Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Blaðsíða 17
Síðustu dagar Skífumarkaðarins! Enn lækkar verðið t.d. á geislaplötum ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1994 Ingvi Þór Kormáksson Þetta er hans stíll að öllum líkindum og vel að verki staðið. Tómas átti mjög fallegt og melódiskt sóló í Haustlaufum og Björn kann það upp á sína tíu íingur. Lagið Völuspá eftir Björn lék gesturinn á altosax og gerði vel sem áður og verulegur kraftur var í blússwinginu hjá Halldóri og Tómasi. Svo tók við „Solar“ sem var þrælgott og sama má segja um „All the Things You Are“. í „Straight, No Chaser" greip Beaiissier í bassa- klarinett og í næsta lagi lék hann á óbó. Það var lagiö „Nugaes" eftir Django í nýrri hljómsetningu Daniels sem lék þetta hugljúfa lag dæma- laust vel. Lagið þar á eftir var trúlega úr smiðju franska gestsins og var það alláhugavert og íslenska tríóiö með augun límd við nótnablöðin. Alltaf er hressandi að heyra í einhverjum sem maður hefur ekki heyrt í áður, sérstaklega ef sá er nú jafn vel frambærilegur og Daniel Beaussi- er. Þegar gamlar lummur ganga í endumýjun lífdaganna enn einu sinni er það dæmi um að vel hafi tekist til. Attacker gítar- effektabox REYKJAVÍKUR Sviðsljós I hringiðu helgarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri opnaði sýninguna Listaskógur ungl- inganna á lokahátíð Vinnuskóla Reykjavíkur sem haldin var á fimmtudag- inn. Á sýningunni eru listaverk sem unglingarnir hafa unnið úr alls konar drasli sem búið var að henda á haugana. Krakkamir hengdu dótið upp á staura og máluöu síðan. Á myndinni sést borgarstjórinn mála sinn hluta af listaverkinu. Hún leyndi sér ekki sigurvíman hjá þessum ungu piltum úr Breiðholtinu þegar þeir unnu það afrek að vinna knattspyrnumót á milli flokka vinnuskól- ans sem haldið var á lokahátíð hans á fimmtudaginn. Þeir virtust ekki eiga í miklum vanda með að sigra á mótinu því þeir skomðu alls 19 mörk og fengu ekkert á sig. Strákarnir eru allir úr Hólabrekkuskóla í Breiðholti og eru 13-15 ára gamlir. Þeir heita: Sævar, Hallgrímur, Bjarni, Ari, Jón Þorkell, Jón Baldur, Hermann, Heiðar og Reynir. Úllen-dúllen-doff-hópurinn skemmti gestum bindindismótsins í Galtalæk með frábæmm skemmtiatriðum um helgina. Bibba á Brávallagötunni, Túrhilla og fleiri frægar persónur komu þar við sögu og kitluðu þau sannarlega hlát- urtaugarnar hjá mótsgestum sem alls voru um 5000. Menning Daniel Beaussier Frakkinn Daniel Beaussier er fjölhæfur blásari og lék listir sínar á hina ýmsu lúðra í Kringlukrá miðvikudagskvöldið 27. júlí. Hann gerði stuttan stans hér á landi að lokinni hljómleikaferö um Vesturálfu. Annars rekur Beaussier músíkskóla skammt frá París og hefur sent frá sér nokkrar geislaplötur. Var vel til fundið að fá þennan ágæta spilara til að taka nokkur lög með islenskum djassistum. Með honum léku Björn Thoroddsen á gítar, Tómas R. Einarsson á bassa og Halldór G. Hauksson trommuleikari. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt Tómas leika áður með þeim Gamma-bræðrum, Bimi og Halla. Ekki er hægt að segja annað en samvinna þeirra þriggja hafi borið góðan árangur þetta kvöld og var sjóðandi sveifla oft og tíðum. Byrjað var með Haustlaufum og lék Beaussier það á sópransaxófón; fór svona utan í lag- ið og ofan við það, spilaði ekki beint laglínuna heldur hékk svona hálfpart- inn utan í henni að hætti frjálsdjassara og ýmissa framsækinna spilara. Ingi Ragnar Helgason, forstjóri Brunabótafélagsins og stjórnarfor- maður VÍS hf., varð sjötugur sl. fóstudag. Ingi lauk stúdentsprófi frá MR 1945, lögfræðiprófi frá HÍ 1953, öðlaðist hdl. réttindi 1956 og hrl. rétt- indi 1964. Hann hefur gegnt mörgum embættum og störfum undanfarin ár og er nú eins og áður kom fram forstjóri Brunabótafélagsins og stjórnarformaður VÍS hf. Á mynd- inni sést Ingi ásamt forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, sem heiðr- aði hann með nærveru sinni á af- mælisdaginn, 29. júlí. LETT- SLOMPUÐ SPENNUSAGA, TILVi sölustað Þær Rakel Rut, Rut og Sonja voru hressar á lokahátíð vinnuskól- ans í Reykjavík á fimmtudaginn í Laugardalnum. Veðrið var mjög gott þennan dag og tókst hátíðin mjög vel. Um 2.200 unglingar fengu vinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur að þessu sinni og hefur fjöldinn aldrei infnmilrill IIÐ odyrari 1 askrilt rábært áskriftartílboð URVALSg L\.LÍLiuLLLLlLtL o.JltlrÖ Hljóðfæri, nótnabækur, geislaplötur, ofl. ofl. með allt að 60% afslætti Hinir einu og sönnu Pro-mark trommukjuðar 300 kr. Breiðar og mjóar þrælsterkar Kiondyke gítarólar úr leðri kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.