Dagur - 24.03.1995, Qupperneq 1
Slippstöðin-Oddi hf.:
Rekstrarhagnaður rúmar 90 milljónir að
teknu tilliti til áhrifa nauðasamninga
- Birgir Omar Haraldsson, framkvæmdastjóri Jökla hf., kjörinn stjórnarformaður
Aðalfundur Slippstöðvarinn-
ar-Odda hf. á Akureyri var
haldinn í gær. Hagnaður varð af
rekstri fyrirtækisins Slippstöðv-
arinnar-Odda hf. á Akureyri á sl.
ári að upphæð 91,5 millj. króna
samkvæmt niðurstöðum rekstr-
arreiknings og gætir þar lang
mest áhrifa annarra tekna, og
þar vegur langþyngst áhrif
nauðasamninga sem fyrirtækið
fékk heimild til á árinu, eða um
80 milljónir króna auk söluhagn-
aðar almennra rekstrarfjármuna.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
var 5,6 milljónir króna, en hagn-
aður fyrir ijármagnstekjur og
íjármagnsgjöld er tæpar 15 millj-
ónir króna og er þar um verulega
breytingu að ræða milli ára, eða
um 40 milljónir króna. Á árinu
1993 varð 75 milljóna króna tap
af reglulegri starfsemi þannig að
um gríðarleg umskipti er að
ræða í rekstri fyrirtækisins til
hins betra. Rekstrarlega er því
fyrirtækið mun betur sett en það
var í upphafi árs 1994 og má
fyrst og fremst rekja þann bata
til þeirrar endurskipulagningar
sem farið var í á árinu en sex
undanfarin ár hefur fyrirtækið
verið rekið með tapi.
Rekstrartekjur (velta) fyrirtæk-
isins voru 594,7 milljónir króna á
árinu 1994, eigið fé í árslok 65,6
milljónir króna og þar af hlutafé
41,3 milljónir króna en hlutafé í
fyrirtækinu var í gær (23. mars
1995) 81,3 milljónir króna og eig-
ið fé á sama tíma 105, 6 milljónir
króna. Launagreiðslur námu 182,6
milljónum króna á árinu 1994 en í
byrjun starfsárs voru starfsmenn
151 en 110 í árslok og var gengið
frá fastráóningu flestra þeirra í árs-
lok. Utseldar vinnustundir voru
145.892.
Guðmundur Túliníus, fram-
kvæmdastjóri, segir að fyrirtækið
hafi á sl. ári gengið í gegnum
miklar hremmingar og þær hafi
ekki síður verið mannlegar, en
segja þurfti upp stórum hópi
starfsmanna á árinu. Fyrirtækið
fékk staðfestan nauðasamning í
maímánuði á sl. ári en með honum
fékkst heimild til að fella niður
70% af skuldum félagsins, eða um
80 milljónir króna.
Starfsmannafjöldi sniðinn
að grunnverkefnastöðu
Stefna fyrirtækisins hefur verið að
sníða stærð fyrirtækisins og starfs-
mannafjölda eftir vexti og verk-
efnum, og þannig er starfsmanna-
fjöldinn nú sniðinn að þeirri
grunnverkefnastöðu sem fyrirtæk-
ið stendur frammi fyrir. Ef álags-
punktar myndast er auðveldara að
ráða starfsfólk til tímabundinna
verkefna og undirverktaka. Stærst-
ur hluti þeirra starfsmanna sem
hætti störfum hjá Slippstöðinni-
Odda hf. á sl. ári hefur farið í störf
hjá smærri fyrirtækjum sem síðan
eru mörg hver undirverktakar hjá
stöðinni og þannig má með sanni
segja að ekki hafi tapast 41 starf á
vinnumarkaðnum þrátt fyrir þá
tölulegu fækkun starfsmanna á ár-
inu 1994.
Guðmundur segir að verkefna-
staða stöðvarinnar sé mjög erfið
og það orsakast fyrst og fremst af
því að flest verkefni em til mjög
skamms tíma. Sveigjanleiki í
rekstri sé stöðinni mjög mikilvæg-
ur og hann aukist m.a. með því að
vera með undirverktaka í einstaka
verkþáttum.
Stærstu hluthafar Slippstöðvar-
innar-Odda hf. em DNG-rafeinda-
iðnaður hf., Jöklar hf., Málning hf.
og Reginn hf. (Landsbanki Is-
lands), en hluthafar em alls 20. Á
aðalfundinum var kjörin ný stjóm.
Stjómarformaður er Birgir Omar
Haraldsson, framkvæmdastjóri
Jökla hf., varaformaður Valdimar
Bergstað hjá Málningu hf„ ritari
Aðalsteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri Strýtu hf„ og aðrir
stjómarmenn Friðfmnur Her-
mannsson, framkvæmdastjóri
Sjúkrahússins á Húsavík og Krist-
ján E. Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri DNG-rafeindaiðnaðar hf.
Friðfinnur og Aðalsteinn em full-
trúar Regins hf. í stjóm stöðvar-
innar.
Flotkví gott búsílag en engin
bjargvættur
Birgir Ómar Haraldsson, nýkjör-
inn stjómarformaður, segir fyrir-
tækið tæknilega vel statt, en lítil
endumýjun sé í verkmenntun og
það sé mikið áhyggjuefni. Imynd
félagsins þurfi að bæta og það fel-
ist í hverjum einasta starfsmanni.
„Hér á landi hefur aldrei verið
almennileg tenging milli iðnaðar-
ins og menntunar og eðilega sæki
fólk ekki eftir starfi hjá fyrirtæki
sem daglega er í neikvæðri um-
fjöllun í fjölmiðlum. Vonandi
breytist þetta, ímyndin verði góð
og eðlileg endumýjun verði á iðn-
lærðu starfsfólki í skipasmíðaiðn-
aðinum. Við emm hins vegar
bjartsýnir á framtíð fyrirtækisins
og með tilkomu flotkvíar á Akur-
eyri, sem kemur í maímánuði, auk-
ast möguleikar Slippstöðvarinnar-
Odda til að taka upp stærstu togar-
ana og þjónusta stærri skip en áður
hefur verið kostur á, en þau hafa
þurft að leita til útlanda eftir þjón-
ustu. Samningar um afnot af flot-
kvínni standa yfír. Flotkví er hins
vegar engin bjargvættur þessa fyr-
irtækis því það er margt annað
sem stöðin þarf að takast á við á
næstu missemm svo hún verði bet-
ur samkeppnishæf. En flotkvíin
eykur vissulega sveigjanleika
hennar sem er mjög mikilvægt,“
segir Birgir Ómar Haraldsson,
stjómarformaður Slippstöðvarinn-
ar-Odda hf. GG
Húsavík:
Naggar á markad
Framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar-Odda hf„ Guðmundur Túliníus,
lengst t.v. ásamt stjórnarmönnunum Vaidimar Bergstað, Birgi Ómari Har-
aldssyni og Friðfinni Hermannssyni. Mynd: GG
Naggar koma á markaðinn um
miðjan maí. Það eru endur-
mótaðir, raspaðir, forsteiktir
lambakjötskjötbitar, meyrir,
hreinir vöðvar úr frampörtum
sem hita má upp í ofni til að fá
stökka skorpu. Þarna er loksins
kominn skyndiréttur úr lamba-
kjöti, hágæðavara á góðu verði
Aðstandendur Fjörs hf. á Melgerðismelum 1988:
Greiði 1,6 milljónir í
bætur til ríkissjóðs
- auk dráttarvaxta frá 1991 og málskostnaðar fyrir Hæstarétti
Þremur Akureyringum sem
stóðu að Fjöri hf„ útihátíð-
inni á Melgerðismelum 1988,
hefur, fyrir Hæstarétti, verið
gert að greiða fjármálaráðherra,
fyrir hönd ríkissjóðs, 1,6 milljón-
ir króna í bætur vegna vangold-
ins söluskatts af hátíðinni. Að
auki þurfa þeir að greiða drátt-
arvexti frá 1991 og 150 þúsund
krónur í málskostnað.
Sveinn Rafnsson, Guðmundur
Ómar Pétursson og Pétur Bjama-
son stóðu að útihátíðinni að Mel-
gerðismelum 1988. Söluskattur af
seldum miðum var metinn
2.720.400 krónur og áttu félagam-
ir að greiða hann að lokinni hátíð-
inni. I október 1988 greiddu þeir
372.780 krónur þar eó þeir töldu
aó skatturinn hefði verið ofreikn-
aður um 90 þúsund krónur var
samþykkt að lækka eftirstöðvamar
í 2.257.620.
Bú Fjörs hf. var síðan úrskurð-
að gjaldþrota 4. júlí 1989 að
beiðni innheimtumanns ríkissjóðs.
Engar eignir reyndust í búinu og
var höfðað opinbert mál á hendur
þremenningunum fyrir að skila
ekki söluskattinum og voru þeir
dæmdir sekir og til greiðslu sekta.
Ríkissjóður hafði uppi skaðabóta-
kröfu til þess hluta söluskattsins
sem Fjör hf. hafði ekki greitt.
- skyndibiti úr lambakjöti frá KÞ
handa íslenskri þjóð á hraðferð,
að sögn Páls Arnar, sláturhús-
stjóra á Húsavík.
Kjötiöja Kaupfélgs Þingeyinga
hefur unnið að vöruþróun á skyndi-
réttum úr lambakjöti í samvinnu við
Rannsóknastofnun landbúnaðarins,
allt frá árinu 1989. Hlé hefur orðið
á þessari starfsemi sem samtals hef-
ur tekið um þrjú ár. Síðasta ár .var
unnið töluvert að þessari vömþróun
og afurðin kynnt á sýningu. Þrátt
fyrir góða svömn vom kjötiðju-
menn ekki fyllilega ánægðir og
biðu með að huga að markaðsetn-
ingu þar til þeir vom alveg sáttir
með afurðina.
Til að byrja með verður nöggum
dreift á Norðurlandi og á höfuð-
borgarsvæðinu, en síðan á lands-
vísu. Páll sagði að afurðin ætti að
höfða til fólks sem borðaði kjöt, t.d.
heimila þar sem báðir foreldrar
væm útivinnandi. Hugmyndin væri
að ná til baka einhverju af pasta- og
pizzumarkaðinum og auka neyslu á
dilkakjöti. Kjötið verður á hagstæðu
veröi og eingöngu verður um að
ræða hreint kjöt með lífrænum efn-
um, en önnur aukaefni ekki notuð.
Páll sagðist bjartsýnn á sölu vör-
unnar og reikna með að 20-30 tonn
af hreinum vöðvum seldust á áp á
þennan hátt. Áfram verður þó hald-
ið í vömþróun og miklir möguleikar
em fyrirséðir, en búnaður sem þarf
til framleiðslu nagganna hefur verið
leigður og getur framleiðslan skap-
að þrjú störf ef allt gengur sam-
kvæmt vonum. IM
I héraði var þingfest að tjón
ríkisins nemi því sem ekki var
skilað af skattinum og sé bein af-
leióing refsiverðrar háttsemi Pét-
urSj Sveins og Guðmundar Ómars.
í niðurstöðum Hæstaréttar er
þess getið að ekki hefði komið til
refsiábyrgðar þremenninganna
hefði Fjör hf. verið gefið upp til
gjaldþrotaskipta því þá hefði ríkis-
sjóður setið við sama borð og aðr-
ir almennir kröfuhafar. Þremenn-
ingamir hafi, þvert á hagsmuni
ríkissjóós, hafið uppgjör við aðra
kröfuhafa. Ríkissjóði em því
dæmdar áðumefndar bætur auk
vaxta og málskostnaóar í hæsta-
rétti. C SV