Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1994, Page 32
jjp.
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
' ■ Si
Frjalst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 2. AGUST 1994.
Selfoss:
Undirskrifta-
söfnunfyrir
prestskosningu
Nokkrir íbúar á Selfossi hafa hafíö
undirskriftasöfnun fyrir því að fram
fari prestskosning á Selfossi. Prests-
kosningar voru afnumdar meö lög-
um fyrir fáum árum og hefur ósk um
prestskosningu aldrei komið fram
síðan fyrr en nú.
Ástæðan fyrir undirskriftasöfnun-
inni á Selfossi er sú að sóknarnefnd
bæjarins náði ekki að velja nýjan
prest í stað sr. Sigurðar Sigurðarson-
ar, sem tekið hefur biskupsvígslu
fyrir Skálholtsumdæmi, á fundi sín-
um síðastliðið fimmtudagskvöld.
AIls höfðu sex prestar sótt um brauð-
ið.
Eftir að sóknarnefnd hafði kosið
—,þrisvar voru tveir prestar jafnir með
7 atkvæði hvor, þeir sr. Gunnar Sig-
urjónsson og sr. Haraldur M. Krist-
jánsson. Þá ákvað sóknarnefnd að
setja úrslitavald um val á presti til
biskups og kirkjumálaráðherra. Eft-
ir þá ákvörðun hófst undirskrifta-
söfnunin.
Turku, Finnlandi:
Öngþveitiá
kvennaráðstefnu
Guörún Helga Siguxðardóttir, DV, Turku:
Öngþveiti myndaðist á hótelum og
nærhggjandi skólum í Turku í Finn-
landi þegar hundruð eða jafnvel þús-
undir kvenna komu þangað í gist-
ingu aðfaranótt mánudags og á
mánudagsmorgun vegna kvennaráð-
stefnunnar, Nordisk Forum. Stórir
hópar íslenskra kvenna biðu á götum
úti meðan verið var að greiða úr
öngþveitinu en síðdegis í gær var
loks búið að koma öllum konunum
fyrir. Aðstandendur ráðstefnunnar
höfðu ekki gert ráð fyrir því að svo
margar konur kæmu til Turku og
voru því vanbúnir að taka við þeim
öllum.
.. Talið er að rösklega 20 þúsund kon-
ur og karlar hafi verið viðstödd setn-
ingu ráðstefnunnar sem fram fór síð-
degis í gær. Eftir setningarathöfnina
snæddu margar af íslensku konun-
um saman kvöldverð.
NordiskForum:
GuðmundurÁrni
kætir konurnar
Guðmundur Árni Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra heldur hanastéls-
boð í dag fyrir íslensku konurnar
sem nú eru á kvennaþinginu í Turku
í Finnlandi.
Reiknað er með að kostnaðurinn
verði hátt í milljón krónur eða um
600 krónur á hverja konu.
LOKI
Hvað er meira við hæfi
á kvennaþingi
en hanastél?
Framboðsmál Jóhönnu:
Mun rjúfa
tengslin við
Alþýðuflokkinn
: Yfirgnæfandi: líkur eru á að: ,Ió-
hanna Sigurðardóttir bjóði fram
eigin lista í Reykjavík og á Reykja-
nesi í ntestu alþingiskosningum.
Samkvæmt heimildum DV mun
hún ekki fara fram á að framboðs-
listamir verði tengdir Alþýðu-
flokknutn moð Iistabókstöfunum
AA. Rætt hefur verið við
frammámenn í verkalýðshrcyiing-
urrni og óflokksbundið fólk varð-
andiþátttöku í framboði Jóhönnu.
Búist er við >'firlýsigu frá Jó-
hönnu um framboðsmál sín á
næstu dögum þegar hún lýkur ferð
sinni um Iandið. Meðal þeirra sem
standa að baki Jóhönnu í þessu Jóhanna Sigurðardóttir.
máli eru Ögmundur Jónasson,
Lára V. Júlíusdóttir, Hermann Ní-
elsson, Ólína Þorvarðardóttir, Þor-
lákur Helgason og Pétur Sigurðs-
son,
í morgun hóf Jóhanna liðskönn-
unarferð um Suðuriand með við-
komu í Hveragerði, á Selfossi,
Stokkseyri og Eyrarbakka. Hún
hefur hitt fjölda fólks á ferðum sín-
um undanfarna daga og fengið góð-
ar undirtektir. Heimildarmenn DV
segja að nokkurrar taugaveiklunar
gæti meðal forystumanna Alþýðu-
flokksins vegna þessara funda-
halda.
I gær mátti sjá hundruð íslenskra kvenna undirbúa og æfa leiksýningar, dans og söngva
meðan stallsystur þeirra undirbjuggu listsýningar á kaffihúsum og listasöfnum í borginni.
konur frá ASÍ undirbúa kabarett.
á götum úti í Turku
Á myndinni má sjá
DV-símamynd GHS
Veðriðámorgun:
Hlýjast
á Austur-
landi
Suðvestlæg átt, kaldi og dálítil
súld vestanlands en hægari og
víða bjartviðri í öðrum landshlut-
um. Hiti á bihnu 9 til 20 stig að
deginum, hlýjast austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Borgarstjórinn
Vinnuslys
íLaxfossi
ms.
Akranes:
Súkkulaði-
meðferð eftir
sundferð
Harður árekstur
í vesturbænum
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri og Hjörleifur Sveinbjömsson
blaðamaður voru gefin saman í
hjónaband af sr. Karli Sigurbjöms-
syni í Grasagarðinum í Laugardal í
gær.
„Þetta hefur nú staðið til lengi en
hefur dregist eins og stundum vill
verða með það sem maður ætlar að
gera,“ sagði Ingibjörg Sólrún í morg-
un. Hún og Hjörleifur hafa búiö sam-
an í 12 ár og eiga tvo drengi.
Hafnarverkamaður slasaðist í Lax-
fossi síðdegis í gær þegar hann ók
dráttarbíl um borð í skipið. Dráttar-
bíllinn rakst á fyrirstöðu og við það
kastaðist ökumaðurinn fram á stýr-
ið. Maðurinn var fluttur á slysadeild
og reyndist ekki unnt að taka skýrslu
af honum í gærkvöldi. Auk lögreglu
og sjúkraliðs kom Vinnueftirhtið á
staðinn til að kanna tildrög óhapps-
Unglingsstúlka missti meðvitund í
sundlauginni á Jaðarsbökkum á
Akranesi síðdegis í gær eftir langvar-
andi setu í heitum potti og gufubaði.
Vinkonu hennar sundlaði einnig en
hélt þó meðvitund. Báðar stúlkurnar
vom fluttar á sjúkrahúsið en fengu
að fara heim eftir rannsókn. Var
þeim sagt að hvíla sig og borða
súkkulaði og önnur sætindi til aö ná
upp blóðsykrinum. Að sögn sund-
laugarvarðar er ætíð nokkuð um það
að fólk dvelji of lengi í heitu pottun-
um eða gufubaðinu og rangli þá um
sundlaugarnar óstyrkum skrefum.
Harður árekstur varð á horni
Garðastrætis og Túngötu í gærkvöldi
og höfnuðu báðir bílarnir á horn-
húsi, mikið skemmdir. Ökumaður
annars bílsins slasaðist á höfði og var
hlúð að honum á tröppum rússneska
sendiráðsins þar til sjúkrabíll kom á
vettvang. Um var að ræða pitsuas-
endil sem fiýtti sér um of með veit-
ingarnar.
f
4
4
4
4
4
4
QFennei 14
4
Reimar og reimskífur
V*oulsen
SuAuríandsbraut 10. S. 680499.
L«TT«
alltaf á
Miövikudö^um
í