Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 Fréttir GagnrýniSUS: - segir framkvæmdastjórinn „Mér finnst þessi gagnrýni ungra sjálfstæöismanna á Sinfó- níuhljómsveitina mjög ósann- gjörn og óréttmæt. Þaö er undar- legt að þessir ungu memi, sem væntanlega vilja láta taka sig al- varlega, skuli setja svona fram án þess aö kynna sér málin,“ seg- ir Runólfur Birgir Runólfsson, framkvæmdastjóri Sinfóniu- hljómsveitar íslands. Sinfóniuhljómsveitin er ein þeirra ríkisstofnana sem SUS gagnrýnir fyrir lélega íjármála- stjórn á liðnum áruih. Lista yfir slikar stofhanir var komið i hend- ur fjármálaráðherra í vikunni. Runólfur segir rétt hjá SUS að hfjómsveitin hafi farið fram úr fjárlögum á liðnum árum. Þegar hann hafi tekið við ffamkvæmda- stjóminni fyrir fimm árum hafi hljómsveitin fariö um 40 milljónir umfram fjárlög. Síðan þá hafi verið reynt að ná útgjöldunum niður. Það hafi tekist þrátt fyrir að hljóm8veitin hafi orðið að taka á sig ýmsar nýjar fjárskuldbind- ingar, til dæmis verðtryggingu á lífeyrisgreiðslum fyrrverandi starfsmanna, útgáfuá hljómdisk- um fyrir alþjóölegan markað og endurbætur á sviði Háskólabíós. „Við nálgumst núna fjárlögin meira og meira. Það finnst mér ekki bera vott um lélega fjár- málastjórnun. Að minu mati er Sinfónían eitt af best reknu ríkis- fyrirtækjum landsins,“ segir Runólfur. Keflavík-Njarðvik: Höfnin tekur 31 milljónar króna lán Ægir Már Kaiason, DV, Suðumequm: Hafnarsfjóm Keflavikur-Njarð- víkur hefur ákveðið að taka lán að upphæð 31 milljón króna. Alls bárust fjögur tilboð i lániö og var tilboð VÍB hagstæðast en hann bauð lániö með 5,75% vöxtum. Guðmundur Bjarnason al- þingismaður talinn liklegast- ur sem næsti varaformaður Framsóknarflokksins. Ingibjörg Pálmadóttir íhugar framboð til varaformanns. Siv Friðleifsdóttir segir að skorað hafi verið á sig að gefa kost á sér til varafor- mennsku og er að hugsa málið. Líkur eru taldar á að Páll Pétursson hætti formennsku I þingflokknum. Hann segir engar áskoranir hafa borist sér um að hann gefi kost á sér í varaformannssætið. Finnur Ingólfsson talinn lík- legastur sem næsti formaður þingflokks Framsóknar- flokksins. Ýmsar hræringar í gangi innan Framsóknarflokksins: Margir sýna vara- formennsku áhuga líkur taldar á að Páll Pétursson hætti sem þingflokksformaður Framsóknarflokkurinn hefur ver- ið sá stjórnmálaflokkurinn í landinu sem minnstur óróinn hefur verið í alveg frá því aö Steingrímur Her- mannsson var kjörinn formaður hans. Nú er Steingrímur hættur og þá virðist fólk taka að hreyfa sig inn- an flokksins. Formannsskipti í þingflokki DV hefur heimildir fyrir því að í þeim átökum sem urðu við for- mannskjör í þingflokki Framsóknar- flokksins í fyrráhaust hafi verið sam- ið um að Páll Pétursson yrði einn vetur enn og muni því hætta nú. Samkvæmt sömu heimildum er talið líklegast að Finnur Ingólfsson, þing- maður í Reykjavík, verði næsti þing- flokksformaður. Framsóknarmenn sem DV ræddi þetta við könnuðust við þetta en vildu lítið segja á þess- ari stundu. Varaformannsslagur Það er fleira sem hangir á spýt- unni. Halldór Ásgrímsson er nú tek- inn við formennsku í flokknum og varaformannsstarfið er laust. Það eru nokkrir sem hafa áhuga á því Fréttaljós Sigurdór Sigurdórsson embætti og hyggjast gefa kost á sér til þess. Guðmundur Bjarnason alþingis- maður er ritari Framsóknarflokks- ins. Hann hefur sagt í viðtali við DV að hann gefi nú kost á sér til vara- formannsembættsins. Flestir sem DV ræddi við telja Guðmund næsta öruggan um að hreppa hnossið enda er hann lítt umdeildur maður í flokknum. Nú hafa þær Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður og Siv Friðleifsdóttir sagt að þær væru ekki fráhverfar því að skoða það vel að gefa kost á sér. Framsóknarkonur hafa á síðari árum sótt mjög í sig veðriö en þeirra hlutur hefur ekki alltaf verið stór innan flokksins. Vel má vera að þær hafi afl til að fá konu kjörna í vara- formannsembættið að þessu sinni. Ingibjörg Pálmadóttir alþingis- maður sagði það rétt að hún væri að skoða þetta mál en hefði ekki tekið neina ákvörðun enn. „Margt getur gerst“ „Það er langur tími þar tíl flokks- þing okkar verður haldið. Það hefst þann 27. nóvember. Það getur og mun svo margt gerast fram að þeim tima að ég tel ekki rétt að segja neitt meira um þetta varaformannsmál að svo komnu máli,“ sagði Ingibjörg. Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, sagði að á sig hefði verið skorað að gefa kost á sér til varaformennsku í flokknum. Hún vildi ekkert segja um það á þessu stigi hvað hún muni gera, benti á að bæði Guðmundur Bjarnason og Ingi- björg Pálmadóttir væru inni í mynd- inni og því óvíst hvað hún gerði. Hún var þá spurð hvort hún gæfl kost á sér í 1. eða 2. sætið á lista flokksins í Reykjaneskjördæmi. Hún sagðist vera að velta því máli fyrir sér en hefði ekki enn tekið endanlega ákvörðun. Engar áskoranir borist Ýmsir halda því fram að ef Páll Pétursson hættir sem formaður þingflokks muni hann gefa kost á sér í varaformannsembættið. „Ég hef engan ádrátt gefið um það og engar áskoranir hafa mér borist enn,“ sagði Páll þegar þetta var borið undir hann. Verði Guðmundur Bjarnason kjör- inn varaformaður losnar embætti ritara flokksins. Telja má víst að það verði kona sem kjörin verður í það embætti ef karlar veröa bæði í for- manns- og varaformannssætunum. Það er því ekki sama kyrrð og ró innan Framsóknarflokksins nú og verið hefur hin síðari ár. ídag mælir Dagfari Rosalegur gróði Tilboð í jarðgöng undir Hvalfjörð voru opnuð í gær. Þar kom í ljós að öll tilboðin eru undir arðsemis- mörkum. Það þýðir að bygging ganganna borgar sig og þar af leið- andi ekkert því til fyrirstöðu að hefjast handa. Mikil ánægja ríkir með þessa niðurstöðu hjá Spöl hf. Talsmaður Spalar segir að vísu að eftir eigi að skoða tilboðin og athuga hvort þau séu í samræmi við útboðsgögn. Reyndar lét einn tilboðsgiaflnn bóka að ekkert hinna tilboðanna væri í samræmi við út- boðið og talsmaður Spalar segir að þetta verði skoðað á næstu tveim til þrem vikum, en að öðru leyti sér hann ekkert sem mælir gegn því að framkvæmdir hefjist strax í nóvember. Verður það ekki skilið öðruvísi en svo aö í sjálfu sér skipt- ir ekki máli hvort tilboðin séu rétt eða ekki eða hvort allt sé reiknað með, aðalatriöið er að það verður arður af þessum framkvæmdum og göngin munu lögö. Ef litið er á tölumar sem í boði eru sést að lægsta tilboðið nemur 2.8 milljörðum króna meðan arð- semisútreikningar hljóða upp á 3,8 milljarða króna. Allt fyrir neöan 3.8 milijarða er hreinn aröur. Það er þess vegna ekki nóg með aö til- boðin séu vel innan markanna. Það verður stór og mikill gróði af göngunum! Nú hefur það að vísu ekki verið upplýst hvemig arðurinn er reikn- aður út. En ef gert er ráð fyrir að landsmenn aki að meðaltali tvisvar í viku um Hvalfjörðinn og erlend- um bifreiðum er bætt við má ljóst vera að umferðin stendur algjör- lega undir þessum jarðgöngum. Svo að ekki sé talað um að ef ferð- um fjölgar í þijár í viku sem ekki er útilokað þegar komin eru göng um Hvaifjörðinn. Reykvíkingar munu áreiðanlega taka sunnudags- bíltúr upp á Skaga eða í Borgar- fjörð þegar þeir geta ekið undir Hvalfjörðinn í staðinn fyrir kring- um hann. Allt mun þetta tryggja arðsemí Hvalfiarðarganga. Annars vegar með því gjaldi sem innheimt er vegna akstursins í gegnum göngin og svo hins vegar vegna spamaðar- ins sem fæst af styttingu vega- lengdarinnar. Ef menn aka nógu oft um þennan veg og þessi göng spara þeir ómælt fé. Því oftar sem þeir aka því meira græða þeir. Og því oftar sem bílamir fara í gegn- um göngin því meiri verður gróði Spalar. Þá má heldur ekki gleyma því að þaö em margir aörir sem græða. Sementsverksmiðjan, sem hefur verið í vandræðum með að selja sementið, græðir á sölunni. Leiðin hjá Akumesingum og Borgfirðing- um til Reykjavíkur styttist að mun, sem þýðir gróði í minni bensín- notkun og viðhaldi á bílunum. Verslunareigendur og sjoppusalar græða á meiri umferð. Allir nema þeir í Botnsskála fá fleiri viðskipta- vini. Járnblendið, sem nú verður í alfaraleiö, getur selt aðgang að skoðunarferðum um verksmiðjuna og nágrennið. Hún græðir. Vega- gerðin sparar sér viðhald á vegin- um um Hvalfjörð. Hún græðir. Það koma ailir til með að græða alveg rosalega á þessum göngum. Verst er að geta ekki byrjað á framkvæmdum fyrr en í nóvember því að menn geta varla beðið eftir gróðanum og ekki veitir af honum. Menn hafa verið að rembast við veiða fisk og allir tapa. Menn hafa verið að reisa laxeldisstöðvar og allir tapa. Menn hafa verið að fara í þessa og hina atvinnustarfsemina og allir hafa tapað sínu. En svo kemur upp hugmynd um að byggja göng undir Hvalíjörðinn fyrir 3 til 4 milljarða og tilboðið hljóðar upp á 2,8 milljarða og allt í einu er menn komnir með pott- þétt gróðafyrirtæki. Eftir hverju er verið að bíða? Til hvers að eyða tíma í að skoða tilboðin þegar allt er klárt fyrir gróðann og arðinn af þessari gullnámu í Hvalfirðinum. Svo hafa menn verið að bölva Hvalfjarðarleiðinni! Hún kemur sér aldeilis vel. Ef Hvalfjörðurinn væri ekki svona langur heföi mönnum ekki dottið í hug að reisa göng undir fjörðinn og þá heföu menn aldrei uppgötvað þennan rosalega gróða sem fæst af göngun- um af því að fjörðurinn er svo lang- ur! Hvílkt lán og hvílík gæfa fylgir þessum göngum. Loksins, loksins höfum við eitthvað í höndunum sem gefur arð. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.