Dagur - 24.03.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 24. mars 1995
HVAÐ ER AÐ OERA5T?
Bingó í Lóni
Karlakór Akureyrar/Geysir heldur
bingó í félagsheimili kórsins, Lóni
við Hrísalund, nk. sunnudag, 26.
mars, kl. 20. Fjöldi góóra vinn-
inga. í hléi syngur kórinn nokkur
lög.
Félagsvist í Hamri
Félagsvist verður spiluð í Hamri
nk. sunnudagskvöld, 26. mars, kl.
20. Allir eru boðnir velkomnir.
Ingvar sýnir í Safnahúsinu
Á morgun, laugardaginn 25. mars
kl. 14, opnar Ingvar Þorvaldsson
málverkasýningu í Safnahúsinu á
Húsavík. Sýningin verður opin
fram á mánudag kl. 14-19. Ingvar
sýnir um 50 olíu- og vatnslita-
myndir að þessu sinni, en hann
hefur komið nokkuð reglulega
með sýningar til Húsavíkur frá því
hann flutti þaðan.
Karakter og Laddi
í Sjallanum
Hljómsveitin Karakter frá Akur-
eyri heldur uppi stanslausu fjöri í
Sjallanum á Akureyri annað
kvöld, laugardagskvöld. Þá má
ekki gleyma sýningu Ladda,
Norðan grín og garri, sem verður
annað kvöld í Sjallanum. Á góða
dátanum halda uppi fjörinu í
kvöld og annað kvöld þeir Hjörtur
Howser, hljómborð, og Jens
Hansson, saxófónn.
Ferð í Þorvaldsdal
Á morgun, laugardag, stendur
Feróafélag Akureyrar fyrir
skíðagönguferð í Þorvaldsdal.
Lagt verður af staö frá skrifstofu
félagsins Strandgötu 23 kl. 8.
Nánari upplýsingar fást á skrif-
stofunni í dag, föstudag, frá kl.
17.30 til 19. Síminn er 22720.
Þorgerður sýnir í Varmahlíð
Á morgun kl. 14 verður opnuð
sýning á pappírsmyndverkum Þor-
gerðar Hlöðversdóttur myndlistar-
konu í ASH keramik galleríinu í
Lundi, Varmahlíó.
Þorgerður útskrifaðist úr textil-
deild Myndlista- og handíðaskól-
ans árið 1990. Hún er með verk-
stæði á heimili sínu að Blönduhlíð
18 í Reykjavík.
Þorgerður var með einkasýn-
ingu í Stöölakoti í nóvember 1994
og tekur þátt í samsýningu Textil-
félagsins í Hafnarborg í Hafnar-
fírói, sem einnig verður opnuð á
morgun. Sýningin stendur til apr-
ílloka og eru allir hjartanlega vel-
komnir.
Flóamarkaður í Kjarnalundi
Náttúrulækningafélag Akureyrar
efnir til flóamarkaðar í Kjama-
lundi á morgun, laugardag, kl. 14-
17. í boði eru fallegar prjónavör-
ur, skart, bækur og mjög ódýr
fatnaður af öllu tagi. Meðal annars
sértilboð á pilsum og skóm.
Tónleikar á Akureyri og
Húsavík
Um helgina 25.-26. mars veröa
um 70 strengjanemendur úr Tón-
listarskólanum á Egilsstöóum og
Tónskóla Sigursveins í Reykjavík
í heimsókn á Akureyri. Þetta eru
nemendur á aldrinum 7-15 ára
sem halda tónleika ásamt jafnöldr-
um sínum úr Tónlistarskólanum á
Akureyri í Akureyrarkirkju á
morgun, laugardag, kl. 17. Á
HOTEL KEA
Hin frábæra stuðhljómsveit
GEIRMUNDAR
VALTÝSSONAR
sér um sveifluna laugardagskvöld
Örfá borð laus fyrir matargesti.
% •
Við óskum Leikfélagi Akureyrar
til hamingju með frumsýningu á
Djöflaeyjunni
og í tilefni þess bjóðum við
glæsilegan leikhúsmatseðil
Portvínslöguð skelfisksúpa að hætti Línu spákonu
Salthnetuhjúpaðar grísalundir með djöflasósu
Súkkulaðihjúpaður fsbraggi í ferskjupolli
Verðaðeinskr. 1957.-
sjs • sgs
Verð á laugardagskvöldum kr. 2.500.-
Þá innifalinn dansleikur
Ath.! Höldum borðum meðan á sýningu stendur
Hótel KEA
sími 22200
Mánakórinn heldur söngskemmtun í Hlíðarbæ nk. sunnudag,
mars, kl. 21 og í Akureyrarkirkju nk. mánudag, 27. mars, kl. 20.30.
Kórinn hefur æft tvisvar í viku í vetur og íyrir jólin voru
jólatónlcikar í Akureyrarkirkju við góðar undirtcktir og 28.
var sungið í Blönduóskirkju. Frá áramótum hefúr stefnan verið tekin
á þá söngskemmtun sem flutt veróur nú um helgina.
Efnisskrá er fjölbreytt og sum lögin flutt í nýrri útsetningu eftir
söngstjórann Michael Jón Clarke. Undirleikari er Guðný Erla Guó-
mundsdóttir auk annarra í sumum laganna.
Með hækkandi sól hyggur kórinn á söngferð í Skagafjöró og
Þeir sem áhuga hafa á sðng og langar til aö bætast í hópinn næsta
haust geta haft samband við formann kórsins, Ásdísi H. Hreinsdóttur,
ísíma 22011.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í
kvöld, föstudag, kl. 20.30
Djöflaeyjuna eftir Einar Kárason
og Kjartan Ragnarsson. Leik-
stjóri er Kolbrún Halldórsdóttir
en leikmynd og búninga gerir
Axel Hallkell Jóhannesson.
Undirleikari er Karl Olgeirsson
og Ingvar Bjömsson hannar lýs-
ingu.
Uppselt er á frumsýninguna í
kvöld og sömuleióis á sýninguna
annað kvöld. Næstu sýningar
eru föstudaginn 31. mars og
laugardaginn 1.
bæði kvöldin.
20.30
sunnudag fara þessir nemendur
allra skólanna til Húsavíkur og
halda tónleika þar í Tónlistarskól-
anum kl. 15.
Tónleikamir eru öllum opnir
og er aðgangur ókeypis.
Eyjafjörð heldur árshátíð á Fiðlar-
anum á Akureyri annað kvöld og
hefst borðhald kl. 19.30. Húsið
verður opnað kl. 19 fyrir matar-
gesti og aftur kl. 23. Fjölbreytt
skemmtiatriði. Aðgangseyrir kr.
2.300.
15 mínútna mót
Skákfélag Akureyrar efnir til 15
mínútna móts á sunnudag kl. 14 í
húsnæði Skákfélagsins við Þing-
vallastræti. Mótió er öllum opið.
Arshátíð nikkara
Félag harmonikuunnenda við
Gígja sýnir í
Galleríi AlIraHanda
Á morgun, laugardag, kl. 15 opnar
Gígja Baldursdóttir málverkasýn-
ingu í Galleríi AllraHanda á Ák-
ureyri. Gígja er fædd í Reykjavík
1959, stundaði nám við Mynd-
Eldri borgarn
- hádegisfundur, súpa og brauð
Sjálfstœðisflokkurinn býður eldri borgurum
til hádegisverðar í dag, föstudaginn 24. mars
kl. 12.00-13.30 í Glerárgötu 32.
Gestir fundarins verða: Halldór, Tómas,
Svanhildur og Jón Helgi, fjórir efstu menn
listans (og ef til vill leynigestur).
Ef þið þutfið á akstri að halda þá hafið samband
við skrifstofuna í síma 21500 eða 21504
listaskólann í Reykjavík 1980-
1981, Oslo Maleskole 1981-1982,
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1982-1986, lauk BFA gráðu
frá Iowa State University 1992.
Þetta er fimmta einkasýning
Gígju, en hún hefur haldið sýning-
ar bæði hér heima og erlendis.
Sýningin verður opin á opnunar-
tíma Gallerís AllraHanda og lýkur
sunnudaginn 9. apríl nk.
Geirmundur á Hótel KEA
Ein vinsælasta danshljómsveit
landsins, Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar, leikur fyrir dansi
annaó kvöld, laugardagskvöld.
í tilefni sýningar Leikfélags
Akureyrar býður Hótel KEA
glæsilegan leikhúsmatseðil sem
inniheldur portvínslagaða skel-
fisksúpu að hætti Línu spákonu,
salthnetuhjúpaðar grísalundir með
djöflasósu og ísbragga hjúpaðan
súkkulaói og kostar kr. 1957 nema
á laugardögum, þá 2500 krónur,
en þá er dansleikur innifalinn og
halda gestir borðum þegar dans-
leikur hefst. Miðaverð á dansleik
er kr. 700 og er snyrtilegur klæðn-
aður skilyrði eins og ávallt.
Pólskir tónlistarmenn í
Safnaðarheimilinu
Nú í lok marsmánaðar verða tveir
pólskir tónlistarmenn á tónleika-
ferð um landið. Ferðin hefst með
tónleikum í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju nk. sunnudagskvöld
kl. 20.30. Listamennirnir eru
Tomasz Tomaszewski flðluleikari
og Jarzy Tosik Warsawiak píanó-
leikari. Á efnisskrá þeirra eru verk
eftir J.S. Bach, W.A. Mozart, J.
Brahms og H. Wieniawksi.
Tomasz Tomaszewski var í
Pólska kvartettinum sem hlaut
ARD-verðlaunin í Belgrad. Tom-
aszewski hefur haldið tónleika í
Evrópu, Bandaríkjunum, Japan og
Taiwan og hlotið verðskuldaða
viðurkenningu fjölmiðla. Hann
kennir vió Listaháskólann í Berlín
og heldur reglulega opin nám-
skeið fyrir lengra komna nemend-
ur.
Jerzy Tosik-Warsawiak er frá
Kraká. Hann er í Berlínartríóinu.
Tosik hefur unnió til verólauna og
hlotið styrki fyrir píanóleik sinn,
m.a. í keppni í Bratislava og í
Chopin píanókeppninni í Varsjá.
Hann hefur farió í margar tón-
leikaferðir innan Póllands og utan
og hefur oftsinnis komió fram í
útvarpi og sjónvarpi. Hann hefur
starfað við Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar síðan 1992 sem píanó-
kennari og undirleikari.
Sýslumaðurinn Húsavík
Útgarði 1, 640 Húsavík. Sími 41300.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Álftanes, Aðaldælahreppi, þirigl.
eig. Völundur Hermóðsson, gerðar-
beiðandi Lýsing hf., 30. mars 1995
kl. 14.
Saltvík 2, Reykjahreppi, þingl. eig.
Jarðeignadeild landbúnaðarráðun.,
gerðarbeiðandi Stofnlánadeild
landbúnaðarins, 30. mars 1995 kl.
t5.______________________________
Sunnuvegur 8, Þórshöfn, þingl. eig.
Björgvin A. Gunnarsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður rikisins
og Búnaðarbanki Islands, 29. mars
1995 kl. 13.30.
Vesturvegur 10, íbúð A, Þórshöfn,
þingl. eig. Víðir Óskarsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður verka-
manna og ÍHótel Norðurljós, 29.
mars kl. 14.
Sýslumaðurinn Húsavík,
22. mars 1995.