Dagur - 30.09.1995, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 30. september 1995
leggur síðustu hönd á förðun Thelmu Þormarsdóttur.
Vikublað frá Ítalíu
í heimsókn norðanlands
- íslenskar fyrirsætur kynna m.a. fatnað frá Akureyri
Undanfama viku hefur ítalskur
hópur frá vikublaðinu Gioa, sem
er þekkt tísku-, mannlífs og ferða-
málablað á Ítalíu, verið á ferðinni
á Akureyri og í nágrenni til að
safna efni og er hugmyndin að
birta efnið í þremur tölublöðum
vikublaðsins í október og nóvem-
ber nk. Fjórar íslenskar fyrirsætur
voru valdar í þetta verkefni, þær
Hlaðgerður íris Bjömsdóttir, íris
Björk Ámadóttir, Elín Jónsdóttir
og Thelma Þormarsdóttir, og eru
stúlkurnar myndaðar í íslenskri
náttúm bæði í fatnaði frá þekktum
erlendum hönnuðum og eins verð-
ur íslenskur fatnaður kynntur.
Nýja fatalínan frá Foldu fær t.d.
góða kynningu og fyrirsæturnar
eru einnig myndaðar í fötum sem
Sigríður Sunneva, fatahönnuður á
Akureyri, hefur hannað. Auk þess
að mynda á Akureyri hefur hópur-
inn farið og tekið myndir í Lauf-
ási, Mývatnssveit, við Goðafoss
og á fleiri stöðum. Til stóð að fara
á Snæfellsnes en ítalarnir kunna
vel við sig á Norðurlandi og
reikna með að taka allar myndirn-
ar þar.
Góð landkynning
Það er Kolbrún Aðalsteinsdóttir
sem hefur hjálpað ítölunum að
skipuleggja þessa ferð en Kolbrún
hefur aðstoðað og komið mörgum
íslenskum fyrirsætum á framfæri á
Ítalíu og víðar og hefur mörg góð
sambönd í fyrirsætuheiminum.
Hún segir að um gífurlega góða
kynningu sé að ræða fyrir Akur-
eyri og nágrenni. „Blaðið er eitt af
söluhæstu vikublöðunum á Ítalíu.
Við áttum íslenska fyrirsætu, El-
ínu Stefánsdóttur, á forsíðunni á
Gioa síðastliðið sumar og við gát-
um ekki einu sinni keypt okkur
eintak því blaðið var uppselt,“
segir Kolbrún, en blaðið er gefið
út í um 400 þúsund eintökum.
Kolbrún segir að vinnan hafi
gengið vel og hópurinn sé mjög
ánægður. „Viðtökurnar hér hafa
verið yndislegar og ágætt að koma
hingað til Akureyrar frekar en að
vera alltaf í Reykjavík og ná-
grenni. Það er líka frábært framtak
hjá öllum hér að reyna að koma
sér á framfæri," segir hún en ýmis
--------------------------------------------Á
AKUREYRARBÆR
Akureyrarbær auglýsir
tillögu að deiliskipu-
lagi vöruhafnar
Með vísan til 17. og 18. greinar skipulagslaga og
greinar 4.4.2 í skipulagsreglugerð auglýsir Akureyr-
arbær tillögu að deiliskipulagi vöruhafnar á Oddeyri.
Skipulagssvæðið er austan Hialteyrargötu og sunn-
an Silfurtanga.
í aðalskipulagi Akureyrar 1990- 2010 er svæðið
skilgrein sem hafnarsvæði og að hluta iðnaðar-
svæði. í deiliskipulagstillögunni er m.a. gerð grein
fyrir fyrirhugaðri landnotkun á svæðinu, skiptingu
þess í vöruhafnarsvæði, svæði fyrir matvælaiðnað,
iðnaðarsvæði og svæði fyrir almenna atvinnustarf-
semi. Einnig er sett fram tillaga að ákvæðum um þá
starfsemi sem þarf að víkja af svæðinu.
Deiliskipulagstillagan, uppdrættir og greinargerð
liggur frammi almenningi til sýnis á Skipulagsdeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, og skrifstofu
Akureyrarhafnar, Oddeyrarskála, Strandgötu,
næstu 8 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e.
til föstudagsins 24. nóvember 1995, þannig að þeir
sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við
hana athugasemdir.
Athugasemdafrestur er til 24. nóvember 1995. Þeir
sem telja sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna stað-
festingar og framkvæmdar deiliskipulagsins er bent
á að gera við það athugasemdir innan tilgreinds
frests ella teljast þeir samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Akureyrar,
Hafnarstjóri Akureyrarhafnar.
Fyrirsæturnar Elín Jóns-
dóttir (t.v.), Iris Björk
Arnadóttir og Hlaðgerður
íris Björnsdóttir áttu frí
þegar ljósmyndara Dags
bar að garði en fylgdust
engu að síður vel með.
Ljósmyndararnir Dobici Al-
esandro (t.v.) og Giovanni
Cozzi ásamt Flori Federica,
ritstjóra tímaritsins Gioa.