Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST 1994
33
Fréttir
Ölversvatn á Skaga:
Veiddu yfir
hundrað silunga
„Þetta var feikilega skemmtilegur
veiðitúr í Ölversvatn á Skaga, við
fengum vel yfir hundrað urriða og
bleikjur. Stærstu silungarnir voru
tvö og hálft pund,“ sagði Þorsteinn
Karlsson en hann var við vatnið
ásamt fleirum fyrir fáum dögum.
Ölversvatn á Skaga er eitt af feng-
sæfli vötnum á Skagaheiðinni þar
sem eru mörg góð veiðivötn.
Véiðivon
Gunnar Bender
„Þetta voru mest fiskar frá einu
upp í tvö og hálft pund. Það var
maðkurinn og flugan sem gáfu
okkur þessa veiði jafnt. Það er mik-
ið af fiski í vatninu og lækjum sem
renna á mifli þeirra. Það var eitt-
hvað búið að veiða af fiski áður en
við komum þarna til veiða. Vegur-
inn upp að vatninu er þokkalegur
en ekki vel fær,“ sagði Þorsteinn
ennfremur.
Þeir veiddu víða um verslunarmannahelgina ungu veiðimennirnir eins og þessir sem renndu fyrir fisk i Leir-
ársveitinni og árangurinn var ekki sem verstur, bleikja í matinn. Til þess var líka leikurinn gerður.
DV-mynd G.Bender
Rangárnar:
850 laxar á land
„Það eru komnir 850 laxar og
hann er ennþá 19 pund sá stærsti,
þetta eru 30-40 laxar á dag núna,“
sagði Þröstur Elliðason í gærkvöld.
„Það voru veiðimenn á svæði eitt
i fyrradag og þeir fengu 7 laxa, sá
stærsti var 17 pund og tók flugu.
Það er ekki hægt að kvarta yfir
neinu hérna núna, veiðin gengur
vel,“ sagöi Þröstur á bökkum Rang-
ánna.
Hofsá komin yfir
fjögur hundruö laxa
„Hofsá er komin með 410 laxa og
það er næstum 90 löxum minna en
á sama tíma í fyrra. Stærsti laxinn
er 22 pund,“ sagði Eirikur Sveins-
son á Akureyri er við spurðum um
Hofsá í Vopnafirði.
„Orri Vigfússon var að byrja með
erlenda veiðimenn í dag og þeir
eiga örugglega eftir að veiða vel.
Þetta eru 30 laxar á dag, sem veið-
ast núna, en ég held að það veiðist
yfir þúsund laxar í ánni þetta árið
í heiídina,“ sagði Eiríkur í lokin.
Tilkyiiningar Tapað fundið
Húsmæður í Kópavogi
Vegna forfalla eru nokkur sæti laus í
orlofsferð sem farin verður 12.-14. ágúst
um Kjöl og Sprengisand. Upplýsingar
veita Bima í síma 42199 og Olöf í síma
40388.
Tombóla
Þessar ungu stúlkur, sem heita Bergþóra
Magna Haraldsdóttir og Elín Steinars-
dóttir, héldu nýlega tombólu til styrktar
Rauða krossi íslands vegna hjálparsjóðs
Rúanda. Þær söfnuðu alls 1434 kr.
Sjóngleraugu töpuðust
Sjóngleraugu, dökk laxagleraugu, töpuð-
ust fimmtudaginn 28. júli sl. í snyrting-
unni í verslunarmiöstöðinni í Glæsibæ.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
672480. Fundarlaunum heitið.
wwwwwww
Þverholti 11 - 105 Reykjavík
Sími 91-632700
Bréfasími 91 -632727
Græni síminn: 99-6272
Staða þjóðréttarfræðings í utanríkisráðuneytinu er
laus til umsóknar. Launakjör eru samkvæmt kjara-
samningum opinberra starfsmanna. Umsókn ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðu-
neytisstjóra utanríkisráðuneytisins fyrir 8. ágúst nk.
Utanríkisráðuneytið
18. júlí 1994
Skóútsala
Nýjar vörur
Örfáir dagar eftir
30-70% afsláttur
RRskór JL
EURO SKO
Kringlunni 8-12 sími: 686062
I
Lokað
þriðjudag, 2. ágúst
Útsalan
hefst miðvikudag,
3. ágúst kl. 7.00.
Toppskórinn
Veltusundi v/Ingólfstorg
UTBOÐ
“i
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
verkið Álftanesæð, 1. áfangi.
Verkið felst í að endurnýja hlúta af aðveituæð fyrir
Bessastaðahrepp, milli Engidals og Garðaholts.
Æðin er 0300 mm stálpípa í 0450 mm plastkápu.
Heildarlengd er um 1200 m.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 28.
júlí 1994, gegn 15.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 16.
ágúst 1994 kl. 11.00.
hvr 76/4
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
verkið „Nesjavallavegur, vegmálun“.
Verkið felst í að mála miðlínur og marklínur á Nesja-
vallaveg og heimreið að Nesjavöllum. Lengd vega
er samtals um 25 km.
Verkið skal vinna á tímabilinu 15.-25. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 10.
ágúst 1994 kl. 11.00.
hvr 77/4
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 • Sími 2 58 00