Dagur - 05.01.1996, Blaðsíða 9

Dagur - 05.01.1996, Blaðsíða 9
Föstudagur 5. janúar 1996 - DAGUR - 9 Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegs árs viljum við minna á nokkur atriði sem máli skipta á árinu 1996. Sumt er þar óbreytt frá síðasta ári en annað hefur tekið nokkrum breytingum. Skatthlutfall og skattafsláttur 1996 Skatthiutfall staðgreiðslu breytist lítillega frá og með 1. janúar 1996 og verður 41,94%. Persónuafsláttur breytist hins vegar ekki frá því sem hann var síðustu sex mánuði ársins 1995 og verður áfram 24.544 kr. á mánuði Sama gildir um sjómannaafsláttinn sem verður áfram 689 kr. á dag. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1981 eða síðar, verður áfram 6% í staðgreiðslu. Fjárhæð launatekna barna sem halda má utan staðgreiðslu er einnig óbreytt frá síðasta ári eða 77.940 kr. Húsnæðisspamaðarreikningar Fjárhæðir húsnæðissparnaðarreikninga sem gilda vegna innborgana á árinu 1996 eru þessar: Lágmarksfjárhæð verður 11.714 kr. pr. ársfjórðung og 46.856 kr. pr. ár. Hámarksfjárhæð verður 117.140 kr. pr. ársfjórðung og 468.560 kr. pr. ár. Tryggingagjald Þá verður sú breyting að tryggingagjald breytist frá og með 1. janúar og verður nú 6,93% og sérstakur flokkur 3,63%. Lífeyrissjóðsiðgjald í staðgreiðslu 1996 Sú breyting verður einnig að vegna launatímabilsins 1. janúar til 30. júní 1996 skal halda utan staðgreiðslu 75% af lífeyrissjóðsiðgjaldi (þ.e. framlagi launþegans), þó ekki hærri fjárhæð en 3% af launum. Frá 1. júlí má halda utan staðgreiðslu öllu framlagi launþegans en þó ekki hærri fjárhæð en 4% af launum. Breytingar á frádrætti lífeyrisþega 70 ára og eldri Frá og með 1. janúar er ekki lengur heimilt að halda utan staðgreiðslu 15% af greiðslum úr lífeyrissjóðum til lífeyrisþega sem eru 70 ára eða eldri. Verðbreytingarstuðull Ríkisskattstjóri hefur reiknað verðbreytingarstuðul fyrir árið 1995 og er hann 1,0321 miðað við 1,0000 árið 1994. Vísitala jöfnunarblutabréfa Hér má sjá vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1996 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar skal miða við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin. Skilafrestur ýmissa gagna janúar 1980 vísitala 156 1. janúar 1988 vísitala 2.192 janúar 1981 vísitala 247 1. janúar 1989 vísitala 2.629 janúar 1982 vísitala 351 1. janúar 1990 vísitala 3.277 janúar 1983 vísitala 557 1. janúar 1991 vísitala 3.586 janúar 1984 vísitala 953 1. janúar 1992 vísitala 3.835 janúar 1985 vísitala 1.109 1. janúar 1993 vísitala 3.894 janúar 1986 vísitala 1.527 1. janúar 1994 vísitala 4.106 janúar 1987 vísitala 1.761 1. janúar 1995 vísitala 4.130 1. janúar 1996 vísitala 4.245 awMMMWBBBWMBawiaatgiwwawiiinr.'Trt Huga þarf í tíma að ýmsum gögnum sem skila þarf nú í upphafi árs og fyrr en varir er komið að endanlegum skilafresti. Hér má sjá skilafrest ýmissa gagna vegna greiðslna o.fl. á árinu 1995: I. Til og með 21. janúar 1996: III. Til og með 15. maí 1996: 1. 2. 3. 4. 5. II. 1. 2. Launamiðar ásamt almennu launaframtali. Á launamiðum komi m.a. fram greiðslurtil verktaka fyrir efni og vinnu. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði. Bifreiðahlunnindamiðar ásamt samtalningsblaði. Greiðslumiðar vegna lífeyrisgreiðslna, tryggingabóta o.þ.h. Til og með 20. febrúar 1996: Gögn frá lífeyrissjóðum þar sem sundurliðuð er greiðsla iðgjalda sjóðsfélaga. IV. Til og með síðasta skiladegi skattframtala 1996: 1- Greiðslumiðar fyrir hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðar7. gr. laganna. 2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi samninga sem eignarleigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert og í gildi voru á árinu 1995 vegna fjármögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigutímabil ásamt því verði sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina. Afurða- og innstæðumiðar ásamt samtalningsblaði. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Æskilegt er, en þó í samráði við skattstjóra, að upplýsingum á launamiðum sé skilað á tölvutæku formi. §«C Geymið auglýsinguna

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.