Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Page 14
14
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON oo ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÚLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Góð ferð hjá Davíð
Davíð Oddsson forsætisráðherra er kominn heim frá
fundi sínum með ráðamönnum Evrópusambandsins.
Ráðherrann lætur vel af ferð sinni og segist hafa gleggra
mat á stöðunni gagnvart Evrópusambandinu en áður.
Tvennt nefnir Davíð sem hann telur þýðingarmikið fyrir
íslendinga.
í fyrsta lagi hafa viðmælendur hans fullvissað íslenska
forsætisráðherrann um að stöðu okkar í evrópska efna-
hagssvæðinu sé vel borgið þótt önnur lönd hafi helst úr
lestmni. Samningurinn um EES heldur fullu gildi sínu
og það eina sem þarf að leysa er stofnanaþátturinn sem
nú leggst að óbreyttu með meiri þunga á Islendinga þar
sem þeir eru einir eftir sín megin. Þetta telur Davíð
Oddsson að verði leyst af hálfu ESB og að öðru leyti trygg-
ir samningurinn um evrópska efnahagssvæðið þá hags-
muni íslendinga sem að var stefnt með þeim samningi.
Davið nefnir í öðru lagi að íslendingar tapi engu þótt
umsókn um aðild sé ekki send að svo stöddu eða verði
send síðar. Aðild nýrra þjóða verður ekki á dagskrá hjá
Evrópusambandinu fyrr en eftir ríkjaráðstefnuna sem
hefst 1996 og lýkur ekki fyrr en eftir tvö til þrjú ár.
„Það er ljóst að engum tækifærum hefur verið kastað
á glæ og það er mjög mikilvægt því að það hefur borið
á ákveðinni hræðslu varðandi einangrun að undanförnu.
Hún á ekki við nein rök að styðjast,“ segir Davíð.
Nú er það að vísu svo að þeir sem eru talsmenn þess
að íslendingar sæki um aðild fyrr frekar en síðar halda
því fram að ísland eigi enn möguleika á að komast inn
í Evrópusambandið fyrir lok ríkjaráðstefnunnar og þeir
hafa ennfremur bent á að Evrópusambandið sé til við-
tals um að veita íslandi undanþágu frá þeirri megin-
stefnu bandalagsins að stjóm fiskveiða heyri undir það.
Þessi atriði, fiskveiðiréttindin, bar á góma í ferðinni
og það var einmitt einn af ávinningunum af fór forsætis-
ráðherra að greinilega mátti heýra á viðmælendum hans
að umsókn íslands yrði tekið með mikilli velvild og með
mun jákvæðari huga heldur en til að mynda umsóknum
frá þjóðum í Mið- og Austur-Evrópu. Forsætisráðherra
Belgíu, Dehaene, lét þau orð falla í þessari heimsókn
Davíðs Oddssonar að sérstaða íslands í fiskveiðimálum
kynni að verða metin þeim í hag og mætti þar styðjast
við fordæmi úr samningum EFTA-þjóðanna um landbún-
að á norðlægum slóðum. Utanríkisráðherra hefur gripið
þessi orð á lofti og telur líklegt eða að minnsta kosti
mögulegt að hagsmunir okkar í fiskveiðimálum verði
viðurkenndir í hugsanlegum samningum við ESB.
Þegar þetta allt er lagt saman geta íslendingar andað
rólegar. Bæði vegna þess að einangrun er ekki yfirvof-
andi og eins af hinu að með því að tengjast eða gerast
fullgildir aðilar að Evrópusambandinu eru ýmsir jákvæð-
ir möguleikar í stöðunni.
Að því leyti hefur för forsætisráðherra verið gagnleg
og tímabær. Línur hafa skýrst. Þær hafa skýrst á þann
veg að það er rétt hjá forsætisráðherra að staða íslands
með EES-samninginn 1 höndunum tryggir status quo og
hún hefur einnig skýrst að því leyti að með umsóknarað-
ild er engu fómað en möguleiki opnaður fyrir undanþág-
ur gagnvart fiskveiðimálum íslendinga. Ótti íslendinga
um að þurfa að afsala sér yfirráðum yfir fiskimiðunum
hefur einmitt verið ráðandi meðal þeirra sem lagst hafa
gegn umsókn og aðild.
Umræðan að undanfómu hefur verið gagnleg og hún
er beinlínis nauðsynleg áfram til að þjóðin myndi sér
skoðun á þeim kostum og leiðum sem í boði em.
Ellert B. Schram
Með handabandi Husseins Jórdaniukonungs og Rabins, forsætisráðherra ísraels, í Washington er bundinn
endi á 46 ára stríðsástand. Simamynd Reuter
Merkilegt
handaband
Það er vissulega sögulegt þegar
formlega er bundinn endi á 46 ára
stríðsástand, eins og gert var í
Washington á mánudag með
handabandi þeirra Husseins Jórd-
aníukonungs og Rabins forsætis-
ráðherra ísraels. En sættir byggj-
ast á gagnkvæmri virðingu og við-
urkenningu og enn er óralangt í
land.
Stríð er nú hins vegar óhugs-
andi, og hefur raunar verið síðan
Egyptar sömdu sinn sérfrið 1979
og viðurkenndu ísrael. Á þeim tíma
var Hussein konungur fyrstur allra
arabaleiðtoga til að slíta stjórn-
málasambandi við Egyptaland. -
Nú semur hann frið, en allt er
breytt frá 1979.
Fortíð
Jórdanía er strangt til tekið ekki
til nema á korti, þetta er svæði
austan árinnar Jórdan sem Bretar
bjuggu til eftir fyrri heimsstyrjöld-
ina fyrir Abdulla, bandamann sinn
úr stríðinu, sem var frá Heijaz í
Saudi-Arabíu og afi Husseins, nú-
verandi konungs, af ætt Hasemíta
sem eru beinir afkomendur Múha-
meðs spámanns.
í stríðinu 1948 (sem lauk formlega
á mánudaginn) hertóku Jórdaníu-
menn vesturbakka árinnar og
hálfa Jerúsalem og innlimuðu síð-
an formlega 1950. Þar við sat, allt
þar til fsraelsmenn hertóku allt
saman 1967, og síðan hefur þessi
fyrrum hluti Jórdaníu verið ísra-
elskt hemámssvæði, ásamt Aust-
ur-Jerúsalem.
Hussein afsalaði sér síðan öllu
tilkalh til vesturbakkans 1988 og
sagöi PLO vera einu formælendur
íbúanna þar, en áður vildu ísraels-
menn hta á Hussein sem málsvara
Palestínuaraba og Jórdaníu sem
KjaUarinn
Gunnar Eyþórsson
blaðamaður
ríki þeirra.
Nú em Arafat og PLO viður-
kennd yfirvöld á vesturbakkanum,
Palestínumenn viðurkenndir sem
þjóð og Hussein frjáls að semja við
Israel, eins og hugur hans hefur
lengi staðið til.
Framtíð
íbúar Jórdaníu eru innan við 4
milljónir og meira en helmingur
þeirra er Palestínumenn. Hið fyrir-
hugaða sjálfstjórnarríki Palestínu-
manna á vesturbakkanum og Gaza
(Gaza er í rauninni hluti af Sinai-
skaganum og langt frá vesturbakk-
anum) verður óhjákvæmilega í
nánum tengslum við Jórdaníu sem
fyrr, enda hefur Jórdanía eitt ríkja
gefið út vegabréf fyrir Palestínu-
araba.
Þar með er vel hugsanlegt að fyrr
eða síðar sameinist ríki PLO og
Jórdanía með einhverjum hætti í
ábyrgt og vinsamlegt nágranna-
ríki. Þetta er það sem ísraelsmenn
hafa lengi viljað en afneitun þeirra
á tilverurétti PLO setti allt í strand.
Forsenda fyrir þróun í þessa átt
er vitaskuld að enda formlegt
stríðsástand. Til langs tíma htið er
þetta handaband stórmerkur
áfangi í framhaldi af viðurkenn-
ingu ísraels á PLO. Sættir og hug-
arfarsbreyting er annað mál.
Fyrirsjáanlega opnast landa-
mærin milh Jórdaníu og vestur-
bakkans að verulegu leyti. Þar meö
verður ekki aðeins grundvahar-
breyting á samskiptum ísraels og
Jórdaníu heldur efhr þetta mjög
sjálfstjórnarsvæði PLO. Það skiptir
höfuðmáh því að þegar aht kemur
th ahs snýst deilan í Miðaustur-
löndum um Palestínuaraba og ríki
þeirra. Gunnar Eyþórsson
„Nú eru Arafat og PLO viðurkennd
yfirvöld á vesturbakkanum, Palestínu-
menn viðurkenndir sem þjóð og Huss-
ein frjáls að semja við ísrael eins og
hugur hans hefur lengi staðið til.“
Skoðanir aimarra
Alþingi tryggir stöðuna
„Ég fagna þvi, að við utanríkisráðherra erum
sammála um að framfylgja beri ályktun Alþingis um
tvíhhða samskipti okkar við Evrópusambandið á
grundvelh EES-samningsins, ef fjögur EFTA-ríki
ganga í ESB. Þar höfum við þá fast land undir fótum
og einnig viðmælendur okkar í Evrópusambandinu.
Þannig vill Alþingi tryggja stöðu íslands í evrópsku
samrunaþróuninni. Við erum í Evrópuhraölestinni,
þótt við sitjum ekki í vagni með ESB-þjóðunum.“
Björn Bjarnason alþm. í Mbl. 27. júlí.
Algjör klof ningur um ESB
„Hingað th hefur verið nokkuð góö samstaöa um
það að leyfa ekki erlendar fjárfestingar í sjávarútveg-
inum...Þess sjást nú merki aö þessi samstaða sé að
bresta. Friðrjk Sophusson fjármálaráðherra hefur
lýst því yfir skýrt og skorinort að hér þurfi að breyta
til og afnema þær hömlur, sem verið hafa á erlendum
fjárfestingum...Þaö blasir því við að ríkisstjórnin er
klofm í einu stórmálinu enn, og tengist þetta Evrópu-
málunum að því leyti að þetta er einn stærsti þrösk-
uldurinn fyrir inngöngu í ESB. Þetta undirstrikar
því þann algjöra klofning sem er í því máh.“
Úr forystugrein Tímans 28. júlí.
Mikilsverð af staða
„Nú hefur Davíð sem forsætisráðherra hins veg-
ar sýnt á sér aðra hlið og brugðist með festu og rögg-
semi við Evrópusýki utanríkisráðherrans.Ekki er
gott að átta sig á hvort þar ráða ferðinni stjómmála-
leg klókindi og skammtímaviðhorf eða alvarlegt end-
urmat. Frá sjónarhóh þeirra íslendinga sem andvíg-
ir eru aöild landsins að Evrópusambandinu hlýtur
þessi afstaða að teljast mikhsverö svo lengi sem hún
heldur velh innan Sjálfstæðisflokksins."
Hjörleifur Guttormsson alþm. í Mbl. 27. júh.