Dagur - 30.09.1995, Page 20

Dagur - 30.09.1995, Page 20
Samherji hf. á Akureyri: Hríseyjan EA-410 á rækju og Þorsteinn EA-810 norður Togarinn Arnar gamli, sem Samherji hf. keypti nýlega af Skagstrendingi hf. á Skaga- strönd, heldur til rækjuveiða um helgina í fyrstu veiðiferðina fyrir nýja eigendur. Skipið hefur fengið nýtt nafn, Hríseyjan EA- 410. Undanfama daga hefur verið unnið að því að koma fyrir nýjum færiböndum á millidekkinu til að koma rækjunni í lest auk annarra nauðsynlegra breytinga. Skipstjóri Hækkun á minkaskinnum: 30% verð- hækkun þarf í viðbót - segir Arvid Kro Gott verð fékkst fyrir loð- skinn á uppboði í Kaup- mannahöfn á dögunum. Minka- skinn hækkuðu að meðaltali um 28% og skinn af ref að jafnaði um 11%. Arvid Kro hjá Sam- bandi íslenskra loðdýrarækt- enda sagði í samtali við Dag að hækkun þessi lofi góðu og raun- hæft sé að vænta enn frekari hækkana á skinnum á næstu misserum svo loðdýrarækt í landinu geti staðið undir sér, án opinberrar aðstoðar. A skinnauppboðinu í Kaup- mannahöfn sem lauk þann 15. september voru boðin upp 26 þús- und minkaskinn. Jafnaðarverð hvers þeirra var 1.437 ísl. kr. Um þriðjungur skinnanna dæmdist í fyrsta flokk og fóru þau á lítið eitt hærra verði, eða 1.782 kr. per skinn. Almenn verðhækkun á minkaskinnum var, líkt og áður segir 28%, og fyrsta flokks skinn hækkuðu um fjórðung frá síðasta uppboði. Þá voru á uppboðinu í Kaup- mannahöfn seld um 3.000 refa- skinn. Meðalverð hvers þeirra var 6.313 ísl. kr. og skinn í fyrsta flokki fóru á 6.727 ísl. kr. Verð- hækkunin í fyrsta flokki er 11 % og að meðaltali 14%. „Mér finnst vera léttara yfir mönnum og þessi hækkun lofar góðu,“ sagði Arvid Kro. Hann segir að verð minkaskinna þurfa að hækka um 30% þannig að bú- greinin geti staðið undir sér, að meðtöldum skuldbindingum sem hvíla á greininni. Raunhæft sé að búast við að þessum hækkunum verði náð innan eins til tveggja ára. Nú séu að opnast stórir mark- aðir fyrir skinn í Grikklandi, Rússlandi og Austurlöndum fjær og til þeirra sé horft. -sbs. @ HELGARVEÐRIÐ I gær var áberandi hlýrra í veðri en verið hefur undanfama daga og það mun halda áfram að hlýna í dag og á morgun og má búast við 12-14 stiga hita. Gera má ráð fyrir rigningu og á morg- un er ekki ósennilegt að það hvessi töluvert. í næstu viku er síðan spáð að vindur snúist aftur til norðlægrar áttar með rigningu eða slyddu um norðanvert land- ið. verður Brynjólfur Oddsson, sem verið hefur með Stokksnesið, en það hefur verið selt til Meitilsins hf. í Þorlákshöfn og verður afhent nýjum eigendum í lok október- mánaðar. I stað Stokksnessins fær Samherji hf. togarann Jón Vídalín sem verður úreltur. A Hríseyjunni EA verða auk skipstjórans fjórir úr áhöfn Arnars gamla auk þess sem einhverjir flytjast af Stokks- nesinu yfir á Hríseyjuna. Stokks- nesið hefur haft skráningarnúmer- ið EA-410 en því hefur verið breytt í EA- 4. Samherji hf. fékk loðnuskipið Helgu n, sem keypt hefur verið af Ármanni Ármannssyni í Reykja- vík, afhent í Reykjavík í gær en þar hefur skipið verið í slipp til málunar og minni háttar viðhalds auk botnskoðunar. Skipinu verður síöan siglt norður til Akureyrar og er væntanlegt um hádegisbilið á morgun, sunnudag. Hið nýja loðnuskip Samherja, Þorsteinn EA-810, verður almenningi til sýnis síðdegis á morgun. Líklegt má telja að það haldi á rækjuveið- ar, a.m.k. á meðan engin veiðan- leg loðna finnst hér við land. Skipstjórar Þorsteins EA verða Geir Garðarsson og Hörður Guð- mundsson og yfirvélstjórar Óskar Ævarsson og Sveinn Geirmunds- son. GG . og ekkert stöðvar þig Tími minnistaps er liðinn. Nú getur þú nýtt allt það minni sem tölvan þín hefur - og í nýjum víddum. Windows 95 er heimsviðburður á tölvumarkaði: Einfaldara • þægilegra • hraðvirkara • traustara • fjölhæfara. Með nettengibúnaði fyrir alnet og fjölda af nýjum frábærum hjálparforritum og möguleikum. Ekkert forrit hefur verið reynsluprófað af jafn mörgum, jafn víðtækt og í jafn langan tíma. EINAR j. SKULASON HF Grensásvegi 10, Sími 563 3000 Umboðsaðili fyrir Microsoft á íslandi Endursöluaðilar: ITæknivaí ^ortölvutækni^ mmÝ Z--- r// NÝHERJI Hitmknl U/ tnmhrt OPIN KERFI HF mn BOÐE.ND “rda I

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.