Dagur - 24.03.1995, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Föstudagur 24. mars 1995 - DAGUR - 15
SÆVAR HREIÐARSSON
Handbolti - úrslitakeppni:
KA verður að vinna a morgun
Mikill darraðardans var stiginn í
Valsheimilinu að Hlíðarenda í
gærkvöldi þegar Valur bar sig-
urorð af KA í þriðja leik liðanna
um íslandsmeistaratitilinn. Val-
ur hafði yfír í leiknum frá fyrstu
mínútu, leiddi í leikhléi 12:8 og
lokatölur urðu 24:23 eftir æsi-
spennandi lokamínútur. Staðan
er nú 2:1 í viðureignum liðanna
og geta Valsarar tryggt sér bik-
arinn í KA-heimilinu á morgun.
- tapaði í þriðja leiknum gegn Val í gærkvöldi
Bikarmót
13-14 ára
Um helgina fer fram í Hlíóar-
fjalli bikarmót 13-14 ára kepp-
enda í svigi og stórsvigi. Búist
er við um 120 kcppendum víðs
vegar aó af landinu. Þetta er
þriðja úlraunin til að halda
mótið en ávallt hefur veður
gert mönnum lífiö leitt og mót-
inu verið frcstað. Keppni hefst
kl. 10.00 bæði á laugardag og
sunnudag og verólaunaafhend-
ing veróur í mótslok.
Göngumót á
sunnudag
Bikarmót Skíóasambands ís-
lands í göngu i flokkum 13 ára
og eldri, sem frestað var sl.
sunnudag, fer fram í Hlíðar-
fjalli nk. sunnudag og hefst
keppni kl. 11.00. Gengið veró-
ur með frjálsri aóferó.
Kl. 14.00 á sunnudag verður
Þórsmót í aldursflokkum 12
ára og yngri og verður gengió
með hefðbundinni aöferð. Ak-
ureyrarmóú í skíðagöngu, sem
átú aó fara fram þessa helgi,
hefur verið frestað um óákveð-
inn tíma. Veður og ófæró hafa
sett strik í reikninginn hjá
göngumönnum að undanfömu.
Strandaganga
Á morgun verður á Hólmavík
Sfrandagangan, ein af ís-
landsgöngunum svokölluðu.
Kcppnin fer fram svk. reglu-
gerð SKÍ um íslandsgöngur,
keppendur skulu ganga með
hefðbundinni aóferð. Það verð-
ur einnig keppt í tveimur öðr-
um vegalengdum fyrir utan 20
km. gönguna, 5 10 km. og 5
km. Keppnin hefst kl. 14.00.
KA byrjaði leikinn á því að
spila vömina mjög framarlega og
kannski má segja aó það hafi gert
útslagið þegar upp var staðió.
Valsarar áttu auðvelt meó aó fínna
leið í mark KA og Sigmar Þröstur
komst aldrei í takt viö leikinn. Jón
Kristjánsson lék geysistórt hlut-
verk í Valsliðinu og skoraði fjögur
góö mörk í hálfleiknum. Þegar um
12 mínútur voru liónar af hálf-
leiknum höfðu heimamenn náð
fjögurra marka forskoti og það var
hreinlega of stór bita að kyngja
fyrir KA. Staðan í leikhléi var
12:8 en Guðmundur varði vítakast
eftir að leikúminn var runninn út.
Patrekur og Valdimar geróu
fyrstu mörkin í hálfleiknum og síð-
an komu tvö Valsmörk í röð, eitt
frá KA og síðan aftur tvö mörk frá
Val. Staðan var orðin 19:14 og 17
mínútur eftir af leiknum.
Síðustu mínútur leiksins voru
æsispennandi. KA-menn brugðu á
þaö ráó aó taka tvo menn úr um-
ferð þegar um 6 mínútur voru eftir
af leiknum og staóan 23:18. Sú
taktík tókst vel, Sigmar varði vel
úr opnum færum og KA-menn
náðu á ótrúlegan hátt að gera leik-
inn spennandi á ný. Þeir gerðu
fjögur mörk í röó og voru þar með
einu marki undir þegar 1 mínúta
var til leiksloka. Dagur og Alfreð
skoruðu síðan sitt markið hvor og
lokatölur urðu 24:23 Val í vil.
Patrekur lék vel í sókninni hjá
KA og Jón og Dagur hjá Val.
Vöm og markvarsla náðu sér ekki
á strik hjá KA. SV
Mörk Vals: Jón 6, Dagur 6, Davíó 5,
Júlíus 2, Olafur 2/1 og Sigfús, Geir og
Valgarð 1 hver. Guómundur varði 11/1
skot og Axel 1.
Mörk KA Patrekur 7, Valdimar 7/5,
Leó 3, Erlingur 3 og Þorvaldur, Alfreð
og Valur 1 hver.
Dómarar: Guójón L. Sigurósson og
Gunnar Kjartansson. Voru slakir og
furóu sætir að þeir skuli dæma saman þar
sem þeir hafa ekki dæmt saman í vetur.
Leikmenn beggja lióa voru æfir yfir
frammstöðu þeirra.
„Vinnum alltaf síðustu tvo"
- sagði Alfreð Gíslason
„Þetta gekk ekki upp hjá okkur Mjög ánægður
í dag. Við reyndum að brydda
upp á nýjung í byrjun með því
að spila 3-2-1 vörn en við lékum
hana einfaldlega ekki nægilega
vel. Ég blæs á það að þeir hafi
meiri breidd og meira úthald. f
öllum leikjunum höfum við ver-
ið að taka þá í lokin. Mér lýst
mjög vel á það sem eftir er. Það
eru tveir leikir eftir og við höf-
um sýnt það að við vinnum allt-
af síðustu tvo,“ sagði Alfreð.
Geir Sveinsson, fyrirliði Vals.“Eg
er mjög ánægður með okkar spila-
mennsku. Við vorum yfir allan
tímann og sigurinn var fyllilega
sanngjam. Okkur gekk vel að
leika á móti 3-2-1 vöminni og
náðum góðri forystu í byrjun. Ég
myndi telja að breiddin sé að skila
sér hjá okkur. Nú tökum við þá
fyrir norðan. Það verður ekkert
skemmtilegra en að klára þetta á
þeirra heimavelli.“
Patrekur Jóhannesson var firnasterkur
ur KA-manna.
í síðari hálfleik og var atkvæðamest-
Mynd: Robyn.
Úrslitakeppni 2. deildar í handbolta:
Grótta með ÍBV í 1. deildina
- líðið vann öruggan sigur á Þór 23:16
Grótta tryggði sér sæti í 1. deild ieikur var lítið fyrir augað en
fslandsmótsins í handknattleik
fyrrakvöld, með öruggum sigri á
Þór í úrslitakeppni 2. deildar.
Leikið var á Seltjamarnesi og
urðu lokatölur leiksins 23:16.
Það var aðeins fyrstu 15 mín.
leiksins sem jafnræði var með lið-
unum en eftir það skildu leiðir.
Heimamenn náðu mest 5 marka
forystu í fyrri hálfleik og leiddu
14:9 í leikhléi.
Gróttumenn juku muninn í 7
mörk í upphafi síðari hálfleiks og
hélst sá munur út leikinn. Þessi
heimamenn höfðu að meiru að
keppa og lögðu því harðar að sér.
Munurinn á liðunum í 2. deild og
þeim 10 bestu í 1. deild er hins
vegar gífurlegur og bæði ÍBV,
sem einnig hefur unnið sér sæti í
1. deild næsta haust og Grótta,
verða heldur betur að bæta við sig
fyrir komandi átök, ef ekki á illa
að fara.
Sævar Ámason, var lang at-
kvæðamestur Þórsara í leiknum í
fyrrakvöld og sá eini sem eitthvað
lét að sér kveða.
HM-getraun Dags og HM '95 miðasölu
44
í
dagar fram að HM
Bræðurnir Geir og Orn Hallsteinssynir voru landsliðsmenn í hand-
knattleik. Með hvaða félagsliði spíluðu þeir?
( ) Vd.
( ) Haukum.
( ) FH.
Krossið við rétt svar og sendið seðilinn til:
Dagur - HM-getraun, Strandgata 31, 600 Akureyri.
Miðvikudaginn 29. mars verður dregið úr réttum lausnum
fyrir dagana 18., 21., 22., 23., og 24. mars og nöfn
vinningshafa birt í blaðinu fimmtudaginn 30. mars.
Vinningshafi hvers dags fær að launum HM-bol og minja-
gripi vegna HM-95. Auk þess verða lausnarmiðar 18.,
21., 22., 23. og 24 mars settir í pott og úr honum dregn-
’Upf_
9?
Símanúmer HM '95
miðasölu: 96-12999
ir tveir miðar. Hinir heppnu fá hvor um sig Ivo miða einn
leikdag (þrjá leiki) i D-riðli HM '95 á Akureyri.
Þátttakendur geta sent lausnarseðla í umslagi fyrir hvern
dag en einnig er heimilt að senda lausnarseðla fyrir fyrstu
fimm daga getraunarinnar í einu umslagi. Það skal
ítrekað að fyrsti útdráttur verður miðvikudaginn 29. mars.
Sendandi:
i____________
Sími:
Mörk Þórs: Sævar Ámason 9/4, Páll
Gíslason 2, Geir Kristinn Aöalsteins-
son 2 og Atli Már Rúnarsson, Jón
Kjartan Jónsson og Baldvin Her-
mannsson 1 mark hver.
Mörk Gróttu: Jón Örvar Kristjánsson
5, Einar Jónsson 5, Jens Gunnarsson 4,
Guðmundur Ámi Sigfússon 3, Davíð
B. Gíslason 3, Davor Kovacevic 2/1,
AmarFreyr Vilmundarson 1.
Íshokkí:
Úrslita-
slagurinn
hefst um
helgina
Íshokkímenn ætla að gera aðra
tilraun til að leika úrslitaleikina
í íslandsmótinu um helgina. SA
og Bjöminn mætast á svellinu á
Akureyri og má búast við mikilli
keppni. Leikirnir hcfjast kl.
14.00, bæði á morgun og á
sunnudag.
Leikirnir áttu að vera um síð-
ustu helgi en vegna veðurs varð
að aflýsa þeim. Aftur átti að reyna
í Reykjavík á miðvikudag en þeim
leik var einnig aflýst vegna veð-
urs. Lcikmenn SA eru staðráðnir í
að tryggja sér titilinn nú enda ekki
seinna vænna þar sem veður er
orðið full gott fyrir íshokkímenn.
Blak:
Stjarnan í
heimsókn
Karlalið KA leikur í kvöld kl.
20.30 gegn Stjömunni í 1.
deild karla í blaki í KA-
heimilinu. KA-menn hafa í
nógu að snúast því á morgun
leika þeir gegn HK fyrir
sunnan í leik sem átti að
leika um síðustu helgi.
Kvennalið sömu félaga leika
einnig á morgun.
KA og Stjaman berjast um
þriója sætið í karlaflokki en
það lið sem nær því leikur
gegn HK í úrslitakeppninni
sem hefst S næstu viku. Liðið
sem lcndir í fjórða sæti mætir
deildarmeisturum Þróttar úr
Reykjavík og þykir mörgum
það vænlegri kostur.
Kvennaliðin ríða á vaóið kl.
14.00 á morgun í Digrancsi og
karlamir taka við kl. 15.30.
'"'-□“□a8Baa°n°'' —^
1 1 1111=--□□□
Ný námskeið
hefjast mánudaginn
27. mars.
Skráning hafín.
Hringdu strax.
Líkamsrœktin
Hamri
Sími12080