Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 2
2
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994
Fréttir
Nýtt félag leigir rekstur Þorgeirs & Ellerts hf. á Akranesi:
Menn stóðu frammi fyrir
tveimur slæmum kostum
- segir formaður málmiðnaðarmanna á Akranesi eftir samþykkta launalækkun og fækkun starfsmanna
Sigujöur Sverrisson, DV, Akranesi:
Starfsmenn Þorgeirs & Ellerts hf.,
Þ&E, á Akranesi samþykktu meö
afgerandi meirihluta á fundi sínum
síðdegis í gær yfirlýsingu um launa-
skerðingu og fækkun fastráöinria
starfsmanna frá forráðamönnum
nýs hlutafélags um rekstur Þ&E eftir
að hafa kolfellt hana á fundi fyrr um
daginn.
„Menn fengu skýr skilaboð fyrir
seinni fundinn. Annaðhvort gengju
þeir að þeirri yfirlýsingu sem lögð
hafði verið fram ellegar yrði ekkert
úr áframhaldandi rekstri fyrirtækis-
ins á vegum nýrra rekstraraðila.
Menn stóðu frammi fyrir tveimur
slæmum kostum. Niðurstaðan varð
sú að menn völdu þann kost að sam-
þykkja yfirlýsinguna og halda fyrir-
tækinu þar með gangandi," sagði
Valdimar Þorvaldsson, formaður
Sveinafélags málmiðnaðarmanna á
Akranesi, í samtali við DV i gær-
kvöld. Flestir starfsmenn skipa-
smíðastöðvarinnar eiga aðild að því
félagi.
í umræddri yfirlýsingu, sem gildir
til 31. okóber 1994, er kveðið á um
að fóst yfirgreiðsla lækki um 29 mín-
útur á dag. Þá felst í henni aö ógreitt
kaffihlé við upphaf yfirvinnu, frá kl.
16.30-16.45, falli niður og að yfirvinna
hefjist kl. 16.30.
í fréttatilkynningu frá nýja hluta-
félaginu segir m.a. að hlutafé þess sé
10 milljónir króna en að það verði
fljótlega aukið í 30 milljónir. Síðan
segir orðrétt: „Tilgangur félagsins er
að leigja fasteignir og lausafé þrota-
bús Þorgeirs & Ellerts hf. sem úr-
skurðað var gjaldþrota fóstudaginn
15. júlí 1994.“
Mestur niðurskurður
í yfirstjórn
Síðan segir í tilkynningunni: „Það
er ætlun eigenda að reka félagið með
hagnaöi og tryggja þannig atvinnu
starfsmaima þess til langframa. Til
þess að ná þessu markmiði hefur
verið ákveðinn mikill niðurskurður
á öllum kostnaði í rekstri. Mestur
niðurskurður verður í yfirstjórn,
bæði með fækkun og með launa-
lækkun. Til að byija með verður
fastráðnum starfsmönnum fækkað
en það er von eigenda að verkefna-
staðan verði slík að unnt verði að
fjölga mönnum sem allra fyrst.“
Einnig kemur fram í fréttatilkynn-
ingunni aö hið nýja félag hafi sent
inn tvö tilboð í smíði nýs hafnsögu-
báts fyrir Vestmannaeyinga og það
hafi verið lægstu tilboðin sem bárust
í smíðina.
„Það jákvæðasta við þetta finnst
mér að það skuli finnast á Akranesi
einstaklingar sem eru reiðubúnir að
leggja fé í fyrirtæki í jafn illa stödd-
um iðnaði. Hinu er ekki að neita að
hrikalegt er að þurfa að kyngja
kjaraskerðingu á þeim nótum sem
hér um ræðir. Hitt ber aftur að líta
á að við teljum þetta ástand verða
mjög tímabundið og í ljósi þess held
ég að starfsmenn hafi samþykkt til-
boð hins nýja rekstrarfélags," sagði
Valdimar Þorvaldsson við DV.
Stuttarfréttir
Keppniíþolreið:
Sigurvegar-
inn 14 ára
stúlka
Keppni í þolreiö fór fram um helg-
ina. Keppnin er árlegur viöburöur
sem nú var haldin í sjöunda sinn.
Það er hestaleigan í Laxnesi sem
stendur fyrir keppninni auk Flug-
leiða og Stöðvar 2.
Alls tóku 10 keppendur þátt í
keppninni, riöið var frá Laxnesi að
Þingvöllum, alls 40 kílómetra leið,
þar sem áð var yfir nótt. Þar var tek-
inn púlsinn á hestunum og þeir skoð-
aðir af dýralækni. Síðan var haldið
til baka sömu leið daginn eftir.
Sigurvegari varð Þorbjörg Hlín
Sigurðardóttir á hestinum Móahng
en Þorbjörg Hlín er að eins 14 ára. í
öðru sæti lenti Haukur Þórarinsson
á Batman og í þriðja sæti varð Guð-
mundur Jónsson á Ljúf.
4,5 milljarðarút
Ríkissjóður mun greiða út 4,5
milljarða króna í vaxtabætur og
barnabótaauka um næstu mán-
aðamót. Að sögn Morgunblaðsins
verður einnig endurgreiddur of-
greiddur staðgreiðsluskattur og
innheimtur vangreiddur stað-
greiðsluskattur.
Tteghumarveiði
Humarveiöi hefur verið heldur
treg þaö sem af er vertíðinni. Að
sögn Ríkissjónvarpsins hefur
verð á humri lækkað á erlendum
mörkuðum.
Davíð hittir DeEors
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra mun í næstu viku heim-
sækja Jacques Delors, tram-
kvæmdastjóra ESB, í Brússel og
fleiri ráðamenn ESB. Umræðu-
efni Davíös og Delors verður tví-
hliða samskipti íslands og ESB í
framtíðinni.
Misheppnaðátak?
Eftirspurn eftir gistingu á býl-
um innan vébanda Ferðaþjón-
ustu bænda er svipuö og í fyrra.
Talsmenn Feröaþjónustunnar
segja aö átakið „ísland, sækjum
það heim“ hafi ekki enn skilaö
sér til þeirra. Ríkissjónvarpið
greindi frá þessu.
Rússaf iskur regluiega
Reglulegar sighngar með sjó-
frystan svokahaðan Rússafisk
eru hafnar hingaö til lands. Að
sögn Morgunblaðsins er fiskur-
inn keyptur af rússneskum tog-
urum á miðunutn norður í Bar-
entshafi.
Nýttdýraverndarráð
í samræmi við lög um dýra-
vemd frá því fyrr á þessu ári
hefur Össur Skarphéðinsson um-
hverfisráöherra skipað nýtt
dýraverndarráð. Ámi M. Mathi-
esen, alþingismaður og dýra-
læknir, er formaður ráðsins.
ítalirrænaBjork
Svoköhuð sjóræningjaútgáfa
með tónleikaupptökum Bjarkar
Guðmundsdóttur er komin út á
geisladiski í Ítalíu. Að sögn Morg-
unblaösins er diskurinn gefinn
út án samþykkis og í óþökk
Bjarkar sem fær engar greiðslur
fyrir höfundarrétt.
Þorbjörg Hlín Sigurðardóttir, sem er aðeins 14 ára, bar sigur úr býtum i þolreiðinni. Hér er hún með verðlauna-
bikarinn. DV-mynd Sveinn
Erfiðleikar íslenskra skipasmiðastöðva fyrir bí?
OECD-ríki loka fyrir ríkisstyrki
- Fagna þessu, segir Öm Friörrksson
Fulltrúar nokkurra OECD-ríkja
undirrituðu samkomulag í Paris um
helgina þess efnis að loka fyrir ríkis-
styrki og niðurgreiðslur tíl skipa-
smíðastöðva. Aðeins Frakkar vom
ekki reiðubúnir til að undirrita sam-
komulagið.
Ríkisstyrkir og niðurgreiðslur í
samkeppnislöndum íslands hafa ver-
ið þymir í augum hérlendra skipa-
smíðastöðva og komið í veg fyrir sam-
keppni á jafnréttisgrundvelh. Öm
Friöriksson, formaður Félags jám-
iðnaðarmanna, sagði við DV að sín
fyrstu viðbrögð gætu ekki verið önn-
ur en að fagna þessu samkomulagi.
„Þetta er það sem skipaiðnaöurinn
hér heima hefur þurft að búa við, að
lenda í samkeppni við niðurgreiddan
iönað, og hefur verið að drepa hann
eins og menn hafa séð. Þessu varaði
ég við í haust á fundi með starfs-
mönnum Stálsmiðjunnar og fuhtrú-
um stjórnvalda. En ef hreyfingin er
og verður öh í þá átt að afnema ríkis-
styrki þá er heldur blómlegra fram-
undan í málm- og skipaiðnaðinum
hér á landi. Ég er ekki í nokkram
vafa um það,“ sagði Örn.
Hann sagði ljóst að afnám ríkis-
styrkja tæki sinn tíma, sér í lagi í
Evrópu. Nota ætti þann tíma til að
styrkja og styöja við íslenskan skipa-
iðnað því loksins væri hann farinn
að keppa á jafnréttisgrundvelli.
„Við höfum ekki getað keppt við
önnur lönd með ríkisstyrkina. En við
áttum fyrir löngu að vera búnir að
koma á jöfnunar- og undirboðstoh-
um. Það hefur verið stefna Félags
jámiðnaöarmanna og fleiri. Mikh-
vægast er að ríkisstyrkir og undirboð
fari úr þessari iðngrein. Að því loknu
er ég sannfærður um að blómleg at-
vinnugrein geti byggst hér upp, sér-
staklega í kringum fiskiskipin,"
sagöi Öm Friðriksson.
Þjóðminjavörður
ográðherrahitt-
astídag
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra og Þór Magnússon
þjóðminjavörður náðu ekki form-
legum fundi um helgina en ætla
aö híttast i dag. Þar mun Þór skila
ráðherra greinargerð um málefni
Þjóðminjasafrisins í tilefni af
þeirri umræöu sem hefur átt sér
stað um horfna muni úr safninu
og Miöhúsasilfrið m.a.
Ólafur sagði við DV að þeir Þór
myndu ræða um ýmis mál tengd
Þjóðminjasafriinu og fornminja-
málum almennt. Aðspurður
hvort umræðan að undanfomu
um safnið hafi skaðað stofnunina
sagði Ólafur:
„Ég veit ekki hvort það er var-
anlegur skaðL Umræðan er ekki
líkleg til að bæta ímynd einnar
stofnunar þegar svona ókyrrð
verður um málefni hennar. Ég
hlýt að vona að ró færist yfir.“
Um það að hlutir væru að
hverfa úr Þjóðminjasafninu sagð-
ist Ólafur htið vita um annað en
komið heföi íram í f'réttum og
skýringum þjóöminjavarðar.
„Mér sýnist að verið sé að gera
meira úr málum en efni standa
th þótt það hljóti alltaf að vera
býsna alvarlegt mál ef hlutur
hverfur úr safni. Ég heyri á þjóð-
minjaverði að þar eru ýmsar
skýringar á. Viö munum ræöa
þessi mál,“ sagöi menntamála-
ráöherra í samtah viö DV.