Dagur - 05.05.1995, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Föstudagur 5. maí 1995
HM-95 í HANDKNATTLEIK - STERKUSTU UÐIN Á AKUREYRI
Flestir spá Svíum sigri
Staffan Olsson er auðþekkjanlegur á velli og hann verður í Iykilhlutverki í
liði Svía.
Egyptar leika mjog
agaðan bolta
Egyptar enduðu í 12. sæti í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum en síðan
þá hefur verið stöðug uppbygg-
ing á liðinu og það er mun sterk-
ara nú. Þýski þjálfarinn Paul
Tiederman hefur þjálfað liðið
undanfarin ár og alið upp stór-
góða leikmenn. Egyptar eru nú-
verandi heimsmeistarar U21 árs
og uppistaðan í því iiði leikur
núna á HM. Þeir búa yfir tækni
og getu en það eina sem gæti
hrjáð þá er reynsluleysið.
Stefán Amaldsson, milliríkja-
dómari, hefur flautað fjölmarga
leiki hjá Egyptum og hefur trú á
liðinu. „Egyptar geta verið alveg
topplið. Þeirra styrkur felst í mikl-
um hraða, góðri vöm og öguðum
sóknarleik,“ sagði Stefán. Þeir
hafa verið meö Þjóðverja sem
þjálfara og það hefur verið mikill
agi hjá þeim. Þeir eru ofsalega
fljótir og hraðaupphlaupin alveg
með ólíkindum. Eg hugsa að þeir
geti velgt Svíum og Spánverjum
undir uggum en ég hef ekki trú á
að þeir nái að sigra þá,“ sagði
Stefán.
Svíar eru taldir sigurstrangleg-
astir á Heimsmeistaramótinu í
handknattleik sem hefst á
sunnudag. Liðið hefur spilað
saman undanfarinn áratug og
þar virðist hvergi veikan blett að
finna. Akureyringar fá að sjá þá
sýna listir sínar í Höllinni næstu
vikur.
„Svíar eru með dálítið gamalt
lið en rosalega samæft. Þessir
sömu menn og hafa verið undan-
farin ár koma til með að vera mest
áberandi hjá þeim. Það eru Wis-
lander, Hajas, Svensson í mark-
inu, Carlen og Olsson og náttúru-
lega Magnus Andersson. Það spá
því allir að þeir verói heimsmeist-
arar en ég gæti alveg eins búist
við aö Spánverjarnir fari betur út
úr þessum rióli héma á Akureyri.
Svíar eru með fjóra til fimm úti-
spilara sem eru allir í heimsklassa
og með sterkara lið en Spánverj-
arnir en ef þetta smellur vel meó
Dujshebaev þá geta Spánverjamir
unnið þá,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari KA, um baráttu sterkustu
lióanna í D-riðlinum, „Dauðariól-
inum.“
Hvít-Rússar geta unnið
bæði Spánverja og Svía
Svíar hafa á að skipa besta
markvarðapari sem völ er á í dag.
Gamla kempan Mats Olsson er
enn í fullu fjöri enda hefur hann
verið talinn einn fremsti markvör-
ur heims í fjölda ára og hefur enga
veikleika sem menn hafa getað
spilað upp á. Tomas Svensson er
ekki síðri milli stanganna. Hann
átti stærstan hlut í að Svíar eru nú-
verandi Evrópumeistarar þegar
hann varði 1S skot í fyrri hálfleik
gegn Rússum í úrslitaleiknum og
Svíar unnu leikinn meó ótrúlegum
mun. A dögunum gerði Svensson
fimm ára samning vió Barcelona
en hann hefur spilað með Bidasoa
undanfarin ár.
Skemmtilegt veróur að fylgjast
með leikstjómendum sænska liðs-
ins en þar berjast tveir af bestu
leikmönnum heims um sömu
stöðu. Magnus Wislander er mátt-
arstólpi í lióinu en hann hefur
Ieikið frábærlega með Kiel í
Þýskalandi í vetur. Hann er heil-
inn í liðinu og það verður fróðlegt
að sjá hvemig honum reiðir af
gegn rússneska Spánverjanum
Dujshebaev. Magnus Andersson
er einn sá allra besti í dag. Hann
hefur gífurlega knatttækni, mjög
fjölbreytt skot og er alveg óút-
reiknanlegur. „Ég hef trú á því að
Wislander verði meira með en
Andersson. Hann er þaó mikil-
vægur upp á vömina og hann
stjómar hraðaupphlaupunum al-
veg. Hann er svona maður sem
þarf aó vera inn á,“ sagði Alfreð.
Skytta vinstra megin er Ola
Lindgren, sem var ein aðalhetja
liðsins á móti Rússum í úrslitaleik
HM í Tekkóslóvakíu 1990. Þann
sem er hægra megin þarf vart aó
kynna en það er Staffan „Faxi“
Olsson, sem hefur verið einn höf-
uðandstæðingur Islendinga í
gegnum árin.
Línumaðurinn Per Carlen er
tröll að burðum og þrátt fyrir að
vera ekki mjög lipur vinnur hann
mjög vel fyrir félaga sína.
I vinstra hominu er Erik Hajas,
Magnus Andersson er einn allra
skemmtilegasti leikmaður heims og
töframaður með boltann.
sem er eldsnöggur og gífurlega
skæður í hraóaupphlaupum. Hann
hefur reynst Islendingum mjög
erfiður í gegnum tíðina. I hægra
horninu er Pierre Thorsson, sem
býr yfir geysilegri tækni og er
traustur leikmaður sem hægt er aó
stóla á.
„Menn gleyma stundum Hvít-
Rússunum. Þeir eru með alveg
hörkulið. Uppistaðan í liðinu er
úr gamla Minskliðinu, sem var
Evrópumeistari nokkur ár í röð
og þarna eru átta til níu leik-
menn sem voru í rússneska
landsliðinu á sínum tíma,“ segir
Alfreð Gfslason um lið Hvít-
Rússa.
„Þeir eru með Mikhail Ja-
kimovich sem skyttu, sem er al-
veg frábær leikmaður. Andrei
Barbashinski leikur ennþá með
Minsk og leikstjómandinn Andrei
Paraschenko leikur á Spáni með
Galdar, sem er þriðja sterkasta lið-
ió þar núna. Homamaðurinn
Konstantin Sharovarov spilar í
Israel núna og Gennadi Khalepo
það er mjög öflug skytta. Alex-
ander Touchkin kemur fyrst inn í
þetta núna eftir að hafa ekki verió
í liðinu undanfarin ár vegna
meiósla og þetta er mjög sterkt
lið. Þetta er lið sem getur unnið
bæði Spánverja og Svía,“ sagði
Alfreð um Hvít-Rússana.
Mikhail Jakimovich er einn besti handknattleiksmaður heims og ægilegur
dúndrari. Hann er skytta með ótrúlegan sprengikraft, bæði í stökkum og
skotum. Hann leikur með Teka Santander á Spáni.
Kemur Dujshebaev Spánverjum á toppinn?
ánverjar eru með lið sem er góðan samning þar. Þeir lofa bæra leiki en getur svo ekkert þess aó hann spilar fyrst og frcmst f
„Spánvetjar
nógu gott til að verða í einu af
þremur efstu sætunum,“ segir
Alfreð Gfslason, þjálfari KA og
fyrrverandi leikmaður Bidasoa á
Spáni. „Þeir spila yfirleitt ágætis
vörn. Hafa oftast verið með
mjög góða sex-núll vörn og
sóknarleikurinn er hraður. Nú
eru þeir komnir með Dujs-
hebaev inn f þetta og kannski er
hann það sem þá vantar til að
ná alveg á toppinn. Gallinn við
Spánverjana er að þeir hafa
klikkað undir pressu hingað til,“
sagði Alfreð, þegar hann var
spurður út í spænska liðið.
Markverðir Spánverja eru
sterkir og tveir þeir bestu leika
með Barcelona. „Ef Lorenzo Rico
er ómeiddur verður hann eflaust
fyrsti markvöróur. Hann er elstur
og með mesta reynslu,“ sagði Al-
freð. Annar markvörður er hinn
efnilegi David Barrufet, sem hefur
verið hjá Barcelona en fer til Bid-
asoa fyrir næsta tímabil í skiptum
fyrir Svíann Tomas Svensson.
„Að mínu mati er Bidasoa að gera
góðan ~samning þar.
Svensson, sem er búinn aó vera
besti markmaðurinn í deildinni í
vetur, að fara vegna þess að þeir
veróa að fækka um einn útlend-
ing. Það mega bara vera tveir út-
lendingar næsta ár. David Barrufet
er bara 24 ára og almennt talinn
langefnilegasti markvöðurinn á
Spáni. Bidasoa tekur Barrufet í
staöinn þannig aó þeir eru að
leysa þetta vandamál með útlend-
ingana um leið og þeir fá mann
fyrir framtíöina,“ sagói Alfreö,
sem enn hefur sterkar taugar til
Bidasoa.
„Það er mjög erfitt að segja
hverjir verða í byrjunarliði hjá
Spánverjum þar sem þetta er svo
jafnt lið. Ég á alveg eins von á að
Femando Bolea frá Bidasoa byrji í
vinstra hominu en hann er búinn
að vera langbesti homamaður
þeirra síðustu tvö ár. I stöðu
vinstri útispilara verða það Juan
Alemany, Jesus Olalla og Enric
Masip. Sennilega er þaó Alemany
sem verður númer eitt. Þetta er
leikmaður sem getur átt alveg frá-
i getur svo ekkert þess
á milli. Það var búist við að hann
yrði ein besta skyttan í heiminum
en svo er hann bara svo óstöðug-
ur, á rosalega misjafna leiki. Hann
hefur yfirleitt verið mjög góður í
undirbúningsleikjum þegar lítil
pressa er en hverfur svo alveg
þegar pressan er komin á hann.
Bæði Olalla og Masip geta spilað
báðar hinar stöðumar fyrir utan
líka, nokkuð auðveldlega,“ sagði
Alfreð. „Olalla er langefnilegastur
Spánverja en hann gerði sennilega
þau mistök að fara til Barcelona.
Hann átti frábær ár með Bidasoa
og spilaói þá allar stöður og var
rosalega efnilegur strákur en hann
hefur ekki náð aö festa sig í sessi
hjá Barcelona."
Flestir þekkja rússneska leik-
stjómandann Talant Dujshebaev,
sem nýlega fékk spænskt ríkisfang
og binda þeir miklar vonir við
þennan leikmann. „Hann er ótrú-
legur lcikmaður," sagði Alfreð, en
hann bjóst þó við að hann gæti
líka klikkað. „Hann þekkir hina í
liðinu ekki nógu vel og ég hef
Leikstjórnandinn snjalli Talent
Dujshebaev er kominn í raðir Spán-
verja en spurningin er hvort hann
fellur inn í liðsheildina.
heyrt Spánverjana sjálfa gagnrýna
valið á honum. Þeir eru ekkert
alltof bjartsýnir með hann þar sem
spilar fyrst og fremst fyrir
sjálfan sig og ef hann gerir þaó í
þessari keppni þá er ég hræddur
um að þaó komi fljótt upp innri
vandamál í þeirra herbúðum,“
sagði AÍfreó.
„Sá sem kemur mest inn fyrir
hann á miðjunni er Ricardo Marin
frá Alzira. Hann er mjög öflugur
miðjumaður líka og hefur spilað
mjög vel í vetur. í hægri útispilara
stöðunni er Mateo Garralda senni-
lega númer eitt eóa Ignacio Ord-
onez sem kemur frá Bidasoa.
Garralda er örvhentur leikmaður
sem hefur verið nálægt því að
vera stórstjama hjá Spánverjunum
lengi en aldrei náð að uppfylla al-
veg þær væntingar sem gerðar eru
til hans. I hægra hominu er örugg-
lega Alberto Urdiales hjá Teka.
Fyrsti Iinumaður er sennilega Ai-
tor Etxaburu hjá Bidasoa og sá
sem leysir hann af er væntanlega
Luison Garcia. Etxaburu er mjög
stór og sterkur leikmaður en Garc-
ia er minni og sneggri. Að mínu
mati er Etxaburu betri,“ sagði Al-
freð.