Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1994, Page 24
36
MANUDAGUR 18. JULI 1994
Páll Pétursson.
Hefur raðað
inn
nýkrötum
„Mér kemur það ekkert á óvart
þó að upp úr sjóði í ráðuneytinu.
Utanríkisráðherra, húsbóndi
ráðuneytisins, hefur stýrt því
með sínum hætti. Hann hefur
raðað þar inn nýkrötum og hefur
þar ekki alfarið farið eftir hæfi-
leikum," segir Páll Pétursson í
Tímanum.
Gæti skapað námsleiða
,,Ég er mjög efins um að lengra
skólaár bæti námsárangur. Ég
óttast fremur að slík breyting
Ummæli
skapaði námsleiða og yrði til þess
að mörg ungmenni, sem kosta sig
sjálf til náms, yrðu að hætta
námi,“ skrifar Guðni Ágústsson
í kjallargrein í DV.
Búinn að finna lausnina
„Þetta er alltaf sama vandamálið.
Við spilum illa í fyrri hálfleik en
betur í þeim seinni. Ég held aö
ég sé búinn að finna lausn á
þessu. Okkur vantaði 15 mínútur
í viðbót til að klára dæmið,“ segir
Kjartan Másson, þjálfari Víkinga,
í DV.
Síðdegisfundur
með Uffe Elle-
mann-Jensen
Á Hótel Sögu í dag kl. 17.00
verður síðdegisfundur með Uffe
Ellemann-Jensen, fyrrverandi
utanríkisráöherra Danmerkur,
Fundir
og er yfirskrift fundarins Þróun
Evrópusambandsins og staða
Norðurlandanna. Verður Elle-
mann- Jensen aðalræðumaður
fundarins. Fundur skiptist í fiög-
ur sviö, Stækkun Evrópusam-
bandsins, Norðurlöndin og ESB,
Staða Danmerkur innan ESB og
Staða íslands.
Harvardprófessor
heldur fyrirlestur
Dr. Robert L. Selman, prófessor
við Harvardháskóla í Bandaríkj-
unum, heldur opinberan fyrir-
lestur í boði félagsvísindadeildar
í dag kl. 17.15 í stofu 101 í Odda,
Háskóla Islands. Fýrirlesturinn,
sem er á ensku, nefnist The Risky
Business, of Growing up Social.
Dr Selman er heimsþekktur fyrir
kenningar sínar og rannsóknir á
félagsþroska bama og unglinga.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Þaö vom fulltrúar tveggja sam-
taka.
Rétt væri:... fulltrúar tvennra
samtaka.
Gæturn tungimnar
Betur færi þó:... fulltrúum frá
tvermum samtökum. (Ath.: Ein-
tala af orðinu samtök (eítt sam-
tak, samtakiö) er ekki til.)
Þungbúið á Suðaust-
urlandi
Það er búist við fremur hægum
sunnan- og suðvestanvindum í dag.
Veðrið í dag
Fremur þungbúið verður og dálítil
rigning eða súld á Suður- og suðaust-
urlandi, skýjað og úrkomulaust vest-
anlands en á Norður- og Austurlandi
léttir til. Hiti verður á bilinu 10 til'
20 stig, hlýjast norðaustan til. Á höf-
uðborgarsvæðinu verður fremur
hæg suðlæg átt og smáskúrir eða
súld annað slagið. Hiti 11-14 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.17.
Sólarupprás á morgun: 3.52.
Síðdegisflóð í Reykjavík 14.21.
Árdegisflóð á morgun: 2.50.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 12
Egilsstaðir skýjað 14
Galtarviti skýjað 10
Keflavíkurílugvöllur súld 11
Kirkjubæjarklaustur rigning 11
Raufarhöfn skýjað 13
Reykjavík súld á síð. klst. 12
Vestmannaeyjar súld 10
Bergen léttskýjað 13
Helsinki skýjaö 17
Ósló skýjað 16
Stokkhólmur skýjað 16
Þórshöfn þokaí grennd 10
Amsterdam léttskýjað 17
Berlín skýjað 15
Chicago heiðskirt 20
Feneyjar þokumóða 23
Frankfurt þokumóða 20
Glasgow hálfskýjað 11
Hamborg skýjað 15
London léttskýjað 15
LosAngeles léttskýjað 17
Lúxemborg skýjað 19
Madríd heiðskírt 17
Malaga heiðskírt 22
Mallorca þokumóða 24
Veðrið kl. 6 i morgun
Kristinn Benediktsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Bláa lónsins
„Við erum alltaf að fá frægt fólk
hingað til okkar. Við eigum von á
að Stíng komi í Bláa lónið í sumar.
Þegar hann talaði um það að koma
hingað til lands nefndi hann sér-
staklega að fara í lóniö. Það er Ijóst
að lónið er vel kynnt erlendis og
þetta fræga fólk vill sækja Bláa lón-
Maðuj dagsins
ið. Oftast koma þessar stórstjörnur
með lítlum fyrirvara. Við höfum
fengið alveg frábæra kynningu er-
lendis og okkur er sagt aö það sé
meiri háttar kynning á Bláa lóninu
og íslandi sem birtist nýlega í New
York Tirnes," segir Kristinn Bene-
diktsson, aðstoðarframkvæmda-
sfióri Bláa lónsins.
„Mikil aðsókn hefur veriö í Bláa
lónið og hafa komíð rúmlega 1200
manns á einum degi. Það eru
komnir yfir 50 þúsund gestir i ár.
Tæplega 110 þúsund manns komu
í fyrra en 30 þúsund í viöbót komu
Benediktsson.
til að skoða lónið. Markið er sett á
130 þúsund gesti í ár í Bláa lónið.“
Að sögn Kristíns er smáaukning
í ár það sem af er en þó minni en
hann átti von á. Hann telúr ástæð-
una liggja fyrst og fremst í því að
vorið var mjög kalt og þá hafi ekki
komið eins margir Islendingar í
sólbað og í fyrra. „Þegar sólin skein
hér um daginn komu íslendingarn-
ir en það verður að vera sól og
þá skilar landinn sér. Aftur
á móti hafa útlendingamir skilað
sér í mun meiri mæli heldur en í
fyrra. Langstærsti fiöldinn sem
sækir Bláa lónið er Norður-
landabúar og siðan koma Banda-
ríkjamenn og Þjóöverjar."
Kristinn segir að það komi marg-
ir gestir í tengslum viö flug Flug-
leiöa frá Hamborg í gegnum Kaup-
mannahöfti en millilent er hér og
meðan farþegar, er ætla áfram,
bíða eftir flugi til Ameriku koma
þeir í lónið. Hann telur að með því
að bjóða farþegum að sækja lónið
í leiðinni þá eigi það eftir að fiölga
farþegum töluvert í þessum ferö-
um.
„Aðstaðan er orðin mjög góð hér
en við erum búnir að kaupa sól-
bekki og laga alla aðstöðuna hér í
takt við gestina. Það myndast ekki
þessar biðraöir núna þar sem viö
erum búnir aö breyta innganginum
i lónið. Gestirnir hafa tekið þessum
breytingum mjög vel.“
Ægir Már Kárason.
Myndgátan
Húsflugur
Fjórir leikir í 2. deild
í knattspymu
Nú er heimsmeistarakeppninni
i Bandaríkjunum lokið og eru
sumir örugglega fegnir en aðrir
sakna þeirrar speimu sem mynd-
aðist. Nú er augum beint að
íþróttir
knattspyrnunni hér heima og i
kvöld er það 2. deildin. Þar er
keppni hörð og spennandi, en
mörg og jöfn lið heyja þar baráttu
um sæti í 1. deild að ári og er langt
í frá að fióst sé hvaða liö það
verða.
Fjórir leikir fara fram í 2. deild-
inni 1 kvöld. í Neskaupstað fer
fram leikur Þróttar N. og Selfoss.
í Kópavogi taka heimamenn á
móti KA frá Akureyri. Reykja-
víkurliðin ÍR og Víkingur heyja
sína baráttu á ÍR-velIinum og
Leiftur frá Ólafsfirði tekur á mótí
Grindvíkingum. Leikirnir hefiast
allir kl. 20.00.
Skák
Nú eru fimmtíu ár liðin frá andláti
bandaríska sóknarskákmannsins Franks
Marshall sem alræmd árás í spænska
leiknum er kennd við. Frægasta leikflétta
Marshalls er gegn Levitsky, úr skák
þeirra í Breslau 1912. Marshall hafði
svart og átti leik í þessari stöðu:
8 I#
li i A
6 A w
4 *
3 ^ o ss 1
2 A A 1 A A A H*
ABCDEFGH
1. - Dg3!! og eftir þennan magnaöa leik
gafst hvítur upp. Hann verður mát eftir
2. hxg3 Re2, eða 2. fxg3 Re2 + 3. Khl Hxfl
og 2. Dxg3 Re2+ 3. Khl Rxg3+ er einnig
vonlaust.
Jón L. Árnason
Bridge
Evrópumót yngri spilara hófst á fóstu-
dagskvöldið og spilastaöurinn að þessu
sinni er bærinn Árnhem í Hollandi. Lið
íslands er skipað 6 spilurum; bræörunum
Ólafi og Steinari Jónssonum, Kjartani
Ásmundssyni, Karli O. Garöarssyni,
Magnúsi Magnússyni og Stefáni Jó-
hannssyni. Ragnar Hermannsson er fyr-
irliði hópsins. Vonandi verður gengi
þeirra gott á mótinu en sennilega er
óraunhæft að gera sér vonir um verð-
laun. Eitt af þeim liðum sem þykja sigur-
strangleg á EM-mótinu nú er lið Dana.
Það er skipað þeim Bruun, Ron, Kamp-
mann, Dall og bræðrunum Lars og Mort-
en Lund Madsen (það er greinilega al-
gengt að bræður spili saman í unghnga-
hði). Skoðum hér eitt spil sem kom fyrir
á EM yngri spilara árið 1970. í sagnhafa-
sætinu sat kunnur spilari, Knut-Aage
Boesgaard, þó að hann væri ekki jafn
þekktur þá og hann er nú. Lokasögnin
var þrjú grönd í suður og vestur hóf vöm-
ina með lauftvisti:
♦ 3
V 873
♦ KG109732
+ D8
* 1095
V Á964
♦ 6
* ÁG1053
♦ ÁDG72
V KD52
♦ Á5
+ K4
Boesgaard drap tíu austurs á kóng og sá
strax að hann varð að hitta á tígullitinn
(ef það var mögulegt) til þess að standa
spilið. í flestum tilfellum, þegar 4 háspil
em úti með drottningunni, toppa menn
tvo hæstu, nema eitthvað sérstakt bendi
til annarrar íferðar í litinn. Boesgaard
var fljótur að spila tígulásnum í öðmm
slag og sá að vestur var óeðlilega fljótur
að setja tíguláttuna. Hann ákvað að spila
upp á tilfinninguna og svínað gosanum í
næsta slag og stóð sitt spil. Samningurinn
var sá sami á hinu borðinu, 3 niður.
ísak örn Sigurðsson
V G10
♦ D84