takk, takk. Kynningarverð! í tilefni þess að stúlknavika verður í fyrsta sinn i sumar bjóðum við 6-12 óra stúlkum vikudvöl við Ástjörn dagana 18.-24. júní á sérstöku kynningarverði, eða aðeins kr. 9.500,- að viðbættu staðfestingargjaldi. 6-12 ÁRA STÚLKUR OG DRENGIR Dugana 25. júni-15. júli dvelja bæði stúlkur og drengir við Ástjörn. 6-12 ÁRA DRENGIR Dagana 16. júli-12. úgúst dvelja drengir við Ástjörn. 13-17 ÁRA UNGLINGAR Vikuna 13.-19. ógúst dvelja unglingar við Ástjörn. Dvalartimi er allt fró 1 viku og upp i 7 vikur. Nónari upplýsingar í sima 96-23238 (Bagi Pétursson, forstöðumaður), 96-21585 (Magnús og Árni) og 96-21509 (Þorsteinn Pétursson). Sumarheimilil Ásljörn er i þjóð- garðimim i Ásbyrgi og er krislilegl sumarheimili lyrir drengi og slúlk- ur. Ijörain og skógurinn umhverlis veitir ólæmandi möguleika lil leikja og úliveru lyrir börn og unglinga. Við Ásljörn eru Ijölmargir bálar al ýmsum gerðum, knattspyrnu- og körfubollavöllur, og frjálsar íþróllir, kvöldvökur, löndur, biblíulímar o.m.fl. er á dagskránni. Heslaleiga I er i næsta nágrenni. Verð pr. viku 11.500,- kr. Stoðfestingnrgjold bætist við (1.000 - 2.000 kr.). 10% syslkinaofslátlur og 5% slaðgreiðsluafsláltur. VISA, EUR0 og Samkort. J*JM| Maöurinn minn, ÁRNI AÐALSTEINN ÞORLÁKSSON, Skipasmíðameistari, Suðurbyggð 4, Akureyri, sem lést 15. maí á Landsspítalanum verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 24. maí kl. 13.30. Anna Kristín Zophoníasdóttir. Ástkaer eiginmaður minn og faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi INGÓLFUR ÁRMANNSSON, Furulundi 1d, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 25. maí kl. 13.30 Bára Ásbjarnardóttir, SigþórÁ. Ingólfsson, Guðlaug Jóhannsdóttir Gunnlaugur Á. Ingólfsson, Ragnar Ingólfsson., Elísabet Skarphéðinsdóttir börn og barnabörn Maóurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, LEÓ GUÐMUNDSSON, Aðalstræti 3, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar, þann 8. maí. Jarðarför- in hefur farið fram f kyrrþey aó ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarfclki lyfja- deildar FSA. Þökkum auðsýnda samúð. Guð blessi ykkur öll. Gyða Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn, og barnabarnabörn. Það er þetta með bilið milli bíla...

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.