Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
Vísnaþáttiir________
Páll Ólafsson
Páll Ólafsson fæddist á Dverga-
steini við Seyðisfjörð 8/31827. Hann
var sonur séra Ólafs Indriðasonar
er var prestur á Dvergasteini um
skeið en fluttist svo að Kolfreyju-
stað í Fáskrúðsfirði og þar ólst Páll
upp frá sex ára aldri. Snemma mun
Páll hafa farið að setja saman vís-
ur. Elsta vísa hans, sem varðveist
hefur, er talin ort 1835. Segir sagan
að Páll hafi gengið niður túnið á
Kolfreyjustað að vetrarlagi og fetað
svo aftur á bak í sömu spor heim
og falið sig. Var hans leitað og spor
hans rakin uns þau hurfu og hafði
fólk á orði að sveinn hefði orðið
uppnuminn. Um þetta orti hinn
átta ára piltur:
Uppnuminn fyrir utan garð
úti og niðri á fönnum
séra Ólafs sonur varð
syrgður af heimamönnum.
Þórunn systir skáldsins hélt eitt
sinn á skeifu, þá bamung, og vildi
reyna að brjóta hana. Kvað þá Páll:
Galin ertu góða Tóta,
get ég ekki betur séð,
þú vilt skeifu þessa bijóta
þínum litlu fingrum með.
Næstu vísu mun Páll hafa kveðið
undir predikun í Heydalakirkju.
Má af vísu þessari lesa að mönnum
hefur verið kennt að syndir þeirra
og yfirsjónir yrðu gerðar upp um
síðir. Vísan hljóðar svo:
Að heyra útmálun helvítis
hroll að Páh setur.
Ég er á nálum öldungis
um mitt sálartetur.
Páll orti og birti í Norðanfara
saknaðarljóð eftir Björn vin sinn
Skúlason. Þar læddist inn prent-
villuskratti þar sem orðmyndinni
sveini var breytt í sveimi.
Páll kvað þá um Norðanfara:
Ekki trúi eg aula þeim
oftar fyrir línum,
fyrst hann breytti sveini í sveim
í söknuðinum mínum.
Hina næstu vísu kvað Páll um
nýútkomna bók sem hefur fallið
honum miður en ekki er mér kunn-
ugt um hvaða kver þetta var. En
vísan hljóðar svo:
Það ég sannast segja vil
um sumra manna kvæði.
Þar sem engin æð er til
ekki er von að blæði.
Um þróunarkenninguna kveður
Páll
Nú er ekki á verra von,
villan um sig grefur.
Kristur apakattarson
kannske verið hefur.
Er Páll var umboðsmaður kon-
ungsjarða og sá um innheimtu og
útleigu jarða fylgdu því ferðalög og
erindrekstur margvíslegur. Var
Páli því nauðsyn að hafa jafnan
góðan reiðskjóta og hefur Páll haft
yndi af hestum sínum. Fræg er
þessi vísa um Rauð:
Ég hef selt hann yngra Rauð
er því sjaldan glaður.
Svona er að vanta veraldarauð
og vera drykkjumaður.
Einnig þessi vísa:
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Aldrei sofna ég sætan blund
svo mig ekki dreymi
að litli Rauður litla stund
lifi í þessum heimi.
Stöku þessa kvað skáldið er hann
sá hey í skóm konu sinnar:
Ég vildi að ég fengi að vera strá
og visna í skónum þínum
því léttast gengirðu eflaust á
yfirsjónum mínum.
Fjölda vísna kvað Páll til konu
sinnar Ragnhildar:
Ásýndin þín engilbjört
ef mér hyrfi sýnum
verða mundi sólin svört
sjónum fyrir mínum.
Einnig þessa:
Þótt eilífðin mér yrði að nótt,
augasteina mína
gefa skyldi ég fús og fljótt
fyrir návist þína.
Um efnahag sinn kveður Páll:
Utan bæði og innan lands,
eins á sjó og landi,
skuldir eru haldnar hans
hartnær óteljandi.
Ekki er ótrúlegt að kvöldvers
þetta sé kveðiö í blankheitum:
Undarlega er undir mér
orðið hart á kvöldin
seld því undirsængin er
á sýslu- og hreppagjöldin.
Til bakkusar konungs kveður
PáU:
Bakkusar að knjám ég krýp
klökkur daga og nætur.
Þar ég margan sopann sýp
og sofna við hans fætur.
Finnst þér lífið fúlt og kalt,
fullt er það með lygi og róg
en brennivínið bætir allt,
bara að það sé drukkið nóg.
Heimildir:
Páll Ólafsson Ijóömæli l-ll 1900-01
Páll Ólafsson kvæöi l-ll 1984
ísl. skáldatal
Í/ÁsímÁ
Eftir einn - ei aki neinn!
yUMFERÐAR
RÁÐ
Matgæðingur viloirinar
ítalskar lundir
- og avocado með rækjufyllingu
„Uppskriftina að avocado með rækjufyllingu fékk
ég úr írskri matreiðslubók en ég hef svolítið gaman
af að kaupa matreiðslubækur þegar ég er á flakki.
Þessar uppskriftir eru allar mjög auðveldar og þannig
á það að vera svo maður geti setið með fólki en sé
ekki að streða allan tímann," segir Kristín Halldórs-
dóttir, húsmóðir og læknaritari í Bolungarvík, sem er
matgæðingur DV að þessu sinni.
Avocadorétturinn er matbúinn á eftirfarandi hátt:
Tveir avocadoávextir afhýddir og skornir í tvennt,
steinar teknir úr. Látnir í eldfast mót og penslaðir
með smjöri og settir undir grillið við lágan hita á
meðan fyllingin er útbúin.
í fyllinguna fer einn laukur, tvö hvítlauksrif, 'A rauð
paprika. Skorið smátt og hitað í smjöri. Út í þetta er
bætt 'A dós af tómötum og 250 g af rækjum og látið
hitna. Athugið að sjóða ekki fyllinguna eftir að rækj-
urnar eru komnar út í, kryddað með salti og pipar.
Sett í avocadohelmingana. 2 dl af rjóma, sem rifnum
osti hefur verið bætt í, hellt yfir. Því næst er þetta
sett aftur undir grillið þar til það hefur brúnast örlítið.
Fljótlegur og einfaldur
„italskar lundir fékk ég í dönsku blaði en rétturinn
er mjög fljótlegur og einfaldur. Þetta er góður réttur
sem hægt er að búa til í hvelli og stinga honum síðan
bara í ofninn í 30 mín. áður en hann er borinn fram.
í réttinn fer eftirfarandi:
2-3 svínalundir
Salt og pipar
Skinka
Sinnep
Ostur í sneiðum
1 tsk. karrí
u.þ.b. 1,5 dl rjómi
u.þ.b. 1 dl tómatpuré
Lundimar skornar í þykk buff og bönkuð létt með
hendinni. Bufíin eru síðan krydduð og brúnuð á
pönnu, lögð í eldfast mót og ofan á hvert buff er lögð
skinkusneið, smurð með sinnepi, og þar ofan á ost-
sneiö. Karríið sett út í smjörið á pönnunni með rjóman-
um og tómatpuré. Hellt yfir bufíin og mótið sett í 225
gráða heitan ofn í 30 mín. Gott að bera fram með góðu
brauði, hrísgrjónum og salati.
Góður vínberjaábætir
„Uppskriftina að vínberjaábætinum fékk ég í danska
blaðinu Femina í gamla daga, á fyrstu búskaparárum
Hinhlidin
Er á sultarlaunum
- segir Guðrún Amardóttir, í slandsmeistari í 200 metra hlaupi
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Enga sérstaka.
Uppáhaldsleikari: Eggert Þorleifs-
son.
Uppáhaldsleikkona: Edda Björg-
vinsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Mariah Carey.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Rannveig Guðmundsdóttir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Sækjast
sér um líkir.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlynnt.
Hver útvarpsrásanna fínnst þér
best? Fer eftir því í hvernig skapi
ég er.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Enginn.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Sjónvarpið því ég hef
ekki myndlykil.
Uppáhaldssjónvarpsmaður?Auð-
vitað Bjarni Fel.
Uppáhaldsskemmtistaður: Það er
alltaf svo gaman alls staðar.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ár-
mann.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Að bæta mig í hlaup-
inu.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Keppa í 100 metra grinda-
hlaupi á Evrópumótinu sem fram
fer í Helsinki 7.-14. ágúst.
„Eg hafði nú svona hálft í hvoru
búist við því að sigra," segir Guð-
rún Amardóttir úr Ármanni sem
setti glæsilegt íslandsmet í 200
metra hlaupi á íslandsmeistara-
mótinu 1 frjálsum íþróttum sem
fram fór sl. helgi.
Guðrún er í íþróttafræði í Georg-
íu í Bandaríkjunum en á sumrin
vinnur hún á slysadeild Borgar-
spítalans. Hún á tvö ár eftir af námi
og segist að því loknu stefna að því
að koma heim.
„Ég verð hér þar til um miðjan
september en þá fer ég aftur út. Á
haustin eru bara æfingar en keppn-
istímabilið byrjar svo strax í vor.
Það er alltaf alveg feikinóg að gera
hjá mér úti.“
Fullt nafn: Guðrún Arnardóttir.
Fæðingardagur og ár: 24. septemb-
er 1971.
Maki: Engin.
Börn: Engin.
Bifreið: Blár Mitsubishi Colt, ár-
gerð '81.
Starf: í sumar vinn ég sem lækna-
ritari á slysadeild Borgarspítalans.
Laun: Sultarlaun.
Áhugamál: Fijálsar íþróttir.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þrjár.
Hvað fínnst þér skemmtilegast að
gera? Hlaupa, borða og sofa. í réttri
röö.
Guðrún Arnardóttir. DV-mynd JAK
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vakna af ljúfum blundi.
Uppáhaldsmatur: Súkkulaðikaka.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur i dag? Sally Gunn-
ell.
Uppáhaldstímarit: Bjarmi.
Hver er fallegasti karlmaður sem
þú hefur séð? Ekki er öll ást í and-
liti fólgin.
Ertu hlynnt eða andvig rikisstjórn-
inni? Andvíg.
Kristín Halldórsdóttir, húsmóðir og matgæðingur vik-
unnar.
mínum. Ég hef ekki notað hana mikið en hún er svolít-
ið óvenjuleg og öðruvísi en maður á að venjast. Réttur-
inn er auðveldur og smakkast mjög vel.“ í réttinn fer
eftirfarandi:
1 bolli vatn
2 bollar sykur
Soðið saman þar til það er nærri síróp. Þá er 1 msk.
af hunangi og rifnum sítrónuberki bætt í. Því næst
er þetta kælt. Út í þessa blöndu er síðan bætt 1 cl af
koníaki, 2 cl af góðum líkjör og safa úr A sítrónu ásamt
vínbeijum (1 bolla á mann) sem hafa verið skorin í
tvennt (steinarnir teknir úr). Látið vera í ísskáp þar
til næsta dag. Borið fram með sýrðum rjóma.
Kristín skorar á Philippe Ricart, handverksmann í
Bolungarvík með meiru, að vera næsti matgæðingur
DV en hún segir hann afar sniðugan og góðan kokk.