Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglysingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. 77/ hamingju, Brasilíumenn Viö samgleðjumst Brasilíumönnum eftir sigur þeirra í úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar í knattspymu í gærkvöldi. Þeir voru vel aö sigrinum komnir eftir glæsi- lega frammistöðu í leikjum undanfarinna vikna. Brasilíumenn geta nú hrósaö sér af þeim einstæða árangri aö hafa orðið heimsmeistarar í knattspymu íjór- um sinnum í þau fjórtán skipti sem keppnin hefur farið fram. Þjóðverjar hafa þrisvar sinnum náð titlinum, ítalir tvisvar, Úrúgvæmenn tvisvar og Englendingar og Arg- entínumenn einu sinni hvor þjóð. Að þessu sinni áttu ítalir góða möguleika á að verða heimsmeistarar í þriðja sinn. í úrslitaleiknum og fram- lengingunni stóðu þeir Brasilíumönnum fyllilega á sporði. En þeim urðu á afdrifarík mistök í vítaspyrn- unni. Gremjan leyndi sér ekki á svip Roberto Baggio þegar hann brenndi af, boltinn sveif yfir markið og örlög- in vom ráðin. Ekki hefur fyrr komið til vítaspyrnukeppni í úrslita- leik heimsmeistaramótsins. Skemmtilegra hefði verið að fá úrslitin í raunverulegum knattleik þar sem reynir á fleira en spymu og markvörslu. Knattspyrna er álitin vera vinsælasta íþrótt sem iðkuð er í heiminum. Áhuginn fyrir heimsmeistarkeppninni, sem að þessu sinni fór fram í Bandaríkjunum, var gífur- legur. Tugir þúsunda sóttu hvem leik, nær eitt hundrað þúsund úrsiitaleikinn í gærkvöldi. Hundmð milljóna manna fylgdust með leikjunum í beinni útsendingu um heim allan. Ríkisútvarpið á hrós skilið fyrir að bjóða íslenskum íþróttaunnendum upp á beinar sendingar frá mótinu. Hér á landi er mikill knattspymuáhugi og heimsmeist- arakeppnin hefur verið eitt helsta umræðuefni manna á meðal undanfamar vikur. DV tók upp þá nýbreytni á lokaspretti keppninnar að gefa lesendum sínum kost á að spá um úrslitin með því að hringja í sérstakt símanúmer. Mikill þátttaka var í þessum leik og yfirgnæfandi meirihluti spáði Brasilíu- mönnum réttilega sigri. Þótt fæst okkar hafi nokkm sinni persónulega hitt heimsmeistarana nýju eða keppinauta þeirra tölum við um þá eins og góða kunningja. „Brassamir“, segjum við og meinum Brasilíumenn. Og einstaka leikmenn virð- umst við ekki þekkja neitt minna en nánustu skyld- menni okkar. Þetta nána samband leikmanna og áhorfenda gerir ríkar kröfur. Til þess er ætlast að leikmennimir séu til fyrirmyndar innan vallar sem utan. Það skyggði nokkuð á upphaf heimsmeistarakeppninnar að mesta knatt- spymugoð veraldar, Argentínumaðurinn Maradona, skyldi staðinn að misnotkun lyija. Þjóð hans varð miður sín af skömm og sárindum. Um leið og með réttu em gerðar strangar kröfur til leikmannanna með knöttinri þurfa áhorfendur að líta í eigin barm. Fótboltabullurnar svonefndu em hneisa fyr- ir knattspymuíþróttina. Og alltof oft láta áhofendur ómakleg hnjóðsyrði falla í garð leikmanna og dómara. Keppnisskap er eðlilegur hlutur en heift og bræði á ekki heima í íþróttum. Einhverri mestu íþróttaveislu sögunnar er lokið í bili. Hafi Bandaríkjamenn þökk fyrir góða stjóm og gott skipulag. Snillingar vallarins draga sig nú í hlé og hvíl- ast að verðleikum. Boltinn er aftur hjá okkur og við skul- um njóta þess. Guðmundur Magnússon „Undanfarin ár hafa komið fram fyrirtæki sem fremur má telja hugbúnaðarframleiðendur en verktaka." Úr framleiðsludeild Marels hf. Opnari markaður fyrir hugbúnað Vottun hugbúnaðar getur aukið hlutdeild hugbúnaðarfyrirtækja í opinberum verkefnum. Tölvukerfi þurfa þá formlega vottun til að vera hæf til sölu. Nú leggja menn hins vegar aðaláherslu á heíðbundin útboð forritunar á meðal verktaka en úbreiösla er minni en menn væntu. Verktakaleiðin og vottun- arleiðin henta í ólíkum tilfellum. Vottunar á að kreíjast á útbreidd- um kerfum en útboð henta viö stór, sérhæfð, staðbundin, verkefni. Ólíkir hagsmunir Samtök hugbúnaðarfyrirtækja beijast fyrir þvi að opinber verk- efni í hugbúnaðargerð séu boðin út. Síðustu árin hefur opinber mark- aður fyrir ýmsa þjónustu opnast og nú er það stefnan að fyrirtæki á almennum markaði keppi um viöskipti ríkisstofnana. Hugbúnað- arfyrirtækin leggja ofuráherslu á eitt samkeppnisform sem er útboð á forritun á vel skilgreindum verk- efnum. - Talsmenn þeirra líta fyrst og fremst á sig sem verktaka og beijast aðallega fyrir opnum verk- takamarkaði innan opinbera kerf- isins. Undanfarin ár hafa komið fram fyrirtæki sem fremur má telja hug- búnaðarframleiðendur en verk- taka. Þau framleiða hugbúnaö og selja á almennum markaði og búa auk tölvuþekkingar yfir sérþekk- ingu á þeim sviðum sem hugbúnað- urinn er sniðinn fyrir. Hefðbundin útboð til verktaka Um útboð á sérsmíði hugbúnaðar gilda allfastar reglur. Áður en til útboðs kemur er skilgreint allt sem hugsanlegt tölvukerfi á að gera og þvi lýst í smáatriðum. Þannig út- boð eru oft seinleg og dýr fyrir verkkaupa því framkvæmd þeirra er mikið verk. Ef öllum formsatrið- um staðla er fylgt hða margar vik- ur frá því að útboö er auglýst og þar til samningar liggja fyrir. Áður en til útboðs kemur er auk þess mikilli vinnu eytt í samningu útboðsgagna sem bjóðendur hafa takmarkaða möguleika á að víkja frá. Þá er alls ekki tryggt að útboð á forritun skih hagkvæmustu lausn. Forritunin sjálf er núoröið nánast handavinna því raunveru- leg hönnun hugbúnaðar hefur farið fram áður en til útboðs kemur. Útboðsfjárhæðin er þess vegna oft einungis þriðji hluti af stofnkostn- aði hugbúnaðarins. Þótt tekiö sé lægsta tilboði í for- ritunina eina er engan veginn víst is og annarra mikilvægra þátta. Fyrirtæki verða að sýna fram á að tölvukerfi sín uppfyhi settar kröfur. Þau senda hugbúnaðinn til prófana og ef hann stenst þær hlýt- ur búnaðurinn formlega vottun. Ríkisstofnanir sem fara vottunar- leiðina við kaup hugbúnaðar leita tilboða hjá þeim sem selja vottaðan búnaö. Útboð er þá auðveldara og ódýrara en áður. Vottunarleiðin hentar th dæmis vel við kaup hvers konar bókhcúdskerfa, launakerfa og ýmissa annarra algengra tölvu- kerfa. Stefán Ingólfsson að það sé hagkvæmast þegar allt er tahð þvi árlegt viðhald hugbún- aðarins kostar mikið og upp koma aukaverk. Viðamikil hefðbundin útboð á hugbúnaðargerð henta í færri tilfellum en menn töldu fyrir fáum árum. Það kemur því ekki á óvart þó útboð á forritun hugbún- aðar séu fátíð. Vottunarleiöin í opinbera kerfmu má víða koma við samkeppni með nýjum aðferð- um. Þá er krafist formlegrar vott- unar á hugbúnaði áður en hann telst hæfur til sölu. Sérstakar vott- unarnefndir sérfræðinga annast oft þetta verk. Settar eru fram ákveðnar kröfur sem hugbúnaður skal uppfylla. Þær taka til aðgerða sem búnaðurinn á að framkvæma, staðla, upplýsingainnihalds, örygg- Kjallarmn Stefán Ingólfssn verkfræðingur „Síðustu árin hefur opinber markaður fyrir ýmsa þjónustu opnast og nú er það stefnan að fyrirtæki á almennum markaði keppi um viðskipti ríkisstofn- nv.n 66 Skoðanir annarra Dómsdagsstjórnun „Vestanhafs hefur það aukist að forstjórar beiti svonefndri dómsdagsstjórnun við rekstur fyrirtækja. Hún gengur út á að skilgreina framtíðarsýn viðkom- andi fyrirtækis og grípa í taumana, á meðan fyrir- tækið er enn sæmilega sterkt, svo endalokin, sjálfur dómsdagurinn, renni ekki upp... Velta má því al- varlega fyrir sér hvort sú framtíðarsýn, sem blasir við íslenska lýöveldinu á fimmtíu ára afmæh þess, sé ekki þess eðlis að beita verði dómsdagsstjómun.“ Jón G. Hauksson i ritstjórnargr. 5. tbl. Frjálsrar verslunar. Úttekt á Þjóðminjasaf ni „Deilumar um Silfursjóðinn hafa ekki aukið hróður Þjóðminjasafnsins. I kjölfariö hafa birst upp- lýsingar um hvarf verðmætra fommuna á undan- fórnum árum, og það vekur sérstaka eftirtekt að svo virðist sem forysta safnsins hafi hvorki látið mennta- málaráðherra síðustu ára vita af hvarfinu, né látið efna til nægilegra rannsókna á afdrifum munanna. Hvorutveggja kallar á gagngera úttekt á vinnubrögð- um og starfsemi safnsins. “ Úr forystugrein Alþ.bl. 14. júlí. Notagildi debetkorta „Ef kreditkortafyrirtækin hér era einhverjir frumkvöðlar í heiminum hvað varðar debetkortin, ættu þau aö láta viðskiptavini sína vita af því og að þau séu ekki eins áhrifaríkur greiðslumáti og þau láta í veðri vaka... Kortafyrirtækin og peninga- stofhanimar, sem þau eiga, hljóta aö fara aö sjá aö sér og stunda vandaðri vinnubrögð í kynningu og auglýsingum á debetkortunum. Þaö dugir ekki að tejja korthöfum trú um að notagildi þeirra sé meira og víðtækara en þaö í raun er, eða að gefa til kynna að SVO Sé.“ Úr forystugrein Timans 15. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.