Dagur - 05.01.1996, Blaðsíða 11
MINNINC
Föstudagur 5. j^núar 1996 - DAGUFt - 11
Bragi Finnsson
Fæddur 3. janúar 1943 - Dáinn 28. desember 1995
Bragi var fæddur á Ytri-Á í Ól-
afsfírði 3. janúar 1943, næst
yngstur af tuttugu börnum hjón-
anna Mundínu Þorláksdóttur og
Finns Björnssonar útvegsbónda.
Kona Braga var Sigríður
Óskarsdóttir. Þau eignuðust 3
börn: Ólafíu Guðrúnu f. 1964,
Sigurbjörn Frey f. 1967 og Ósk-
ar Guðfinn f. 1981.
Jólin eru hátíð ljóssins. Það eru
tendruð ljós úti og inni, hvar sem
hægt er. Þó eru alltaf skuggar ein-
hvers staðar. Kannski verða
skuggarnir aldrei umflúnir hversu
vel sem við reynum að tendra ljós-
in.
Einn af þessum skuggum féll
einmitt á veg rninn er ég frétti látið
hans Braga.
Þegar ég hugsa til baka man ég
vel þennan brosmilda 10 ára dreng
vorið sem ég flutti í Syðri-Á. Man
þegar hann kom og lék sér við litla
frænda sinn sem átti dálítið meira
af bílum og öðru dóti en frændur
hans. Svo liðu árin. Litlir drengir
urðu fullorðnir menn og fóru til
sjós. Það var litla vinnu að hafa
hér fyrir norðan á þessum árum og
þess vegna varð Keflavík starfs-
vettvangur hans eins og svo ótal
margra annarra héðan. Sjómennsk-
an áfram aðalstarfið, hestamennsk-
an tómstundagamanið. Stofnaði
heimili, kona böm og seinna
barnabörn.
Það er ekki ætlun mín að rekja
æviferil Braga heldur þakka hon-
um góð kynni frá fyrstu tíð.
Ég veit að það verða fleiri en ég
sem munu sakna hans, ekki síst á
ókomnum Kleifamótum.
Með þessari örstuttu kveðju frá
Kleifunum, biðjum við góðan guð,
að leiða hann að strönd ljóss og
friðar þar sem birtan er varanlegri
en öll þau jólaljós sem við nú
tendrum. Öllum ástvinum hans
biðjum við blessunar og sendum
samúðarkveðjur frá hjónunum á
Syðri-Á.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Mig langar með örfáum orðum að
minnast Braga Finnssonar frá Ytri-
Á í Ólafsfirði sem var næst yngst-
ur 20 barna tengdaforeldra minna
Mundínu og Finns, en yngstur er
Óskar sem er giftur undirritaðri.
Þegar ég kom inn í þessa fjöl-
skyldu fyrir nær 30 árum tók ég
strax eftir hvað systkinatengslin
voru sterk og auðvitað sterkust á
milli þeirra sent bösluðu saman í
leik og starfi. Það var alltaf mann-
margt á Ytri-Á í þá daga þegar
bömin voru að alast upp og þurftu
þá allir, bæði ungir og hinir eldri
að taka þátt í lífsbaráttunni og var
Bragi ekki undantekning þar á.
En svo fóru systkinin í burtu
hvert af öðru, eins og gengur. Upp
úr 1960 fór Bragi á vertíð til
Keflavíkur, eins og títt var í þá
daga og þar festi hann ráð sitt, er
hann giftist eftirlifandi eiginkonu
sinni Sigríði Óskarsdóttur úr
Keflavfk og eignuðust þau 3
myndarleg böm, Ólafíu, Frey og
Óskar.
En það var með Braga eins og
öll systkinin að rætumar frá Ytri-Á
voru sterkar og á hverju sumri
kom hann norður á meðan foreldr-
ar hans bjuggu á Ytri-Á og lagði
þeim lið við bústörfm. Eftir að
þeirra brasi lauk kom hann norður
til að dvelja í rólegheitum á Ytri-Á
með fjölskylduna sína.
Það eru búin að vera mörg ætt-
armót á Ytri-Á og víðar, að
ógleymdum Kleifamótunum, og
þar var Bragi ætíð hrókur alls
fagnaðar, einstaklega orðheppinn,
ljúfur og skemmtilegur. Núna síð-
ustu árin hefur hestamennskan
verið mikið áhugamál hjá Braga í
öllum frístundum og þegar þeir
bræður ræddu málin, var umræðu-
efnið oftast um hesta og skepnur.
Elsku Diddý, Lóa, Freyr, Óskar
og fjölskylda. Missir ykkar er mik-
ill, við biðjum algóðan guð að
styrkja ykkur í ykkar miklu sorg
og sendum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur að norðan.
Bridgehátíð 1996
Fimmtánda Bridgehátíð Bridge-
sambands íslands, Bridgefélags
Reykjavíkur og Flugleiða verður
haldin á Hótel Loftleiðum dag-
ana 16.-19. febrúar nk. Sveita-
keppnin er opin eins og áður en
spilað verður nýtt form í tví-
menningnum, Monrad-Barómet-
er, 90 spil og ijöldi para verður
hámark 120. Eins og undanfarin
ár áskilur Bridgesambandið sér
rétt til að velja pör í tvímennning
Bridgehátíðar.
Keppt verður um einhver sæti í
tvímenning Bridgehátíðar í vetr-
arinitcell BSÍ föstudagskvöldið 10.
febrúar.
Verðlaun verða samtals 18 þús-
und dollarar.
Sex erlendum pörum hefur ver-
ið boðið til keppninnar, þar á með-
al verða ítölsku Evrópumeistaram-
ir og Zia Mahmood með sveit og
hafa þegar staðfest komu sína.
Skráning er á skrifstofu Bridge-
sambandsins (Sólveig) í síma
5879360 og er skráningarfrestur í
tvímenning Bridgehátíðar til mið-
vikudagsins 31. janúar nk.
Yinnmgar í jólakorta-
happdrættí H.H.Í. 1995
Aðalfundur Vélstjórafélags íslands:
Hörð afstaða
20 gjafabréf á veitingahús kr.
6.000 hvert
2556-4720-4846-8153-8212-10234-
13761-18840-18872-19210-19666-
24253-24839-26460-27284-28656-
29080-33122-36310-39980
40 bækur, Vaka-Helgafell, kr.
3.000 hver
627-2126-2430-2916-2933-3552-
4048-4507-5976-7765-8240-9687-
9745-11035-12225-13166-14208-
16626-16963-17993-18692-18827-
19580-20526-25089-25196-25313-
25620-27950-28263-31381-33174-
33380-33848-34279-35202-36514-
36758-37710-37855
40 geisladiskar frá Japis kr. 2.000
hver
1050-1816-2082-2497-3477-5227-
5687-8023-8565-9702-9748-10127-
10674-11754-12254-12744-12847-
13132-13849-14651-15591-17633-
17901-19787-21511-22082-22582-
24991 -25836-26645-27056-27864-
33508-34808-35016-35866-36121 -
36773-36934-39311
Thailandsferðin kom á miða nr.
42452 B
J 0 p 0 Z30ZU-Z/V3U-ZÖZ03-JUÖ1-JJ1/4- 4Z43Z B
i Iifeynsmalum Afengi hækkar
Aðaifundur Vélstjórafélags ís-
lands var haldinn 29. desember
sl. að Borgartúni 18 í Reykjavík.
Á fundinum var farið yfír starf-
semi liðins árs að frátöldum
kjaramálum, en þeim hafði verið
gerð skil á sérstökum fundum
með viðeigandi hagsmunahóp-
um dagana 27. og 28. desember
sl.
Á fundinum var nokkuð fjallað
um lífeyrismál og þá afstöðu Líf-
eyrissjóðs sjómanna að hafna því
að Vélstjórafélag íslands eigi
áfram stjórnaraðild að sjóðnum
eftir að félagið sagði skilið við
Farmanna- og fiskimannasamband
Islands 1. ágúst 1991. En félags-
menn Vélstjórafélags Islands og
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins sem greiða iðgjöld til
sjóðsins munu vera ámóta margir.
Aðalfundurinn mótmælti því
harðlega að félagsmönnum Vél-
stjórafélags íslands sem starfa á
sjó sé gert skylt að tryggja lífeyr-
isréttindi sín í sjóðnum nema að
félaginu séu líka tryggð þar áhrif
með stjórnaraðild líkt og öðrum
samtökum þar sem félagsmönnum
er gert skylt að tryggja réttindi sín
í sjóðnum. Af þessu tilefni sam-
þykkti aðalfundur Vélstjórafélags-
ins eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur Vélstjórafélags
lslands haldinn 29. desember
1995 skorar á Alþingi Islendinga
að breyta lögum nr. 94 frá 1994
um Lífeyrissjóð sjómanna á þann
veg að fulltrúa tilnefndum af Vél-
stjórafélagi Islands verði tiyggð
seta í stjórn sjóðsins. Geti Alþingi
aftur á móti ekkifallist á þessa til-
lögu verði lögunum um sjóðinn
breytt á þann veg að þeim félags-
mönnum Vélstjórafélags Islands
sem ráðnir eru á íslensk skip sé
ekki gert skylt að greiða iðgjöld í
Lífeyrissjóð sjómanna. “
Þá samþykkti aðalfundurinn að
Vélstjórafélag íslands gangi til
samstarfs við Vélstjórafélag Isa-
ljarðar um sameiginlegan rekstur
Styrktar- og sjúkrasjóða og orlofs-
heimilissjóða félaganna, að Vél-
stjórafélag Islands veiti Vélstjóra-
félagi Isatjarðar þá félagslegu
þjónustu sem Alþýðusamband
Vestfjarða hefur annast á undan-
gengnum árum, sem felst m.a. í
almennu skrifstofuhaldi, gerð
kjarasamninga ásamt margþættri
aðsloð við félagsmenn.
I lramhaldi af tillögu stjómar
var Jósafat Hinriksson vélfræðing-
ur heiðraður fyrir brautryðjenda-
störf á tæknisviði og gerður að
heiðursfélaga í Vélstjórafélagi ís-
lands.
Á fundinum var gerð grein fyr-
ir stjórnarkjöri. Helgi Laxdal var
endurkjörinn formaður félagsins
til næstu tveggja ára og Ásgeir
Guðnason varaformaður.
um 0,1%
Frá og með 1. janúar sl. hækk-
aði áfengi um að meðaltali 0,1%.
í frétt frá ÁTVR kemur fram að
með hliðsjón af nýrri reglugerð
um ÁTVR hafi verð á öllu
áfengi verið reiknað samkvæmt
nýjum verðlagningarreglum.
Dæmi um verðbreytingu:
Saint-Emilion AC 1991 rauð-
vín - eldra verð kr. 1360/nýtt verð
kr. 1240.
Chablis PM hvítvín - eldra verð
kr. 790/nýtt verð kr. 800.
Blush Chablis rósavín - eldra
verð kr. 650/nýtt verð kr. 660.
Frapin VSOP koníak - eldra
verð kr. 3810/nýtt verð kr. 3440.
Smirnoff vodka - eldra verð kr.
2280/nýtt verð kr. 2360.
Egils gull (dósir) bjór - eldra
verð kr. 960/nýtt verð kr. 970.
Beck’s dósir bjór - eldra verð
kr. 1040/nýtt verð kr. 1100.
Í
V
i Verkmenntaskólinn
áAkureyri
Afhending
stundaskráa
fer fram mánudaginn 8. janúar á skrifstofu skól-
ans kl. 8.15.-14.00
Kennsla hefst þriðjudaginn 9. janúar kl. 8.15.
Skólameistari.
Þau Ijós sem skœrast lýsa,
þau Ijós sem skína glaðast
þau hera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómurfellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið logaskœra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllu sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hveifi Ijósið bjarta
þá sitw eftir ylur
í okkar mœdda hjarta.
(E.G.Þ.)
Júlíanna Ingvadóttir og
fjölskylda.
í febrúar
Bridgesambandið þarf margt
•starfsfólk á Bridgehátíð við dreif-
ingu spila og ýmislegt fleira. Þeir
sem vilja leggja hönd á plóginn
hafi samband við við skrifstofu
Bridgesambandsins og öll sjálf-
boðavinna er vel þegin.
íslandsmót í parakeppni
Skráning er hafin í fjórða Islands-
mótið í parasveitakeppni sem
verður haldið í Þönglabakka 1,
helgina 27.-28. janúar nk. Eins og
fyrri ár verður spiluð Monrad
sveitakeppni með 16 spila leikjum
og fer fjöldi spila í leik eftir þátt-
töku, miðað er við að keppnin sé
u.þ.b. 110 spil eins og undanfarin
ár. Spilamennska hefst kl. 11 báða
dagana.
Keppnisgjald er kr. 10 þúsund á
sveit og verður spilað unt gullstig í
hverjum leik.
Skráning er á skrifstofu Bridge-
sambandsins í síma 5879360 (Sól-
veig) og er skráð til fimmtudagsins
25. janúar.
(Fréttatilkynning frá Bridgesantbandi íslands)
Bridgefélag Akureyrar:
Akureyrarmót í
sveitakeppni hafið
Þriðjudaginn 2. janúar sl. hófst
Akureyrarmót í sveitakeppni og
eru spilaðir tveir 16 spila leikir á
kvöldi og verður spiluð tvöföld
umferð.
Staðan eftir fyrstu 2 umferðim-
ar er þessi:
1. Sveit Ævars Ámtannss. 50 stig.
2. Sveit Antons Haraldssonar 45 stig.
3. -4. Sveit Kristjáns Guðjónss.34 stig.
3.-4. Hauks Harðarsonar 34 stig.
Næstu tvær umferðimar verða
spilaðar þriðjudaginn 9. janúar.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107,600 Akureyri
Sími 462 6900
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Glerá, Akureyri, þingl. eig. Magnús
Oddsson, gerðarbeiðendur Akur-
eyrarbær og Skuldaskil h.f., 10.
janúar 1996 kl. 10.
Grundargerði 6c, Akureyri, þingl.
eig. Aðalbjörg Jónsdóttir og Tryggvi
Pálsson, gerðarbeiðandi Málning
h.f., 10. janúar 1996 kl. 10.30.
Hjallalundur 20, íb. 401, Akureyri,
þingl. eig. Margrét Þorvaldsdóttir,
gerðarbeiðendur Akureyrarbær og
Byggingarsjóður verkamanna, 10.
janúar 1996 kl. 11.
Loðdýrabú, Möðruvellir 4, Arnar-
neshreppi, þingl. eig. Ræktunarfé-
lag Norðurlands, gerðarbeiðandi
Stofnlánadeild landbúnaðarins, 10.
janúar 1996 kl. 14.
Sýslumaðurinn á Akureyri
4. janúar 1996.