Dagur - 08.07.1995, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Laugardagur 8. júlí 1995
Ljóð úr ljóða-
samkeppni Dags
ogMENOR
í síðasta helgarblaði voru birt tvö mjög vel gerð ljóð sem voru send í
ljóðasamkeppni dagbiaðsins Dags og Menningarsamtaka Norðlend-
inga á liðnum vetri. Hér birtast önnur tvö Ijóð úr þessari sömu sam-
keppni.
Tindurinn
Er líður að hausti og Ijósbirta dofnar,
lífið slökknar - sálin fer heim,
sinn líkama kveður er hugurinn sofnar
og sólskinsblóm þáfellur í gleym
þótt jurt einfölni af jarðar auði
og jurtin sú sé eigið lífog dauði.
Ég hugsa til baka um heiðskíra mynd,
um hugsjónir og 'köllun eins manns,
um háleitan tilgang og óklifinn tind,
og tálsýnir daprar sem biðu hans.
Nú tíminn líður og tekur hannfrá,
og tindurinn bíður ókleifur að sjá.
Höfundur: Þórhallur Hjartarson, Akureyri.
Haust
Sefið hefur gulnað í nótt
fyrstu geislar morgunsólarinnar
fá það til að glitra
kyrrðin er algjör
en langdregið óp lómsins
klýfur þögnina í fjarska.
Höfundur: Freygeróur Magnúsdóttir, Akureyri.
H
E LGARll EILABROT
U2
Umsjón: GT
40. þáttur
Lausnir á bls. 16
Hvaða þjóflar-sérrétti er boflið upp á í Brussel?
Grænmetisrétti Wl Sjávarrétti
Villibráð
(hv»ð fart t*p 70% af útgjöldum Evrépuþingsins í Evrópusambandinu?
Atkvæðagreiðslur S9 Ferðalögmaka
Þýðingar
©
Hver svarar ef hrlngt er (slma 453 6646?
I D/rið
Lögreglan á Sauðárkróki
RARIK á Blönduósi
í hverju var keppt I meistarkeppnl i fjórða sinn (finnska bænum Sonkajarvi laugardaginn I. júli sl.?
III Dvergakasti 19 Fíflalátum WM Konuburði
Hvaða fisktegund var uppistaða fiskafla íslendinga i f/rra eða helmlngur heildarafians í tonnum?
I Karfi 19 Loðna WM Þorskur
6
En hvafla fisktegund skilaði mestum verðmætum upp úr sjó efla fjórðungi helldarinnar?
Karfi 19 Loðna
Þorskur
Hvafla land er sagt hafa verifl krossfest milii tveggja ræningja likt og Kristur?
D Litháen 19 Pólland
Sviss
Hvaða verðlaun hlaut Bima Bjömsdóttir, landsliðskona í sundi, á iokaathöfn Smáþjóðaleikanna í Lúxemborg 3. júní sl.?
■ Áræðniverðiaunin |Q| Háttvisiverðlaunin H Þrautseigjuverðlaunin
Hver er ríkissáttascmjari?
I Guðlaugur Þorvaldsson
Helgi Laxdal
Þórir Einarsson
Hvað búa margir i Uchtensteín?
Um 29.000
Rúmlega 230.00
Tæplega hálf milljón
Hver var i 2. sæti i A-flokki gæðinga á landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum við Hellu 1994?
Atli irá Skarði í Landssveit B9 Móri frá Saurlauksdal WM Prúður frá Neðri-Ási
Hvert eftirtallnna sjávarútvegsríkja var aflahæst árlð 1991?
I Japan |Q Kina
Noregur
Hvert eftirtaiinna fyrirtækja/stofnana verður væntanlega einkavætt næst á yfirstandandi kjörtímabili Alþingis?
' ..................................... ' "" ................
I Búnaðarbanki íslands Wi Vegagerð rikisins R| Viðskiptaskor Háskóla íslands
GAMLA MYNDIN
Hvað verður um
að vera í Skaga-
fírði í sumar?
Eins og annars staðar á landinu
verður mikið um að vera í
Skagafirði í sumar. Jakob I>or-
steinsson, ferðamálafulltrúi
Skagafjarðar, hefur tekið sam-
an eftirfarandi skrá yfir nokkra
af þessum viðbiirðum.
JÚIÍ
10. júlí - Þjóðminjadagur - sýn-
ing á gömlu handbragði við hey-
annir, hrosshárs- og ullarvinnu í
Byggðasafninu í Glaumbæ.
23. júlí - Uppákoma í Varma-
hlíð - hljómlistarmaðurinn Rúnar
Þór spilar fyrir gesti og gangandi
fyrir utan Kaupfélag Skagfirðinga
milli kl. 16 og 17.30. Ýmislegt
fleira verður til skemmtunar.
29. júlí - Krókshlaup - al-
menningshlaup þar sem keppt
verður í þriggja og tíu kílómetra
hlaupum. Hlaupið fer fram á
Sauðárkróki.
Ágúst
17. júní-20. ágúst - Sögusýning-
in „Leiðin til lýðveldis“ - sýning
sem fjallar í máli og myndum um
sjálfstæðisbaráttu Islendinga á ár-
unum 1830-1944. Sýningin verður
í Safnahúsi Skagfirðinga á Sauð-
árkróki.
3.-6. ágúst - Hestamannamót
- opið hestamannamót á Vind-
heimamclum um verslunarmanna-
helgina.
12. -13. ágúst - Króksmót -
knattspymumót liða víðsvegar að
af landinu. Fyrir krakka 12 ára og
yngri. Haldió á Sauðárkróki.
13. ágúst - Ilólahátíð - hátíð
trúar- og bókmenntalegs eðlis.
Haldin á gamla biskupssetrinu
fyrir Norðurland á Hólum í
Hjaltadal.
19. ágúst - Hótel Áningar
rallý - keppt á vegum víðsvegar í
Skagafirði.
September
10. september - Staðarrétt í
Staðarhreppi - fjárrétt.
10.-11. september - Silfra-
staðarétt Blönduhlíð - stóðrétt
þann 10. og fjárrétt 11. september.
16. september - Staðarrétt í
Staðarhreppi - stóðrétt.
30. september - Laufskálarétt
í Hjaltadal - einhver vinsælasta
stóðrétt landsins. Dansleikur í
Miðgarði og á fleiri stöðum um
kvöldið.
Október
1. október - Unadalsrétt í Hofs-
hreppi - stóórétt.
Ljósmynd: Hailgrímur Einarsson og synir/
Minjasafnið á Akureyri
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja ein-
hvem á þeim myndum sem hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Minja-
safnsins, annað hvort með því að
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eða hringja í síma 462
4162 eða 461 2562 (símsvari).