Dagur - 04.03.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 4. mars 1995
OPNUNARTÍMI
KOSmWGASKRIFSTOf U
KOSNINGASKRIFSTOFA
FRAMSÓKNARFLOKKSINSVERÐUR
OPIN FRÁ KL. 12.00 ■ 19.00 FYRST
UM SINN.
ALLIR ERUVELKOMNIR IKAFFI OG SPJALL
VIÐ STARFSMENN SKRIFSTOFUNNAR OG
FRAMBJÓÐENDUR.
FRAM TIL KOSNINGA VERÐA SKIPULAGÐAR
HEIMSÓKNIR VINNUHÓPA OGANNARA
ÁHUGAMANNA UM STJÓRNMÁL ÞAR SEM
RÆTTVERÐUR UM ÞAU MÁL SEM ERU I
UMRÆÐUNNI HJÁ HVERJUM OG EINUM.
IHl
Framsóknarflokkurinn
í Norðurlandskjördæmi eystra
Kosningaskrifstofan,
Hafnarstracti 26 - 30,(Glerhúsið),Akurevri,
Sími:21180, Fax:2ll80
Freyvangs
leikhúsið
Kveimaskóla-
Œvintýrið
eftir Böðvar Guðmundsson
Leikstjóri Helga E. Jónsdóttir
2. sýning
5. mars kl. 20.30
3. sýning
8. mars kl. 20.30
Miðasala/pantanir
sími: 31349 og 31196
Matur og aðrar veitingar í
gamla Kvennaskólanum
að Laugalandi
Upplýsingar í síma 31333
Vöramiðar hf
* ÞAR SEM LÍMMIÐARNIR FÁST *
96-12909
REYNSLA - GÆÐ) - ÞJÓNUSTA
•■■■■■■■■■■■
Urrunlðar í mlkiu úrvall.
Vogarmlðar fyrlr Ishlda-, Dlgl-
og Blzerba voglr.
Tllboðsmlðar o.þ.h.
Fóliugylllng og plasthúðun.
Númeraðlr mlðar, tðlvugölun,
papptrs-, plast- og álmlöar.
Hönnun og fllmuþjónusta.
Fax 96-12908
Hamarsstígur 25
600 Akureyri
FRETTIR
Sæplast hf. með rúmlega 10 milljóna króna rekstrarhagnað á árinu 1994:
Útflutningur jókst um 20,6%
og innanlandssala um 13,6%
Hagnaður varð af reglulegri
starfsemi Sæplasts hf. á Dalvík
á sl. ári að upphæð 28,8 milljón-
ir króna, eða 8% af tekjum.
Heildartekjur Sæplasts hf. á ár-
inu 1994 námu 361 milljón
króna, sem er 17,3% aukning frá
árinu 1993. Þegar tekið hefur
verið tillit til óreglulegra gjalda
og skatta er niðurstaða rekstrar-
reiknings hagnaður að upphæð
rúmlega 10 milljónir króna. Á
árinu 1993 nam hagnaður af
rekstri Sæplasts hf. 12 milljón-
um króna.
Á árinu 1994 var sala á innan-
landsmarkaði 184,3 milljónir
króna eða 51,3% af heildarsölu,
en sala erlendis 174,9 milljónir
króna eða 48,7%. Á árinu 1993
var hlutfallið 53% innanlands á
móti 47% erlendis. Salan skiptist
þannig: fiskker innanlands 29,5%;
fiskker erlendis 40,5%; trollkúlur
innanlands 11,0%; trollkúlur er-
lendis 8,2% og rotþrær, tankar og
plaströr 10,8%.
Útflumingur jókst um 20,4%
milli ára og vegur þar mest aukn-
ing útflutningsverðmætis troll-
kúlna um 40% á sama tíma og
samdráttur er í innanlandssölu, og
útflutningsverðmæti fiskkera jókst
um 15%, en þessar vörur voru
fluttar út til alls 30 landa á árinu
1994. Sala innanlands jókst um
13,6% milli ára og vegur þar
þyngst sala á plaströrum, en hafín
var framleiðsla á þeim á árinu.
Bókfært veró heildareigna fé-
lagsins var 397,4 milljónir króna í
árslok, þar af voru veltufjármunir
178.2 milljónir og aðrar eignir
219.2 milljónir. Heildarskuldir
námu 141,5 milljónum króna í
árslok en voru 129,5 milljónir
króna í ársbyrjun og var eigið fé
því 255,9 millónir króna.
Á árinu 1995 er gert ráð fyrir
15% veltuaukningu og að hagnað-
ur verði 10-15%. Á aðalfundi Sæ-
plasts hf. nk. fimmtudag mun
stjómin leggja til að geiddur verði
10% arður og nýtt verði heimild
til útgáfu 10% jöfnunarhlutabréfa.
Kristján Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts hf., segist
gera ráð fyrir að hlutfallið milli
Kristján Aðalsteinsson.
sölu innanlands og erlendis munu
haldast nokkuð óbreytt á yfir-
standandi ári.
„Aukning skulda er fyrst og
fremst tilkomin vegna gjaldfærslu
á 16 milljónum króna vegna dóms
sem féll í svokölluðu Tækniplasts-
máli, sem hefur verið í ársreikn-
ingum síðustu ára og auk þess
voru gjaldfærð á árinu 1994 ýmis
gömul mál. Eg er mjög ánægður
með rekstrarafkomu félagsins á sl.
ári,“ segir Kristján Aðalsteinsson.
_________________________GG
Bæjarráö Húsavíkur:
ítrekað að
Ijúka viðræð-
um við ÍS
ítrekað var á fundi í Bæjarráði
Húsavíkur sl. fimmtudag, að
heQa ekki viðræður við fleiri að-
ila fyrr en niðurstaða væri feng-
in í viðræðum við fslenskar sjáv-
arafurðir um afurðasölumál út-
gerðar- og fiskvinnslufyrirtækj-
anna á Húsavík. Sigurjón Bene-
diktsson greiddi atkvæði á móti.
Málinu hafði verið vísað aftur
til bæjarráðs eftir að meirihluti
bæjarstjómar klofnaði í atkvæða-
greiðslu um það í bæjarstjóm.
Fyrir fundinum lágu tillögur Sig-
urjóns Benediktssonar (D) um at-
hugun og úttekt á sölumálum fyr-
irtækjanna. IM
Ársuppgjör Nautgriparæktarfélaganna:
Þingeysku kýrnar mjólkuðu best
„Meóalafurðir eftir hverja árskú
árið 1994 eru 4147 kg af mjólk og
er það 21 kg minna en árið 1993,“
segir Jón Viðar Jónmundsson í
nýjasta tölublaði Freys.
Þrátt fyrir þetta var kjamfóður-
gjöf að jafnaði 21 kg meiri á
hverja kú en árið áður og liggur
því skýringin ekki þar heldur er
ljóst að síðasta ár var ekki jafn
hagstætt til mjólkurframleiðslu
eins og árið 1993. Þróunin er þó
nokkuð misjöfn eftir landshlutum.
Sunnanlands og vestan var um-
Kratar á Norðurlandi eystra:
Jón Baldvin
mætir til leiks
Alþýðuflokkurinn á Norðurlandi
eystra verður með opinn fund með
frambjóðendum flokksins fyrir al-
þingiskosningamar í dag, laugar-
dag, kl. 16 á kosningaskrifstofu
flokksins að Brekkugötu 7 á Ak-
ureyri.
Gestur fundarins verður Jón
Baldvin Hannibalsson, formaóur
Alþýðuflokksins. Allir eru vel-
komnir á þennan opna fund.
Að loknum 6 umferðum af 9 í Skák-
þingi Akureyrar 1995 er röð efstu
manna þessi:
1. Smári Rafn Teitsson 6 vinn.
2. Þórleifur K. Karlsson 5 vinn.
3. -4. Guðmundur Daðason 4,5 vinn.
3.-4. Þór Valtýsson 4,5 vinn.
Smári hefur sem sagt byrjað af
miklum krafti en enn er mikil spenna í
mótinu því aó í síðustu umferðunum
teflir Smári við Þórleif og Guðmund.
Áttunda umferð verður tefld mið-
vikudaginn 8. mars.
Ekkert er teflt um helgina vegna
deildakeppni Skáksambands Islands í
Reykjavík.
talsverð lækkun á afurðum milli
ára en á Norðurlandi er víðast
aukning.
Stærsti hópurinn í Eyjafirði
í Suður-Þingeyjarsýslu er aukn-
ingin mest og það er líka þar sem
afurðir eru að jafnaði mestar í
einu héraói, þar skilar árskýr að
jafnaði 4377 kg af mjólk. Þar voru
1879 kýr á þeim búum sem halda
skýrslur en í Eyjafirði voru þær
5745 og er það stærsti hópurinn á
einu sambandssvæði. Þar voru af-
urðir árskúar 4320 kg að jafnaði.
I skýrslu Jóns Viðars kemur
fram að kúabúum sem ná miklum
og góðum afurðum fjölgar með
hverju ári. Afurðahæsta búið á
landinu á síðasta ári, bú með tíu
kýr eða fleiri, var Efri-Brunná í
Saurbæ í Dalasýslu, þar er 28,1
árskýr og afurðir kúnna voru að
meðaltali 6515 kg af mjólk. Þessi
árangur er Islandsmet enda er búið
landsþekkt fyrir glæsilegan árang-
ur í framleiðslu.
Baldursheimur í öðru sæti
í öðru sæti er Félagsbúið í Bald-
ursheimi í Mývatnssveit og eru af-
urðir eftir hverja árskú aðeins 11
Skákþingið í drengja- og
stúlknaflokki
Skákþingi Akureyrar i drengja- og
stúlknaflokki er lokið.
Efstir í drengjaflokki (12 ára og
yngri):
1. Sverrir Amarsson 6 vinn. af 7.
2. Egill Öm Jónsson 5,5 vinn.
3. Páll Óskar Kristjánsson 5,5 vinn.
Efstar i stúlknaflokki:
1. Anna Kristín Þórhallsd. 4 vinn.
2. Inga Kristín Jónsdóttir 4 vinn.
3. Stella Christensen 3 vinn.
Keppni í unglingaflokki er ekki
lokió.
Hraðskákmót í dag
í dag, laugardaginn 4. mars, verður
hraðskákmót Akureyrar í yngri flokk-
kg minni þar en á Efri-Brunná, þar
eru 15 árskýr. „Þetta bú er einnig
löngu þekkt fyrir glæsilegan ár-
angur og hefur verið í hópi efstu
búa eða efsta bú á landinu um
tveggja áratuga skeið, þó árangur-
inn hafi aldrei verió jafn glæsileg-
ur ^g nú,“ segir Jón Viðar.
I þriðja sæti er bú Kristjáns B.
Péturssonar á Ytri-Reistará í Am-
arneshreppi en þar eru 10,1
árskýr. Frá því búi hafa komið
nokkur mjög öflug kynbótanaut á
síóustu árum og kýmar þar hafa
mjög há efnahlutföll í mjólk.
Meðal tíu afurðahæstu kúabúanna
eru einnig eftirtalin bú á Norður-
Ljóðatónleikar
í Glerárkirkju
í blaóinu í gær var sagt í fyrirsögn
að ljóðatónleikar með Álandsey-
ingunum Bimi Blomqvist, bassa-
söngvara, og Marcus Boman, pí-
anóleikara, yrðu í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju, en hið rétta er,
eins og kemur fram í sjálfri grein-
inni, að tónleikamir verða í Gler-
árkirkju nk. mánudagskvöld kl.
20.30. óþh
unum í Skákheimilinu að Þingvalla-
stræti 18. Mótið hefst kl. 13.30.
Skákþing íslands -
barnaflokkur
Halldór Halldórsson og Stefán Bergs-
son tóku þátt í Skákþingi íslands,
bamaflokki, 25.og 26. febrúar. Böm
11 ára og yngri áttu rétt til þátttöku.
Keppendur vora 30. Stefán fékk 5
vinn. og varð í 10.-13. sæti, Halldór
fékk 4,5 v. og lenti í 15. sæti.
Úrslit í 10 mínútnamóti
10. febrúar:
1. Rúnar Sigurpálsson 6,5 vinn.
2. Jón Björgvinsson 6 vinn.
3. -4. Ari Friófinnsson 4 vinn.
3.-4. Guðmundur Daðason 4 vinn.
landi: Búrfell í Ytri-Torfustaða-
hreppi, Brakandi í Skriðuhreppi
og Stóru-Akrar í Akrahreppi. KLJ
Blönduós:
■ Hótel Blönduós hefur með
bréfi farið fram á viðræður við
eigendur félagsheimilisins um
hugsanlega leigu hótelsins á
félagsheimilinu og var málið
rætt á fundi bæjarráðs nýlega.
Fundinn sátu fulltrúar Hótels
Blönduóss og formaður leikfé-
lagsins. Bæjarráð samþykkti að
fela tæknideild bæjarins frum-
athugun á málinu með tilliti til
hugmynda hótelsins á nýtingu
og lágmarki breytinga sem
þyrfti aö gera.
■ Bæjarráói hefur borist bréf
firá Kjartani Þorkelssyni, sýslu-
manni, varðandi umsókn Ósk-
ars Húnfjörð, f.h. Blönduskál-
ans sf., þar sem sótt er um vín-
veitingaleyfi, Bæjarráð vísaði
erindinu til umsagnar áfengis-
vamanefndar.
■ Bæjarráói hefur borist erindi
frá Skáksambandi íslands, þar
sem farið er fram á stuðning
Blönduóssbæjar vegna lands-
móts í skólaskák, sem fyrir-
hugað er að halda á Blönduósi
í maí nk. Erindinu var vísað til
æskulýös- og íþróttanefndar.
■ Á fundi leikskólanefndar,
skýrði leikskólastjóri frá til-
högun sumarfria undanfarin ár.
Sl. tvö ár hefur leikskólinn ver-
ið lokaður í mánuð. Lagði leik-
skólastjóri til að lokað verði frá
14. júlí til 14. ágúst. Samþykkt
var að mæla með því og jafn-
framt vakin athygli á hvort
huga eigi að gæsluvelli á þess-
um tíma.
(Fréttatilkynnrng)
Skákþing Akureyrar 1995