Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994 3 að húsbúnaðardeild Húsgagnahallarinnar er smám saman að spyrjast út fyrír fallegt úrval og LAQT VÓRUVERÐ. Húsgagnahöllin Sem hefur það a|U saman Fréttir Vættakort yfir ísafiörð: Meðalfjalladísa ogjarðdverga Út er komið Vættakort ísaijarðar. Það er Erla Stefánsdóttir íjölfræðing- ur og píanókennari sem hefur tekið efni þess saman ásamt Kolbrúnu Þóru Oddsdóttur. Kortið pr gefið út í samvinnu við bæjaryfirvöld á ísafirði. Á kortinu er fjöldi teiknaðra lit- mynda af leiðum, orkubrautum, drekum og söng- og orkulínum landsins ásamt leiðbeiningum um hvernig fólk finnur sig í náttúrunni og náttúruna í sér. Segir að huldu- verur sem gisti ísatjörð og nágrenni séu aðallega smágerðir álfar, fjalla- dísir, fjallatívar, huldufólk, dvergar og jarðdvergar. Einnig sé að finna englaverur yfir kirkjum í nútíð og fortíð. Á kortinu eru merktir bústað- ir og helstu birtingarstaðir þessara huiduvera. Veiðar Færeyinga á úthafskarfa: Styrkimir geta haft áhrif á kvótaúthlutun - segir Þorsteinn Pálsson Of langt yrði að telja upp öll þau svið þar sem Macintosh LCIII kemur að notum, því þessi tölva hentar í næstum alla tölvuvinnslu. Hún er með mikla stækkunar- möguleika. Vinnsluminni má auka í 3í Mb og án aukabúnaðar má tengja við hana ýnfiiss konar jaðartæki, s.s. prentara, mótald, harðdisk, mynd- skanna og geisladrif. Macintosh LCIII er, eins og aðrar Macintosh-tölvur, með innbyggt net- tengi og því má með sáralitlum til- kostnaði tengja hana við aðrar Macintosh-tölvur og á þann hátt vinna í sameiginlegum gögnum, senda skjöl upplýsingar og skilaboð á milli tölva, auk þess að samnýta t.d. prentara. Og svo er stýrikerfi Macintosh- tölvanna auðvitað allt á íslensku ! Sé tölvan keypt með Staðgreiðslusamningi Glitnis er t.d. hægt að greiða 9.327,- kr. sem fyrstu greiðslu og svo aðeins 5.321,- kr. á mán. miðað við greiðslu til 24 mánaða. Aukalega má fá Apple StyleWriter II- bleksprautu-prentara með 360 x 360 punkta upplausn á 39.000,- kr. eða aðeins 37.050,- kr. stgr. Sértilboð á Macintosh LCIII- tölvunni er 109.474,- kr. eða aðeins 104.000,- Umboðsmenn: Haftækni, Akureyri Póllinn. ísafirði Apple-umboðið hf. A A Skipholti 21, sími: (91) 624800 Fax: (91) 624818 : < <f- Ath „Við höfum látið þá skoðun okkar í ljós í viöræðum við Færeyinga að þessir ríkisstyrkir til útgerðarinnar gætu haft áhrif á ákvarðanir okkar um kvótaúthlutanir. Við höfum margsinnis andmælt þessum styrkj- um Færeyinga. Frá mínum bæjar- dyrum séð er þetta ekki í samræmi við fríverslunarsamning landanna. Færeyingar fengu að vísu aðlögun til næstu áramóta til þess að afnema þessa styrki. Mér finnst það ganga gegn markmiðum samningsins að vera að taka upp nýja styrki undir lok samningsins,“ segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra vegna fyrirhugaðra veiða Færeyinga á út- hafskarfa á Reykjaneshrygg. Arne Poulsen hjá samtökum út- gerðarmanna í Færeyjum sagði í samtali við DV að þegar væri einn ísfisktogari farinn til veiða á úthafs- karfa auk þess sem eitt færeyskt frystiskip hefði stundað þessar veið- ar í sumar. „Það eru ekki ný tíðindi fyrir okkur að íslenskir útgerðarmenn vilji okk- ur út úr íslenskri landhelgi. Ég von- ast eftir því að samstarf viö íslend- inga verði jafngott og það hefur verið undanfarin ár,“ sagði Arne Poulsen. Þorsteinn Pálsson sagði nauðsyn- legt að koma stjórn á veiðar á úthafs- karfa. „Það hefur verið unnið að því máli innan Noröaustur-Atlantshafs fisk- veiðinefndarinnar. Við höfum lagt á það áherslu að ísland og Grænland sem strandríki sem liggja að þessum stofni eigi að hafa meira að segja um VEIST \J þá stjórnun. Jafnframt eigi þau riki að fá meira í sinn hlut. Færeyingar geta ekki komið með sögulega skír- skotun varðandi útdeihngu á veiði- heimildum. Ég tel að á þessum grunni eigi að koma stjórn á þessar veiðar. Þar eru mjög mikilvægir ís- lenskir hagsmunir í húfi,“ segir Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.