Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Side 10
10
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994
Spumingin
Á pósthúsið við Austur-
stræti að vera rautt?
Soffia Ingimarsdóttir: Já, mér flnnst
það. Rautt er fallegt.
Kristján Einarsson: Mér er nokkuð
sama um það, held ég.
Berglind Magnúsdóttir: Nei, ekki
svona dökkt.
íris Björg Úlfarsdóttir: Mér fmnst
það allt í lagi, samt ekki hárautt.
Kristín Lilja Ragnarsdóttir: Ja.
Ragnar Torfi Geirsson: Tvímæla-
laust. Þannig var það fyrst.
Lesendur dv
Gleymum Evrópu-
sambandinu í bili
Um árabil hefur verið fundað hér um EES- og ESB-mál. Frá einum slíkum
fundi á Hótel Sögu snemma árs 1992.
Ásgeir skrifar:
Um árabil hefur verið fundað hér
á landi um EES-samninginn og Evr-
ópubandalagið. Nú gengur maður
undir manns hönd í íslensku við-
skiptalífi við að kynna íslenskum
stjórnvöldum það sem þeir segjast
„leggja áherslu á“ í viðræðum við
forystumenn Evrópusambandsins,
ESB, um það sem þeir nefna „úr-
lausnarefni" varðandi tengsl íslands
og ESB eftir inngöngu EFTA-ríkj-
anna. Lengi hafa menn eygt von um
að Svíar og Norömenn kjósi gegn
ESB-aðild. Og enn eru sumir íslensk-
ir stjórnmálamenn að gæla við þessa
hugmynd, svona eins og til að geta
dregið andann léttar. Það er aldeilis
borin von. Það er þegar séð fyrir að
báðar þessar þjóðir munu kjósa með
aðild.
En hvað er það sem íslendingar eru
svona hugsjúkir út af vegna EES-
samningsins og ESB? Jú, hvort EES-
samningurinn gagnvart íslandi haldi
ekki með aðild annarra EFTA-ríkja
að ESB og að engin skerðing verði á
markaðsaðgangi okkar í EFTA-lönd-
unum, bæði fyrir síld og kjöt, svo
dæmi sé tekið. Einnig að tryggt verði
að vöruútflutingur frá íslandi á
markaði Evrópusambandsins verði
ekki taflnn á landamærastöðvum
eins og gerðist sl. vetur.
Og utanríkisráðherra heldur áfram
að ferðast til Brussel og fleiri og fleiri
nefndarmenn munu brátt tengjast
viðræðum af öllum sortum og á öll-
um stigum. Það er líklega eitt það
eftirsóknarverðasta í málinu öllu -
að fá að ferðast á vegum hins opin-
bera og fá dagpeninga í vasann sinn.
Litlu verður Vöggur feginn; það má
svo sannarlega enn segja um okkur
íslendinga.
Gunnar Óskarsson skrifar:
Allir vilja hafa skoðun á stjórnmál-
um. Og nú er vikublaðið Pressan
komin í pólitík af fullum krafti. í for-
ystugrein Pressunar sl. fimmtudag,
„Haustkosningar um hvað?“, var
þess í raun vænst aö ekki yrði efnt
til haustkosninga - það sýndi a.m.k.
ekki mikinn pólitískan kjark að efna
til kosninga nú þegar engar efnisleg-
ar ástæður væru til. Og svo væru nú
mörg verkefni óleyst! Hvenær skyldi
sá tími koma að ekki séu nægilega
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Nú hefur einn kapítuli til viðbótar
bæst í hina margnefndu Svalbarða-
og Smugudeilu. Atburðirnir sem áttu
sér stað á miðunum þar norður frá
milli íslendinga og Norðmanna hafa
orðið til þess að Rússar hafa æ meir
gripið inn í íslenska atvinnustefnu,
án þess að hafa þó í byrjun átt frum-
kvæðið. Þau tíðindi hafa nefnilega
gerst að Rússar hafa gengið til liðs
við Norsarana og bannað skipum
sínum að landa afla á íslandi.
Eins og allir vita hafa rússneskir
togarar landað fiski hér í dálitlum
mæli hin seinni ár. Þegar fréttin um
löndunarbann á Rússafiski barst
hingaö fóru menn samstundis að tala
um einhverja 600 einstaklinga sem
Hringið í síma
63 27 00
milli ki. 14 og 16
- eða skrifið
Nafn og símanr. veróur að fyigja hréfum
Það er hins vegar algjör óþarfi að
vera með vandræðagang út af
ímynduöum paradísarmissi þar sem
EES-samningurinn er. Það er löngu
kunn staðreynd að þann samning
missum við ekki því ESB vill einmitt
halda þessum samningi. Þetta hefur
m.a. fyrrverandi framkvæmdastjóri
EFTA staðfest. Hann telur einnig að
engin þörf sé fyrir íslendinga að
sækja um aðild að Evrópusamband-
inu. Alla vega liggi ekkert á og nægi-
mörg verkefni fyrir ríkisstjórnir til
að leysa? - Spyr sá sem ekki veit.
Leiðarahöfundur Pressunnar telur
eflaust að hann sé að gera „einhveij-
um“ gott með úrtölum um haust-
kosningar. En hann hefur ekki lang-
tímasjónarmið í huga gagnvart þess-
um herra „Einhverjum". Sannleik-
urinn er sá að haustkosningar hafa
ekkert að gera með það að „hlaupast
undan merkjum" eða að „skila ekki
fullu dagsverki að vori“ eins og kom-
ist er að orði í leiðaranum.
myndu missa vinnuna. Og útlitið var
orðið ansi dökkt, sögðu menn.
Ef það er hins vegar rétt að Rússar
geti haft þvílík áhrif á atvinnumögu-
leika íslendinga í eigin landi hljóta
menn líka að viðurkenna að þessi
fiskkaup okkar eru ófær leið í stöð-
unni eins og hún er nú. - Ófær, vegna
þess að við megum ekki koma okkur
í þá aðstöðu að aðrar þjóðir megni
að stilla okkur upp við vegg meö
legt sé aö fylgjast með þróun mála á
þessum vettvangi
Er þá ekki það besta sem við íslend-
ingar getum gert að láta okkur nægja
að fylgjast með gangi mála? Gleyma
Evrópusambandinu í bili. - Það má
því spara margar milljónir króna
með því að draga úr ferðakostnaði
ráðamanna og annarra tilhlökkun-
armanna um ferðalög til Brussel á
næstunni.
Vorkosningar verða banabiti
beggja núverandi stjórnarflokka og
þvi verður að telja leiðara Pressunn-
ar að þessu sinni falskan tón í sumar-
blíðunni og botnfalli kreppunnar.
Leiðarinn þjónar því ekki þeim til-
gangi sem ég hygg að hann eigi að
þjóna- stuöningi við „einhvern'* sem
þarf svo nauðsynlega sterkan bak-
hjarl einmitt nú, í umræðunni um
væntanlegar haustkosningar.
þessum hætti. Menn hljóta því að
hafna þessum fiskkaupum af Rúss-
um. Og alla vega á meðan þarlend
stjórnvöld beita veiðum okkar í
Smugunni fyrir sig í málinu. Þau rök
er einfaldlega ekki gild.
Menn ættu með öðrum orðum ekki
að hafa geð í sér til að stunda þessi
viöskipti áfram fyrr en allir aðilar
viðurkenna „Smugur" heimshaf-
anna sem einskismanns land.
Svarstúfur tíl Hannesar:
Spæling!
Illugi Jökulsson skrifar:
Hannes þó! - Skelfflega ertu far-
inn að leggjast lágt! Á dauða mín-
um átti ég von en ekki því aö þú
færir að reyna að sýna fram á
hvað ég er ómerkilegur pappír
með því að rekja nærri tuttugu
ára gamlar slúðursögur um eitt-
hvert partí úti á Seltjarnarnesi
sem mun hafa farið allmjög úr
böndunum. Eitthvað heyröi ég
um að kjaftatífur heföu sagt mig
hafa verið í partíinu, en að maður
sem ætlast til að vera tekinn al-
varlega sé að lepja þetta upp
núna, það er með ólíkindum. Lág-
kúran, maður, lágkúran! - Til
gamans má geta þess að þegar
partíið fræga var haldið á Sæ-
brautinni bjó ég í Danmörku. -
Spæling!
Næstaskref
HjáÁTVR?
Sverrir skrifar:
Lengi hefur fóik beðið þess að
ÁTVR tæki upp viðtekna við-
skiptahætti. ÁTVR ætlar að bjóða
viöskiptavinum að greiða með
debetkorti. Ekki var nú skrefið
stórt, eða hraðvirknin í fram-
kvæmd. Einhvern tímann á
næstu mánuðum! Og venjuleg
kreditkort? Einhvem tíma löngu
síðar. Þegar búið er að fá reynslu
af fyrrnefndu kortunum! Frí-
höfnin í Keflavík tekur hins veg-
ar kreditkort sem greiðslu fyrir
áfengi, bjór og hvaðeina. Getur
ÁTVR ekki notfært sér þá
reynslu? Næsta skref í málum
ÁTVR á auövitað að vera það að
leggja einokunarbáknið niður.
Ónýtt lífeyris-
sjóðakerfi
Pétur Árnason skrifar:
Ég tek undir lesendabréf í DV
miðvikud. 13. júlí um of háan eft-
irlaunaaldur hér á landi. Það er
óþolandi að menn skuli þurfa aö
vinna til 70 ára aldurs án þess að
geta notið fullra réttinda úr líf-
eyrissjóðum sínum, sjóðum sem
þeir hafa greitt i alla sína starfs-
ævi. - Og síðan er makinn svo til
réttindalaus eða réttindalítill eft-
ir fráfall sjóðfélagans. Þar á eftir
hefst svo eignaupptaka sjóðsins
að fullu. Og svo bætist ofan á
óréttlætið með tvísköttuninni
eins og dæmin sanna. Hér er um
ónýtt lífeyrissjóðakerfi að ræða.
Hvaðan má vænta breytinga?
Sjálfstæðisfloklcur
ígóðummálum
Erna hringdi:
Þegar maður heyrir hina góðu
útkomu í Gallup-könnuninni um
fylgi flokkanna og það að Sjálf-
stæöisflokkurinn sé kominn með
yfir 40% fylgi í langan tíma fmnst
manni sárgrætilegt ef forusta
flokksins þekkir ekki sinn vitjun-
artíma og undirbýr kosningar hið
fyrsta. Svona fylgi gæti fljótlega
sópast burt á skemmri tíma en til
næsta vors. - Auðvitað treystir
enginn tölum nákvæmlega, en
könnun Gallups sýnir tilhneig-
inguna og sjaldan eru úrslit kosn-
inga langt frá slíkum niðurstöð-
um kannananna.
Vestfjarðavandinn
Nói hringdi:
Mér er spurn hvernig rikis-
stjómin ætlar í raun að réttlæta
það að úthluta Vestfirðingum ein-
hverjum hundruðum milljóna
króna án þess að búast við því
aö öll önnur byggðarlög kreíjist
þess sama? - Ég tel það eina rétta
að afturkalla afla aðstoð til handa
Vestfjörðum til að skapa ekki for-
dæmin.
Pressan mælir gegn kosningum
Svalbarða- og Smugudeilan:
Rússaf iskur orðinn atvinnustef na?
Eru Rússar að ná tökum á helsta atvinnuvegi landsmanna með löndun
Rússafisksins?