Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 3 dv________________________________________________Fréttir Skilyrði gjafabréfs vegna Skriðuklausturs ekki uppfyllt: Óánægja með að húsið skuli ekki notað til menningarmála - ekki til peningar, segir menntamálaráðuneytið „Þessi mál hafa verið rædd og menn hafa gagnrýnt það hvernig þessu er háttað. Gagnrýnin hefur sprottið út frá þeim breytingum sem hafa orðið á notkun hússins, þetta hefur farið fyrir brjóstið á mönn- um,“ segir Kristófer Ragnarsson, ferðamálafulltrúi Austurlands á Seyöisfirði. Nokkur óánægja ríkir nú á Austur- landi, meðal annars í ferðaþjónustu, vegna þess aö á Skriðuklaustri hefur enn búsetu fyrrverandi starfsmaður Rannsóknastofnunar landbúnaðar- ins sem var bústjóri meðan þar var tilraunastöð. Menntamálaráðuneyt- ið hefur umráð yfir eigninni sam- kvæmt samningi sem gerður var 1987 en þar var tekið fram að hætti land- búnaðarráðuneytið tilraunastarf- semi að Skriðuklaustri skuh menntamálaráðuneytið taka við eigninni. I gjafabréfi frá 1948, sem undirritað er af Gunnari Gunnarssyni rithöf- undi og Franziscu Gunnarsdóttur, er tíundað með hvaða hætti skuli hagnýta eignina sem þau gáfu ís- lenska ríkinu til „ævarandi eignar“. Þar er sagt að reksturinn skuh vera þannig að til menningarauka horfi, t.d. með tilraunarekstri í landbún- aði. Þar verði byggðasafn, bókasafn, skjalasafn, listasafn, skóli, sjúkra- hús, hressingarhæli, barnahæli eða elliheimiU. HaUdór Blöndal landbúnaðarráð- herra segir að menntamálaráðuneyt- ið hefði lagt áherslu á það að fá yfir- ráð yfir eigninni þegar tUraunastarf- semi var hætt á vegum landbúnaðar- ráðuneytisins. Hann segist hafa séð fyrir sér að á staðnum yrði skóg- minjasafn. Bústjórinn með tak- markaðan ábúðarrétt „Ég sá það fyrir mér að það yrði skipulagður lystigarður á þessu svæði og þarna gæti verið útleiga á hestum. Þannig gæti staðurinn nýst tU ferðaþjónustu og lögö yrði vinna í að skipuleggja jörðina út frá þeirri forsendu. Þetta voru mínar hug- myndir en hreppsnefnd Fljótsdals- hrepps lagði áherslu á að jörðin nýtt- ist áfram tU hefðbundins búskapar. Bústjórinn fékk síðan takmarkaðan ábúðarrétt," segir Halldór. Menn frá menntamála- ráðuneyti austur „Aðalmálið er þaö að ekki hefur tekist að ná lendingu um nokkurt mál í sambandi við þetta blessaða hús. Þetta er allt í sátt og samiyndi við ráðuneytíð og það er verið að vinna að lausn. Það komu hér menn í haust frá ráðuneytinu tU viðræðna og ég á von á aö þeirra skýrsla liggi fyrir. Það hefur verið komið til móts við þær óskir sem fram koma í gjafa- bréfinu, m.a. með námskeiðahaldi fyrir bændur á haustin. Við höfum tekið á móti gestum hér og það kem- ur mikUl fjöldi fólks tíl að skoða stað- inn. Gallinn er hins vegar sá að við fáum engar tekjur af þessu og við þurfum að vinna fyrir okkur annars staðar," segir Þórarinn Lárusson, ábúandi á Skriöuklaustri. Þórarinn segist ekki hafa greitt leigu fyrir þau tvö ár sem hann hefur búið á staðnum eftir að tílraunastarf- seminni var hætt. „Ég sé um að greiöa hita og raf- magn sem er ansi há upphæð en reyndar breytileg eftír því hvað við erum sparsöm. Þá höfum við reynt að viðhalda lóð og húsi eftir því sem hægt er,“ segir Þórarinn. „Þaö er fullur vilji til þess innan ráðuneytisins að finna lausn á þessu máli í samráði við heimamenn. Við erum ekki búnir að sjá á því lausn hvar eigi að finna peninga til að standa undir rekstrinum. Það verður unnið í máhnu í haust og vetur og vonandi verður komin á því lausn næsta sumar,“ segir Hermann Jó- hannesson, deildarstjóri í mennta- málaráðuneytinu. rinn hýdui' Ú' GÓLFEFNA- i VEISLU afsláltur af öllum gólefnum í örfáa daga 8^9 - og um helgar Uka! Skeifunni 8 • S: 91-813500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.