Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1994, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1994, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 7 Fréttir Miklir möguleikar fólgnir í fj arskiptalækningum: Stef nt að samteng- ingu spítala landsins „Á íslandi eru þegar sendar rönt genmyndir um síma milli Vest- mannaeyja og Landspítalans í Reykjavík og stefnt aö því að tengja fleiri staöi inn. Þeir læknar sem ég hef talað við á íslandi eru mjög áhugasamir um þessa tækni. Þeir nefna sérstaklega að þar sem mörg byggðarlög eru fámenn á íslandi og erfitt að halda uppi fullkominni þjónustu alls staðar geti fjarskipta- lækningar komið að mjög góðum notum,“ segir dr. James Logan, formaður samtakanna Telemedic- ine North America, í samtali við DV en hann hélt fyrirlestur á ráð- stefnu um hollustu og sjúkdóma í síðustu viku er fjallaði um fjar- skipti og læknishjálp. Logan starfaði um árabil sem einn af læknum geimfara NASA, Geimferðastofnunar Bandaríkj- anna, og er viðurkenndur læknir og sérfræðingaru á sviði geimvís- inda. Telemedicine einbeitir sér að því að nýta aðferðir geimferða- tækninnar í nútíma heilbrigðis- þjónustu. Logan segir að þar sem fullkomið ljósleiðarakerfi sé nú um allt land hægt að senda röntgenmyndlr um síma Dr. James Logan er formaður samtakanna Telemedicine North America. Samtökin einbeita sér að því að nýta aðferðir geimferða- tækninnar i nútíma heilbrigðis- þjónustu. DV-mynd Sveinn. ætti það að auðvelda og hvetja til beinlinusambands milli spítala og heilsugæslustöðva hérlendis. Ljós- leiðarakerfið megi nota í mun meira mæh og fyrir fleira en fjar- skiptalækningar. Kostnaðurinn við notkunina ætti þá að fara lækk- andi og hagkvæmni að nást. Tengja sérfræðinga við lækna Logan segir að í fámennari hér- uðum Bandaríkjanna sé við mikinn læknaskort að glíma. Fjarskipta- lækningar hjálpi í slíkum tilfellum. í Bandaríkjunum og Evrópu sé nútima fjarskiptatækni notuð til að tengja sérfræðinga á ýmsum sviðum læknisvísindanna, sem venjulegast vinna í stærstu borg- unum, við lækna sem starfa í minni borgum og bæjum. Tæknilega sé þetta framkvæmt með svokallaðri víxlverkandi myndbandstækni eða tölvutengingu. Notkunarmögu- leikar séu til dæmis myndsending- ar um síma á röntgenmyndum. Einnig bjóði tæknin upp á mikla möguleika með hjartalínurit og fleira. „Á minni stöðum hafa menn yfir- leitt útbúnað til að taka röntgen- myndir en ekki röntgenlækna til aö túlka myndirnar. Með nýrri tækni er hægt að senda röntgen- mynd í gegnum ljósleiðara sem síð- an birtist á tölvuskjá þar sem rönt- gensérfræðingar geta gert grein- ingu á myndinni. Fjarskiptalækn- ingar auðvelda flutning þekkingar sérffæðinganna til þeirra svæða þar þörfin er fyrir hendi,“ segir Logan. Röntgenmyndir símsendar Ólafur Kjartansson, sérfræðing- ur í myndgreiningu á Landspíta- lanum, segir að reynslan frá Vest- mannaeyjum sé góö. Smíðaðir hafi verið myndskannar og sett saman tæki sem í dag séu notuð til þess að senda myndir á milh. Tækin séu notuð þegar þurfi að fá svör við myndum fljótt. Hugmyndin sé að í framtíðinni verði komið hringnet í kringum landið þannig að minni staðir geti leitað ráða annaðhvort á Akureyri eða í Reykjavík. Heil- brigðisyfirvöld hérlendis fylgist með þessari þróun af talsverðri at- hygh. Nýsköpunarsjóðuriim: Eitt hundrað fengið vinnu Um eitt hundrað nemendur vinna nú að verkefnum á vegum Nýsköp- unarsjóðs námsmanna. Sjóðurinn hefur verið starfræktur i 3 ár og hef- ur nú í ár úr um 20 milljónum króna að spila sem fara til verkefna á hans vegum. Sjö aðilar leggja fé til sjóðs- ins, þrjú ráðuneyti, Reykjavíkur- borg, Hafnarfjörður, Kópavogur og Garðabær. Á vegum Nýsköpunarsjóðs fá námsmenn vinnu á sínu fræðasviði við verkefni sem uppfylla þau skil- yrði að vera nýsköpun á viðkomandi sviði. Stofnanir, háskólakennarar og fyrirtæki hýsa verkefnin, leggja th aðstöðu og efniskostnað. Sjóðurinn greiðir aðeins vinnulaun við verk- efnið og verða meðalútgjöld sjóðsins um 77 þúsund á mánuði fyrir hvern námsmann. Garðabær: Skemmdir á goifvelli „Það hlupu hér átta hross inn á golfvöllinn í morgun. Tvær braut- anna hér eru upptættar en viö náð- um að veija flatirnar. Það er óþo- landi að eigendur geti ekki gætt hest- anna sinna betur,“ sagði Hákon Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Golf- klúbbs Garðabæjar, í gær. Þetta er í þriöja skipti í sumar sem hross fara inn á golfvöllinn í Garðabæ en síðast skemmdist ein flötin verulega. Hringt var á lögreglu í morgun en starfsmönnum golfvallarins tókst að koma hestunum í girðingu. Lada Samara 1500, 92, 5 g„ 5 d„ Ijósblár, ek. 11.000. V. 550.000. Toyota Tercel 4x4 1500, 86, 6 g„ 5 d„ grænn, ek. 130.000. V. 360.000. Suzuki Swift 1000, 89, 5 g„ 3 d„ hvítur, ek. 66.000. V. 390.000. Lada Lux 1600, '93, 5 g„ 4 d„ Ijós drapp, ek. 5000. V. 500.000. Suzuki Swift 1000, '92, 5 g„ 3 d„ rauður, ek. 95.000. V. 630.000. Hyundai Sonata 2000, '93, sjálfsk., Honda Accord 2000, '86, sjálfsk., 4 Daihatsu Charade SG 1300, '93, 5 Daihatsu Charade 1300, '90, 5 g„ 4 MMC Lancer 1500, '91, 5 g„ 5 d„ 4 d„ vínrauður, ek. 53.000. V. d„ blár, ek. 109.000. V. 500.000. g„ 4 d.,grænn,ek. 4000. V. 940.000. d„ blár, ek. 30.000. V. 680.000. 1.250.000. brúnn, ek. 42.000. V. 980.000. VW Golf 1600,'87, 4 g„ 3 d„ hvítur, MMC Lancer 1500, '89, sjálfsk., 4 Ford F-150 4x4 V8 302,'89, 5 g, 2 MMC Colt 1300, 91, 5 g„ 3 d„ Lada Sport 1600,'89, 4 g„ 3 d„ Ijos- ek. 87.000. V. 430.000. d„ grænn, ek. 91.000. V. 670.000. d„ svartur, ek. 110.000. V. 980.000. grænn, ek. 48.000. V. 740.000. drapp, ek. 57.000. V. 360.000. Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar. Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga 10-14. SsMEaV NOTADIR BIIAR 814060/681200 SLHXJRI y\NDSBKAin' 12. LADA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.