Dagur


Dagur - 23.12.1995, Qupperneq 7

Dagur - 23.12.1995, Qupperneq 7
Laugardagur 23. desember 1995 - DAGUR - 7 I „Þú getur sagt henni að jeg skrifi engan veginn til þess að græða peninga heldur af því að jeg hafi ganian af því.“ svo í náminu. En oft hafði ég gaman af viðræðum við hann um það, er hann heyrði og sá í heims- borginni, og dylst mér ekki, að liann menntaðist meira á þessum mánuðum en ég, enda þótt ég sæti yfir doðröntum mínum, sem hann sniðgekk.10 París var á þriðja áratugnum miðdepill menningarinnar. Þar dvöldu skáld, málarar, mynd- höggvarar, rithöfundar, tónlistar- menn og raunar listamenn af öil- um toga, frægir jafnt sem óþekkt- ir. Menn lifðu lífinu og reyndu að skapa ódauðleg listaverk milli þess sem þeir sátu á kaffihúsum og skeggræddu heimspekileg mál- efni. Steindór segir að Davíð hafi brátt farið að huga að Parísarferð og í ársbyrjun 1926 lagði hann af stað lengra suður eftir Evrópu. Hvert var líka betra að halda fyrir listhneigðan ungan íslending? í það minnsfa var París vænlegri til andlegra afreka en hin kalda Kaupmannahöfn. Á bökkum Signu Hann hafði oft heyrt talað um Pan's, borg list- anna. Þangað hafði hugur hans altaf stefnt, þangað varð hann aðfara." Davíð innrit- aði sig í náttúru- fræði við Sor- Viðtökur skólafélaga hans voru ótvíræðar, nýtt skóld hafði kveðið sér hlfóðs. bonne-háskólann í París í byrjun árs 1926. Með því að vera skráður í náttúrufræði tókst honum að halda námsstyrknum frá ríkinu en hugur hans hneigðist til skáld- skapar, lista og heimspeki, ekki til blákaldra vísinda. Allt bendir því til að hann hafi setið fyrirlestra í flestum deildum háskólans nema náttúrufræðideildinni. Til að drýgja námsstyrkinn sá Davíð um að útvega Kristjáni bróður sínum vörur í gegnum vörulista til að selja Norðlending- um. Kristján var þá orðinn versl- unarmaður á Akureyri og í þá daga þótti ekki ónýtt að geta út- vegað skó og fleira beint frá út- löndum. Um líf Davíðs í París er annars lítið vitað. Sennilega hefur hann búið uppi undir þaki í einu af þessum hótelum í Quartier Latin, þar sem svo margir fátœkir stúd- entar og listamenn berjast þögulli og oft og einatt vonlausri hetju- baráttu við sult og seyru.'1 Af bréfum til Kristjáns má sjá að sumarið 1926 dvelst hann í Grenoble, trú- lega sér til heilsubótar. Um haustið 1926 virðist Davíð halda áfram náminu í París en í árs- byrjun 1927 veikist hann af taugaveiki. Sím- on Jóhann Ágústsson segir að hann hafi verið rúmliggjandi fram á vor og fengið lungnaberkla upp úr veikinni. Um sumarið dvaldi Davíð síðan í Brussel og víðar í Belgíu. Utlit er fyrir að Davíð hafi ekki stundað nám við Sorbonne vetur- inn 1927-1928 heldur helgað sig ritstörfum. Heilsan var ekki upp á marga fiska og fjárhagurinn þröngur. Stórborgarlífið á bökkum Signu virðist þó hafa átt illa við hann þegar til lengdar lét því að í bréfi til Kristjáns bróður síns, sem hann skrifar 4. nóvember 1928, sést að hann er kominn til Mont- pellier. Þar segist hann kunna miklu betur við sig en í París, allt sé svo rólegt og sveitalegt í Mont- pellier: „Yfirleitt kann jeg alstaðar í Frakklandi betur við mig en í París. Hún er altof stór og kulda- leg.“13 I þessu sama bréfi kemur fram að Davíð er að hefja nám við Háskólann í Montpellier. Hvað hann er að nema kemur ekki fram en sennilega hefur hann innritað sig í náttúrufræði eins og fyrri daginn. Altént hélt hann náms- styrknum en auk þess fékk hann fé frá Kristjáni og Hallgrími föð- urbróður sínum. Reyndar má lesa í umræddu bréfi að hann hafi reynt fyrir sér með þýðingar á smásögum eftir sig og sé búinn að fá loforð um birtingu í frönsku bókmenntatíma- riti. Hann segir Kristjáni að hann vilji samt bíða með það þangað til bókin (Björn formaður og fleiri smásögur) er komin úl svo að hann geti sent eintak af henni með þýðingunni. Sagan sem hér urn ræðir er væntan- lega „Skóla- bræðurnir" sem birtist í þýðingu Davíðs í franska bókmenntatíma- ritinu La Revue bleue seinnipart árs 1929. Allt þetta rit- höfundarbrölt virðist hafa vak- ið spurningar hjá móður Dav- íðs og í bréfinu frá Montpellier segir: Jeg hefi gleymt að svara mömmu þessari spurningu: hvort jeg skrifaði afinnri þörfeða til að grœða peninga. Þú getur sagt henni að jeg skrifi engan veginn til þess að grœða peninga heldur af því að jeg hafi gaman afþví." Ólíklegt er að móðir Davíðs hafi fengið þetta svar frá drengn- um sínum í Frakklandi því hún lést 28. nóvember 1928. Sú fregn hefur örugglega snert Davíð illa sem þrátt fyrir suðrænt andrúms- loft Miðjarðarhafsins í Montpelli- er var aftur lagstur í rúmið. Hann var fársjúkur og hefur sjálfsagt ekki eygt von um að ná bata þvf hann kom heim til Islands snemma árs 1929. Síðustu árin Það er síðla kvölds. Eimlestin brunar áfram. Eg sit í einum klef- anum, hljóður og hugsi. Eg er að fara heim, en þó að undarlegt sé, er önnur hugsun efst í huga mér. [—] Einum þœtti lífs míns er lok- ið. Og aldrei fyrr hefi ég fundið, live satt það er, sem Frakkarnir segja: „Partir, c’est mourir un peu“, þ.e.a.s. orðrétt þýtt: að kveðja, það er að deyja ofurlítið. Og ég stóð á fœtur, gekk út að glugganum og starði út í dimma nóttina, þar sem enn roðaði af Ijósadýrð Parísarborgar.'5 Ekki er ósennilegt að Davíð hafi verið svipað innanbrjósts og Þórarni Björnssyni sem þannig lýsir tilfinningum sínum þegar hann snéri heim árið 1932 eftir langa dvöl í Frakklandi. En Davíð var sjúkur maður, dauðvona. Eftir að hafa dvalið um hríð á Vífils- stöðum fékk hann samt góð- an bata. Viðtök- umar sem Björn formaður og fleiri smásögur fékk hafa örugg- lega talið í hann kjarkinn og hvatt hann til að halda áfram að lifa, til að halda áfram að skrifa. Davíð virðist hafa skrifað mikið af sögum sínum þegar hann lá veikur og eins notað hverja frístund til að kynnast heimsbókmenntunum. Ekki er hægt að segja til um það með vissu hvorl allar sögumar sem komu út í Kalviðum, árið eftir að hann kom heim, hafi verið skrifaðar hér á landi eða erlendis. Hins vegar er ljóst að á þessum síðustu árum ævi sinnar var Davíð afkastamikill við skriftir. Seinni bók hans kom út 1930 og sama ár birtist löng grein um Ásmund Sveinsson, myndhöggvara, í fyrsta tölublaði vandaðs tímarits sem bar nafnið Perlur. Þess má geta að í þeirri grein hvetur Davíð íslenska ríkið til að festa kaup á listaverkum Ásmundar, til dæmis á Sœmundi á selnum sem hann vill að staðsett verði við Háskóla ís- lands sem tákn um sigur hins góða yfir hinu illa. Á þessum árum, 1929 til 1932, birtust ennfremur nokkrar smá- sögur eftir Davíð í blöðum og tímaritum auk þýðinga hans á verkum annarra. í veikindum sínum dvaldist Davíð oftast hjá föðursystur sinni Jakobínu og manni hennar, Ólafi Gíslasyni, sem bjuggu á þessum tíma í Viðey. Smátt og smátt safnaði hann fyrri kröft- um og hugurinn tók að reika aft- ur til fjarlægra landa. Það var ekki lengur Frakkland sem heillaði heldur hélt hann til Englands árið 1931. Þar dvaldist hann í nokkra mánuði og leitaði að enskum sög- um til að þýða yfir á íslensku, sennilega með styrk úr Menning- arsjóði. Flest bendir til að auk þess hafi hann á þessum mánuð- um umritað sögu sína um Björn formann, snúið henni yfir á ensku og lengt hana töluvert þannig að úr varð skáldsaga. I kjölfarið hafi hann síðan leitað til ensks útgef- anda sem leist það vel á verkið að stefnt var á útgáfu þess strax næsta vetur. Davíð kom heim frá Englandi en tæringin var ekki búin að sleppa taki sínu. Þegar hann var að búa sig undir að halda aftur ut- an og ganga frá útgáfunni á hinum enska Bimi formanni lagðist hann veikur eina ferðina enn. í þetta sinn var takið traust og það dró hægt og rólega af hinu unga skáldi. Hinn 3. júlí 1932 lagðist Davíð á skurðarborðið. Það átti að reyna að bjarga lífi hans en dauð- ann vantaði gott skáld í hirð sína. Þegar klukkan á Notre Dame slœr tólf þá œtla jeg að lœðast burtufrá fjelögum mínum. - Ut við dyr hinnar dýrðlegu kirkju krýp jeg á knje í slitinni kápunni minni. Jeg spenni greipar og horfi fagnandi á myndina af Jesúbarninu með geislabauginn um ennið. I hinni heilögu kyrð bið jeg fullur undirgefni: Verði þinn vilji!'6 SBG Aftanmálsgreinar: I Ég undirritaður, Skúli Bjöm Gunnars- son, er um þessar mundir að vinna að BA-ritgerð í fs- lensku við Háskóla íslands. Ritgerðin fjallar um Davíð Þorvaldsson og verk hans. Það sem hér birtist er unnið upp úr ævisögu- kafla ritgerðarinnar sem var að mestu leyti skrifaður í Davíðshúsi í sept- ember síðastliðnum. 2 Davíð Stefánsson: Tvær greinar. Reykjavík 1959, bls. 31. Grein um Davíð Þorvaldsson. 3 Sama rit, bls. 32. 4 Davíö Þorvaldsson: Bjöm formaður og fleiri smásögur. Reykjavík 1929, bls. 9- 10. Úr sögunni „Bjöm fomtaður. 5 Steindór Steindórsson: Sól ég sá. Reykjavík 1982, bls. 119. 6 Sarna rit, bls. 122. 7 Kristján Guðlaugsson: Morgunblaðið, 6. júli' 1932. Úr kveðjuorðum hans til Davíðs. 8 Sjá Lbs. 3947 4to. 9 Steindór Steindórsson: Sól ég sá. Reykjavík 1982, bls. 155. 10 Sama rit, bls. 175-176. II Davíð Þorvaldsson: Kalviðir. Reykja- vík 1930, bls. 98. Úr sögunni „Pólski málarinn". 12 Sama rit og sama saga, bls. 96. 13 Sjá bréf Davíðs Þorvaldssonar til Kristjáns Þorvaldssonar, 4. nóvember 1928. 14 Sama bréf. 15 Þórarinn Björnsson: Rætur og vængir 1. Reykjavík 1992, bls. 55-56. 16 Davíð Þorvaldsson: Lesbók Morgun- blaðsins, 408, 1929. Lok sögunnar „Ljóð götusöngvarans". Davíð var draumlyndur og hneigður til skáldskapar, eins og síðar kom betur fram. Hann hafði oft heyrt talað um París, borg listanna. Þangað hafði hugur hans alltaf stefnt, þangað varð hann að fara.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.