Dagur - 24.03.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 24. mars 1995
FRÉTTIR
Mývatn 95:
Keppni hefst
ídag
Fyrsta mót vetrarins sem gildir
tií íslandsmeistaratitils í vél-
sleðaakstri fer fram í Mývatns-
sveit í dag og á morgun. Mótinu
var frestað um síðustu helgi
vegna veðurs. Keppt verður í
landi Grímsstaða.
Um 60 keppendur eru skráðir
til leiks og í þeim hópi eru allir
bestu ökumenn landsins. Fjallarall
er fyrsta keppnisgreinin og hefst
hún kl. 11.00 í dag og brautar-
keppni, þar sem tveir keppa í einu,
kl. 13.00. Á morgun kl. 10.00
byrjar spymukeppnin og síóasta
keppnisgreinin er snjókrossið sem
hefst kl. 14.00 á morgun. Margir
keppendur verða í brautinni í einu
og veróur hamagangurinn án efa
mikill. HA
Það verður hvergi gefið eftir í Mývatnssveit um hclgina þegar allir bestu vélsleðaökumenn iandsins reyna með sér á
fyrsta mótinu sem gefur stig tii ísiandsmeistaratitiis í vélsleðaakstri. Mynd: Robyn.
Björgunarhundasveit Islands:
Vetrarnámskeið sveitarinnar fer
fram á Akureyri næstu dagana
- alls munu 26 björgunarhundar taka þátt í námskeiöinu, sem er þaö viöamesta
sem haldið hefur verið hér á landi
í dag er von á flugvél Flugmála-
stjórnar til Akureyrar með bæði
hunda og eigendur þeirra, víðs
vegar af landinu, sem hingað
koma til að taka þátt í stærsta
vetrarnámskeiði Björgunar-
hundasveitar íslands til þessa.
Alls munu 26 hundar og 35-40
manns taka þátt í æfíngunni og að
auki hópur félaga í Hjálparsveit
skáta á Akureyri, sem verða
Björgunarhundasveitinni til halds
og traust þann tíma sem æfingin
stendur yfir, eða næstu vikuna.
Öm Amarson, félagi í Hjálpar-
sveit skáta á Akureyri, sagói í
samtali við Dag, að hópurinn
myndi gista í Þelamerkurskóla en
að æfmgamar færu að mestu fram
í kringum Fálkafell. „Það verður
stanslaus dagskrá í gangi þessa
daga, frá morgni til kvölds og
deginum lýkur jafnan með fund-
um og fyrirlestrum. Það verða
fjögur æfmgasvæði í gangi þenn-
an tíma og þau em öll í kringum í
Fálkafell."
Eftir hádegi í dag fara menn frá
Björgunarhundasveitinni og
Hjálparsveit skáta á Akureyri, á
snjóbíl upp að æfmgasvæðinu og
þeir ætla að reyna að gera svæðið
sem líkast vettvangi eftir snjóflóð.
Á æfingatímanum verður svo
fólki komið fyrir í holum á svæð-
inu, sem hundamir veróa látnir
leita að.
Öm segir að hundunum sé
skipt í þrjá flokka, a-, b- og c-
flokk. Hundar í c-flokki em byrj-
endur, hundar í b-flokki hafa lokió
prófi á slíku námskeiði og eru þá
komnir á útkallsskrá og hundar í
a-flokki eru þeir hundar sem em í
bestri þjálfun og geta leitað við
erfiðustu aðstæður.
„Björgunarhundum hefur fjölg-
að mikið og ekki síst eftir snjó-
flóðin í Súðavík, þar sem hund-
amir sönnuðu sig og þaó er eng-
inn vafi í dag að hundamir gera
gagn við slíkar aðstæður. Áhuginn
er alltaf aó aukast en menn gera
þetta ekki að gamni sínu og það er
full vinna að halda björgunar-
hundi í æfingu.“
Öm vildi beina því til fólks og
þá sérstaklega til vélsleðamanna,
að þeir sýndu tillitssemi á æfinga-
svæðunum við Fálkafell næstu
dagana. KK
Söngskemmtun!
Mánakórinn heldur söngskemmtun í Hlíðarbæ
sunnudaginn 26. mars kl. 21 og í Akureyrarkirkju
mánudaginn 27. mars kl. 20.30.
Fjölbreytt efnisskrá.
Söngstjóri: Michael J. Clarke.
Undirleikari: Guðný Erla Guðmundsdóttir.
MÁNAKÓRINN.
—
AKUREYRARBÆR
Viötalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 27. mars 1995 kl. 20-22 verða bæjar-
fulltrúarnir Sigfríður Þorsteinsdóttir og Þórarinn B.
Jónsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að
Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarriir munu svara símaviðtölum eftir
því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Framleiðsla frystra loðnuhrogna nær
þrefaldaðist milli ára:
Helmingslækkun verðs
vegna offramleiðslu
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
hefur tekið á móti liðlega 13 þús-
und tonnum af loðnu á vetrar-
vertíðinni og hefur frystihúsið
fryst um 600 tonn af loðnuhrogn-
um frá 6. til 16. mars, eða í 10
daga, en í marsmánuði 1994 var
ffyst í tæplega 30 daga um 730
tonn, en hluti þess magns, eða
um 100 tonn, var saltaður.
Á árinu 1994 voru fryst um
3.000 tonn af loðnuhrognum en í
ár fór framleiðslan upp í 8.000
tonn og af því magni fara 6.000
tonn á Japansmarkað en 2.000 tonn
til Evrópu og Bandaríkjanna. í
samræmi viö það hefur verð á
frystum loðnuhrognum hríðfalliö,
var um 300 krónur í upphafi ver-
tíðar 1994 en er komið nú í 106
krónur. Segja má að þá hafi verið
um seljendamarkað aö ræða en nú
hefur það snúist við vegna offram-
leiðslu, nú er um kaupendamarkað
að ræða, þ.e. kaupendur ráða alfar-
ið verðinu sem greitt er fyrir afurð-
ina.
Eftir því sem magnið jókst, féll
veróið. Japanar voru tilbúnir að
greiða 230 krónur fyrir fryst loðnu-
hrogn upp aö 1.500 tonna fram-
leiðslu; 180 krónur fyrir 1.500 til
3.000 tonn; 140 krónur frá 3.000 til
4.500 tonn; og 106 krónur fyrir
4.500 tonn og þar yfir. Jafnvel er
talin hætta á að veróið lækki enn
frekar því 8.000 tonn er töluvert
yfir því magni sem japanskir um-
boðsmenn segja að markaöur sé
fyrir þar í landi.
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.
gerói á sl. ári samning um sölu á
frystri karlloðnu til dýragarða í
Flórída í Bandaríkjunum sem fóður
fyrir sjávarspendýr. Ekkert var
fryst í haust þegar ekki þarf aó
flokka loónuna eftir kyni vegna
þess aó þá er kvenloðnan hrogna-
Íaus en hrognin vilja dýragarðseig-
endumir ekki þar sem þau fljóta þá
um alla laugina. Búið er aö frysta
milli 2 og 3.000 tonn og eru borg-
aðar milli 30 og 40 krónur fyrir
kílóið.
Þar sem loðnufrystingu er lokið
í bili er aftur hafin bolfiskvinnsla
hjá frystihúsinu og hefur m.a. verið
unninn fiskur af Geir ÞH, en einnig
á frystihúsið nokkuð af heilfrystum
Rússaþorski í frystigeymslum upp
á aö hlaupa til aö halda uppi stöð-
ugri vinnslu í húsinu. GG
punktar
■ Bæjarráð samþykkti í gær
tillögur starfsmannastjóra aó
ráðningum fólks 17 ára og
eldra 1 sumarstörf hjá Akureyr-
arbæ 1995. Jafnframt ákvaó
bæjarráð að 16 ára unglingum
f. 1979 verði gefin kostur á 6
vikna vinnu í sumar, 7 tíma á
dag, samtals 210 vinnustundir.
Vinna unglinga 14 og 15 ára
verið með sama hætti og s.I. ár.
Starfsmannastjóra var falió aó
auglýsa eftir umsóknum um
sumarstörf.
■ Kynnt voru 10 tilboð, sem
borist hafa í 350.000. sorppoka
úr plasti. Fyrir liggur að fallið
hefur verió frá lægsta tilboði,
þar sem það uppfyllti ekki þær
kröfur sem settar voru. Bæjar-
ráó samþykkti að ganga til
samninga um kaup á sorppok-
um samkvæmt næstlægsta til-
boði. Tilboðsgjafi er Þórsham-
ar hf. og er tilboðsupphæðin
4.130.000 meö virðisauka-
skatti.
■ Hestamannafélagið Léttir
hefur með bréft 16. mars sl.
skoraó á bæjaryftrvöld að
kaupa nú þegar öflugan snjó-
blásara til þess að auðvelda
starfið við að halda opnum um-
feróarleiðum í og við Akureyr-
arbæ, m.a. reiðvegum hesta-
manna. Bæjarráð samþykkti að
senda þetta erindi til fram-
kvæmdanefndar.
■ Lögð voru fram tvö bréf frá
Úrvinnslunni hf. þar sem gerð
er grein fyrir starfsemi og
stöðu fyrirtækisins og leitaö
eftir auknu hlutafé og stuðn-
ingi frá Akureyrarbæ við söfii-
un á pappír og plasti til cndur-
vinnslu. Bæjarráð leggur til að
Akureyrarbær (Framkvæmda-
sjóður) leggi fram aukió hluta-
fé í fyrirtækið allt að kr. 1.6
milljón króna með skuldajöfn-
un vió bæjargjöld. Tilskilið er
þó að hlutdeíld Akureyrarbæjar
í lyrirtækinu hækki ekki frá því
sem nú er (24.1%). Þá sam-
þykkti bæjarráð að leggja til aó
tæknideild bæjarins vcrði
heimilt að fjölga móttöku-
stöðvum á pappír og plasti í
allt aó 7 og gera um það samn-
ing við Gámaþjónustuna hf..
Samningurinn verði lagður fyr-
ir bæjatráð til staöfestingar.
Einnig lagði bæjarráó til að Úr-
vinnslunni hf. verði vcittur
styrkur á þessu ári að upphæð
1.2 milljónir - m.a. til kynning-
ar og markaðsátaks.
■ Skákfélag Akureyrar hefur
með bréfi ítrekað umsókn sína
um styrk úr bæjarsjóði til við-
halds á húseign sinni að Þing-
vallastræti 18. Bæjarráð frest-
aði afgreiðslu og fól formanni
íþrótta- og tómstundaráðs að
ræða við stjómendur Skákfé-
lagsins um máliö.
■ Bæjarráó samþykkti í gær aó
heimila bæjarstjóra aó undirrita
stofnsamning um hlutafélagið
Glerárgata 26, en þar verður
félags- og fræóslusvió bæjarins
til húsa í framtíðinni. Jafnframt
var bæjarstjóra falió að leggja
l'yrir bæjarráð cndanlega kostn-
aðaráætlun um framkvæmd t
Glerárgötu 26.