Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1994, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 Afmæli Sigríður Jósefsdóttir Sigríður Jósefsdóttir saksóknari, Hraunbrún.38, Hafnarfirði, er fimmtugídag. Starfsferill Sigríður er fædd í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún er gagn- fræðingur frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1961 og stúdent frá öld- ungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð 1976. Sigríður lauk kandidatsprófi í lögfræði 1982 og varð héraðsdómslögmaður 1985. Sigríður var við ritarastörf hjá Félagi íslenskra stórkaupmanna og Hafsteini Sigurðssyni hrl. 1961^68, bankaritari í Verslunarbanka ís- lands l%9-79, fulltrúi hjá yfirborg- arfógeta í Reykjavík og fulltrúi hjá Guðmundi Ingva Sigurðssyni hrl. og Jónasi A. Aðalsteinssyni hrl. 1982-84. Hún var lögfræðingur í Verslunarbanka íslands og íslands- banka 1984-91, fulltrúi ríkissak- sóknara frá 1992 og var skipuð sak- sóknarifrál.júlísl. Fjölskylda Sigríður giftist 14.7.1974 Birgi Má Péturssyni, f. 11.12.1939, héraðs- dómara í Hafnarfirði. Foreldrar hans: Pétur Pétursson, d. 1977, bóndi og hreppstjóri á Höllustöðum í Svínavatnshreppi í A-Húnavatns- sýslu, og Hulda Pálsdóttir, kennari og húsfreyja. Systkini Sigríðar: Jónas Magnús, f. 26.4.1942, d. 19.4.1944; Sigurbjörn, f. 10.4.1946, starfsmaður Kaupfélags Ámesinga á Selfossi, hann á þijú börn með fyrrverandi sambýlis- konu sinni, Ragnheiði Ólafsdóttur; Markús, f. 10.7.1947, rafeindavirki hjá Pósti og síma; Ágúst, f. 8.8.1948, d. 12.8.1968. Hálfbróðir Sigríðar, sammæðra: Hilmar Sigurðsson, f. 4.3.1932, d. 17.12.1977, sjómaður, maki Ingibjörg Karlsdóttir, þau eignuðust fimm börn. Foreldrar Sigríðar: Guðni Jósef Kristinn Markússon, f. 11.12.1907, d. 27.7.1968, trésmíðameistari, og Guðríður Björnsdóttir, 17.9.1905, d. 21.9.1989, húsmóðir og verkakona. Þau bjuggu í Hafnarfirði. Ætt Jósef var sonur Markúsar Brynj- ólfssonar í Hafnarfirði. Systir Mark- úsar var Hallgerður Pálina, móðir Brynjólfs Jóhannessonar leikara. Móðir Markúsar og Hallgerðar Pál- ínu var Anna Markúsdóttir, smiðs í Hafnarfirði, Bjarnasonar. Móðir Jósefs var Sigríður Jósefsdóttir, b. á Hvaleyri við Hafnarfjörð og víðar, Sveinssonar, b. Eiríkssonar. Móðir Sigríðar var Kristin Einarsdóttir, spítalahaldara í Kaldaðarnesi, Hannessonar. Guðríður var dóttir Björns Jó- hannssonar, b. í Engigarði í Mýr- dal. Móðir Guðríðar var Sigríður Runólfsdóttir, b. í Skálmarbæjar- hraunum í Álftaveri, Gunnsteins- sonar. Meðal systkina Sigríðar voru Runólfur, langafi Finns Ingólfsson- ar alþingismanns, Þórunn, amma Þórs Vigfússonar, fyrrv. skóla- meistara á Selfossi, og Einar, faðir Þorleifs Einarssonar jarðfræðings. Móðir Sigríðar var Guðlaug Eiríks- dóttir en hún var fyrri kona Run- ólfs. Móðir Guðlaugar var Hildur Sigriður Jósefsdóttir. Gísladóttir. Sigríður og Már taka á móti gest- um á heimili sínu á afmæhsdaginn frákl. 17. Sigurður ísaksson Sigurðar ísaksson bifreiðasmiður, Lálandi 4, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Sigurður er fæddur að Ási í Holt- um í Rangárvallasýslu og ólst þar upp. Hann lærði bifreiðasmíði í Iðn- skólanum í Reykjavík og var í verknámi hjá Kristni Jónssyni vagnasmið. Sigurður tók sveinspróf 1957 og fékk síðar meistarabréf í bifreiðasmíði og bílamálun. Sigurður hefur rekið fyrirtækið Bifreiðabyggingar sf. frá 1962 ásamt Þorsteini Pálssyni og síðar einnig með Þorvaldi Hannessyni. Frá 1992 hefur Sigurður rekið fyrirtækið Pallhús sf. ásamt Karú ísleifssyni. Sigurður og eiginkona hans stund uðu bæði skotíþróttir með Skotfé- lagi Reykjavíkur og sátu í stjórn þess um árabil. Þau voru ennfremur í landshðinu í skotfimi á Norður- landamótunum 1967,1969 og 1973. Fjölskylda Sigurðurkvæntist 1.9.1957 Eddu Thorlacius, f. 30.9.1934, exam. pharm. Foreldrar hennar: Finnur Ólafsson Thorlacius, húsameistari og kennari við Iðnskólann í Reykja- vík, og Þórama Valgerður Erlends- dóttir, húsfreyja og síðar hótelhald- ari á Siglufirði. Seinni maður Þór- örnu Valgerðar: Sigurður Krist- jánsson, sparisjóðsstjóri á Siglu- firði. Börn Sigurðar og Eddu: Siguröur Valur, f. 25.8.1958, myndskreytir, kvæntur Rósu Ragnarsdóttur garð- yrkjufræðingi, þau eiga tvö börn, Daníel og Eddu, dóttir Rósu er Sig- rún; ísak Öm, f. 2.1.1960, blaðamað- ur á DV; Kristín Sif, f. 3.3.1961, hót- elrekstrarfræðingur; Finnur Orri Thorlacius, f. 25.12.1963, landafræð- ingur og markaðsfræðingur hjá IKEA, kvæntur Herdisi Sif Þor- valdsdóttur flugfreyju, þau eiga einn son, Sindra Snæ Thorlacius; Torfhildur Silja, f. 28.4.1971, starfs- maður Markó, gift Óskari Sæ- mundssyni, sölumanni hjá Esju hf. Systkini Sigurðar: Inga, f. 19.7. 1927, húsmóðir, gift Matthíasi Jóns- syni bifreiðastjóra, þau eiga tvö böm, Inga átti son fyrir; Eiríkur, f. 24.6.1931, fyrrv. útibússtjóri á Rauðalæk, kvæntur Vigdísi Stefáns- dóttur, þau eiga tvær dætur; Fríða, f. 16.1.1937, húsmóðir, gift Jóni Magnússyni, þau eiga tvær dætur. Foreldrar Sigurðar: ísak Jakob Eiríksson, f. 8.3.1899, d. 1.5.1977, bóndi í Ási og síðar útibússtjóri Kaupfélags Rangæinga á Rauðalæk, og Kristín Sigurðardóttir, f. 25.12. 1905, húsmóðir frá Selalæk. Þau vom búsett í Ási og Rauðalæk en Sigurður ísaksson. Kristín er nú búsett í Reykjavík. Ætt ísak var sonur Eiríks Jónssonar, snikkara og b. í Ási, og konu hans, Friðsemdar ísaksdóttur. Systkini Kristínar vom Gunnar frá Selalæk, þingmaður og ritstjóri Vísis, og Guðbjörg, húsmóðir í Reykjavík. Kristín er dóttir Sigurð- ar Guömundssonar, b. á Selalæk, oglngigerðar. Sigurður og Edda, sem verður sex- tug 30.9, taka á móti gestum á heim- ih sínu laugardaginn 10. september frákl. 19.30. Margrét A. Biörgvinsdóttir Margrét Auður Björgvinsdóttir skrifstofumaður, Vallarbraut 4, Hvolsvelli, er sextug í dag. Starfsferill Margrét er fædd á Bólstað í Aust- ur-Landeyjum og átti þar heima fram yfir fermingu. Hún stundaði nám í farskóla sveitarinnar. Margrét fluttist til Reykjavíkur vorið 1949 ásamt foreldram og systkinum. Hún stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík og vann m.a. í öskjugerð Soffíu Túb- als. Margrét flutti á Hvolsvöll 1955 og hefur búið þar síðan. Hún hefur starfað hjá Kaupfélagi Rangæinga við verslunar- og skrifstofustörf í wwwvwwwv ATH.! Smáauglýsing I helgarblað DV verður að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. Þverholti 11 - 105 Reykjavík Sími 91-632700 Bréfasími 91-632727 Græni síminn: 99-6272 yfirþijátíuár. Fjölskylda Margrét giftist 25.12.1959 Bjama Helgasyni, f. 29.5.1930, vélvirkja. Foreldrar hans: Helgi Bjamason, smiður og bóndi á Forsæti, og kona hans, María Jónsdóttir húsfreyja. Sonur Margrétar og Bjarna: Helgi, f. 10.4.1954, viðskiptafræð- ingur í Reykjavík, kvæntur Rögnu Bimu Baldvinsdóttur tannlækni, þau eiga tvö böm, Bjama og Ragn- heiði, sem bæði eru fædd 1985 á Sri Lanka. Hálfsystir Margrétar, sam- mæðra: Aðalheiður Kjartansdóttir, húsmóðir á Svanavatni í Austur- Landeyjum. Systkini Margrétar: Ingólfur, rafverktaki í Reykjavík; Ingibjörg, húsmóðir í Reykjavík; Baldur, dó ungur; Anna Steingerð- ur, dó ung; Ámý Vilborg, látin, húsmóðir og kennari á Hellu; Bald- vin Aðils, múrari í Mosfellsbæ; Filippus, viðskiptafræðingur á Hellu; Helga, dó ung. Foreldrar Margrétar: Björgvin Filippusson, f. 29.11.1896, d. 6.11. 1987, frá Hellum á Landi, bóndi á Bólstað og síðar starfsmaður Mjólkursamsölunnar, og Jarþrúð- ur Pétursdóttir, f. 28.3.1897, d. 16.3. 1971, húsfreyja, frá Högnastööum Margrét Auður Björgvinsdóttir. við Reyðarfjörð. Ætt Björgvin var sonur Filippusar Guðlaugssonar, f. 9.9.1850, d. 20.10. 1920, b. á Hellum á Landi, og Ingi- bjargar Jónsdóttur, f. 4.7.1851, d. 5.6.1924, ljósmóður frá Lunansholti á Landi. Jarþrúður var dóttir Péturs Sig- urðssonar, landpósts frá Tungu- haga á Völlum á Fljótsdalshéraði, og konu hans, Önnu Jónínu Ein- arsdóttur frá Giljum í Jökuldal. Margrét verður í persónulegu orlofi á afmæhsdaginn. Sigurður I. Sigurðsson, Grænumörk 5, Selfossi. Helga Einarsdóttir, Reynimel76, Reykjavík. Benjamín Eiríksson, Hringbraut 50, Reykjavík. Jóhanna Pétursdóttir, Dalbraut 21, Reykjavik. Jóhanna S. Þorsteins, Dalbraut 23, Reykjavik. Einar Valur Kristjánsson, Fjarðarstræti 9, ísafirði. Hann tekur á móti gestum i Hús- mæðraskólanum laugardaginn 20. ágústfrákl. 17. Hergeir Kristgeirsson, Birkivöhum 24, Selfossi. Hjördís M. Jóhannsdóttir, Skipholti 43, Reykjavík. ara 80 ára Guðbjörg Sigurðardóttir, Þangbakka 10, Reykjavík. Jónas Finnbogason, Aðalbraut 47, Raufarhöfn. Valgeir Einarsson, Nökkvavogi 29, Reykjavík. Hendrik Berndsen, Túngötu8, Reykjavik. PáU Sigurðsson, prófessor og for- seti Ferðafélags íslands, Hagamel 10, Reykjavik. Hann ererlendis. Guðbjörn Sævar, Grettisgötu 83, Reykjavík. Steinar Þórðarson, Hraunbæ 168, Reykjavík. Þorvaldur Einarsson, Hliðargötu 5a, Neskaupstað. Guðný Helgadóttir, Dúfnahólum 2, Reykjavík. Dagbjartur Jónsson, Álakvísl 106, Reykjavik. Helena Magnúsdóttir, Álfaskeiði 104, HafharfirðL Matthías Matthíasson, Litlagerði 9, Reykiavík. 60 ára Sigurður Ingvarsson, Grænuhhð 4, Reykjavík. Sigriður Elisabet Sæmundsdótt- Ir, Langholtsvegi 56, Reykjavík. Annora Kolbrún Roberts, Leiðhömrum 24, Reykjavík. Sigurjón Stefánsson, Faxabraut30, Keflavík. Anna Rebekka Hermannsdóttir, Sjónarhóh, Akureyri. Sigríður Jónsdóttir, Grundargerði 3e, Akureyri. Sigurpáll H. Garðarsson, Arnarhrauni 26, Hafharfirði. Huidís Ásgeirsdóttir, Selbrekku40, Kópavogi. Ásgeir Már Jakobsson, Víðihlíö 15,Reykjavík. Hannes Snæbjörn Sigurjónsson, Flyðrugranda 10, Reykjavík. Kolbrún Svavarsdóttir, Vailholti23,Selfossi. Viðar Már Matthíasson, Bláskógum4, Reykjavík. Stefán Haraldsson, Borgarvík 16, Borgarnesi. Guðrún Inga Tryggvadóttir, Barmahhð 50, Reykjavík. Valgerður A. Jóhannesdóttir, Silakvísl 27, Reykjavík. Elías Vigfús Jensson, Ásavegi 33, Vestmannaeyjum. Ævintýraferðir í hverri viku til heppinna áskrifenda DV! Askriftarsíminn er 63*27-00 Island Sækjum þaö heim!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.