Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 22
34 MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994 Afmæli Herdís Egilsdóttir Herdís Egilsdóttir, kennari og rit- höfundur, Krummahólum 10, Reykjavík, er sextug í dag. Starfsferill Herdís fæddist á Húsavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá MA1952 og kennaraprófi frá KÍ1953. Hún hefur sótt námskeið í tón- mennt, stærðfræði og samfélags- fræði í Englandi, kennaranámskeið í Finnlandi 1974, í Bandaríkjunum 1978 og námskeið í sjónvarpsleik- ritagerö 1979. Herdis hefur verið kennari við Skóla ísaks Jónssonar óslitið frá 1953 og kennir þar enn fulla kennslu. Hún hefur haft umsjón með föndurþætti og lesið smásögur í barnatímum Ríkisútvarpsins Herdís hefur sent frá sér yfir tutt- ugu bamabækur, fjölmarga þætti fyrir Ríkissjónvarpið og lengri leik- rit með Ijóðum og lögum. Þau em Gegnum holt og hæðir, sem var sýnt í bamaleikhúsi Hafnaríjarðar, Vatnsberamir, sem Alýðuleikhúsið sýndi víða um landiö og var einnig sýnt í Osló, og Tapað fundiö? sem var sýnt í Þjóðleikhúsinu undir heitinu Rympa á ruslahaugnum. Þá var kvikmyndin Pappírs-Pési gerð eftir sögu Herdísar. Herdís hefur skrifað handbók um nýjakennsluhætti, Kiskuland, sem kom út hjá Námsgagnastofnun og Matematik í Danmörku. Fjölskylda Herdís giftist 28.7.1956 Bimi Sig- urðssyni, f. 7.3.1936, verslunar- manni. Hann er sonur Sigurðar Bjömssonar frá Gijótnesi og Hall- dóm Friðriksdóttur frá Efrihólum. Herdis og Bjöm skildu 1966. Böm Herdísar og Bjöms em Hall- dóra Bjömsdóttir, f. 30.4.1958, gift Grími Friðgeirssyni kaupmanni og er sonur þeirra Grímur Björn, f. 17.3.1988; Sigfríöur Bjömsdóttir, f. 17.4.1962, tónmenntakennari ogtón- listargagnrýnandi við Ríkisútvarp- iö, dóttir hennar er Herdís S. Finns- dóttir, f. 22.9.1992; Sigurður Bjöms- son, f. 10.9.1964, bamaheimspeki- kennari, kvæntur Jórunni Pálsdótt- ur kennara og eru synir þeirra Páll Bragi, f. 19.1.1986 og Bjöm, f. 9.5. 1990. Systkin Herdísar eru Jónas Egils- son, f. 17.8.1923, deildarstjóri, og Þorgerður Egilsdóttir, f. 3.12.1927, bóndi. Foreldrar Herdisar voru Egill Jónsson, f. 27.12.1899, d. 18.7.1989, skáld og skrifstofumaður á Húsavík, og Sigfríður Kristinsdóttir, f. 23.8. 1903, d. 29.7.1979, húsmóðir. Ætt Faðir Egils var Jónas, b. í Hraun- koti í Aðaldal, Þorgrímsson, b. í Hraunkoti, Halldórssonar, b. á Bjarnarstöðum í Bárðardal, Þor- grímssonar, b. í Hraunkoti, Mar- teinssonar, b. í Garöi og ættfóður Garðsættarinnar, Þorgrimssonar. Móðir Halldórs var Vigdís Hall- grímsdóttir, b. í Hraunkoti og ætt- föður Hraunkotsættarinnar, Helga- sonar. Móðir Egils var Friðrika Sigríður Eyjólfsdóttir, b. á Hellnaseli í Aðal- dal, Benjamínssonar, b. í Fagranesi í Aðaldal, Ásmundssonar. Móðir Eyjólfs var Nahemý Eyjólfsdóttir, b. á Þverá í Laxárdal, Sæmundsson- ar. Herdís Egilsdóttir. Sigfríður var dóttir Kristins, sjó- manns á Húsavík, Sigurpálssonar, sjómanns í Útibæ í Flatey, Krist- jánssonar. Móðir Sigfríðar var Herdís frá Hvammi í Skagafirði, Friðfinnsdótt- ir. NESJAVALLAVIRKJUN Nesjavallavirkjun er opin til skoðunar alla daga frá kl. 10.00-12.00 og 13.00—17.00 fram til 1. september. Tímapantanir fyrir hópa í síma 98-22604 eða 985- 41473. Vetrartími auglýstur síðar. Hitaveita Reykjavíkur Gott á grillið Matreiðsluþáttur á öll mánudagskvöld í sumar Mánudagur 18. júlí Forréttur: Risarækjur, legnar í engifer og sojasósu. Aðalréttur: Kjúklingabringur, BBQ. Meðlæti/grænmeti: Salatfat (mini-salatbar) Grillaðar kúrbítsneiðar (succini) með svörtum pipar. Góð ráð: Notið stromp og kveikikubba þegar kveikt er í kolum. Eldið alifuglakjöt í gegn. Annað: Eftirréttur: Grillaður ananas með rósapipar, penslaður með smjöri. Bananaís. Sumarkokkteill: forsæla Uppskriftir: Sumarkokkteill forsæla 6 blæjuber 1 dl appelsínusafi safi úr 2 sítrónum Aðferð: Sett í blandara og skreytt með appelsínusneið og blæjuberi. Höfundar: Stefán B. Guðjónsson & Ingi Rafn Hauksson Bananaís 4 bananar (meðalstórir) ískrem: innan úr tveim banönum 2 eggjarauður 70 g sykur 1 dl rjómi 1 msk. sítrónusafi nokkrir vanilludropar Risarækjur í engifer og sojasósu 500 g risarækjur 1 hvítláuksgeiri !4 tsk. salt 4 msk. sojasósa 2 msk. sérrí 1 msk. hunang 4 msk. ristuð sesamfræ 1 msk. saxaður ferskur engifer Kjúklingabringur, BBQ 1 kg kjúklingabringur 1 flaska Heinz BBQ-sósa Salatfat Allt á einu fati iceberg, gulrætur agúrkur, paprika beikon, brauðteningar soðnar kartöflur tómatar, ólífur rauðlaukur Sverrir Guðlaugsson Sverrir Guðlaugsson skipstjóri, Lónabraut 36, Vopnafirði, er sextug- ur í dag. Starfsferill Sverrir fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Sverrir er gagn- fræðingur frá Flensborgarskóla 1952, fékk fiskimannapróf frá Stýri- mannaskólanum 1958. Hann hefur nær eingöngu stundað sjómennsku, fyrst sem háseti en er nú skipstjóri á Eyvindi vopna NS 70. Fjölskylda Sverrir kvæntist 19.1.1961 Hrafn- hildi Steindórsdóttur, f. 10.5.1937, húsmóður. Foreldrar hennar voru Steindór Jóhannsson, fiskimats- maður, og Sigríður Nanna Jónsdótt- ir, húsmóðir. Börn Sverris og Hrafnhildar: Sverrir, f. 13.3.1955, hann á 2 syni; Sigríður Dóra, f. 20.3.1959, maki Svavar Halldórsson, þau eiga 2 böm; Steindór, f. 12.10.1961, maki Kolbrún Hauksdóttir, þau eiga 2 böm; Torfhildur, f. 18.11.1965, maki Láms Ármannsson, þau eiga 1 barn. Systkini Sverris: Eysteinn, f. 17.7. 1936, maki Ólöf Gunnarsdóttir, þau em búsett í Hafnarfirði og eiga 2 böm; Sigrún Ásta, f. 19.9.1940, hús- móðir, maki Einar Ólafsson, þau eru búsett á Álftanesi og eiga 5 börn, Margrét, f. 12.12.1949, húsmóðir, maki Guðmundur Stefánsson, þau eru búsett á Álftanesi og eignuðust 4böm. Foreldrar Sverris: Guðlaugur Jónsson, f. 10(5.1909, sjómaður, og Torfhildur Torfadóttir, f. 8.3.1913, d. 5.2.1982, húsmóðir og verkakona. Þau vom lengst af búsett á Nönnu- Sverrir Guðlaugsson. stíg 14 í Hafnarfirði. Sverrir verður að heiman á af- mæhsdaginn. Til hamingju með 95 ára Guðrún Guðmundsdóttir, Eyrarvegi 8, Flateyri. 90 ára Sigurlaug Guðlaugsdóttir, Ási, Áshreppi. 70 ára Vilborg Gunnarsdóttir, Hellisholti, Hmnamannahreppi. 60 ára Jórunn A. Sigurjónsdóttir, Rofabæ 27, Reykjavík. Steindóra Steinsdóttir, Fellsmúla 10, Reykjavík. Baldur Jóhannsson, Háaleitisbraut28, Reykjavík. Hólmkell S. Ögmundsson, Brautarholti 2, Ólafsvík. 50 ára Eyjótfur E. Herbertsson, Háteigi 17, Keflavik. Jón Ólafur Vigfússon, Hrauntúni 8, Vestmanneyjum. María Guðmundsdóttir, Miðtúni3, SeyðisfirðL Guðrún Oddný Gunnarsdóttir, Arkarholti 7, Mosfehsbæ. Hildigunnur Ólafsdóttir, Sólbraut 12, SeltjamamesL Hildur Jónsdóttir, Skógarlundi 21, Garöbæ. 40ára Magnús Arthúrsson, Baugstjörnl, Selfossi. Árni Svavarsson, Háholti 1, Haínarfirði. Sævar Jóhann Bjarnason, Leifsgötu 9, Reykjavík. Sædís Pálsdóttir, Dalatanga 3, Mosfellsbæ. Gunnar Róbert Róbertsson, Steinholti 6, Vopnafirðií Sigurður Brynjólfsson, Stórhóh5, Húsavík. Ólafur Ingólfsson, Hhð, Ljósavatnshreppi. Bergur Geir Guðmundsson, Torfastöðum I, Grafningshreppi. Hjalti Gunnarsson, Fossnesi, Gnúpverjahreppi. Nanna Hjaltadóttir, Leikskálum, Haukadalshreppi. Magnús Valdimar Guðlaugsson, Bólstaðarhhð 31, Reykjavik. SoföaM. Ingimarsdóttir, Goðatúni4,Flateyri. 63 27 00 markaðstorg tækifæranna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.