Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Side 18
18
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994
Dagur í lífl Þuríðar Sigurðardóttur hjá Umferðarráði:
Grannt fylgst með umferðinni
Þuriður Sigurðardóttir hjá útvarpi Umferðarráðs hefur haft í nógu að snúast fyrir verslunarmannahelgina. Þuriður
fer í þyrluflug um helgina og útvarpar þaðan. DV-mynd JAK
„Ég vaknaði við það á mánudags-
morgun að fyrsta klukkan á heimil-
inu hringdi rétt fyrir 7. Bóndinn
minn, Friðrik Friðriksson, fór fyrst-
ur á fætur og síðan synirnir Sigurð-
ur, sem er aö vinna á Þingvöllum,
og loks Erhng sem er í unglingavinn-
unni í fyrsta sinn.
Ég var löt, Friðrik pakkaði mér inn
í sængina, kyssti mig bless og lagði
til að ég tæki það rólega eftir anna-
sama og skemmtilega helgi með fjöl-
skyldunni í kofanum okkar sem er
rétt fyrir utan bæinn. Ég var að
syngja bæði föstudags- og laugar-
dagskvöld og eyddi mjög litium tíma
í kojunni, mátti ekki vera að því.
Ég vinn hlutastarf hjá Umferðar-
ráöi, fyrir utan fasta útsendingar-
tima hjá útvarpi Umferðarráðs. Ég
þurfti ekki að sinna útsendingu
þennan morguninn en nokkur verk-
efni þurfti ég þó að klára í tengslum
við undirbúning verslunarmanna-
helgarinnar en það gat beðið þar til
eftir hádegi. Ég lét freistast, leið inn
í draumalandið aftur við notalegar
kveðjur sonanna sem þeir hvísluðu
í gættina. Síminn og klukkan
hringdu samtímis kl. 10 og ég gerði
tilraun til þess að tala í klukkuna og
slökkva á símanum áður en ég áttaði
mig og stökk fram úr hressari en
nokkru sinni.
Mánudagar eru góðir dagar, öll
vikan framundan til að ljúka því sem
ekki náðist í síðustu viku. Eg fékk
mér glas af rabarbarasaft sem ég
hafði búið til á föstudaginn, lagaði
kafíi og naut einverunnar með helg-
arblöðin fyrir framan mig, en ég
hafði hvorki hlustað á fréttir né lesið
blöð um helgina. í sveitinni tek ég
af mér úrið, fer í gúmmítúttumar
mínar (sem eru framleiddar í Tékkó-
slóvakíu), er lúði og fíla það í botn.
Engar gleðifréttir
Það voru engar gleðifréttir sem
blöstu við mér þegar ég tók að fletta
blöðunum. Umferðarslysafréttir eins
og: Banaslys við Þórisvatn, Kona
slasast í árekstri, Maður á gjörgæslu
eftir bílveltu. Ég varö hrygg af því
að lesa þetta og mér varð hugsað tii
þeirra sem beijast fyrir lífi sínu á
sjúkrahúsunum og til þeirra sem
eiga um sárt að binda vegna þessara
slysa. Ég bið guð að hjálpa þeim.
Klukkan tifar og það er kominn
tími til að drífa sig í vinnuna í von
um að geta orðið að liði í þeirri við-
leitni Umferðarráðs að koma í veg
fyrir óþarfa slys, ekki síst núna þegar
mesta umferðarhelgi ársins fer í
hönd. Áður en ég fer hringi ég í
mömmu til að athuga hvort hún sé
nokkuð með harðsperrur eftir helg-
ina en hún var með okkur og reið
út eins og herforingi. Hún bara hló
að mér. Ég hringdi líka í vinkonu
mína sem er flugfreyja og er á leið
til Túnis en fékk bara samband við
símsvarann. Ég röflaði við hann
smástund og kvartaði yfir því aö
heyra ekkert í henni.
Fljótlega eftir að ég mætti í Borg-
artúnið hringdi Erling sonur minn
og bað um leyfi til að þess að baka
með vini sínum og starfsfélaga, hon-
um Dodda. Það átti að gera sér daga-
mun í unglingavinnunni sem er að
ljúka um þessar mundir og þeir
höfðu tekið að sér baksturinn á
brúntertu og skúffuköku. Jú, jú, það
ætti að vera í lagi, svaraði ég og áður
en ég komst að með skilyrði um góða
umgengni og passið ykkur á ofninum
og munið að slökkva á öllu þegar þið
eru búnir kom rullan: Við göngum
vel um og frá öllu, pössum okkur og
allt það.
Útvarpað
úr þyrluflugi
Þá var klukkan orðin 13 og kominn
tími til að snúa sér að vinnunni. Ég
fletti blöðunum aftur en nú í öðrum
tilgangi en fyrr. Nú voru þaö allar
auglýsingar og efni sem tengdist
skipulögðum útihátiðum um versl-
unarmannahelgina sem ég tók út til
að hafa til viðbótar þeim upplýsing-
um sem Uggja fyrir og hægt er að
nýta fyrir umferðarútvarpið.
Eins leitaði ég eftir því hvort eitt-
hvað mætti læra af þeim slysum sem
urðu í umferðinni og gæti orðið til
viðvörunar. Það verður fylgst grannt
með umferðinni héðan meira og
minna alla helgina og meðal annars
fer ég í þyrluflug og útvarpa þaðan.
Ég tók á móti nokkrum ábending-
um vegfarenda um hvað mætti betur
fara í umferðinni aö þeirra mati en
það er mikið um það að fólk hringi
í okkur með ábendingar og þá oft
með útvarpið í huga. Margir hringdu
út af auglýsingu sem haföi birst í
dagblöðum þar sem kom fram að það
tæki aðeins 3 tíma að aka á tiltekna
hátíð sem er í 316 km fjarlægð frá
Reykjavík. Þarna var beinlínis verið
að hvetja til hraðaksturs og Sigurður
Helgason fræðslufulltrúi tók að sér
að hafa uppi á þeim sem þarna aug-
lýstu til að fá þetta leiðrétt.
Hestaflutningar
austur á Skeið
Þegar þessum tiltölulega stutta
vinnudegi lauk kom ég við í búð,
keypti í matinn, fór heim og í hesta-
gallann því að við hjónin höföum
tekið að okkur að flytja hesta fyrir
Ella bróður austur á Skeið en hann
var á förum til útlanda til að kenna
Ameríkönum að sitja íslenska hest-
inn og var svolítið seinn fyrir. Okkur
var boðið upp á skúffuköku þeirra
Erlings og Dodda sem smakkaðist
upp á 10. Eg ætla ekkert að tala neitt
sérstaklega um fráganginn en þeir
voru alsælir og brosin þeirra glöddu
meira en margar skúringar. Viö
Friðrik skröfuðum margt á leiðinni
og meðal annars lögðum við drög að
verslunarmannahelginni sem ég
vona að verði slysalaus í umferðinni
og vil ég nota þetta tækifæri til að
hvetja alla vegfarendur til að fara
nú varlega og óska öllum lands-
mönnum góðrar helgar.“
Þetta var svo fallegt brúðkaup, Gunni. Við skulum ekki eyðileggja það Nafn:.............
allt núna.
Heimilisfang:......
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í Ijós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta fjölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyglisgáfu og þjálfar
hugareikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar, sem em í
verölaun, heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban-
væn þrá. Bækumar era gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú flmm breytingar? 268
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð sextugustu og sjöttu get-
raun reyndust vera:
1. Sunnar Karen Jónsdóttir,
Einholti,
755 Stöðvarfirði.
2, Elín Edda Sigurðardóttir,
Seljavegi 31,
101 Reykjavík.
Vinningamir verða sendir
heim.