Dagur - 23.12.1995, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Laugardagur 23. desember 1995
ÞORLAKSfWESsUÞEyTlNGUR
Þorláksmessa skipar sérstakan sess í hugum margra. A þess-
um degi eru flestir á hlaupum út og suður að klára jólainn-
kaupin. Sumir láta jólaamstrið þó ekki aftra sér frá því að
borða kæsta skötu á Þorláksmessu og eru það einkum Vest-
firðingar, sem halda tryggð við þennan sið. í tilefni dagsins
hafði Dagur upp á Vestfirðingi, búsettum á Akureyri, sem
býður gestum í skötu á Þorláksmessu. Einnig var rætt við
verslunarfólk um búðarstemmninguna á þessum síðasta degi
fyrir jól og kom í ljós að þrátt fyrir mikið annríki er dagurinn
í sérstöku uppáhaldi hjá flestum.
Skötuveisla í hádeginu
Hjónin Hákon Guðmundsson og
Ingigerður Traustadóttir eru búsett
á Akureyri og hafa um árabil haft
fyrir sið að bjóða vinum til veislu
í hádeginu á Þorláksmessu og að
sjálfsögðu er skata á borðum. Það
er húsbóndinn sem sér alfarið um
eldamennskuna þennan dag en
Hákon er frá ísafirði og því alinn
upp við þann sið að borða skötu á
Þorláksmessu.
„Gestimir eru aðallega félagar
mínir úr St. Georgsgildinu og
bömin líka ef þau eru heima. Alls
eru þetta um 12 manns,“ segir
Hákon. „Ég hef alltaf eldað skötu
þennan dag fyrir sjálfan mig og
Jólatrés-
fagnaður Þórs
verður29. desemberkl. 17.00
Flugeldasalan
í Hamri
hefst 27. desember
Hamar
sími 461 2080
falle
leqar>
imla-
álrim
gardínur
frá kr. 740,-
0KAUPLAND
Kaupangi - Sími 462 3565
aðra á heimilinu sem vilja borða
hana en sennilega eru orðin ein
fjögur ár síðan við fórum að bjóða
gestum." Hákon segir að þar sem
Þorláksmessa sé á laugardegi í ár
sé auðveldara að bjóða fólki heim
því þegar hún lendi á virkum degi
liggi fólki mikið á og geti ekki
stoppað nema rétt milli tólf og
eitt.
Mörgum þykir lyktin af kæstri
skötu frekar óspennandi og í byrj-
un segir Hákon að hann hafi haft
skötuna daufa á meðan fólk var að
venjast henni en nú sé hann farinn
að leyfa sér að hafa hana sterkari.
„Hún er langbest þegar hún er svo
sterk að maður nær varla andan-
um.“
Eins og aðrir íslendingar fer
Hákon oft í bæinn að kvöldi Þor-
láksmessu til að upplifa jóla-
stemmninguna. I hans huga er það
þó fyrst og fremst skatan í hádeg-
inu, sem gerir daginn sérstakan.
AI
Ragnar Sverrisson, eigandi JMJ og Joe’s á Akureyri, segir Þorláksmessu
vera skemmtilegasta dag ársins.
Olýsanleg stemmning
„Stemmningin á Þorláksmessu er
ólýsanlega skemmtileg. Það er
mikið að gera, allir jákvæðir og
mikið líf og fjör. Mér fínnst þetta
skemmtilegasti dagur ársins,“ seg-
ir Ragnar Sverrisson, verslunar-
maður á Akureyri.
Ragnar segir að þó verslun hafi
færst aftar hafi stemmningin á
Þorláksmessu verið svipuð í gegn-
um árin. Töluvert sé líka um að
fólk komi í bæinn þennan dag til
að sýna sig og sjá aðra þó það sé
búið að versla. Alltaf sé samt eitt-
hvað um að fólk sé á síðustu
stundu með jólagjafirnar. „Hjá
okkur er það oft konan sem er á
síðustu stundu að kaupa á eigin-
manninn,“ segir Ragnar, sem rek-
ur herrafataverslun. „Almennt
heyrist mér samt á kaupmönnum
að meira sé um að karlamir séu á
síðustu stundu."
Þó mörgum þyki seint að kaupa
jólafötin og síðustu gjafimar á
Þorláksmessu eru sumir þó enn
seinni. „Það hefur komið fyrir að
menn eru að kaupa sér jakkaföt,
sem á eftir að breyta og laga,
klukkan eitt á aðfangadag,“ segir
Ragnar. AI
Hjá Hákoni Guðmundssyni er engin Þoriáksmessa nema skata sé á borðum.
Mynd: BG
Gaman en erfitt
„Yfirleitt er mjög mikið að gera á
Þorláksmessu; mikil stemmning
og fjör.“ segir Júlía Bjömsdóttir,
sem vinnur í Amaró á Akureyri.
„Jólaverslunin hefur samt breyst
mikið og hefur færst meira á síð-
ustu dagana fyrir jól. Áður dreifð-
ist þetta meira og jólastemmning-
in var til staðar allan desember-
mánuðinn. Núna er þetta bara síð-
ustu dagana fyrir jól en þá er líka
stundum allt á hvolfi því það er
svo mikið að gera.“
Júlía segir mikið um að fólk
bíði fram á síðustu stundu með að
kaupa jólagjafimar. „Ég hef oftast
unnið líka á aðfangadag og það
hefur verið ótrúlega mikið að gera
þann dag. Ég hugsa að fólk geymi
frekar að kaupa gjafimar fyrir sína
nánustu en kaupi fyrst það sem
þarf að senda.“
Þó búðarstemmningin rétt fyrir
jólin sé skemmtileg segir Júlía að
þetta sé erfið töm. Verslunarfólki
gefist ekki mikill tími í að undir-
búa sín eigin jól og margir séu
orðnir þreyttir þegar hátíðin geng-
ur í garð. „Oft held ég að slokkni
hreinlega á fólki þegar það sest
niður á aðfangadagskvöld og get-
ur loksins farið að slappa af.“ AI
Júlía Björnsdóttir hefur unnið í versluninni Amaró á Akureyri í mörg ár.
Hún finnur fyrir mikilli breytingu í jólaverslun gegnum árin og segir að áð-
ur fyrr hafi verslunin dreifst á lengri tíma. Mynd: BG