Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1994, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1994 9 » þ i i i Stuttarfréttir Utlönd BiII Ciinton Bandaríkjaforseti fagnaði vopnahléstillíynningu írska lýðveldlshersins. Bjartsýnogvarfærin Bresku blöðin voru bæði bjart- sýn og varfæiin í kæti sinni yflr vopnahléi IRA. Engaráhyggjur Albert Reyn- olds, forsætis- ráöherra ír- lands, sagði John Major, forsætisráö- herra Bret- lands, að hafa ekki áhyggjur af því að vopnahléð væri nokkuð annað en endanlegL Bandarisk : stjómvöld hafa hvatt herforingjana á Haítí til að hafa sig á brott hið fyrsta, ella verði þeir handteknir. Umberto Bossi, leiðtogi Banda- lags norðanmanna á Ítalíu, sakar forsætisráðherrann um aö und- irbúa skyndikosningar á laun. : Rússar eru famir með hersveit- ir sínar fró Þýskalandi eftir hálfr- ar aldar dvöl. Bandaríkjamenn buast við auknum straumi flóttamanna frá Kúbu þar sem veður fer skán- an(li- Reuter IRA lýsir yfír vopnahléi á Norður-írlandi: Tim dó ekki til einskis Vopnahléið, sem írski lýðveldis- herinn, IRA, lýsti yfir á Norður-írl- andi, hófst á miðnætti, daginn sem Tim Parry hefði átt að halda upp á fjórtán ára afmæhð sitt. En Tim var annað tveggja bama sem sprakk í tætlur í sprengjutilræði IRA í bæn- um Warrington í mars á síðasta ári. „Við höfum verið að biðja og vona að tilkynningin um vopnahlé yrði gefin út á afmælisdegi Tims, allt frá því að farið var að tala um að binda enda á sprengjuherferðina," sagði Wendy Parry, móðir Tims. Colin faðir hans, sem hefur barist ötullega fyrir friði á Norður-írlandi allt frá því sonur hans lést, sagðist líta svo á aö líf sonar hans og dauði hefði orðið sá hvati sem þurfti til að koma á vopnahléi. „Ég veit að Tim dó ekki til einsk- is,“ sagði Colin í grein í Daiiy Mirror. Kaþólikkar á götum Belfast fögn- uðu ákaft fréttunum um að IRA ætl- aði að binda enda á tuttugu og fimm ára vopnaða baráttu gegn yfirráðum Breta á Norður-írlandi. Þeir veifuðu írska þjóðfánanum og hrópuðu nafn Gerrys Adams, leiðtoga Sinn Fein, póhtísks arms IRA, hetju dagsins í þeirra augum. Leiðtogar mótmælenda, sem eru í meirihluta á Norður-írlandi, voru hins vegar ekki jafnkátir og vöruðu við því að þetta kynni að vera svika- logn í stríði sem heföi kostað 3169 mannslíf, nú síðast líf kaþólsks Gerry Adams. Slmamynd Reuter manns sem vígamenn mótmælenda tóku af lífi á þriðjudag. Bresk stjórnvöld kvörtuðu undan því að í yfirlýsingu IRA kæmi ekki nógu skýrt fram að vopnahléið væri varanlegt. Gerry Adams sagði hins vegar að IRA hefði lýst því yfir að IRA ætlaði að láta „algerlega" af hemaðaraðgerðum og væri það ná- kvæmlega það sem átt væri við. Bill Clinton Bandaríkjaforseti, öld- ungadeildarþingmaðurinn Ted Kennedy og systir hans, Jean Kennedy Smith, sendiherra Banda- ríkjanna í Dublin, tóku virkan þátt í því að koma vopnahléinu á enda hefðu Bandaríkjamenn af írsku bergi brotnir verið bakhjarl póhtísks veld- is Kennedys í fjóra áratugi. Reuter, NTB fyrir skólafólk Skrifborð nr. 56 140 x 48cm Kr. 8.710,- Skrifborð nr. 54 110 x 48cm Kr. 5.810,- Bádar stærdír til í hvítu og £urulít Húsgagnahöllin BÉLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199 EINSTAKT TÆKIFÆRI! Eigum nokkra Hyundai Pony, 3ja dyra sem við bjóðum á næstu dögum með ríkulegum kaupbæti að verðmæti 60.000 kr. Pony er með 1,3 lítra og 74 hestafla vél, styrktarbitum í hurðum, lituðu gleri og samlitum stuðurum. Honum fylgir • tölvustýrt útvarp og segulband, ásamt 4 hátölurum. Verð aðeins kr. 882.000 INNIFALIÐ: Vetrardekk áfelgum (auk sumardekkja) Bremsuljós í afturglugga Ljósahltfar Mottur Fuílur bensíntankur Skráning Auk þess 6 ára ryðvarnarábyrgð og 3ja ára verksmiðjuábyrgð. HYUnDHI ...til fmmtíöar 19S4 - 1994 ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.