Dagur - 04.03.1995, Síða 15
UTAN LANDSTEINANNA
Laugardagur 4. mars 1995 - DAGUR - 15
UMSJÓN: SÆVAR HREIÐARSSON
Hef kysst
þann besta
Söng- og leikkonan barmgóða
Dolly Parton kyssir og kjaftar
frá. Dolly upplýsti fáfróðan
almúgann fyrir skömmu hvaða
leikari hefði bestu varir í Ilolly-
wood. Það er ekki Brad Pitt, Tom
Cruise, Mel Gibson eða Jack Nic-
holson eins og svo oft er haldið
fram heldur harðnaglinn James
Woods. Sveitasöngkonan lék á
móti Woods í myndinni Straight
Talk, sem Stöð Tvö sýnir í kvöld.
„Ilann hefur þessar feitu og miklu
varir sem eru mjúkar sem baðmull
Dolly Parton kallar ekki allt ömmu
sína en hún kiknaði í hnjáliðunum
þegar hún kyssti James Woods.
og hann veit hvernig þær notast
best,“ segir Dolly og hún er ekkert
að skafa utan af því. „í kvikmynd-
um gengur oftast svo mikið á að
þegar maður kyssir leikara tekur
maður varla eftir því. En í hvert
sinn sem James kyssti mig nötraði
ég öll og gat ekki hugsað um neitt
annað en kossinn,“ segir Dolly.
Dennis Frans hefur unnið hug
og hjörtu amerískra kvemm.
Feitt oq sköilótt kyntákn
Það er óhætt að fullyrða að fita hefur aldrei
verið vinsæl í sjónvarps- og kvikmynda-
geiranum í Bandaríkjunum. Nú virðist þó
einhver breyting í vændum og fita er komin í
tísku í Ilollywood. f nokkrum væntanlegum
myndum eru fitukeppir í aðalhlutverki og sá
sem almennt er talað um sem nýjasta
kyntáknið er Dennis Franz, sem get-
ið hefur sér gott orð með leik í
sjónvarspþáttunum vinsælu
NYPD Blue. Þar leikur þessi
fimmtugi leikari kjaftfora löggu
sem glímir jafnt við áfengis-
vandamál og forherta glæpa-
menn. En Franz segir að eftir að
hann fór að leika lögguna Sipiwicz
hafi hann fengið mikinn fjölda aðdá
endabréfa frá konum á öllum aldri.
Fjötskutda
í stríði
Baywatch er án efa sá sjónvarpsþáttur sem nýtur
mestrar áhorfunar í heiminum í dag. Um það bil ein
billjón áhorfenda í 142 löndum fylgjast jafnan
grannt með þegar bjargvætturinn CJ Parker skoppar eftir
ströndinni í öllu sínu veldi með óútskýrðan rauðan plast-
kút undir arminum. Pamela Anderson er vinsælust allra
leikara þáttarins en hún virðist þó ekki vera ánægð með þá
athygli sem hún fær fyrir limaburð sinn, vill helst fá meiri
og gerir flest til að komast í sviðsljósið. Það er í það minnsta
skoðun foreldra hennar sem eru ekki par sátt við dótturina.
Fyrir skömmu sagði Pamela í blaðaviðtali að pabbi hennar
væri drykkjumaður mikill sem lumbraði reglulega á
mömmu hennar. Þessu mótmæla foreldrarnir kröftuglega
og segja stúlkuna ávallt hafa haft ímyndunaraflið í lagi.
,/EtIi það sé ekki í tísku í Ilollywood að hafa átt erfiða ,
æsku,“ segir Carole móðir hennar. Foreldrarnir viður-
kenna að vísu að sambandið milli þeirra hafi ekki alltaf ver-
ið fullkomið en aldrei hafi ofbeldi verið beitt. Blaðamenn
kölluðu til fjölda vitna til að hrekja sögu Baywatch bom-
bunnar og amma stelpurnar segir frægðina hafa stigið henni
til höfuðs. „Þegar hún var lítil lifði hún í ímyndaðri veröld þar
sem hún átti erfitt með að greina raunveruleikann frá tilbún-
ingnum,“ sagði amma gamla. Pamela hefur ekki haft mikið
samband við fjölskyldu sína að undanförnu og foreldrarnir
fréttu fyrst af giftingu hennar og rokkarans Tommy Lee í gegn-
um blöðin. „Er það ekki þessi horaði
sem var giftur annarri leikkonu? Baywatch bomban Pamela Ander-
spurði Carole forviða þegar hún son hefur veríð mikið á milli
heyrði af giftingu dótturinnar. tannanna áfólki að umlanfömu.
Fyrir skömmu var sýndur þáttur þar sem Franz
sást nakinn í sturtu og vakti þessi þáttur mikið
umtal og athygli. Eftir þáttinn stækkaði bréfa-
bunkinn enn hjá Franz og hann segist hneyksl-
ast á mörgum þeim bréfum sem hann fær því
ekki séu þau öll siðsamlega skrifuð. Ilann segist
t.d. hafa fengið „nokkuð afdráttarlaust bréf
frá ungri dömu“ og því hafi fylgt mynd af
stúlkunni í baðfötum, sem Franz lýsir
sem „mjög efnislitlu bikjni.“ Franz
ætti að vera vanur að handleika
fjölda bréfa enda vann hann fyrir
sér sem póstberi áður en hann sló
í gegn í NYPD löggum. „Ég var
sennilega heimsins lélagasti
póstur,“ viðurkennir hann. „Ég
stoppaði iðulega til að gæða
mér á kleinuhringjum, lék við
öll dýr sem urðu á vegi mín-
um og Iá í leti heima hjá mér
á meðan fólk beið eftir póst-
inum sínum,“ sagði Franz
um gömlu vinnuna sína.
Atein heim
Aðeins örfáum vikum eftir
að hafa eignast annað
barn sitt er söngkonan
og húsmóðirin Gloria Estefan
yfirgefin í 300 milljóna króna
heimili sínu á Miami á meðan
eiginmaðurinn Emilio skemmt-
ir sér með eldheitu nýstirni.
Ekki er langt síðan Gloria gort-
aði í fjölmiðlum af hinni miklu
ást sem ríkti hjá þeim hjónum
eftir 16 ára hjónaband og ekk-
ert fengi þeim haggað. Ekki var
þó Emilio á sama máli og síðan
Gloraia eignaðist stúlkubarn í
desember sl. hefur hann sést
oft og títt úti á lífinu með salsa-
söngkonunni Albita Rodriguez.
Emilio segir ekkert til í sögum
af framhjáhaldi sínu og hann sé
einungis að reyna að koma
henni á framfæri í Bandaríkj-
unum enda sé hann umboðs-
maður hennar og það sé hans
starf að koma henni í sviðsljós-
ið. Á meðan er Gloria sögð sitja
sorginædd heima og hugsa um
hörnin. Nú eru tæp fimm ár
síðan Gloria stóð andspænis
dauðanum eftir hrikalegt bíl-
slys en hún náði sér að fullu og
kom söngferlinum aftur á rétta
braut. Síðustu ár hefur hún
unnið hörðum höndum að því
að eignast annað barn með
Emilio en fyrir áttu þau 14 ára
son. Ilenni tókst loks ætlunar-
verk sitt í desember á síðasta
ári en á sama tíma virðist hún
hafa misst eiginmanninn í fang
annarrar konu.
Söngkonan Gloria Estefan þyk-
ir með föngulegri konum þrátt
fyrir að eiga aðeins tvö ár eftir
í fertugt.
laust stórstirni
isney kvikmyndafyrir-
tækið byggir afkomu
næsta árs mikið á
teiknimyndinni Pocahontas
sem frumsýnd verður í sumar.
Mel Gibson var
fenginn til að ljá
aðalpersónunni
rödd sína en hann
mun þó ekki
syngja helstu lögin
í myndinni. Gib-
son hafði eytt
miklum tíma hjá
raddþjálfara og
framleiðendunum
þótti hann standa
sig vel í söngnum
en þegar myndin
var prufukeyrð
fyrir fullum sal af
ungum krökkum fékk hann
ekki góð viðbrögð. Mesti söng-
urinn átti að vera á mikilvægu
augnabliki í myndinni og
krakkarnir sem hlustuðu
brugðust illa við þegar Gibson
hóf upp raust sína, þeir gerðu
meiri kröfur en framleiðend-
urnir og Gibson kolféll á próf-
Atvinnusöngvari var því
mu.
fenginn til að fylla í skarðið en
kennslustundirnar sem Gibson
fór í voru þó ekki til einskis
þar sem hann fær
að syngja minni
hlutverk í mynd-
inni.
Annars er því
oft haldið fram að
Mel Columcille
Gerard Gibson sé
ástralskur leikari
en svo er þó ekki.
Ilann er fæddur í
New York og sjötti
í röð ellefu systk-
ina. Ilann bjó í
Nýju Jórvík til tólf
ára aldurs en flutti
þá til Ástralíu. Þar stefndi
hann á frama sem kokkur eða
blaðamaður en snéri sér að
leiklist eftir að ein systir hans
sótti um í leiklistarskóla fyrir
strákinn án hans vitundar og
þegar hann fékk þar inni ákvað
hann að slá til.