Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994
7
Fréttir
Suðumes:
Of nar seldir
til Rússlands
Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum;
„Þetta eru 70 ofnar sem fara í end-
urbyggingu hótels í Rússlandi, sem
er á vegum íslensku verkfræðistofn-
unarinnar Hnit. Síðan fara 15 ofnar
í nýja laxeldisstöð þar í landi. Rúss-
amir vildu fá góða ofna og völdu
Vor-yl ofna vegna þess hve þetta er
langt ferðalag," sagði Steinþór Jóns-
son, framkvæmdastjóri Ofnasmiðju
Suðumesja, í samtali við DV.
Ofnamir fara í gám sem sendur
verður til Bandaríkjanna og heldur
síöan áfram til Rússlands. Ferðalagið
mun taka vun átta vikur.
„Það em einnig aöilar í Króatíu
sem hafa áhuga á að fá ofna. Þeir
telja að ofnar frá okkur séu þrisvar
sinnum ódýrari en ofnar sem fást þar
í landi. Verið er að athuga kostnað
við flutningana þangað,“ sagði Stein-
þór.
Eyþór við sýnishorn af garðtjörnum sínum. DV-mynd Olgeir Helgi
Trefjaplastsmiður á HvalQ arðarströnd:
Var í upphaf i
tómstundagaman
Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borgamesi;
„Þetta byijaði 1990 með því að ég
smíðaði einn pott og síðan hefur
þetta verið að hlaða utan á sig. Ég
er kominn með tvo menn í vinnu því
ég kemst ekki yfir þetta einn,“ sagði
Eyþór Arnórsson á Hlíðarbæ á Hval-
fjarðarströnd sem hefur verið að
auka umsvif sín í framleiðslu á ýms-
um hlutum úr trefjaplasti.
Eyþór fór út í þetta þegar það var
„hvað svartast í loðdýraræktinni",
eins og hann komst að orði. Hann rak
loðdýrabú þegar hann hóf trefja-
plastframleiðsluna og gerir enn.
Trefjaplastið átti bara að vera hobbí
en við liggur að það sé að snúast við.
Eyþór framleiðir setlaugar, garð-
tjarnir og rotþær, auk þess sem hann
annast viðgerðir á hlutrnn úr trefja-
plasti. Vinnuaðstaðan er erfið því
hann er með þetta í bílskúrnum en
til stendur að hann fái aðstöðu í hús-
næði laxeldisstöðvarinnar í Hvalfirði
sem varð gjaldþrota fyrir nokkru.
Fj ölbrautaskólinn á Sauöárkróki:
Bóknámsálma í haust
Langþráður draumur margra
Sauðkrækinga verður að veruleika í
haust en þá á að vera lokið fram-
kvæmdum við 1. áfanga bóknáms-
álmu Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki. Þetta þýðir að
bóknám skólans, sem verið hefur í
verknámsálmunni, flytur í eigið hús-
næði og verkleg kennsla getur hafist
í skólanum.
Hlutur Sauðárkróksbæjar í þess-
um framkvæmdum í sumar verður
um 30 milljónir króna og er stærsti
einstaki framkvæmdahður bæjar-
sjóðs. Að sögn Snorra Bjöms Sig-
urðssonar bæjarstjóra verður nær
jafnhá upphæð veitt til gatnagerðar.
í byggingu leikskóla eiga að fara um
29 milljónir og af öðrum stórum
framkvæmdum má nefna gerð
tveggja nýrra íþróttavalla en til þess
á að verja 17 milljónum króna.
Verður þú sá heppni?
Combi Camp tjaldvagn að
verðmæti kr. 380.000 dreginn út
fyrir verslunarmannahelgina!
Áskriftarsíminn er
63*27«00
Island
Sækjum
þaö heim!
LOKAÐIDAG
Útsalan
hefst í fyrramálið
30 - 70% af sláttur
RR skór JL
EURO SKO
Kringiunni 8-12 sími: 686062
^ -
Frábær gæði
frábæru verði
QT-CD44H
Htf "
’,y' •. . ‘,v —' i
SiSiífíliM.
Opið virk
—
—
saí'SíB'*
msm
■
Skeifunni • Hólagarði • Grafarvogi • Seltjarnarnesi • Akureyr
Líka á kvöldin !