Dagur - 30.09.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR
Laugardagur 30. september 1995 - DAGUR - 3
Dómur Hæstaréttar í ágreiningsmáli á Blönduósi:
Ekki leyndur galli
í gólfplötu
Hæstiréttur hefur staðfest nið-
urstöðu Héraðsdóms Norður-
lands vestra í ágreiningsmáli
Tómasar Óskarssonar annars
vegar og Sigurjóns Ólafssonar
og Hlyns Tryggvasonar hins
vegar. Hæstiréttur sýknar þá
Sigurjón og Hlyn af kröfu
Tómasar um greiðslu 840 þús-
und króna ásamt dráttarvöxt-
um.
Tómas Óskarsson skaut mál-
inu til Hæstaréttar og krafði Sig-
urjón og Hlyn um greiðslu vegna
viðgerðar sem hann framkvæmdi
á eigin verki við gólfílögn, en
það hafði hann leyst af hendi
sem undirverktaki Siguijóns og
Hlyns við smíði íbúðarhúss á
Blönduósi. Tómas hélt því fram
að leyndur galli hafi verið á yfir-
borði gólfplötunnar, sem gólf-
flögnin var sett á. Rekja megi
þennan galla til þess að Sigurjón
og Hlynur hafi látið steypa
gólfplötuna í rigningu, sem plat-
an hafi ekki verið varin fyrir.
Hafi af þessum sökum myndast
svonefnd sementsefja á yfirborði
plötunnar, en þetta hafi ekki ver-
ið sýnilegt þegar hann vann verk
sitt. Tómas taldi sementsefjuna
hafa valdið því að gólfi'lögnin
hafi losnað frá gólfplötunni. Sig-
uijón og Hlynur mótmæltu þessu
og héldu því fram að annmarkinn
á gólfílögninni hafi stafað af mis-
tökum Tómasar.
í dómi Hæstaréttar kemur
frarn að samkvæmt vottorði Veð-
urstofu íslands megi ráða að tals-
vert hafi rignt á Blönduósi þegar
og eftir að umrædd gólfplata var
sjeypt. Að öðru leyti haii Tómas
Óskarsson ekki aflað matsgerðar
eða annarra viðhlítandi sönnun-
argagna til stuðnings á staðhæf-
ingum sínum. Hæstiréttur telur
því að sannanir skorti fyrir því að
annmarkar á gólfílögninni verði
raktir til atvika sem Sigurjón og
Hlynur beri ábyrgð á. I því Ijósi
kemst Hæstiréttur að því að
sýkna beri Sigurjón og Hlyn af
kröfu Tómasar Óskarssonar og
hinn áfrýjaði dómur Héraðsdóms
Norðurlands vestra standi. óþh
Smugan:
Þrettán skip eftir á
veiðum og mörg á landleið
Þrettán skip eru á veiðum í
Smugunni og hefur þeim fækkað
nokkurt ört að undanförnu. Um
miðjan mánuðinn voru um 25 ís-
lensk skip á veiðum í Smugunni
en flest voru þau í ágústmánuði,
eða á fímmta tuginn. Heildarafl-
inn er líklega orðinn um 30 þús-
und tonn og hafa skipin sótt víða
um Smuguna, allt norður fyrir
75 breiddargráðu.
Haustið 1993 stóðu veiðar í
Smugunni fram að jólum en út
septembermánuð haustið 1994.
Hversu lengi þær standa á þessu
ári er nokkuð óljóst, en ef veiði
glæðist ekki á næstunni er hætt við
að úr sókninni dragi eða jafnvel að
veiðum verði að mestu hætt.
Stakfell ÞH-360, togari Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf., hefur
verið tvær vikur í Smugunni og er
aflaverðmæti orðið 10 milljónir
króna. Ólafsfjarðartogarinn Sól-
berg ÓF kom í vikunni til Ólafs-
fjarðar með um 100 tonn af ísuð-
um fiski úr Smugunni sem fer til
vinnslu hjá Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar hf. og hjá saltfiskverkunun-
um Sæunni Axels hf. og Sigvalda
Þorleifssyni hf. Sigurbjörg OF var
væntanlega til heimahafnar í gær
með 150 tonn af frystum flökum
og er aflaverðmætið um 33 millj-
ónir króna. Togarinn fer síðan í
slipp á Akureyri í 5 til 6 daga, þar
sem skipt verður um innra byrði í
skutrennu auk botnhreinsunar og
zinkunar. Tveir aðrir Ólafsfjarðar-
1 i lil ""□□D
Ný námskeið
hefjast mánudaginn
2. október.
Skráning hafin.
Líkamsrœktin
Hamri
Sími 4612080
togarar eru í Smugunni. Von var á
Múlabergi ÓF í lok vikunnar með
um 50 tonn af ísuðu en Mánaberg
ÓF er á frystingu og kemur
væntanlega í næstu viku. Það kann
þó að breytast ef aflabrögð glæð-
ast.
Húsavíkurtogarinn Kolbeinsey
ÞH kom til heimahafnar í gær með
um 170 tonn af heilfrystum þorski
og gæti aflaverðmætið verið um
17 milljónir króna en verð á heil-
frystum Smuguþorski hefur verið
kringum 100 kr/kg undanfamar
vikur. Veiðitúrinn hefur staðið í 32
daga, skipið hélt norður eftir frá
Eins og fram hefur komið í
punktum frá bæjarráði Akur-
eyrar hefur starfsmannaráð
Heilsugæslustöðvarinnar á Ak-
ureyri sent bæjaryfirvöldum
bréf og mótmælt mjög eindregið
þeirri hugmynd að göngugatan í
miðbæ Akureyrar verði að nýju
opnuð fyrir umferð bifreiða eins
og fram höfðu komið hugmynd-
ir um frá kaupmönnum.
Sigfríður Þorsteinsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar, sagði að málið
Húsavík þann 28. ágúst. Síðan
verður haldið á karfa- og grálúðu-
veiðar hér við land.
Isafjarðartogaramir Orri IS og
Guðbjartur IS eru nýkomnir úr
Smugunni; Orri ÍS er kominn á
veiðar á heimamiðum en Guð-
bjartur ÍS er kvótalaus, skráður B-
skráningu hjá Siglingamálastofnun
og er á söluskrá en verður úreltur
að öðmm kosti. Togaramir Páll
Pálsson ÍS frá Hnífsdal, Vest-
mannaey VE, Ólafur Jónsson GK
og Kambaröst SU em einnig á
landleið norðan úr Barentshafi.
væri „í salti“ eins og hún orðaði
það og ekkert verið að vinna í því.
Hún sagðist persónulega vona að
ekkert verði úr þessum hugmynd-
um, en vissulega væru aðrir sem
hefðu áhuga á að gera eitthvað til
reynslu og þeir verði þá sjálfir að
ýta á það. „Ég fagna þessum at-
hugasemdum frá heilsugæslustöð-
inni. Það er mjög gott að heyra
hvað fólk er að hugsa og fróðlegt
ef fleiri myndu láta í sér heyra,“
sagði Sigfríður. HA
SVÆÐISSKRIFSTOFA
MÁLEFNA FATLAÐRA
NORÐURLANDI EYSTRA
Athugið!
Við viljum vekja athygli á því að við höfum
fengið nýtt síma- og faxnúmer.
Nýja númerið er 460 1400
Faxnúmer 4601414
Heimilisfangið er Glerárgata 26, fjórða hæð
(næsta hús norðan við VIS).
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra
Norðurlandi eystra.
GG
Bílaumferð í göngugötunni á Akureyri:
Er í salti
GUNNAR RAFN JÓNSSON
opnax
M41VERKA
SYNINGU
í HekLusaL, GaLLení ALLm Handa,
á GLemneymœ, Akimeyni
fösTuöaginn 29. sepremhen 1995 kL.20.00
Við opnunma Leika
AmhdðuK Eyja SöLvadórwi oq
Sigunveig Gunnansdórrm á gíran
Á sýmngunm venða ypm 60 vamsLiTamynðm
Opið aLLa ðaga pná kL. 14-19
Sýmngunm Lýkun 10. okwhen
ALLm hjanTanLega veLkomnm!
Ljósmyndasamkeppni
FRISSA fríska
Eftirfarandi þátttakendur unnu til verðlauna:
1. PIONEER hljómflutningssamstæöa frá Hljómdeild KEA
Áslaug Þorvaldsdóttir, Berugötu 7, B0RGARNES
2. SHARP hljómflutningssamstæða frá Hljómdeild KEA
Harpa Ingimundardóttir, Dílahæð 1, BORGARNES
3. -4. CAN0N PRIMA Mini myndavél frá Pedrómyndum Akureyri
Berglind H. Helgadóttir, Múiasíöu 20, AKUREYHI
Jóhann Óh Hilmarsson, Pósth. 12049, REYKJAVÍK
8.-7. LOTTO íþróttagalli frá Vöruhúsi KEA
Edda Njálsdóttir, Hjarðarhaga 21, REYKJAVÍK
Inga Dóra Björgvinsdóttir, Spóahólum 18, REYKJAVÍK
Hrefna Aradóttir, Skúlabraut 2, BLÖNDUÓS
8.-11. LOTTO íþróttaskór frá Vöruhúsi KEA
Helga Sig. og fjölskylda, Valshólum 4, REYKJAVÍK
Jóhann Árni Þorkelsson, Austurströnd 6, REYKJAVÍK
Ragnar Stefánsson, Njarðargötu 61, REYKJAVÍK
Erna Jónsdóttir, Hjallastræti 32, BOLUNGARVÍK
12.-25. FRISSI fríski, 2 kassar epla og appelsínu
Arnór Víöisson, Grundargarði 15, HÚSAVÍK
Berglind H. Helgadóttir, Múlasíðu 20, AKUREYRI
Birna Baldursdóttir, Grenilundi 19, AKUREYRI
Birna Sveinsdóttir, Ránarhraut 9, SKAGASTRÖND
Halldóra Friðriksdóttir, Furuhyggö 5, M0SFELLSBÆ
Helga Sig. og fjölskylda, Valshólum 4, REYKJAVÍK
Hildur Inga og Jóna Maren, Stekk Eyjafj., AKUREYRI
Hilmar T. Harðarson, Munkaþv.str.19, AKUREYRI
Höskuldur Ágústsson, Birkimel 8b, REYKJAVÍK
Lárus Bjarnason, Skriðuvöllum 1, KIRKJUBÆJARKL.
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Ullartanga 3, EGILSSTAÐIR
Sindri Cæsar Magnason, Stekk Eyjafj., AKUREYRI
Tanja Rún Jónsdóttir, Sunnuhhö 21b, AKUREYRI
Tómas Bergmann, Vallargeröi 4c, AKUREYHI
Vinningar verða sendir til vinningshafa
eða að haft verður samband við þá.
Vinningsmyndir verða birtar
í blöðum á næstunni.
Við viljuni þakka frábæra þátttöku.