Dagur - 04.03.1995, Qupperneq 13
JACKSONS-
$AFN
Eins og sagt var frá hér í Poppi
fyrir nokkrum vikum, er von á
nýrri plötu frá poppgoðinu
Michael Jackson með vorinu und-
ir nafninu History. Það hefur hins
vegar komið í ljós nú að ekki
verður um allskostar nýja plötu að
ræða, heldur veglega safnplötu
með mestu og bestu smellum
drengsins, en síðan einnig einum
fimm nýjum lögum í kaupbæti.
Þar sem úr mörgu er að velja hjá
Jackson, er talið líklegt að um tvö-
falda geislaplötu verði að ræða og
þaó í glæstum pakkningum eins
og vera ber þegar slíkur jöfur er
annars vegar. Er History að mörgu
leyti tímabær, m.a. vegna þess að í
ár fagnar Jackson því að fimmtán
ár eru liðin frá því að hann sló
fyrst í gegn fyrir alvöru undir eig-
in nafni.
U2
UJ nýtur þessa dagana mikilla
vinsælda með laginu Danc-
ing Barefoot sem kunnugt er.
Þaó eitt og sér er heldur ekki svo
mjög í frásögur færandi, þar sem
slíkt er engin nýlunda á þeim
bænum. Það sem hins vegar er
ástæða til að nefna er að lagið er
eftir söngkonuna góðu Patti
Smith, sem svo aftur er gift öðrum
frægum tónlistarmanni, „Eagles-
boltanum" Don Henley.
IÐNIRViÐ KOLANN
Aðeins um ársþriðjungi eftir að
platan Monster leit dagsins
ljós, eru stórriddaramir í
REM famir að huga að nýju efni
fyrir nýja plötu. Hér í Poppi var
sagt fyrir nokkm frá tónleikum
REM í Astralíu, þeim fyrstu í
nokkum tíma, en þeir mörkuðu
upphafið af frekara tónleikahaldi
víða um heim á þessu ári. Michael
Stipe og félagar hafa að undan-
fömu verið að semja ný lög sem
þeir ætla svo að kynna á tónleika-
ferðalaginu. Síðan er meiningin
þegar stund gefst milli stríða, að
skjótast í hljóðver og taka upp
nýju lögin. Það lítur því ekki út
fyrir annað en að REM haldi upp-
teknum hætti við að senda frá sér
eina plötu á hverju ári.
Richey James
lætursig
hverfa.
I I I 14 Nú um mánuði eftir aó hafa horfið frá hóteli í London, hefur
| |\| |J II |f enn ekkert spurst til gítarleikara bresku popprokksveitarinnar
® ■ I i wr Manic street preachers, Richey James. Er talið aó James, sem
fullu nafni heitir Richard James Edwards, hafi síðan sést bregða fyrir í bíl sínum í
Cardiff í Wales, þar sem heimaslóðir hans eru, en það hefur ekki fcngist staðfest. Þung-
lyndi hefur um nokkurt skeið hrjáð James, sem m.a. olli því að hann varð að leggjast inn
á stofnun síðasta haust til meðferðar. Var þá framtíð Manic street preachers í óvissu, þar
sem félagar hans töldu engar líkur á að þeir myndu halda áfram án James ef hann gæti
ekki snúið aftur. Meðferóin gekk hins vegar vel, en hefur bersýniiega ekki dugað gítar-
leikaranum að fullu. Eðlilega hafa fjölskylda, félagar og vinir James miklar áhyggjur af
honum og hefur lögreglan í Bretlandi gert mikla leit aó honum. Hins vegar vilja menn
ekki trúa fyrr en þeir taka á því aó James hafi stofnað lífi sínu í hættu. Hann hafi aðeins
fundið hjá sér þörf fyrir að hverfa burtu úr skarkalanum, en komi síóan aftur þegar hann
hafi jafnað sig. Vonandi reynist það rétt vera.
NÝR
BA$$A-
LEIKARI?
* öngvari og leiðtogi
j Lemonheads, Evan
§ Dando, sem einna
helst hefur verið í
j fréttum í seinni tfð
M vegna meints sam-
V bands við Courtney
Love, ekkju Kurts Cobain og
söngkonu í Hole, er nú alvar-
lega að velta því tyrir sér að
ráða bassaleikarann Roy Ahn
í hljómsvcitina, í stað Nick
Dalton, sem hætti fyrir
nokkrum raánuðum. Var Ahn
áður í hljómsveitinni Hard-
ons. Lemonheads eru annars í
fríi nú þessa stundina, en þess
í stað hefur Dando einbeitt
sér að því að halda kassagít-
artónleika, m.a. í Ástralíu, en
þar hitti hann einmitt Ahn á
tónleikum.
Evan Dando söngvari og aðal-
maður Lemonheads.
POPP
Laugardagur 4. mars 1995 - DAGUR -13
MACNÚS GEIR CUÐMUNDSSON
TVEIR NYHERJAR
- 5EM NÚ VEKJA VONIR I BRESKU ROKKI
Aseinustu árum hafa Bretar
þótt nokkuð eiga undir högg
að sækja í rokkinu gagnvart
Bandaríkjamönnum. Alla-
vega hefur meira verið að
gerast og skapast nýtt þar
vestanhafs en í gamla kon-
ungsveldinu. Rappið rymrokkið,
„Grungeið" og síðan nýja pönk-
bylgjan með Grenn day og Off-
spring í broddi fylkingar, eru góð
dæmi um það. En þó slíkar nýjar
tónlistarstefnur hafi ekki komið
upp í Bretlandi á síðustu árum,
nema ef vera skyldi House/rave-
menningin, sem að mestu mótaö-
ist þar í landi og segja má að hafi
verið upphafið af öllu „dansfár-
inu“, þá hefur ekki vantað að at-
hyglisveróar hljómsveitir hafi
komið þar fram á sjónarsviðið á
síðustu árum.
TVÆR EFNILE6AR
Tvær hljómsveitir sem Bretar
binda m.a. nokkrar vonir vió að
séu andsvar við bandarísku bylgj-
unni endalausu, eru Headswim frá
Essex og hin skoskættaða Baby
chaos. Fyrstu plötur þessara
hljómsveita, flood meó Headswim
og Safe sex, designer drugs and
the death of rock n’ roll með Baby
chaos, sem komu út í vetrarbyrj-
un, fengu báðar mjög góðar við-
tökur gagnrýnenda og þykja hvor
á sinn hátt sýna að margt gott sé
að gerast í bresku nýrokki.
BRESKT SVAR
Headswim gekk til að byrja með
undir nafninu Blinder og var þá á
nokkuð beinhörðum þungarokks-
nótum. Það gekk hins vegar lítt
hjá sveitinni að koma sér á fram-
færi sem slík, þannig að nafninu
var breytt í Headswim jafnframt
sem tónlistin varð margræðari. Er
samlíking við rymrokkið frá Se-
attle og þá kannski sérstaklega við
Soundgarden og Alice in chains
ekki fjarri lagi þegar hlustað ér á
Flood, enda hafa margir líka nefnt
Headswim svar Breta vió þessum
Baby chaos þykir til alls líkleg.
Headswim svipar til Seattterokksins.
sveitum og öðrum í rymrokkinu.
Þeir fjórir sem skipa sveitina,
bræðumir Tom og Dan Glendin-
ing, Nick Watts og Covis Taylor,
eru þessu þó ekki alveg sammála
og telja sig öllu fjölbreyttari í
lagasmíðunum. Því verður samt
ekki neitað að áferðin hjá þeim er
um margt lík og hjá Seattlesveit-
unum og er bara ekkert nema gott
um það að segja. Eins og fram
kemur hér á eftir með Baby chaos,
á Headswim þaó að nokkru líka
aó þakka framkomu í útvarps-
þætti, að hún komst fyrir alvöru á
framfæri. Kemur Hood út á Crush
merkinu, sem er undir risaútgáf-
unni Epic.
5KOTHELDIR
SKOTAR
Baby chaos er fjögurra manna
sveit frá Stewarton í Skotlandi,
þar sem hún var stofnuð árið
1992. Þeirra tónlist er ekki eins
margræð og hjá Headswim, er
meira „indie“, „óháð“ og hljómar
því óneitanlega breskari, en jafn-
framt er hún framsæknari og
meira aðlaðandi við fyrstu kynni
en hjá Headswim. lýleðan Heads-
wim svipar um margt til hinna
bandarísku rokksveita frá Seattle,
Soundgarden, alice in chains og
e.t.v. Pearl jam að einhverju leyti
líka, sver Baby chaos sig því í ætt
við aðrar breskar rokksveitir sem
nú eru „heitar" á boró við Wildhe-
arts, Therapy?, Manic street pre-
achers, Oasis og jafnvel Terror-
vision og Senseless things líka.
Baby chaos er líkt og Heads-
wim kvartett, skipað þeim Chris
Gordon, Grant McFarlane, Bobby
Dunn og Davy Greenwood. Var
það vegna góðrar frammistöðu
bæði í útvarps- og sjónvarpsþátt-
um sem Baby chaos öðlaðist
plötusamning vorið 1993 og var
það East/west útgáfan sem tók þá
upp á sína arma. Kom sem sagt
jómfrúarverkið, Safe sex,... út
rúmu ári síðar, en þá hafði sveitin
þegar undirbúið jarðveginn vel
með nokkrum smáskífum. Fékk
platan almennt góóa dóma og
þykir Baby chaos eiga, ef ekkert
fer úrskeiðis, bjarta framtíð fyrir
sér. Seldust plötur þessara tveggja
hljómsveita reyndar ekki í neinum
risaupplögum, en þó nógu vel til
að halda þeim gangandi.
Þá hafa þær báðar skapað sér
gott nafn sem tónleikasveitir. Hef-
ur Headswim m.a. spilað með Bo-
dy count og Baby chaos með
Wildhearts og Terrorvision.
Eru þetta tvær sveitir sem Bret-
ar binda sem fyrr segir miklar
vonir við, en vissulega eru þær
fleiri af svipuðu tagi í kraftmeira
rokkinu, sem það á við líka.
Um þær og fleiri verður e.t.v.
fjallað síðar hér í Poppi.