Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994 Stuttar fréttir Múslimar/Kr6atar með Búist er vlð að múslímar og Króatar í Bosníu fallist á friðará- ætlun með semingi. Serbarámóti Leiðtogar Bosníu-Serba segjast reiðubúnir að hafna friðaráætlun og leysa deiluna á vígvellinum. FaraSÞ? Ef Serbar hafna friðaráætlun gæti það flýtt fyrir brotthvaríi gæslusveita SÞ. Kim ll-sung fordæmdur Leiðtogar Suður-Kóreu fordæmdu Kim heitinn Il-sung, fyrrum leið- toga Noröur- Kóreu, fyrir að hafa átt upp- tökin að Kóreu- stríðinu 1950-1953 og fyrir að festa skiptingu skagans í tvennt. Jarðarför frestað Jarðarfór Kims Ils-sungs 'í Norður-Kóreu hefur verið frestað til þriöjudags, hugsanlega vegna valdabaráttu. Undirbúafund Samningamenn ísraels og Jórd- aníu undirbúa fund til að binda enda á óvinskap landanna. Sendihenraíiagi Sendiherra Ómans í Alsír er heill á húfi en hans var saknað i tvo sólarhringa. Hinnertýndur Ekkert er vitað um hvar sendi- herra Jemens í Aisír er niður- kominn en hann hvarf með sendiherra Ómans. Adamssýnirhörku Gerry Ad- ams, leiðtogi pólilísks arms Irskalýðveldis- hersins, brýndi klærnar í gær og sagði að þaö væri ekki Breta að ákveða framtið Norður-írlands. Engarviðræður Helsti hópur stjórnarandstæð- inga í Nígeríu þiggur ekki boð herforingjastjórnarinnar um við- ræður Stýrimaðurtekinn Norömaður sem var stýrimað- ur á skipi Pauls Watsons hval- veiðiandstæðings var handtek- inn fyrir helgi. Flóttamönnum bjargað SÞ ætla að flytja hundruð só- malskra ílóttamanna frá Jemen í dag. Aðstoð hætt Helstu skipasmíöaþjóðir, þar á meðal Norðurlöndin, hafa ákveð- ið að leggja niður ríkisstyrki til iðnaðarin Dyianheillar Bandaríski þjóðlagapopp- arinn Bob Dyl- anhélttónleika í Prag um helg- ina og heillaði álieyrendur upp úr skón- um, þar á með- al Havei Tékklandsforseta, Mótmæiaræðu Hersijórnin á Haití ætlar aö mótmæla ræöu Aristides, brott- rekins forseta, sem útvarpað var til landsins. Sjösærðust Sjö manns særðust í skotárás á krá á Norður-írlandi í gærkvöldi, Eeuter Utlönd Borgarastyrjöld í Rúanda: Hjálparstarf i ógnað vegna sprengjuregns Mannskæð barátta uppreisnarliða og stjórnarsinna við landamæri Rú- anda og Zaire hefur komið í veg fyr- ir alþjóðahjálp fyrir þurfandi ílótta- menn. í gærkvöldi féllu sprengjur á flóttamannabúðirnar í Goma og við alþjóðlegan ílugvöll sem notaður er af hjálparliðinu. Ákveðið var að slá fresti á birgðaflutninga til flótta- manna á meðan ástandið væri ótryggt. Aíveg eins er búist við því að bardögum linni á morgun því uppreisnarsinnar telja að her stjórn- arinnar sé við það að falla. Sprengjur féllu á landamærastöð í gærkvöldi sem urðu að minnsta kosti 25 flóttamönnum að fjörtjóni og aör- ar sprengjur sprungu í flóttamanna- búðunum í Goma en tölur um mann- fall þar voru ótryggar. Mikil skelfmg greip um sig í flóttamannabúðunum og tugir manna tróðust undir, þar á meðal fjöldi barna. Blaðamann í Goma gátu heyrt skothríð úr þorpinu Gisenyi í Rú- anda í aðeins nokkur hundruð metra íjarlægð. Leiðtogar stjórnar Hutu- manna hafa flúið inn á verndarsvæði Frakka í þorpinu Cyangugu þrátt fyrir að Frakkar hafi lýst því yfir að þeir væru óæskiiegir á svæðinu. Reuter Hermenn frá Zaire reyna að hafa einhverja stjórn á flóttamannastraumnum til Goma. Mannskæð barátta uppreisn- ariiða og stjórnarsinna við landamæri Rúanda og Zaire hefur komið í veg fyrir alþjóðahjálp fyrir þurfandi fióttamenn. Símamynd Reuter Araf at kref st gæsluliðs Miklar óeirðir brutust út milli Pal- estínumanna og ísraelskra her- manna á Gaza-svæðinu og tveir Pal- estínumenn féllu í valinn og tugir særðust. Arafat krafðist þess að al- þjóðleg verndarsveit yrði kölluð til gæslu á svæðinu. Utanríkisráðherra Israels, Yossi Beilin, taldi enga þörf á alþjóðlegu gæsluliði. „Arafat verð- ur að skilja það að við verðum að leysa okkar vandamál sjálfir í sam- einingu, alþjóðlegt hjálparlið mun á engan hátt hjálpa okkur að leysa vandann," sagði Beilin. Reuter Vísindamenn ánægðir með halastjömuárekstra: Biðu eftir risahvelli á Júpíter í morgunsárið Á þessari myndaröð úr Hubble geimsjónaukanum sést hvar fyrsta brotið úr halastjörnunni Shoemaker-Levy 9 rekst á yf irborð Júpíters. Simamynd Reuter Stjarnfræðingar biðu spenntir í morgun eftir því að annar bútur úr halastjörnunni Shoemaker-Levy 9 keyrði inn í reikistjörnuna Júpíter á fullri ferð. Þeir áttu von á miklu stærri hvelli en varð á laugardags- kvöld þegar fyrsta brotið rakst á Júpíter. Areksturinn varð klukkan tæplega hálfátta aö íslenskum tíma í morgun og var afl hans 25 sinnum meira en á laugardagskvöld þegar eldglæring- ar stigu eitt þúsund kílómetra upp fyrir yfirborð Júpíters. Brotið sem rakst á Júpíter í morgun er það sjö- unda í röðinni og kallað G. Bestu myndirnar af árekstrunum hafa komið frá Hubble geimsjónauk- anum og sýna þær hvar halastjörnu- brotin æða í gegnum ammóníaksský- in sem hylja Júpíter og rekast síðan á loftkennt yfirborð plánetunnar með gífurlegri sprengingu. Eugene Shoemaker, stjörnufræð- ingurinn sem uppgötvaði halastjörn- una, sagði að svo virtist sem spreng- ingin orsakaði gífurlegar jarð- skjálftabylgjur sem sæjust á mynd- unum úr Hubble. Heidi Hammel, starfssystir Shoemakers í hópnum sem rannsakar myndimar, sagði aft- ur á móti aö þetta væru hugsanlega leifar af halastjörnubrotinu um- hverfis árekstursstaðinn. Fyrsta brotiö sem féll á laugardags- kvöld skildi eftir sig far á yfirborði Júpíters á stærð við jörðina í þver- mál. Alls fellur 21 brot úr Shoemaker- Levy 9 halastjömunni á Júpíter og er búist viö að árekstrahrinunni Ijúki næstkomandi fóstudag. Reikn- að er með öflugustu árekstmnum seint á miðvikudagskvöld eða aðfara- nótt fimmtudagsins þegar fjögur halastjömubrotlenda. Reuter Amsterdamdúf- urnarápilluna Eyþór Edvaröason, DV, Hollandj: Borgaryfirvöld í Amsterdam hafa ákveðið að hefja aðgerðir til að fækka þeim hundruðum þús- unda dúfna sem í borginni búa, Þeim hefur flölgað stórlega und- anfarin ár en ekki er vitað hvað veldur þessari miklu frjósemi. Þaö sem vakir fyrir borgaryfir- völdum er að minnka óþrifnað- inn af völdum dúfnanna auk þess sem í skít þeirra eru efni sem valda tjóni á byggingum og minn- ismerkjum. í samráði við sérfræðinga og dýraverndunarsamtök var ákveðið að gefa dúfunum þrisvar til flórum sinnum í viku sér- stakan mat sem inniheldur efni sem hefur áhka eiginleika og pill- an. Búist er við 50 til 60 prósent minni frjóserai. Ellemann-Jens- eneinangraðurí gagnrýnisinni Uffe Elle- mann-Jensen, fyrrum utan- ríkisráðherra Danmerkur, viröist standa einn í gagnrýni sinni á dönsku ríkisstjórnina fyrir framgöngu hennar i vali nýs forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Danska stjórnin hafði stungið upp á Poul Schlúter, fyrrum for- sætisráðherra, sem frambjóð- anda Danmerkur í stöðuna en Ellemann-Jensen sagði að það hefði aðeins verið liður í innan- ríkispólitískum leik. Poul Nyrup Rasmussen forsæt- isráðherra og fleiri vísa þeim full- yröingum alfarið á bug. Það var svo forsætisráðherra Lúxemborgar, Jacques Santer, sem hreppti hnossið. Rítzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.