Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994 Kvikmyndir_________ í hefndarhug Ein af þeim spennumyndum sem voru frumsýndar vestanhafs í sumar var Blown Away. í aöalhlutverkum eru þeir bræður Lloyd og Jeff Bridges, Tommy Lee Jones, sem sló svo rækilega í gegn í The Fugitive, og svo Forest Whitaker (The Crying Game). Þaö sem gerir þessa mynd kannski mest frábrugöna öörum hasarmyndum sumarsins að mati leikstjórans Stephens Hopkins er að Umsjón Baldur Hjaltason kostnaöi var haldiö i lágmarki þann- ig aö myndin kostaði ekki nema um fimmtung af nýjustu Amold Schwarzenegger myndinni True Li- es. Þeir hafi því ekki haft efni á því að sprengja allt sögusviðið í loft upp og orðiö að einbeita sér meira aö persónusköpun til að halda uppi spennunni. Hopkins ætti aö vita þetta manna best því hann leikstýrði á sínum tíma Schwarzenegger mynd- inni Predator 2 og svo Judgement Day. Sprengjusérfræðingar í Blown Away leikur Jeff Bridges sprengjusérfræöing hjá lögreglunni í Boston að nafni Jimmy Dove. Tommy Lee Jones leikur hins vegar Ryan Gaerity, geðveikan, írskan sprengiefnasérfræðing sem hefur nýlega strokið úr öryggisfangelsi í Norður-írlandi. Gaerity telur sig eiga sitthvað óuppgert við Jimmy Dove vegna atburðar sem gerðist í þátíð- inni. Hann hafði þjálfað Jimmy sem ungling í að gera sprengjur. Þegar Jimmy áttaði sig á því að hann væri að dragast inn í hryðjuverkastarf- semi ákvað hann að segja skilið við félaga sinn, flúði til Bandaríkjanna, tók sér nýtt nafn og nýtti þess í stað þekkingu sína á sprengjum lögregl- unni í hag. Gaerty fór hins vegar í fangelsi þangaö til 20 árum síðar að honum tókst að strjúka. Fjölbreyttur leikari Gaerty kemst til Bandaríkjanna þar sem hann kemur fyrir fjölda sprengna sem reynast aðstoðar- mönnum Jimmy Dove skeinuhættar. Markmið hans er þó að ná Jimmy Dove. Hann ætlar sér þó fyrst að drepa eiginkonu hans og stjúpdóttur, meðan á tónleikum Boston Pops stendur, en eiginkona Jimmys leikur einmitt með hljómsveitinni. Eftir- leikurinn er látinn áhorfendum eftir en flestir geta auðveldlega giskað á hver endirinn verður. Jeff Bridges er orðinn gamall í hettunni sem leik- ari. Þessi rúmlega fertugi leikari hef- ur komið víða við á leikferli sínum. Hann hefur leikið í myndum byggð- um á vísindaskáldsögum (Starman), morðmyndum (Jagged Edge), dramatískum myndum (Texasville), gamanmyndum (Thunderbolt and Lightfoot). Apamyndum (King Kong) og er þessa dagana að leika í kúreka- myndinni Wild BDl. Blown Away er raunar ein fyrsta stórhasarmyndin sem Jeff Bridges leikur í. Misjöfngæði En Jeff Bridges hefur eins og svo margir aörir leikarar leikið í mynd- um sem hann hefði betur aldrei gert. Hér má nefna The Last American Hero sem hann gerði 1973 og enginn man neitt eftir. Hins vegar stendur upp úr í ferli hans myndin The Last Picture Show en þá fékk Jeff Bridges sína fyrstu af þremur óskarstílnefn- ingum fyrir bestan leik í karlhlut- verki, þá aðeins tvítugur að aldri. Hins vegar hafa Destar myndir Jeffs Bridges ekki slegið í gegn 1 þeirri meiningu að þær yrðu mjög vinsæl- ar. SÍðasta myndin sem hann lék í undir leikstjórn Peter Weir, Fearless, var engin stórmynd en fékk góða dóma og þokkalega aðsókn. Það má segja að sú mynd segi nokkuð um stíl og efnisval Jeffs Bridges sem leik- ara. Hann afneitaði t.d. aðalhluverk- inu í The Firm sem síðan féU í skaut Tom Cruise. Stóð upp úr Jeff Bridges gaf hins vegar til kynna að hann vUdi leika í spennu- mynd ef handritið væri gott, ekki síst eftir að In Line of Fire með Clint Eastwood og svo The Fugitive með Ford Harrison komu fram á sjónar- sviðið í fyrra. Báðar myndimar vom vandaöar spennumyndir með tölu- verðum boðskap. „Eg held að ég sé svona gætinn við val á hlutverkum vegna þess að ég sá hvemig faðir minn festist í ákveðnu hlutverki eftir að hann lék í myndinni Sea Hunt,“ var nýlega haft eftir Jeff Bridges í blaðaviðtaU. „Honum tókst svo vel í hlutverkinu að aUir héldu að hann væri raunverulegur kafari sem hefði fengið þjálfun sem leikari." En hvers vegna valdi hann Blown Away? „Ég las öU handritin aö spennumyndum sem ég fékk upp í hendurnar en handritið að Blown Away virtist standa upp úr. Ef þú tókst burtu öU hasaratriðin var enn þá eftir bita- stæður söguþráður." Mikill hasar Það gekk einnig á ýmsu meðan á myndatökunni stóð. Það vom alltaf að koma fréttir frá upptökustaðnum eins og að þrýstikútár hefðu sprung- ið og margir orðið að fara á spítala, gluggar á húsum í grennd við upp- tökustaðinn hefðu látið undan vegna sprenginga sem notaðar voru við töku á sumum áhættuatriðunum og svona mætti lengi telja. Blown Away reyndist því vera sannkölluð hasar- mynd. „Sum atriðin vom reglulega erfið,“ var haft eftir Bridges. „Þú verður fyrir ýmsu hnjaski og þetta getur verið mjög sársaukafuDt. Þetta fær mig til að skDja og meta miklu betur hvað kempur á borð við StaD- one og Schwarzenegger verða að ganga í gegnum í myndum sínum." Nýmynd Jeff Bridges undirbýr sig aDtaf vel undir hlutverk sín. Fyrir Blown Away vann hann um tíma með sprengjudeild lögreglunnar í Boston og fór með henni í útköD. Hann hafði einnig með sér meðan á upptöku myndarinnar stóð sprengjusérfræö- ing frá lögreglunni í Los Angeles sem fylgdist með að hann gerði allt eins og átti að gera og sýndi einnig rétt viðbrögð. Það sama er hann að gera varðandi næstu mynd sem heitir Wild BiD. Hann er að lesa aDar heim- Ddir sem hann hefur fundið um BDl til að ná fram sannsögulegum anda í myndina. Jeflf Bridges er því talinn af félögum sínum ákaDega vandvirk- ur leikari sem leggur mikinn metnað í að gera sitt besta hverju sinni. Blown Away kemur eins og svo margar aðrar nýlegar myndir inn á ástandið í Norður-Irlandi. Þetta eru myndir eins og Patriotic Game og In the Name of the Father. Myndirnar leggja ekkert málefnalegt fram til lausnar vandans, heldur nota ein- göngu umgjörðina til aö skapa spennu í myndinni. Blown Away er því hvorki betri né verri en myndir í líkum dúr. Hún er spennandi, vel leDíin en skDur afskaplega lítið eftir þegar upp er staðið. Brim- bretta- brun Það er ef til viD að bera í bakka- fuDan lækinn að skrifa grein um kvikmyndir fyrir íslenska les- endur sem fjaDar um brimbretta- brun. Það er algerlega vonlaust að stunda þessa íþrótt hér vegna staðsetningar iandsins og veðr- áttu, en brimbrettabrun var upprunnið á Kyrrahafseyjum, en var nánast útrýmt af evrópskum trúboðum á 19. öld. Það var síðan endurvakið um 1920 á Hawau og er nánast trúarbrögð fyrir suma sem lDa og hrærast í brimbretta- bruni árum saman. Kvikmynda- framleiðendur höfðu Dtinn áhuga lengi vel á brimbrettabruni þar sem þeir töldu að svona grein höfðaði ekki til íjöldans. En Bruce nokkur Brown var ekki sammála. Hann eyddi árunum 1963 og 1964 í að ferðast um heim- inn til að ná á fllmu brimbretta- bruni þar sem aðstæður voru sem bestar. Hina einu sönnu öldu fann við Suður-Afríku og útkom- an varð heimildarmyndin End- less Sumrner, sem var frumsýnd árið 1966. Öllum- tD undrunar varð þessi mynd svo vinsæl að hún skDaði í kassann rúmum tveimur mDljörðum króna þótt kostnaður við gerð hennar hefði aðeins verið um 4 milljónir króna. Framhaldsmynd Nú eru liðin tæp 30 ár frá frum- sýningu og Bruce Brown er kom- inn á fuDa ferð við að undirbúa framhaldsmyndina Endless Sum- mer II. Á árunum 1958 til 1964 sendi Bruce frá sér mynd um brimbrettabrun árlega og notaði tekjurnar af hverri mynd til að gera þá næstu. Þarna mátti sjá myndir eins og Surf Crazy, Wat- erlogged og Slippery when Wet. Hins vegar hætti Bruce aö gera myndir um brimbrettabrun eftir að hann varð „moldríkur“ að hans eigin sögn á Endiess Sum- mer. Hann hefur aðeins gert eina mynd síðan og hún fjallaði raun- ar um mótorhjól og hét Any Sunday. Sú mynd fékk tilnefn- ingu til óskarsverölauna sem heimDdarmynd. Síðan þá hefur Bruce Brown unnið við gerð aug- lýsingamynda og sjónvarpsþátta með syni sínum Dana. Bruce er nú búinn að safna í kringum sig bestu brimbrettabrunsköppun- um og er tilbúinn í slaginn. Það fer Dtið fyrir efnisþræði í mynd- inni enda á hún líkt og forveri hennar að fjalla um ölduna og brimbrettabrun. Ef útkoman verður Dk og með Endless Sum- mer er hægt að mæla með fram- haldsmyndinni. Sum atriðin í fyrri myndinni eru ógleymanleg fyrir þá sem sáu hana á sínum tíma. Maður þarf svo sannarlega ekki að vera aðdáandi brim- brettabruns til að njóta myndar- innar. The En Jless Summi Endfess Summer.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.