Dagur - 08.06.1995, Blaðsíða 5

Dagur - 08.06.1995, Blaðsíða 5
MANNLI F Fimmtudagur 8. júní 1995 - DAGUR - 5 Jón Berg, kaupmaður í Raflandi í ◄ Sunnuhlíð, dró úr réttum lausn- um í happdrættinu. Yinningshafar í happdrætti á Sumardögum í Sunnuhlíð Um síðustu helgi var efnt til svo- kaliaðra Sumardaga í Sunnuhlíð og í tengslum við þá var efnt til happ- drættis. Sumardagamir þóttu takast vel, mikið var um dýrðir i Sunnu- hlíð, tilboð í verslunum, skemmti- kraftar létu sig ekki vanta og grill- veislan var á sínum stað. Dregið var í happdrættinu sl. þriðjudag og em vinningshafamir eftirtaldir: 1. verðlaun - helgarferð til Reykjavíkur: Sigrún Björk Sigurðardóttir, Borgarhlíð 4b, Akureyri. 2. verðlaun - ostakarfa frá KEA Sunnuhlíð: Asta M. Rögnvaldsdóttir, Smáratúni 9, Svalbarðseyri. 3. -5. verðlaun - 1000 kr. úttekt í Verslunarmið- stöðinni Sunnuhlíð: Jón Sigurðsson, Lönguhlíó 17, Akureyri. Andrea Dögg Kjartansdóttir, Smáratúni 9, Svalbarðseyri. Hólmfríður Jónsdóttir, Keilusíðu 5d, Akureyri. 6.-7. verðlaun - 1000 kr. gjafabréf á Crown chicken Akureyri: Gunnar Gíslason, Bröttuhlíð 4, Akureyri. Haraldur Arnarson, Stapasíðu 13i, Akureyri. 8.-9. verðlaun - 1000 kr. gjafabréf á Lindina Leiruvegi: Halldór Sveinsson, Karlsrauðatorgi 24, Dalvík. Ingibjörg Sigurrós Gunnarsdóttir, Mýrarbraut 21, Blönduósi. 10.-15. verðlaun - einn kassi af Frissa fríska: Birgir Sveinbjömsson, Akurgerði 5c, Akureyri. Berta Kjartansdóttir, Seljahlíð la, Akureyri. Rafn Sveinsson, Borgarhlíð 3a, Akureyri. Sigríður Jóhannesdóttir, Víðimýri 4, Akureyri. Björg Eiríksdóttir, Huldugili 36, Akureyri. Birna Jónasdóttir, Núpasíðu 8h, Akureyri. Vinningshafar fá send gjafakort í pósti á næstu dögum. óþh Leikfélag Akureyrar: Aukasýning á Djöflaeyíunni Það er óhætt að segja að sýning Leikfélags Akureyrar á Djöflaeyju þeirra Einars Kárasonar og Kjart- ans Ragnarssonar hafi slegið í gegn. Síðasta sýning átti að vera um síðustu helgi en vegna mikillar aósóknar verður aukasýning laug- ardaginn 10. júní nk. kl. 20.30 og verður það allra síðasta sýning. Rétt er aö geta þess aö á þessa sýningu kemur væntanlega fimm þúsundasti gesturinn á sýninguna og verður honum að sjálfsögðu boðið á sýninguna auk þess sem hann fær að launum aðgangskort á allar sýningar Leikfélags Akureyr- ar næsta leikár. Leikritið er hrollköld og um leið meinfyndin lýsing á íslensku samfélagi á bernskuárum lýöveld- isins. I verkinu birtist óborganleg- ur sagnaheimur Einars Kárasonar um líf og örlög fólks sem flutti á mölina eftir seinna stríð og átti ekki í önnur hús að venda en yfir- gefna hermannabragga. Fjöldi leikara tekur þátt í sýn- ingunni og hafa þeir hlotið ein- róma lof fyrir leik sinn sem og sýningin í heild, en leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir. Leikmynd og búninga gerir Axel Hallkell Jó- hannesson. Tónlistarstjóri og und- irleikari er Karl Olgeirsson, en fjölmörg lög frá sjötta áratugnum setja svip á sýninguna, sem er lýst af Ingvari Bjömssyni. Úr hinni vinsælu leiksýningu Leikfélags Akureyrar, Djöflaeyjunni. Á mynd- inni eru Lína spákona (Sigurveig Jónsdóttir), Dolií (Bergljót Arnaids), Fía (Sunna Borg) og Tóti (Aðalsteinn Bergdal). Mynd: Robyn. Þorvaldsdalsskokkið verður 1. júlí nk. Nú er tæpur mánuður þar til ræst verður í Þorvaldsdalsskokkið, en það hefst við Fornhaga í Hörgár- dal 1. júlí kl. 10 og endar við Ár- skógsskóla. Hafa keppendur þá farið um 26 km leið gegnum Þor- valdsdal, en hann er opinn í báða enda, og hæst er farið í um 500 metra yfir sjávarmáli. Þorvalds- dalsskokkið er ætlaó öllunt sem náð hafa 16 ára aldri, og er þess vænst að bæöi hlauparar, skokkar- ar, röltarar og göngumenn taki þátt í þessari ferð um dalinn, en tímatöku verður hætt eftir 6 klukkutíma. Menn geta sem sagt farið á sínum hraða og notið um- hverfisins mismikið, sumir kepp- ast við tímann, aðrir fara rólega og njóta umhverfisins. Keppt verður bæði í karla- og kvennaflokkum, aldursflokkunum 16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára, 60-69 ára og 70 ára og eldri. Þetta er dæmigerð óbyggóaferð og menn fylgja fjárgötum eða fara sínar eigin leiðir. Tæplega 50 þátt- takendur af ýmsum gerðum tóku þátt í þessu skokki í fyrra og töldu flestir þetta mikið og gott ævin- týri. Á leióinni munu verða drykkjarstöóvar og björgunar- menn og svo geta menn væntan- lega brugðið sér í sundlaugina í Árskógi að loknu hlaupinu og fengið sér hressingu. Nánari upp- lýsingar um Þorvaldsdalsskokkið veitir Bjami E. Guðleifsson (sími v. 4624477, h. 4626824) og tekur hann einnig við skráningu. (Fréttatilkynning) Skralli lét sig að sjálfsögðu ckki vanta og skemmti börnunum. Að sjálfsögðu mætti Stefán Vilhjálmsson frá Kjötiðnaðarstöð KEA og gaf fóiki að smakka griiikjöt. Hljómiistarmenn stigu á svið og skemmtu gestum. Möldur hf. - NÝ SÍMANÚMER - Samfara almennum breytingum á símakerfi landsmanna þá fá- um við hjá Höldi hf. ný símanúmer. Það er von okkar að nýju númerin lærist fljótt og að þessi breyting verði viðskiptavinum okkar til hagsbóta. Fiöldur Hf. SKRIFSTOFUR OG BÍLALEIGA BÍLALEIGA AKUREYRAR, Tryggvabraut 12 HÖLDUR, Tryggvabraut 10-14 461 3000, 461 3001 Samband frá skiptiborði við Bílaleigu, Nýja bíla, Dekkjaverkstæði, Notaða bíla, bensínafgreiðslu og sjoppu. BÍLASALA HÖLDUR, nýir bílar 461 3014 HÖLDUR, notaóir bílar Bílasalinn . _ 461 3020, 461 3019, 461 3000 ■JHIIiTiHiM Kjúklingastaðurinn CROWN CHICKEN Skipagötu 12 ESSO) NESTIN 461 3010, 461 3011 ESSO-NESTI, Tryggvabraut , - 461 3000,461 3001 ESSO-NESTI/Lindin, Leiruvegi tiZÍffW 461 3008, 461 3009 ESSO-NESTI/Veganesti 461 3012, 461 3013 BIFREIÐAVERKSTÆÐI - VARAHLUTIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI, Draupnisgötu 1 461 3015 VARAHLUTAVERSLUN, Draupnisgötu 1 461 3016

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.