Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 11
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994 11 Meiming Þorri Hringsson listmálari opnaói sýningu á verkum sínum á gullsmíða- verkstæöi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, sl. laugardag. Á sýningunni eru olíumálverk sem öll voru unnin á þessu ári. Þorri útskrifaðist frá MHÍ 1989 og stundaði framhaidsnám við Jan Van Eyck akademíuna í Ma- astricht á árunum 1989-91. Á myndinni er listamaðurinn til hægri ásamt Pétri Ármannssyni og er eitt listaverka Þorra í baksýn. Skeggið og hakan Galleríið hjá Ófeigi að Skólavörðustíg 5 er einkar geðslegt húsnæði. Niðri hefur listamaðurinn Ófeigur sölubúð fyrir smíðisgripi sína úr gulli, silfri og ýmsum öðrum efnivið og er innangengt úr henni út í vin að húsabaki. Til hliðar við sölubúðina og inn af henni eru verkstæði lista- mannsins og fleiri vistarverur hans. Á hæðinni yfir búðinni er smekkleg- ur sýningarsalur. Hjá Ófeigi opnaöi Þorri Hringsson sýningu síðastliðinn laugardag. Þetta er sjöunda einkasýning Þorra en hann útskrifaðist úr Myndlista- og hand- íðaskóla íslands árið 1989 og stundaði síðan nám í tvö ár í Hollandi. Þorri er því ekki lengur nýgræðingur í listinni enda enginn byijendabragur á verkunum né heldur svipmóti sýningarinnar. Niðri í listmunaversluninni hjá Ófeigi tekur Þorri á móti gestum sínum með fjórum litlum myndum sem hann hengir við stigann að sýningarsaln- um. Tvær þessara mynda eru blekteikningar, tvær gerðar með litblýi og Myndlist Úlfar Þormóðsson á pappa allar fiórar. Þrjár þeirra eru fullgerðar smámyndir af málverkun- um á efri hæðinni en sú fyrsta á sýningarskrá ekki. Það er mynd teiknuð með bleki; uppstilhng innanhúss og maður freistast til þess að halda að þar sé eins konar óður til raunsæisins, minni um fornar listhefðir, og fer vei á því. Á efri hæðinni eru fimm olíumálverk á striga og öll unnin á þessu ári. Þetta eru misstórar myndir, upp í 70x200 sm, og engar smáar. í öllum virðist viðfangsefni listamannsins vera hiö sama; leikur ljóss og skugga að formum. Víðast kemur Ijósið að utan og berst inn og lýsir upp fletina. Tæknilegt handbragð Þorra Hringssonar er í engu ámælisvert. Hann virðist hafa tæknina gjörsamlega á valdi sínu. Einnig birtuna þar sem hún brýst inn; leið hennar eftir formleysi loftsins að fletinum og um hann. Þessi galdur Þorra verður magnaðastur í mynd númer 6 sem er þungamiðja upphengisins. Og tærastir eru htimir og ef til vill mögnuð- ust birtan í mynd númer 8 þar sem hún skellur beint á fletina og baðar þá. Ef finna ætti einhvern meinbug á sýningunni, sem samanstendur af vel unnum listaverkum og haganlega uþp hengdum, væri helst að mér þóttu litirnir í mynd númer 7, en myndirnar eru allar nafnlausar, ekki gæddir því lífi sem óumdeilanlega ólgaði í htum annarra mynda. Hafi Þorri verið búinn að skipa sér í sveit okkar allra efnilegustu listmál- ara fyrir þessa sýningu þá staðfestir hann það með henni að þar á hann heima; nema að hann sé kominn fram úr því að vera efnilegur. Hann rís áreiðanlega undir því að vera orðinn fullgildur listamaður með mótaðan stíl og öguð vinnubrögð. Búast má við því að gestir sýningarinnar líki hst Þorra við list fööur hans, Hrings Jóhannessonar listmálara, enda ekki leiðum að líkjast. En þótt skylt sé skeggið hökunni ættu menn að hafa þaö hugfast að hakan er eitt og skeggið annað og hvort með sínum hætti. Ævintýraferðir í hverri viku Áskriftarsíminn er 63*27*00 til heppinna áskrifenda Island DV! Sækjum þaö heim! Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð! -Og að hafa úrval og veita þér góða þjónustu. HUSGAGNAHÖLLIN Fjolskyldutllhað: 100% afsláttur fyrlr börn og unglinga að 16 ára aldri! Bóka verður og staðfesta fyrir 31. júlí.** Flng, sól 02 sumarsæla í allt kaust i f LORiDArauwBnn| **Fyrir böm og unglinga allt að 16 ára aldri þarfhvorki að greiða flug né gistingu en greiða verður flugvállarskatta. Tilboð gildirfyrir eitt bam á hvern fullorðinn. Bóka verður og staðfesta fyrir 31. júlí. Verð frá 5«JI20kr* á manninn m.v. tvo fullorðna í 8 nætur á Sandpiper Beach Resort í St Petersburg. ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ "‘“57.520 kP.* á manninn m.v. tvo fullorðna í 14 nætur á Shorewalk Vacations Villas. ► Hámarksdvöl er 30 nætur. ► Hægt er að gista t.d. 8 nætur á einum stað og 8 nætur á öðrum, vera fyrst í Orlando og fara síðan niður á ströndina hjá St. Petersburg eða Sarasota eða öfugt. Hægt er að fljúga til Orlando og heim frá Ft. Lauderdale eða öfugt. * Innifalið flug og gisting og flugvallarskattar. - Flugvallarskattar á íslandi eru 1.340 kr. f. fullorðna og 670 kr. fyrir börn 2-11 ára, og í Bandaríkjunum 1.680 kr. (E)EB Bjóðum einnig gistingu í St.Petersburg á Tradewinds, Sandpiper Beach Resort og Best Western Sirata Beach Resort Flugferðirtil Orlando: Flogið 2svar í viku í sept., okt. og nóv. tii. '<* ■ SEPT. Lgu/Mán Sun/Þri 0KT. Lau/Mán Sun/Þri NÓV. Mán/Pri. Þri/Mið Ferðir skulu farnar á tímabilinu 10. sept. til 15. nóvember. Verð- og fjölskyldutilboð gildir í allar brottfarir til Orlando á þessu tímabili. Bóka verður og staðfesta fyrir 31. júlí Takmarkað sætaframboð! Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstufumar eða í síma 690300 (svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8-16.) FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi EL NÝKOMIÐ - NÝKOMIÐ Terylene buxur, aðeins kr. 3.990, hvítar skyrtur, kr. 990 Búðin, Bíldshöfða 18, sími 91-879010, fax 91-879110 Opið: mánud-föstud. 9-18, laugard. 10-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.