Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Page 4
4
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994
Fréttir
Islendingum boðið á flölskylduhátíð hjá Vamarliðinu um helgina:
Sælgæti selt í leyf isleysi
- þessir menn hafa ekki verslunarleyfi, segir sýslumaður
„Sjálfsagt hafa þessir menn ekkert
verslunarleyfi til að selja íslending-
um yfirleitt, mér sýnist það liggja
alveg ljóst fyrir. Þeir hafa heldur
ekki beðið um leyfi til þess. Þeir
mega bjóða gestum veitingar en ekki
selja. Mér er reyndar ekki kunnugt
um að verið sé að selja þarna," segir
Þorgeir Þorsteinsson, sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli. Um helginga
voru mikil hátíðahöld hjá Varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli, svokölluð
íjölskylduhátíð með karnivalsniði.
Mörg undanfarin ár hefur Varnarlið-
ið á Keflavíkurflugvelli boðið íslend-
ingum að taka þátt í hátíðahöldum
sem oft hafa verið í kringum þjóðhá-
tíðardag Bandarikjamanna þann 4.
júlí. Þessar hátíðir munu vera ein
heista íjáröflunarleið starfsmanna-
sjóða hinna ýmsu deilda hersins. Eitt
helsta aðdráttarafl hátíðarinnar er
amerískt sælgæti og gos ýmiss konar
sem ekki hefur verið fáanlegt í ís-
Börnin á hátiðinni voru búin að kaupa sér mikið af sælgæti. Hér sjást nokkur alsæl með fenginn. Þau heita Fann-
ey Rós Jónsdóttir, Sædis Sif Jónsdóttir, Agnes Ósk Ragnarsdóttir og Erna Ýr Vilhjálmsdóttir. DV-mynd ÆMK
lenskum verslunum en er til sölu á
hátíðinni í fjáröflunarskyni. Heyrst
hefur að margir yfirgefi völlinn með
mikið magn sælgætis. Þorgeir Þor:
steinsson segist ekki kannast við það
en lögreglan fylgist auðvitað með
slíku.
„Félagasamtök á vellinum eru að
afla sér fjár meö þessum hætti, selja
í þrautir og leiki og selja eitt og ann-
að. Ýmsar deildir hersins safna fé
sem er notað ýmist í góðgerðarskyni
eða innan deildanna sjálfra. Þessar
hátíðir hafa veriö haldnar í fjölmörg
ár í íjáröflunarskyni," segir Friðþór
Eydal, upplýsingafulltrúi Varnarl-
iðsins. Hann segir að þessi hátíð sé
fyrst og fremst haldin fyrir varnarl-
iðsmenn og af þeim en einnig sé hún
opin almenningi. Fólk fái tækifæri
til að kynnast starfseminni á vellin-
um og því fólki sem þar dvelur. Hann
vildi ekki dæma um það hvort sala
varnarliðsmanna væri ólögleg.
Vamarliðiö á Keflavíkurflugvelli:
íslendingum boðið til þjóðhátíðar
Ægir Már Kárason, DV, Suöomesjum:
Fjöldi íslendinga lagði leið sína á
Keflavíkurflugvöll til að taka þátt í
fjölskylduhátíð varnarhösmanna
sem haldin er í tilefni af þjóðhátíðar-
degi Bandaríkjamanna, 4 júlí.
Hátíðin, sem er öllum íslendingum
opin, er árlegur viðburður. Hún var
haldin í risastóru flugskýli og þar
gátu gestir notið fjölbreyttra
skemmtiatriða. Þar var boðið upp á
þrautir og leiki auk þess að fólki var
boðið að skoða vopn og hemaðartæki
svo sem orrustuflugvélar og þyrlur.
Einna mesta athygli hinna fullorðnu
vöktu F-15 orrustuvélarnar.
Það sem er mest spennandi fyrir
yngstu kynslóðina er amerískt sæl-
gæti sem sumt er á sama verði og
utan vallar. Sumt af því er þó ófáan-
legt vegna þess að innflutningur er
bannaður vegna litarefna. Áætla má
að hver gestur taki með sér um tvö
kíló af sælgæti út af vellinum.
Byssurnar vöktu óskipta athygli
gesta og þá sérstaklega barnanna
sem fengu aö prófa að halda á þeim.
Á myndinni má sjá tvo hafnfirska
stráka ásamt bandarískum her-
manni munda vopnin.
DV-mynd Ægir Már
Vinnueftirlitið rannsakar vinnuslys hjá SR mjöli á Siglufirði:
Mistök hafa verið gerð
Starfsmaður SR mjöls á Siglu-
firði liggur þungt haldinn á gjör-
gæsludeild fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri vegna eitrunar sem
hann varð fyrir á fóstudagskvöld í
hráefnisþró verksmiðjunnar. Eitr-
aö loft myndaöist í þrónni með
þeim afleiðingum að maðurinn hné
niður meðvitundarlaus.
Að sögn lögreglunnar á Siglufirði
hefur ekkert þessu líkt komið fyrir
áöur hjá fyrirtækinu og enginn
reiknaði með þessu heldur. Talið
er að skemmt hráefni hafi verið í
þrónni og því hafi myndast eitrað
gas í henni sem gerist þegar loft-
hiti er mikill og mikil áta í loðn-
unni.
„Það er ekki rétt að segja mikið
um þetta ennþá á þessu stigi máls-
ins. Niðurstöður liggja ekki fyrir
ennþá það verður unnið úr þessu
endanlega í dag,“ segir Stefán Stef-
ánsson, umdæmisstjóri Vinnueft-
irlitsins á Norðurlandi vestra.
Vinnueftirhtið tekur að sér rann-
sóknir á vinnuslysum og reynir að
grafast fyrir um orsakir slysanna
og koma þeim á framfæri. Vinna
stöövaðist ekki nema stutta stund
vegna slyssins. Bráðabirgða loft-
ræstingar voru strax settar á með
lausum blásurum til þess að fjar-
lægja eitraöa loftið. Að sögn Stef-
áns verða málin ekki leyst öðru-
vísi. Ekki er búið aö taka ákvörðun
um hvemig koma á í veg fyrir eit-
urgufurnar til frambúðar.
„Þarna er væntanlega um að
ræða eitrað gas. Þetta eru mistök
sem eru gerð en við erum ekki að
rannsaka þetta þess að hengja einn
né neinn heldur til þess aö fyrir-
byggja að þetta geti kpmið fyrir
aftur og annars staðar. í sjálfu sér
þarf ekkert meira eftirlit í verk-
smiðjunni en verið hefur. Það næg-
ir að gera ráðstafanir til þess aö
hreinsa þessar lofttegundir þegar
þær koma. Þetta kemur ekki alltaf
heldur fer eftir hráefninu sem ver-
iö er að vinna. í þetta skipti hafa
menn ekki gert sér grein fyrir að
þetta væri svona mikið. Hægt er
að passa að þetta komi ekki fyrir
aftur með því að loftræsta þrærnar
áður en farið er í hreinsun á þeim.
Það verður aldrei hægt að gera
þetta ööruvísi. Þetta eru hlutir sem
menn eiga að vera meðvitaöir um,“
segir Stefán Stefánsson.
í dag mælir Dagfari
JBH vill ganga IEBS
Þá hefur Jón Baldvin Hannibals-
son tekið af skariö og sagt að við
eigum ekki nema um tvo kosti að
velja. Annaðhvort aö sækja strax
um inngöngu í Evrópusambandið
eða bíða með aðild fram yfir alda-
mót. Þetta hefur fengið misjafnar
undirtektir og sumir segja raunar
að við höfum líka þriöja kostinn
sem er sá að sækja bara alls ekki
um inngöngu í ESB. Á það má Jón
Baldvin hins vegar ekki heyra
minnst og segir að þá verði íslend-
ingar týndir og tröllum gefnir hér
norður í háfsauga.
í fréttum að undanfómu hefur
mikið verið rætt um ýmsar stofn-
anir Evrópuríkja. Þær stofnanir
sem hæst ber í umræðunni em
EFTA, EES, JBH og EBS. Sá ferill
sem hefur verið í gangi er í stuttu
máli á þann veg að EFTA stofnaði
EES. Þá gekk JBH í EES og er nú
líka orðinn formaður EFTA. En af
því að flest ríkin sem vom í EFTA
em komin í EES sjá menn engan
tilgang með því að púkka lengur
upp á EFTA jafnvel þótt um sam-
mna þess og JBH sé aö ræða. Þaö
er þvi ekki annað fyrirsjáanlegt en
aö EFTA leggi upp laupana á næst-
unni af þvi að EES kom í staðinn
fyrir EFTA. Á það ber hins vegar
að líta að um þaö leyti sem EES
var fullmótað ákváðu flest ríkin í
EES að ganga í ESB. Þá var JBH
bæði í EFTA og EES og því finnst
honum tilvalið að ganga líka í ESB,
sem áður hét raunar EBE en það
er önnur saga. Eftir að EFTA er
gengið í EES og JBH er kominn í
EES og EES er komið í ESB geta
svo íslendingar farið að bíða eftir
ávinningi af GATT og velt fyrir sér
aðild að NAFTA.
Hérlendis hafa einstaklingar og
stofnanir misjafnar skoðanir á þvi
hvort við eigum að sækja um aðild
að ESB eða ekki. Davíð Oddsson,
Bjöm Bjarnason og Bjarni Einars-
son eru eindregiö á móti aðildar-
umsókn. Mbl. er líka á móti á meö-
an VSÍ slær úr og í. LÍÚ vill ekkert
með aðild hafa frekar en BSRB en
BHM vill að máhð verði kannað til
hlítar. Þeir hjá ASÍ eru fullir tor-
tryggni en vilja alla vega einhver
tengsl viö ESB líkt og ORG hefur
verið að benda á. í ljós hefur komið
að innan SH er forystan ekki á einu
máh varðandi umsókn en málið
fékkst ekki rætt á síðasta aðalfundi
SÁÁ. Halldór Ásgrímsson vill að
við semjum viö ESB um að njóta
þar allra réttinda en tökum ekki á
okkur neinar skuldbindingar með
samningum. Undir þetta vill VMSI
skrifa á stundinni en UMFÍ er á
báðum áttum.
Það er morgunljóst að leitun er á
einstaklingi, félagi eða stofnun sem
hefur jafn ákveðna skoðun á að-
hdammsókn að ESB og Jón Bald-
vin hefur. Hann ræddi fyrirhugaða
aðild vítt og breitt í viötengingar-
hætti í Bmssel og Bonn á dögunum.
Þetta fór mjög fyrir brjóstið á Dav-
íö sem sagði að ummæh JBH um
möguleika á aðild á næstunni væra
út í bláinn. Og aldrei þessu vant
stökk Birni Bjarnasyni ekki bros
þegar hann ræddi við fréttamenn
og sagði aö Jón Baldvin hefði ekki
umboð til að sækja um eitt né neitt
til ESB. í framhaldinu fór Reykja-
víkurbréfið auðvitað á stað og sagði
aö ef Jón Baldvin ætlaði að gera
ESB að kosningamáli fengi hann
ekki að vera með í næstu ríkis-
stjórn.
Nú er það svo að niðurstöður
skoðanakannana sýna að meiri-
hluti landsmanna vill að við sækj-
um um aðild að ESB. Samkvæmt
því er Jón Baldin ekki einn á báti
í þessu máli þótt allir hinir flokk-
arnir séu á móti honum og Jóhanna
líka. En það er náttúrlega svona
og svona að taka mark á þessum
kjósendum. Hvað ætli kjósendur
viti um ESB? Það er nú ekki langt
síðan kjósendur héldu að við vær-
um komnir í ESB og vissu nánast
ekkert um EES eða EFTA. Hvað
þá að þeir viti neitt um GATT og
NAFTA og hvaö ætli þeir séu marg-
ir sem þekkja innviði JBH?
Til þess aö komast úr þeirri sjálf-
heldu sem við erum komin í varð-
andi ESB leggur Dagfari eindregið
til að málið verði afgreitt á þjóðleg-
um nótum á þann hátt aö því verði
ýtt til hhðar og þess í stað teknar
upp rökræður um stærsta baráttu-
mál Verslunaráðs - sem er aö flýta
klukkunni á vorin.
Dagfari