Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1994 Stuttarfréttur Eyöni Eyðrd er orðin svo mikið vanda- mál í Afríku aö hún er farin aö ógna hagvexti. í álfunni. Hórumamm- an Heidi Fleiss segist saklaus af ásökunum um peninga- þvott í réttar- höldum um meintan rekst- ur hálaunaðra gleðikvenna. Woodstock Sala miða á 25 ára afmælistón- leikum Woodstock hátíðarinnar er mjög dræm og fjárhagslegur stuðningur við hátiðina er ekki lengur tryggur. JarðskjáHtar Jarðskjálfti sem mældist 4,8 Richterstig skók Kaliforníufylki í gær en upptökin mældust 130 km austan Los Angeles. Jerúsatem Yitzhak Rabin, forsætisráð- herra ísraels, lýsti því yíir að Jerúsalem veröi ávallt óskipt höf- uöborg gyðinga. Kókaírt Portúgalskir tollverðir fundu l ,4 tonn af kókaíni um borð í skipi frá Hondúras og taliö er að send- ingin sé frá Kólumbíu. LedZeppelin Robert Plant og Jimmy Page, fyrrum meölimir rokksveitarinn- ar Led Zeppelin, ætla að spila saman í tónlistarþætti hjá MTV í október. Feliibylur Öflugur fellibylur varð að minnsta kosti 36 manns að bana í Suður-Kóreu í gær. Baðst afsökunar Roman Herzog, forseti Þýskalands, bað Pólverja af- sökunar vegna þeirra þjáninga sem pólska þjóðín varð fyr- ir af hálfu nas- ista i síðari heimsstyrjöldinni. Sómalia Yfirmaður herstiómarinnar i Sómalíu varaöi við þvi að borg- arastyijöld gæti auðveldlega aft- ur brotist út í landinu. S-Afríka De Klerk, fjármálaráðherra í stjórn Nelsons Mandela, ber til baka allar sögusagnir um að hann hyggist hætta þátttöku í stjóminni. Sýriand Sýrlendingar höfnuöu beiðni ísraela ura friðarviðræður og sögðu aö ísraelar yrðu fyrst að sleppa höndum af herteknum svæðum. Sarajevo Bosníu-Serbar hafa óskað eftir að friöarviöræður um skiptingu landsvæöa í Bosniu verði aftur teknar upp. Glæpatíðni Tíðni glæpa hefur lækkað í fyrsta sklpti I 6 ár i London en ofbeldisárásum í kynferðislegum tilgangi heldur áfram aö fjölga. MiSljónamæringat Efnahagsástand hefur batnað mjög í TékklandL aöeins 5 árum eftir fall kommúnismans og einn af hveijum 5 Tékkum á eignir yfír2mil]jónirkróna. Reuter Utlönd „Skrattinn hittir ömmu sína“ 1 heimi stjamanna í Hollywood: Jackson í eina sæng með dóttur Presleys - brúðkaupið haldið á laun 1 sumar en ekki opinberlega staðfest fyrr en nú Jackson hefur verið umtalaður fyrir ást sína á börnum og sætt lögreglu- rannsókn vegna meintrar ofurástar á þeim. Þau mál hafa nú verið jöfnuð með dómsátt og fébótum af hálfu hans. Jackson er einn auðugasti maður Bandaríkjanna eftir langan feril sem poppsöngvari. Lisa Marie Presley er einnig vel fjáð en hún tók 150 milljón- ir dala í arf eftir fóður sinn Elvis. Hún á og tvö börn ffá fyrra hjóna- bandi með tónlistarmanninum Danny Keough. Þau skildu með hraði ívor. Reuter „Við viljum fá að vera í friði og vonum að svo verði,“ sagði Lisa Marie Presley, dóttir rokkkóngins, þegar hún tilkynnti opinberlega í nótt að hún hefði gengið að eiga stór- popparann Michael Jackson á laun í sumar. Undanfamar vikur hafa gengið sögur um samdrátt þeirra skötuhjúa en talsmenn beggja hafa þráfaldlega neitaö að þau hafi bundist tryggða- böndum. Nú hefur hún staðfest opin- berlega að brúðkaupið hafi farið fram fyrir ellefu vikum í „erlendu ríki“, eins og það var orðað í yfirlýs- Lisa Marie Presley hefur gengið að eiga Michael Jackson. ingunni. Talið er að þar sé átt við Dóminíska lýðveldiö en þangað fór Jackson í sumar. í Hollywood gleðjast menn mjög við þessar fréttir og hafa sérfræðingar í stjörnumálum á orði að nú hafi „skrattinn hitt ömmu sína“ því bæöi eru mjög umtöluð og hafa ekki ánun saman mátt hreyfa sig eitt fótmál án þess að vera undir vökulu eftirliti fréttamanna. „Ég elska Michael mjög mikið og hann mig,“ sagði í yfirlýsingimni og tekið var fram að til stæði að stað- festa sambandið með barneignum. Verð á olíu hækkar stöðugt: Óróinn í Nígeríu sprengir upp verðið Heimsmarkaðsverð á olíu er nú hærra en það hefur verið frá því í mars í vor. Sérfræðingar spá því að veröið fari enn hækkandi og veldur þar mestu að órói er mikill í Nígeríu og hefur það valdið því aö fram- leiðsla og útflutningur á olíu liggur þar að mestu niðri. Framboð á olíu er því með minna móti og stígur verð þar af leiðandi. Nígerískir starfsmenn við olíu- vinnsluna eru nú í verkfalli og sér ekki fyrir endann á þvi. Olíutunnan er nú seld á rúma 20 dali og nálgast senn að verða jafndýr og í lok árs 1992. Olíukaupmenn segja að verð- hækkunina nú megi að nokkru rekja til þess að olían hafi verið óeðlilega ódýr síðustu mánuði. Því hafi mátt búast við hækkun, jafnvel þótt vand- ræðin í Nígeríu bættust ekki við. Þeir spá því og að verð haldist hærra næstu mánuði en verið hefur, hvaö svosemgeristíNígeríu. Reuter Morðmál O.J. Siimpsons: Hvítur maður sást á morðstaðnum Vitni í máli bandaríska ruðnings- kappans og leikarans O.J. Simp- sons segist hafa séð hvítan mann við hús fyrrum eiginkonu hans um þær mundir sem hún var myrt ásamt ástmanni sínum. Vitnið kemur ekki fram undir nafni enda er um að ræða mann sem lifði af innbrotum í hús ríkra manna. Framburður vitnisins þykir styrkja stöðu Simpsons en hann heldur ákaft fram sakleysi sínu. Hann situr nú í varðhaldi vegna moröanna á konunni og ástmann- inum. Réttarhöld standa nú yfir í mál- inu í Los Angeles og vekja þau aö vonum mikla athygli. Simpson, sem er blökkumaöur, segir aö málatilbúnaðurinn gegn sér sé ht- aður af kynþáttahatri og að hann fái ekki réttiáta meðferð fyrir dóm- stólunum vegna litarháttar síns. Reuter O.J. Simpson hefur nú fengið óvæntan stuðning. Simamynd Reuter Göngugarpar ganga örna sinna á Everest Sigur hjá Karli Karl Bretaprins hafði sigur í öðrum pólóleik sínum á árinu. Leikið var til að afla fjár fyrir góð málefni en Karl er formlega hættur keppni i íþróttinni vegna meiðsla á hné. Hér tekur hann viö sigurlaununum frá friðri blóma- rós. Karl hefur jafna verið drjúgur viö að leggja góðum málum lið og tók nú fram pólókylfuna að nýju þrátt fyrir að læknar réðu honum frá því. Slmamynd Reufer „Það er engin hreinlætisaðstaða þarna uppi þannig aö þeir sem fara á fjallið verða að gera þarfir sínar á víðavangi. Saurinn eyðist ekki nema á mörgum árum og því er orðið óþrifalegt á toppnum," segir Charles Clarke, heilbrigöisráðgjafi hjá félagi breskra fjallaklifrara. Þar hafa menn vaxandi áhyggjur af úrgangi manna á Everest, hæsta fialli heims. Breskt fyrirtæki hefur boðist til að standa straum af kostnaði við að reisa salerni á toppnum. Umferð þar fer stöðugt vaxandi og þörfin fyrir salemi að sama skapi. Það nýjasta í ferðum á fjallið er að tvær norskar konur ætla þangað upp og leggja af stað í dag. Þær ætla að verða fyrstu norsku konumar til að klífa fjallið. Ekki fer sögum af hug- myndum þeirra um þrifnað í ferð- inni. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.