Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Síða 5
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994
5
Fréttir
vtc-c)
'cc-í-
DUSTIN ROBIN JUM BiíB
UWUMN RHilAítS EOBtim IKISKINS
HONEVMOCN
ensjádu
JUOGMENT DP>y
Rannsókn á vímuefnaneyslu framhaldsskólanema:
Neysla vímuef na eykst
- stigvaxandihassneysla
Neysla vímuefna er aftur farin að
aukast meðal skólanema, eftir að
dregið hafði úr henni jafnt og þétt
allan 9. áratuginn. Menntamálaráð-
herra kynnti fyrir helgina niðurstöð-
ur rannsókna á vímuefnaneyslu •
framhaldsskólanema sem Rann-
sóknarstofnun uppeldis- og mennta-
mála gerði. Um er að ræða framhald
á mjög viðamikilli rannsókn sem
gerð var árið 1992.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar, sem 13.000 unghngar tóku
þátt í, hefur lítillega dregið úr áfeng-
isneyslu framhaldsskólanema. Árið
1992 neyttu ríflega 55% framhalds-
skólanema áfengis mánaðarlega eða
oftar en ríflega 53% árið 1994. Þá
hafa reykingar framhaldsskólanema
aukist um rúmlega einn af hundraði
milli kannana en sá munur er tæp-
lega tölfræðilega marktækur. Á
sama tíma fjölgaði þeim sem prófað
höfðu hass úr tæpum 18 af hundraði
í tæp 20 af hundraði.
Ekki er marktækur munur á áfeng-
isneyslu pilta á milli ára en áfengis-
neysla stúlkna hefur dregist saman
um hálft þriðja prósent. Hærra hlut-
Borað eftir
ferskvatni á
Hegranesi
ÞórhaBur Ásmundsson, DV, Sauöákróki:
Ferskvatnsöflun hefur lengri verið
vandamál í Hegranesi í Skagafirði
og vatnsskortur hefur gert vart við
sig á bæjum í þurrkatíð og í frosta-
köflum að vetrinum. Bændur á
tveimur bæjum í Nesinu hafa tekið
sig til og létu bora eftir köldu vatni
í landi sínu með ágætum árangri.
Bændurnir í Keldudal riðu á vaðið
og eru komnir með mjög góða bor-
holu sem gefur 60-70 tonn á sólar-
hring. Það er fjórfalt magn þess sem
þörf er á í Keldudal. Nú nýlega var
síðan borað eftir köldu vatni 40 metra
frá húsvegg á Ríp og fékkst úr þeirri
holu tvöfalt það magn sem þörf er á.
„Við töldum besta kostinn að reyna
borun, bestu og öruggustu leiðina.
Þarna er trygg vatnsöflun og besta
vatn sem völ er á. Það hafa verið
skiptar skoðanir um vatnsveitumál-
in í sveitinni. Ákveðnir aðilar vilja
fara út í vatnsveitu fyrir sveitina en
við töldum það dýrari og ótryggari
leið,“ sagði LeifurÞórarinsson, bóndi
í Keldudal.
Það er Friðfmnur K. Daníelsson,
verkfræðingur úr Eyjafirði, nú bú-
settur á höfuðborgarsvæðinu, sem
boraði en hann hefur borað og stund-
að vatnsveituframkvæmdir hátt á
annan áratug. Síðustu árin með eigin
tækjum. Hann segir að verð á borun-
um hafi lækkað mjög síðustu árin
og það sé nú viðráðanlegt fyrir bænd-
ur að láta bora eftir vatni.
SVAR.TI SVANURINN
Laugavegi 118
Nætursala um helgar
Fjölskyldutilboð
kr. 1.250
4 ostborgarar
1 fjölsk. franskar
2 lítra kók
1 kokkteilsósa
1 hrásalat
fall pilta en stúlkna hafði prófað hass
árið 1994 heldur en árið 1992. Þannig
höfðu 21,2% pilta prófað hass árið
1992 og 24,6% árið 1994 en 14,2%
stúlkna árið 1992 og 15,6% tveimur
árum síðar. Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar er ekki séð fyrir end-
ann á stigvaxandi hassneyslu en hass
er mest notaða ólöglega vímuefnið
meðal framhaldsskólanema.
Hlutfall þeirra sem hafa prófað
amfetamín hefur aukist marktækt
úr rúmlega 5% árið 1992 í rúmlega
6% árið 1994. Hins vegar ségjast
marktækt færri hafa prófað kókaín,
krakk og heróín árið 1994 heldur en
árið 1992. Um 2,5% framhaldsskóla-
nema hafa prófað alsælu sem ekki
var spurt um árið 1992. Ekki er mark-
tæk breyting á hlutfalli þeirra sem
segjast hafa prófað LSD eða „sýru“
milli kannana eða rúm 2% í báðum
könnunum. Hlutfallslega mestur
kynjamismunur er á þeim sem hafa
prófað LSD en það höíðu 3,7% pilta
prófað á móti 1,4% stúlkna.
Niðurstöður rannsóknarinnar
verða aðallega notaðar af þeim sem
vinna að forvamarstarfi í framhalds-
skólum.
MMI í:í; SJllí TOSHl
GHC6T
Gettingnd
ymtmfcn
uœtowh.
UTSALA
I COIUWYN
ÍNVEGAS
BRtAKFAST
C L U B
THfcT only met once.
BÚTIT CHANGED THEIR LIVES FOREVCR
OTRULEG VERÐ A MYNDUM
Dæmi um verð:
99kr 390kr 990kr
SCJð
omm
THEHEATS
BACKOM!
ÍÍÍÉÉÉÉÉÉ
b^LT~LC±Í I
LAGMULA 7, REYKJAVIK. - OPIÐ 10-1 OG 10-3 UM HELGAR
ÞÚ HRINGIR VIÐ SENDUM í PÓSTKRÖFU SÍMI 685333
UNFORGIVEN
UNDERi
SIEGE
___