Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1994, Qupperneq 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsíngar - Áskri ft - Dreifing: Sími 632700 Frjálst,óháð dagblaö FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1994. Kosningar líklegar eftir tvománuði Líkur á kosningum í lok september eða byrjun október hafa aukist veru- lega eftir þingflokksfund sjálfstæðis- manna í gær. Að fundi loknum lýsti Davíð Oddsson yfir því að hann mundi kveða upp úr í þessu máli af eða á innan tveggja vikna. Heimildarmenn DV segja að rökin fyrir haustkosningum séu einkum þau að Alþingi verði tæpast starf- hæft eftir áramót, ef kosið verður á réttum tíma, sem er í byrjun apríl. Kosningabarátta muni standa linnu- laust frá áramótum. Þá er fyrirhugað þing Norðurlandaráðs í Reykjavík í febrúar og þykir óheppilegt að halda það í miðri kosningabaráttu. Loks er __ það mat manna að ríkisstjórnin sé 'orðin svo ósamstæð í afstöðunni til ESB að hún geti ekki veitt nauðsyn- lega forystu um stefnumörkun í Evr- ópumálum. Ekki er talið útilokað að þverpóh- tísk samstaða geti tekist um að efna til kosninga í haust. Allir stjórnar- andstöðuflokkarnir hafa hvatt til haustkosninga. Ólafur Ragnar Grímsson sagði í morgun að Alþýðu- bandalagið hefði strax eftir sveitar- stjórnarkosningarnar hvatt til þess . að kosið yrði í lok september. Páll ^►Pétursson sagðist telja eðlilegra að kosið yrði í nóvember-í framhaldi af því að fjárlög yrðu lögð fram á Al- þingi. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir kvaðst vera sammála Davíð Odds- syni um að kosningar í lok septemb- er væru illskásta tímasetningin, ef haustkosningar yrðu ofan á. „En það er ekkert sérstakt sem kallar á kosn- ingar núna annað en samkomulagið innan ríkisstjórnarinnar sem farið hefur hríðversnandi,“ sagði hún. Veðrið um helgina: Vætusamt í dag og nótt verður samfelld rign- — -Ang um mestallt land. Á laugardag, sunnudag og mánudag er alls staðar búist við skúrum. Ástæðan er sú að töluvert djúp lægð verður yfir land- inu mestalla helgina. - sjá einnig bls. 38 DV kemur næst út þriðjudaginn 2. ágúst. Smáauglýsingadeild DV er opin til kl. 22 í kvöld. Lokað laugardag, sunnudag og .mánudag. Góða ferð og akið varlega! LOKI Hver veit nema maður bjóði sig bara fram í haustkosning- unum! Ég hef skoýmislegt tilmálannaaðleggja! Telur ATVR brjóta EES-samninginn Umboösaðih Bitburger-bjórs hef- ur skrifað tollstjóranum i Reykja- vík bréf þar sem hann krefst þess að fá að leysa út vöru umbjóðanda síns í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. í bréfinu, sem ritað er 19. þessa mánaðar og hafði enn ekki verið svarað í gær, kemur fram að í EES- samningnum sé skýrt kveðið á um það, og nýlega áréttað af eftirlits- stofnun EFTA, að ríkisvaldinu sé „eigi heimilt aö hafa á hendi einok- un á heildsölu í inn- og útflutningi á áfengum drykkjum". í ljósi þessa sé ljóst að þau gjöld, sem lögð hafi verið á í skjóli einok- unar rikisins á sölu og dreifingu áfengra drykkja hér á landi, séu ekki í samræmi viö samninginn. Þess vegna er farið fram á að tollayfirvöld kreflist einungis lög- mætra gjalda við úttekt affrísvæð- inu, það er gjalda samkvæmt toll- skrá. „Samkvæmt EES-samningnum má ég, sem heildsali og umboðs- maður á áfengri vöru, versla óháð íjármálaráöuneytinu að öðru leyti en því aö fylgja tohskrá eins og með aðra vöru. Þar með slepp ég bæði við liinn ólöglega verndartoli jafnt sem áiagningu ÁTVR sem er 45 prósent af summu vemdartolls, vörugjalds og cif-verðs. Þá kæmi ekki heldur vínandaálagið sem er 58 krónur á hvert prósentustig vín- anda umfram 2,25 prósent í hverj- um lítra,“ segir Þorstehm Halldórs- son, umboðsaðilinn sem hér um ræðir. Hann segist hafa beðið um skjóta afgreiöslu á erindi sínu vegna mik- ilvægis þess og um sé að ræða vöru með takmarkað geymsluþol. Ef tollstjórinn fallist á erindi bréfsins megi ÁTVR ekki skipta sér af neinni álagningu. Hins vegar megi : tollstjórinn innheimta það sem fjármálaráðuneytið hefur rétt til samkvæmt EES-samningnum í tollum og vörugjöldum. Ef álögurnar séu lúns vegar felid- ar niður treysti hann sér th að sefja bjórkassann til veitingahúsa senni- lega á um 1200 til 1600 krónur. Þvi geti hér verið um 53 til 65 prósenta verðlækkun að ræða. „Ef ekki verður tekið jákvætt í þetta tel ég að verið sé að brjóta á rétti mínum og ég mun fara dóm- stólaleiðina til að leita réttar míns. Hver segir að vín þurfi að vera dýrt? Það segir lúuti íslendinga, Norðmanna og Svía. En undrin gerast enn. Svíar vii-ðast vera að snúa af þeírri braut," segir Þor- steinn. Heyskapur hefur gengið vel að undanförnu um mestallt land. Hér heyjar Jóhann Jónsson í Sviðholti á Álftanesi á Bessastöðum en hann hefur túnið á leigu. Forsetabústaðurinn og kirkjan á Bessastöð- um blasa við. DV-mynd JAK Veðrið á morgun: Skúrirum mestallt land Á morgun verður austlæg átt á landinu, víðast kaidi en stinn- ingskaldi norðvestan til. Skúrir verða um mestallt land og hiti á bilinu 8 til 16 stig. Veðrið í dag er á bls. 60 Ollum sagt upp hjá AB Öllu fastráðnu starfsfólki Almenna bókafélagsins, AB, 10 manns að tölu, hefur verið sagt upp störfum. Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri AB, sagði við DV að hér væri um „eðh- lega“ varnarráðstöfun að ræða og einhverjir yrðu ráðnir aftur. Að sögn Friðriks verður allt gert til að ná mður kostnaði og grynnka á skuldum AB sem eru um 130 millj- ónir króna. Bókaklúbbar AB verða starfræktir áfram en bókaútgáfu stillt í hóf með áherslu á ódýrar en söluvænlegar bækur. Fram hefur komið í DV að ekki tókust samningar við Vöku-Helgafell um samstarf eða kaup á bókaklúbbi AB. Friðrik sagði að verið væri að leita að öðrum samstarfsaðilum. HM’95-höU: Reiknað næstudaga Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, segir ljóst eftir fund um byggingu íjölnota íþróttahúss í Laugardal að næstu daga muni tæknimenn borgarinnar, í samvinnu við fulltrúa Electrolux hér á landi, reikna út kostnað við byggingu hússins. Ellert segir málið alls ekki í höfn en lýsir yfir ánægju með þær viðræð- ur sem fram hafi farið. Hann segist hins vegar óttast að ýmsum erfiðleik- um sé háð að uppfylla þær arðsenús- kröfur sem fyrirtækið geri. Borgin hafi þó lýst því yfir að sömu skilmál- ar gildi um leigu hússins eftir HM ’95 og um leigu annarra íþróttamann- virkja. Ellert staðfesti að innlendur aðili hefði lýst yfir áhuga og vilja til að byggja hús ef samkomulag við Elect- rolux næðist ekki. Áætlað á Sighvat: Skilaðiframtal- inuofseint „Útsvarið var áætlað á mig þar sem framtalið barst einum degi of seint. Það er ástæðan fyrir þessum himin- háu tekjum. Þetta hefur hins vegar verið leiðrétt,“ segir Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra. Samkvæmt álagningarskrá Skatt- stofunnar í Reykjavík er Sighvati gert aö greiöa 586.063 krónur í útsvar vegna tekna ársins 1993. Þetta sam- svarar því að Sighvatur hafi haft 729 þúsund krónur í mánaðartekjur. Leiðrétt er útsvarið hins vegar um 310 þúsund, sem samsvarar því að tekjumar hafi verið um 374 þúsund á mánuði. Sjá bls. 2 ÞJÓÐHÁTÍÐ í VESTMANNAEYJUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.