Dagur - 12.10.1995, Side 1
I
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Sauðárkrókur:
Tvöfalt stór
afmæli í
undirbúningi
Nú eru framundan tvö
stórafmæli hjá Sauðár-
króksbæ. Á árinu 1996 eru
125 ár liðin frá því að byggð
tók að myndast á Sauðár-
króki og árið 1997 er hálf öld
frá því að bærinn öðlaðist
kaupstaðarréttindi.
Sérstök afmælisnefnd hefur
verið að vinna að undirbúningi
þessara viðburða og hefur
henni verið heimilað að ráða
starfsmann. Fastmótaðar hug-
myndir liggja ekki fyrir á þessu
stigi en að sögn Bjöms Sigur-
bjömssonar, formanns bæjar-
ráðs, verður vegleg dagskrá
vegna þessara tímamóta, þar
sem nánast verður um tveggja
ára úthald að ræða. HA
Menntun leikskólakennara til Háskólans á Akureyri haustið 1996?
Styrkir starfsemi kenn-
aradeildarinnar verulega
- Fósturskólinn væntanlega
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, segir í nýútkomnu frétta-
bréfi ráðuneytisins að rætt sé um að Háskólinn á Akureyri komi
að menntun leikskólakennara og stefnt sé að því að það geti orðið
haustið 1996.
Áhugi er fyrir því að Alþingi samþykki lög um fjórða skólastigið en í
dag vantar allt að 1.200 menntaða leikskólakennara hérlendis til að
framfylgja lögum í þessu efni. Rætt hefur verið um að breyta Fósturskól-
anum, flytja hann yfir á háskólastig, til Kennaraháskólans, enda em í dag
gerðar kröfur um stúndentspróf við inngöngu í skólann með undantekn-
ingum þó, ef t.d. er um rnilda starfsreynslu að ræða og er á milli 15 og
20% nemenda án stúdentsprófs.
Guðmundur Heiðar Frímannsson, forstöðumaður kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri, segir að í menntamálaráðuneytinu liggi fyrir erindi
fluttur til Kennaraháskólans
frá skólanum um að hefja kennslu væntanlegra leikskólakennara en fyrst
þurfi að skipa nefnd sem fer yfir málið og undirbýr það. Ljóst er að ef
kennsla hefst að ári liðnu verður að fá kennslustofur undir þá starfsemi á
framtíðarsvæði Háskólans á Sólborgarsvæðinu því ekkert rými er aflögu
í húsnæði skólans við Þingvallastræti. I kennaradeildinni eru í dag 140
nemendur; 27 á fyrsta ári, 30 á öðm ári, 37 á þriðja ári og um 44 í upp-
eldis- og kennslufræði.
„Þetta mun styrkja verulega starfsemi kennaradeildarinnar og á þrem-
ur árum er líklegt að nemendafjöldinn muni tvöfaldast gangi þetta eftir.
Við það mun staða Fósturskólans breytast og þrýstingur verulega aukast
um að hann verði fluttur á háskólastig. 1 áliti nefndar um um eflingu
kennaramenntunar, sem ég átti sæti í, var lagt til að Fósturskólinn yrði
tengdur eða sameinaður Kennaraháskólanum,“ sagði Guðmundur Heiðar
Frímannsson. GG
Endurbygging Iðavallar ekki í 3ja ára áætlun Akureyrarbæjar:
Deildarstjóri ieikskóladeildar Akureyrarbæjar segir það vonbrigði að ekki sé gert ráð fyrir endurbyggingu Iðavallar
á 3ja ára áætlun Akureyrarbæjar. Þessi mynd var tekin í gær af börnum á Iðavelli. Mynd: BG.
Veldur
vissulega
vonbrigðum
- segir Ingibjörg Eyfells
*
Iþriggja ára áætlun Akureyrar-
bæjar er gert ráð fyrir að leik-
skóladeild fái 8 milljónir til
framkvæmda við breytingu á
Flúðum á næsta ári og 15 millj-
ónir til viðbyggingar við Lund-
arsel. Deildin hafði áður óskað
eftir því að bygging nýs leik-
skóla á Iðavelli yrði tekin fram
fyrir viðbyggingu við Lundarsel
í framkvæmdaáætlun, en við því
var ekki orðið. Ingibjörg Eyfells,
deildarstjóri leikskóladeildar,
segir að þetta valdi sér nokkrum
vonbrigðum þar sem sárlega
vanti að geta boðið upp á heils-
dagspláss að Iðavelli. Ekki er
gert ráð fyrir frekari fjármunum
í þennan málaflokk á árunum
1997 og 1998, en Ingibjörg segir
að áfram verði unnið að því að
Iðavellir verði endurbyggðir.
„Upphaflega var okkar óska-
listi þannig að Flúðir og Lundar-
sel voru á undan nýjum leikskóla
á Iðavelli. Síðan hefur komið í
ljós að það sárvantar heilsdags-
pláss á Eyrinni. Bæði Klappir og
Holtakot eru litlir leikskólar og
þar er lítil hreyfing þannig að
plássin sem losna á hverju ári eru
fá. Þess vegna vildum við fá að
byrja endurbyggingu Iðavallar á
undan framkvæmdum við Lundar-
sel. Við fórum fram á 15 milljónir
á næsta ári, 45 milljónir 1997 og
30 milljónir til að ljúka verkinu á
árinu 1998. Þessi niðurststaða
veldur okkur vissulega vonbrigð-
um og skapar ákveðin vandamál á
Eyrinni og því svæði,“ sagði Ingi-
björg. Hún segir að endurbæturnar
á Flúðum og viðbygging við
Lundarsel skapi um 20 ný rými á
hvorum stað, þ.e. samtals 40
heilsdagspláss eða 80 hálfsdags.
Hún segir styttast mjög í að
brýnt verði að hefja endurbygg-
ingu Iðavallar. „Þetta er eitt af
okkar elstu húsum og orðið ansi
hrörlegt. Bæði þurfum við nýtt
hús og hús sem er stærra. Auðvit-
að er alltaf matsatriði hvað gert er.
Það vantar líka pláss upp á
Brekku og endurbygging Iðavallar
er mun dýrari framkvæmd en lag-
færingamar á leikskólanum þar.
En væntanlega verður endurbygg-
ing Iðavallar áfram á dagskrá,“
sagði Ingibjörg. HA
Nýbygging við
Amtsbókasafnið:
Litlar líkur á
framkvæmdum
á næstunni
Guðmundur Jónsson,
arkitekt, hefur lagt fram
gögn um hönnun nýbygging-
ar við Amtsbókasafnið á Ak-
ureyri og áætlaðan kostnað
við þessar byggingarfram-
kvæmdir, en menningar-
málanefnd bæjarins fór fram
á 70 milljóna króna framlag
á árinu 1996 til að ljúka upp-
steypu hússins. í þriggja ára
áætlun bæjarstjórnar Akur-
eyrar um rekstur, fjármál og
framkvæmdir er ekki gert
ráð fyrir neinum framlögum
til menningarmála á árunum
1996 og 1997 en 10 milljón-
um á árinu 1998 til eignfærð-
ar fjárfestingar.
Álfreð Gíslason, formaður
menníngarmálanefndar bæjar-
ins, segist ekki vera búinn að
gefa upp alla von um tjárfram-
lag til viðbyggingar við Amts-
bókasafnið en vissulega hafi
möguleikamir minnkað við
lestur þriggja ára áætlunarinn-
ar. Það sé mjög slæmt mál því
mjög aðkallandi sé að hefja
byggingarframkvæmdir, búið
sé að fylla allar geymslur í
kjallara fjölbýlishúss aldraðra
við Víðilund og því mjög að-
kallandi að fá nýtt húsnæði,
ekki síst fyrir Héraðsskjala-
safnið. GG
Bolli, Svavar og Arnaldur i Laxdalshus?
- mér líst Ijómandi vel á að fá aðstöðu í Laxdalshúsi, segir vígslubiskup
Menningarmálanefnd Akur-
eyrarbæjar barst nýlega er-
indi frá vígslubiskupi Hólastiftis,
sr. Bolla Gústavssyni á Hólum,
þar sem leitað var eftir því að í
Sigurhæðum á Akureyri yrði
sköpuð aðstaða fyrir embætti
vígslubiskups, héraðsprest Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarprófast-
dæma, sr. Svavar A. Jónsson, og
fræðslufulltrúa Þjóðkirkjunnar,
Arnald Bárðarson. Alfreð Gísla-
son, formaður menningarmála-
nefndar, segir að hugmyndin sé
að i Sigurhæðum rísi safn tengt
akureyrskum skáldum auk safns
tengdu nafni sr. Matthíasar Joc-
humssonar og jafnframt verði
sköpuð vinnuaðstaða á efri hæð
hússins sem tengist starfsemi Gil-
félagsins þannig að áhugamenn
um ritlist fái þar aðstöðu.
Því verði ekki hægt að sinna
erindi vígslubiskups um aðstöðu í
Sigurhæðum en hins vegar hafi
menningarmálanefnd boðið að-
stöðu í Laxdalshúsi undir áður-
nefnda starfsemi. Lítil nýting hef-
ur verið á þessa elsta húsi Akur-
eyrar undanfarin misseri.
„Mér líst ljómandi vel á það að
að fá aðstöðu í Laxdalshúsi þegar
ég kem til Akureyrar til að taka á
móti fólki ef ég þarf á því að
halda en embættið hefur til þessa
ekki haft neina fasta aðstöðu. Ekki
síður er þetta nauðsynlegt fyrir
héraðsprest tveggja prófastsdæma
og jafnframt fræðslufulltrúann.
Þessi lausn væri mjög heppileg,
þarna eru góð bílastæði og að-
gengi fyrir gangandi auk prýði-
legrar staðsetningar á fallegum
stað í fallegu húsi en samningar
um þetta yrðu gerðir í fyllsta sam-
ráði við kirkjuyfirvöld landsins.
Næsta skref er að ganga til þeirra
samninga og kanna hvort af þessu
getur orðið,“ sagði sr. Bolli Gúst-
avsson, vígslubiskup. GG