Dagur - 21.05.1994, Qupperneq 20
Mývatnssveit:
Þrestir reyna
hústöku til
hreiðurgerðar
Sigfríður Steingrímsdóttir býr
í þorpinu í Mývatnssveit og
hefur staðið í mikilli varnarbar-
áttu við nýbúa sem laumast inn
um glugga á húsi hennar á nótt-
unni og gera ítrekaðar tilraunir
til að byggja sér ból í stofu og
eldhúsi. Um er að ræða tvær
þrastafjölskyldur, önnur hefur
gert fjórar tilraunir til hreiður-
gerðar í eldhúsglugganum en
hin tvær tilraunir til að gera sér
hreiður í hengiplöntu í stofunni.
Sigfríður segir að óvenju mikið
sé af þröstum og smáfuglum urn-
hverfis húsið í vor. Þrestir séu
vanir að verpa við húsið og á þak-
inu en þeir hafi aldrei leitað inn
eins og núna. Telur hún hclst að
fuglamir séu að leita að öruggu
skjóli fyrir köttum í nágrenninu.
Sigfríður segist ekki mikið
verða vör við fuglana á daginn, en
þeir eru þeim mun athafnasamari
á nóttunni. I fyrstu fann hún strá
og kusk í gluggakistum sem hún
skyldi ekki hvaðan kæmi. Síðan
fór hún að finna hreiðrin. Fuglam-
ir tína ýmislegt til í hreiðurgerð-
ina, bæði utan húss og innan: strá,
snærisspotta, fölnaða grenigrein
úr jólaskrauti, bréfaræmur, garn-
spotta sem dreginn hafði verið úr
sláturkepp, ýmislegt má nýta.
Sigfríður hefur lokað gluggan-
um sem þrestirnir komu inn um,
en þá koma þeir bara inn um
næsta glugga og endurbyggja
hreiðrin sem hún hefur verið að
henda út. Sigfríði finnst þessi þrá-
Það virðist ætla að verða
ágætis veður um hvíta-
sunnuhelgina. Samkvæmt
spá Veðurstofunnar verður
hæg breytileg átt alveg fram
á þriðjudag, bjartviðri um
nánast allt land en þó þoku-
bakkar á annesjum. Hiti
verður á bilinu 6-13 stig,
hlýjast í innsveitum.
hyggja þrastanna merkileg en er
ekki hrifin af að fá þrastahreiður í
stofuna og heldur að mikill sóða-
skapur fylgi ungafjölskyldum.
Hún segir ómögulegt að geta ekki
haft opinn glugga á húsinu, en er
staðráðin í að hrekja þrestina út.
Svo er framhaldið spuming um
þrjósku. IM
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
\4 KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23S65
- íslenskt
og gott
Byggðavegi 98
Opið til kl. 22.00 alla daga
JVC tækjaúrval
Loksins, loksins er hún komin
ný og endurbætt ’95 árgerðin.
JVC mx-s20 samstæða
★Tvöfalt kassettutæki ★Geislaspilari
★Tölvustýrður tónjafnari ★Útvarp
★Surround liljómur ★Frábær hljómur
★Fullkomin fjarstýring
Tilboð 59.900.- stgr.
Takmarkað magn.
Ein glæsilegasta hljómtækasam-
stæða landsins. Sjón er sögu rikari
JVC MX-S60R samstæða
★Tvöfalt kassettutæki ★Geislaspilari
★Fullkomin fjarstýring ★Útvarp
★Tölvustýrður tónjafnari með 50 minni
á tónjafnarann.
★Frábærir 3-way hát. með mótorstýrðum
tweeter
Tilboð 89.900 stgr.
Eitt magnaðasta ferðatækið
með geislaspilara á markaðnum
í dag og að sjálfsögðu með
fjarstýringu.
JVC RC-X720 ferðatæki
m/geisla + fjarstýr.
★Tvöfalt kassettutæki ★Geislaspilari
★Fullkomin fjarstýring ★Allt digital
Verð 34.900 stgr.
JVC XL-P60 ferðageislaspilari
★ 1 bita geislaspilari
★8 times oversampling filter
★Sjálflýsandi takkar
★Forritunarmöguleiki
★lntro scan/random
★Hægt að lilaöa rafhlööurnar
Toshiba sendingin af sjónvörpum er komin
Bjóðum 20“ Daewood sjónvörp með ísl. textavarpi
á hlægilegu tilboðsverði 39.900 stgr.