Dagur - 08.07.1995, Síða 4

Dagur - 08.07.1995, Síða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 8. júlí 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 • SÍMFAX: 462 7639 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 464 1585, fax 464 2285), SÆVAR HREIÐARSSON,(íþróttir), LJÓSMYNDARI: BJÖRN GISLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Aímæli á Hvamms- tanga og Olafsfirði Um síðustu helgi var mikið um dýrðir á Seyðisfirði þegar haldið var upp á 100 ára kaupstaðarafmæli og um þessa helgi halda tvö byggðarlög á Norðurlandi upp á merk tímamót. Á Hvammstanga verður haldið upp á 100 ára verslunarafmæli staðarins og í Ólafsfirði fagna menn 50 ára kaupstaðarafmæli. Fyrir réttum hundrað árum kviknaði áhugi manna fyrir því að fá löggiltan verslunarstað í Vestur-Húnavatnssýslu og niðurstaðan varð sú. Þar sem Hvammstangi er nú var í þá daga engin byggð, en þessi staður varð fyrir valinu vegna góðra hafnarskilyrða frá náttúrunnar hendi. Fimm árum síðar, aldamótaárið, reis fyrsta húsið á Hvamms- tanga og það sama ár hóf danski kaupmaðurinn R.P. Riis verslunarrekstur. Þetta var byrjunin, en síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og Hvammstangi byggst upp sem öflugur þjónustu- og verslunarkjarni fyrir Vestur-Húna- vatnssýslu. í raun má því segja að samfara því að Hvammstangabúar fagna nú 100 ára verslunarafmæli séu þeir að fagna aldarafmæli staðarins. Ólafsfirðingar fengu kaupstaðarréttindi þann 1. janúar 1945 og sú ákvörðun tengdist baráttu þeirra fyrir hafnar- gerð. Alþingi samþykkti hafnalög árið 1943 og samkvæmt þeim bar ríkissjóði að greiða tvo fimmtu hluta hafnar- gerðarinnar á móti Ólafsfirðingum og ganga í ábyrgð á lántökum heimamanna vegna framkvæmdanna. Á móti var þess krafist að sýslusjóður Eyjafjarðarsýslu gengi í ábyrgð lánanna gagnvart ríkinu. Þegar á reyndi neituðu allir sýslunefndarmenn nema fulltrúi Ólafsfirðinga að ábyrgjast lántökur og hafnargerðin var stöðvuð. Þessari niðurstöðu vildu Ólafsfirðingar ekki una og þeir lögðu fram formlega beiðni til Alþingis um kaupstaðarréttindi Ólafsfjarðar. Þessum tímamótum fagna Ólafsfirðingar sérstaklega í dag þegar forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, sækir þá heim. Einnig verður mikið um að vera í Ólafsfirði um næstu helgi þegar brottfluttir Ólafsfirðingar flykkjast til bæjarins og gera sér glaðan dag með heima- mönnum. Á þessum tímamótum færir Dagur Hvammstangabú- um og Ólafsfirðingum sérstakar árnaðaróskir. Á merkum tímamótum er ástæða til að gleðjast yfir þeim sigrum sem unnist hafa. I UPPAHALDI „Lentí í lögreglunni“ Sigurður Björnsson, Ólafs- firðingur, lögregluþjónn, smiður, útflutningsmarkaðs- frœðingur, rekstrarfrœðing- ur og formaður afmœlis- nefndar Ólafsfjarðar er í uppá- haldi í dag. Hann er kvœntur Mar- gréti Sigurgeirsdóttur, sent er Ak- ureyringur í húð og hár og þau eiga þrjú börn, sem eru 25, 21 og 15 ára; „tvœr dœtur og strák í rniðið". Sigurður byrjaði á að lœra húsasmíði eftir að grunnskólanámi lauk, síðan fór hann í tcekniskólann í þrjú ár og líkaði ágœtlega. Sig- urður sneri heim á Norðurlandið og smíðaði af kappi, þangað til hann „lenti" eins og hann segir sjálfur í lögreglunni, 26 ára gam- all þar sem hann entist í tólfár. Þá fór hann suður í þrjú ár og vann í tengslum við lðntceknistofnun, samhliða námi í útflutningsmark- aðsfrœði og þjálfun í útflutnings- vinnu hjá Norges Exportskole. Að því loknu flutti hann aftur heim og hófsmíðar á ný. Síðasta afrek Sig- urðar var að fara í rekstrarfrceði við Háskólann á Akureyri og það- an útskrifaðist hann t vor. Nú er hann við sumarafleysingar hjá lög- reglunni t Ólafsfirði, en það var hann einnig meðan á háskólanám- inu stóð og segist ekki vera búinn að gera upp við sig hvað hann œtli að taka sér nœst fyrir hendur. Hvaða matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? Hvítkál og flysjuð epli. Eg borða mikið grænmeti. Uppáhaldsdrykkur? Blessað blávatnið og kaffi. Hvaða heimilisstörffinnst þér skemmtilegustlleiðinlegust? Þau heimilisstörf sem ég sinni Sigurður Björnsson. mest er að taka af eldhúsborðinu eftir hádegismatinn, en mér fmnst heimilisstörf ekkert sérlega skemmtileg og reyni að hafa þau í lágmarki. Stundar þú einhverja markvissa hreyfingu eða líkamsrœkt? Ég skokka um það bil 30-40 kílómetra á viku. Ert þú í einhverjum klúbbi eða fé- lagasamtökum? Sjálfstæðisflokknum. Þar er ég ævifélagi. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? Moggann og Time. Hvaða bók erá náttborðinu hjáþér? Hún heitir Beyond 2000 og fjallar um markaðsfræði framtíð- arinnar. I hvaða stjörnumerki ert þú? Ég er á mörkum steingeitar og vatnsbera og get ekki sagt að það hafi haft nein sérstök áhrif á mig. Hvaða hljómsveit/tónlistarmaður er i mestu uppáhaldi hjá þér? Þessa stundina hlusta ég mest disk sem heitir „í takt við tim- ann“ og er með Sinfóníuhljóm- sveit íslands þar sem hún spilar popptónlist. Ég er miklu meira fyrir klassíkina en aðra tónlist. Uppáhaldsíþróttamaður? Matthías Sigvaldason, knatt- spymumaður í Leiftri. Hvað horfir þú mest á í sjónvarpi? Það eina og mesta eru fréttimar. Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? Davíð Oddssyni. Hyer er að þínu mati fegursti staður á íslandi? Það er nú ekki langt frá því að það séu mynni Ólafsfjarðar og Eyjafjarðar í miðnætursólinni. Hvar vildirðu helstbúa efþú þyrftir að flytja búferlum nú? Ég get alls staðar verió, en mér hefur alltaf þótt gaman að vera á Akureyri. Hvaða hlut eðafasteign langar þig mest til að eignast um þessar mundir? Ég á allt sem mig langar til að eiga. Hvemig vUt þú helst verja frístund- um þínum? Ég sit mikið og les, fer í göngu- túra og skokka. Ætlarðu aðfara eitthyert í sumar? Helst sem minnst. Ég er búinn að vera svo mikið í burtu. Hvað œtlarðu að gera um helgina? Ég ætla að vera á kafi í því að halda upp á afmæli Ólafsfjarðar. shv AAEf> MORCUN KAFFI NU ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON Mannlíf vestan við Múlann Það verður væntanlega mikið um dýrðir í Ólafsfirði í dag þegar bæjarbúar og gestir þeirra, þar á meðal forseti vor, fagna 50 ára afmæli bæjarins. Þetta eru merk tímamót, fáir bæir á Islandi af þessari stærðargráðu hafa náð þessum aldri. En átök um hafnar- framkvæmdir urðu þess fyrst og fremst valdandi að Ólafsfirðingar ákváðu að sækja um kaupstaðar- réttindi og þau fengu þeir 1. janú- ar 1945. Hálf öld er að baki. Ólafsfiróingar era harðduglegt fólk og þeir eru sjálfstæðir í gjörðum og hugsun. Um það vitnar kannski betur en nokkuð annað fjöldi smáútgcrða í Ólafs- firði í gegnum tíðina. Landfræði- leg einangrun staðarins lengst af hefur gert það að verkum að Ól- afsfirðingar hafa bjargað sér á sinn hátt, þeir hafa ekki leitað í smiðju til annarra, þeir hafa gert hlutina sjálfir, um annað hefur ekki verið aó ræóa. Þetta er enn þann dag í dag ríkt í Ólafsfirðing- um, þó vissulega hafi landfræði- leg einangran staðarins verió rof- in meó flugsamgöngum en þó umfram allt Múlagöngum, sem vora gífurleg samgöngubylting fyrir Ólafsfjöró. Ég átti þess kost að vera í Ól- afsfirði einn vetur fyrir töluvert mörgum áram og nema í Gagn- fræóaskólanum þar í bæ. Læri- feóumir voru ekki af verri endan- um; Kristinn G., núverandi pistla- höfundur hér í Degi með meiru, var skólastjórinn, Hreinn Bem- harósson kenndi stærðfræði, ein- hver albesti stærðfræðikennari sem ég hef haft um dagana, Ósk- ar Þór nafni minn, núverandi skólastjóri, kenndi sögu og landa- fræði, Bubbi Ólafs., skíðastökkv- ari með meira, sá um íþróttimar og handavinnuna, séra Úlfar reyndi að kenna okkur vélritun og Þórir föðurbróðir bar ábyrgð á ís- lensku- og dönskukennslu. Þetta var harðsnúið lið og þessi vetur er mér eftirminnilegur. Ég get reyndar ekki sagt að mér hafi litist á blikuna í byrjun. Strax á fyrsta skóladegi var mér greint frá því, svona til aðvörun- ar, að bekkurinn, sem ég væri aó fara í, væri sá alversti í sögu Gagnfræðaskólans. Ég komst fljótt að því aö þetta var hárrétt. Bekknum var skipt í tvær fylk- ingar; í fyrstu herdeild voru þeir sem einhverjar vonir voru bundn- ar vió, þar var mér að sjálfsögðu fundinn staður, en í annarri her- deild hafði verið safnað saman þeim sem kennaramir höfðu met- ið að myndu hvort sem er ekki læra neitt. í nokkrum tímum á viku, ef ég man rétt í bókfærslu og vélritun, var herdeildunum slegið saman í eina. Og þvílíkur djöfulgangur! Saklaus sveita- strákurinn úr Húsabakkaskóla hafði aldrei orðið vitni að öðru eins. Ég hafói sérstaka samúð með séra Úlfari þegar hann froðufelldi af skelfingu. Vélritun- arkennsla hans átti ekki sérlega greiðan aðgang aö hjörtum margra í bekknum. En þetta fór upp j vana og mér líkað vistin vel í Ólafsfirði. Ól- afsfirðingar eru afbragðs fólk, miklir vinir vina sinna og traustir. Að því komst ég fljótlega að raun um. Margt var þó öðra vísi í þeirra fari en ég hafði vanist. Til dæmis hljómaói margt í þeirra tungu öðru vísi en ég hafði vanist í mínu ungdæmi. Ég tók eftir að sumir bekkjarfélaga minna töluðu um að „synta“ í sundlauginni og „henta“ boltanum. Þetta fannst mér auðvitað nokkuð undarlegt, en þetta var heimamönnum eðli- legt. Að sama skapi fannst mér eftirtektarvert að böm voru í mörgum tilfellum kennd við mæðumar. Ekki veit ég skýring- una á þessu en þó mætti segja mér að þetta sé þekkt fyrirbrigði í rótgrónum sjávarútvegsplássum eins og Ólafsfjörður er. Feðumir, sjómennimir, dvelja vikum og mánuðum saman á hafi úti aó sækja björg í bú og því er nær- tækast að kenna bömin viö mæð- umar. Eg minntist á sjálfstæðiskennd Ólafsfirðinga frá fomu fari. Hún birtist í ýmsum myndum. Til dæmis kom þaó mér hreint ekki á óvart þegar þeir kolfelldu tillögu um sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð. Ölafsfirðingar vilja vera út af fyrir sig eins og þeir hafa alltaf verið. Og bara sú til- hugsun að eiga aðild að sveitarfé- lagi með Dalvíkingum hefur sjálfsagt ekki ýtt undir stuðning við hugmyndina. Rígur milli þessara byggðarlaga er enn fyrir hendi, þótt hann hafi vitaskuld minnkað með bættum samgöngum. Hér á árum áður voru hnefamir gjaman látnir tala þegar Dalvíkingar og Ólafsfirð- ingar hittust á dansleikjum, en það heyrir nú að mestu sögunni til. Og sjálfstæði Ólafsfirðinga birtist líka í pólítíkinni, því óvíða eru hlutfallslega fleiri sjálfstæðis- menn en einmitt í Ólafsfirði. Og fyrir vikió eru skilin í bæjarpólit- íkinni óvíða skarpari og átökin meiri, eins og dæmin sanna. En þrátt fyrir að menn takist hressilega á um eigin hagsmuna- mál og stór orð séu látin falla, þá er samheldnin óvíða meiri þegar á bjátar og mikilvægt er að menn taki sameiginlega á. Kannski er skýringanna á þessu að leita í umhverfinu; þessum hrikalegu fjöllum á báða vegu og þröngum firðinum. Það þarf því ekki að efa að upp á þessi tímamót, 50 ára kaupstaðarafmæli, verður haldió með viðeigandi glæsibrag. Bestu kveðjur í Ólafsfjörðinn!

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.